Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Bamix töfrasproti
Verð 35.900 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjölmenni var í mótmælagöngu og við mótmæli
á Austurvelli í gær þar sem þess var krafist að
tveimur afgönskum fjölskyldum yrði ekki vísað
til Grikklands. Annars vegar er um að ræða ein-
stæðan föður með tíu og níu ára syni og hins veg-
ar einstæða móður með tólf ára son og fjórtán
ára dóttur. Mótmælendur héldu af stað frá Hall-
grímskirkju og fóru niður á Austurvöll þar sem
fólkinu sem á að vísa úr landi var sýnd samstaða.
Samstaða sýnd með flóttamönnum í miðbæ Reykjavíkur
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Mótmæltu brottvísun tveggja afganskra fjölskyldna
Magnús Heimir Jónasson
Veronika S. Magnúsdóttir
Meirihluti borgarráðs samþykkti
deiliskipulag Stekkjarbakka 73þ,
sem tilheyrir Elliðaárdal, á borgar-
ráðsfundi í gær.
Í deiliskipulaginu felst uppbygg-
ing á lóð sem spannar um 43 þúsund
fermetra, þar sem gert er ráð fyrir
bílastæðum, gróðurhvelfingu og
verslunarrými.
Málið fór fljótt í gegn þrátt fyrir
andstöðu margra gegn skipulaginu
að sögn Hildar Björnsdóttur, borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Hollvinasamtök Elliðaárdalsins
hyggjast knýja fram íbúakosningu
um málið. Hildur segist vonsvikin
yfir því að málið hafi verið afgreitt í
sumarfríi borgarstjórnar:
„Þá er sá hátturinn hafður á að
það er lítil umræða um málið en
undir venjulegum kringumstæðum
færi umræðan inn í borgarstjórn.
Það hafa sjaldan ef nokkurn tímann
áður komið fram svo margar nei-
kvæðar athugasemdir og umsagnir
um breytingar af þessu tagi. Það
merkilega með þessa flokka sem
kenna sig við umhverfisvernd er að
Umhverfisstofnun var ekki einu
sinni boðuð á fund og athugasemd-
um hennar ekki svarað,“ sagði Hild-
ur.
Komu til móts við umsagnir
Spurð hvort hægt hefði verið að
koma meira til móts við áhyggjur
íbúa og Hollvinasamtaka Elliðaár-
dals segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
borgarfulltrúi Viðreisnar, að það
hafi verið gert.
„Þetta er allt saman í gögnum
málsins. Það var farið í gegnum all-
ar ábendingar og umsagnir. Það var
farið í gegnum það í þrjátíu liðum og
komið heilmikið til móts við þær um-
sagnir sem komu frá öllum ábend-
ingaraðilum. En við erum alveg skýr
með það að við viljum gjarnan þróa
upp græna og skemmtilega starf-
semi á Stekkjarbakkanum,“ segir
Þórdís.
Hún býr sjálf á
svæðinu og segist
ánægð með að
Stekkjarbakkinn,
sem hefur verið
„hálfgerð eyði-
mörk“, verði nú
að skemmtilegu
svæði fyrir alla
sem er tengt nið-
ur í Elliðaárdal-
inn. Spurð hvort
hún telji að þessi breyting muni
skaða græna svæðið í dalnum svarar
hún því neitandi. „Bara alls ekki,
þetta skipulag fer bara ekkert ofan í
Elliðaárdal. Þetta er í algjörri sam-
fellu við það fallega svæði sem Ell-
iðaárdalurinn er. Þarna verður
garðrækt, matvistargarðar, gróður-
hús, kaffihús og góðir hjólreiða- og
göngustígar. Þetta er falleg upp-
bygging á svæði sem ekkert hefur
verið gert við í 30 ár og hefur verið í
órækt,“ segir Þórdís
Hafði miklar efasemdir fyrst
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri-grænna, segist hafa legið
lengi yfir málinu áður en hún tók af-
stöðu til deiliskipulagsins.
„Þetta er náttúrlega mjög umdeilt
mál og ég skil það mjög vel. Ég
hafði í fyrstu miklar efasemdir en ég
algjörlega lagðist yfir þetta og ég
get ekki séð eftir mikla yfirlegu,
bæði sviðsins og annarra, að þetta
stríði gegn t.d. aðalskipulaginu,
loftslagsstefnu borgarinnar eða
grænum svæðum hennar. Ég tel
þetta mjög framsýna viðbót,“ segir
Líf. Hún telur einnig að með þessu
muni fleiri sækja í náttúruna á
svæðinu en ella.
