Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Íslenski matvælasprotinn Lava
Cheese hefur lokið við tæplega 100
milljóna króna hlutafjáraukningu.
Fjármagnið, sem safnaðist í gegnum
hópfjármögnunarfyrirtækið Fund-
erbeam, verður að sögn annars af
stofnendum fyrirtækisins, Guð-
mundar Páls Líndal, notað til að
sækja fram á markaði erlendis og til
að auka framleiðslugetuna.
Leiðandi fjárfestir í hlutafjár-
aukningunni var sænski frum-
kvöðullinn og fyrrverandi þingmað-
urinn Gunnar Axén.
Storknaður ostur
Lava Cheese er, eins og nafnið ber
með sér, ostasnakk sem líkist
hrauni. Hugmyndina fengu Guð-
mundur og félagi hans Jósep Birgir
Þórhallsson þegar þeir brögðuðu ost
sem hafði storknað á samlokugrilli.
Guðmundur segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé gömul saga
og ný að einföldu hlutirnir virki best.
„Við vorum ekkert að stefna á að
verða eitthvert risafyrirtæki en fólk
vildi meira og meira og við þurftum
að stækka og stækka til að anna
eftirspurn.“
Guðmundur segir að þegar þeir
Jósep tóku þátt í matarmarkaði
Búrsins hinn 10. desember 2016 hafi
allt orðið vitlaust, eins og hann orðar
það, og fjallað var um Lava Cheese í
kjölfarið á matarvef mbl.is. „Eftir
það vissum við að það væri kannski
eitthvert fyrirtæki að fæðast þarna.
Í framhaldinu gekk vel að koma vör-
unum inn í verslanir.“
Hann segir að nafnið Lava Cheese
hafi verið notað frá upphafi, en flög-
urnar verða til eins og hraun. Ost-
urinn bráðnar, lekur og storknar, og
áferðin líkist hrauni. „Það er heldur
ekki leiðinlegt utan landsteinanna að
hafa svona tengingu við Ísland.“
Spurður um vöruþróun segir Guð-
mundur að fyrsta varan sem gekk
vel hafi verið með chilibragði. Næst
prófuðu þeir félagar lakkrísbragð.
„Það gekk ekki nógu vel og við hætt-
um með það. Herskáir lakkrísunn-
endur brugðust illa við því og kvört-
uðu sáran. Ég ákvað því að senda
nærri allan lagerinn til þessa fólks til
að friða það,“ segir Guðmundur og
hlær.
Komið til Stokkhólms
Næst var ákveðið að framleiða
ostasnakk úr reyktum osti. Það gekk
betur en lakkrísinn að sögn Guð-
mundar, sérstaklega hjá Banda-
ríkjamönnum. Þá ákváðu þeir, vegna
mikillar eftirspurnar, að framleiða
ostaflögur úr hreinum cheddarosti.
„Við viljum ekki vera með of
margar bragðtegundir í aðalfram-
leiðslunni en munum í staðinn fram-
leiða flögur í ýmsum bragðtegund-
um í takmörkuðu upplagi. Þá kemur
lakkrísinn kannski aftur inn.“
Snakkið er komið inn í stórversl-
anir og sérverslanir í Stokkhólmi.
„Þetta er á byrjunarreit þar ennþá
en við erum í samningaviðræðum við
stóran dreifingaraðila í Skandinavíu
og viljum fylgja því vel eftir og sjá til
þess að öll gæðamál séu 100%. Pen-
ingarnir sem við fengum í gegnum
Funderbeam eiga að fara í þá mark-
aðssókn og styrkja framleiðsluna um
leið. Eins og