Borgarráð samþykkti breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbakka Hollvinasamtök Elliðaárdalsins
ætla að knýja fram íbúakosningu Sjaldan séð svona margar neikvæðar umsagnir, segir borgarfulltrúi
Uppbygging í Elliðaárdal samþykkt
Líf
Magneudóttir
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Hildur
Björnsdóttir
Stjórnvaldssekt upp á 3.798.631.250
krónur hefur verið lögð á þrotabú
WOW air. Um er að ræða langhæstu
sekt sem Umhverfisstofnun hefur
lagt á. Ísland er aðili að viðskipta-
kerfi Evrópusambandsins um losun-
arheimildir.
Sektin er lögð á þrotabúið vegna
vanrækslu flugrekanda á að standa
skil á losunarheimildum fyrir árið
2018. „Þú færð þessa risastóru sekt
ef þú stendur ekki skil á heimildum
þínum,“ segir Elva Rakel Jónsdótt-
ir, sviðsstjóri loftslagsmála og
græns samfélags hjá Umhverfis-
stofnun, við mbl.is.
Samkvæmt vottaðri losunar-
skýrslu flugrekandans WOW air var
heildarlosun ársins 2018 samtals
278.125 tonn af CO2. Fjárhæð sekt-
arinnar er lögbundin og samsvarar
100 evrum í íslenskum krónum
vegna hverrar losunarheimildar.
Selt fyrir gjaldþrotaskipti
„Það er fátt við þessu að gera.
Sala losunarheimildanna átti sér
stað áður en félagið var tekið til
gjaldþrotaskipta. Búið tók við
greiðslum vegna sölunnar,“ segir
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður
og annar skiptastjóri þrotabús
WOW air.
Forsvarsmenn WOW air seldu
losunarheimildir vegna útblásturs
frá starfsemi félagsins skömmu áður
en félagið fór í þrot. Andvirði söl-
unnar, sem nam um 400 milljónum
króna samkvæmt heimildum Við-
skiptaMoggans, átti að nota til að
standa straum af launagreiðslum
vegna marsmánaðar. „Við höfum
sagt við Umhverfisstofnun að lýsa
kröfu í búið og svo tökum við afstöðu
til hennar þegar að því kemur,“ bæt-
ir Sveinn við.
Hann segir að það verði tekið til
sjálfstæðrar skoðunar hvort þrota-
búið andmæli sérstaklega sektinni.
Spurður hvort íslenska ríkið yrði
stærsti kröfuhafi í þrotabúið ef sekt-
in yrði samþykkt segir Sveinn að
ríkið yrði með þeim stærri en ekki
stærsti kröfuhafinn. Skiptastjórar
hafi snemma fengið vitneskju um að
WOW ætti ekki losunarheimildir og
fjármunirnir hefðu runnið inn í búið.
Milljarðasekt á WOW
Stjórnvaldssekt lögð á þrotabú WOW air Íslenska ríkið
orðið einn stærsti kröfuhafinn í þrotabúið, segir skiptastjóri
Guðríður Eldey
Arnardóttir hef-
ur verið skipuð
skólameistari
Menntaskólans í
Kópavogi að því
er fram kemur í
tilkynningu frá
mennta- og
menningar-
málaráðuneyt-
inu. Guðríður er
skipuð að fenginni umsögn skóla-
nefndar Menntaskólans í Kópavogi
og verður hún skipuð til fimm ára
frá og með 1. ágúst 2019.
Guðríður hefur verið formaður
og framkvæmdastjóri Félags
framhaldsskólakennara frá árinu
2014 en hún mun segja starfi sínu
lausu í kjölfar ráðningarinnar.
„Ég geri ráð fyrir að varafor-
maður taki við. Ég er búin að
kalla stjórnina saman í næstu viku
og við munum setja fram hvað
skal gera næst. Svo geri ég ráð
fyrir að það verði boðað til kosn-
inga um nýjan formann,“ segir
Guðríður.
Guðríður
skipuð skóla-
meistari
Guðríður Eldey
Arnardóttir
Kosið verður um
nýjan formann FF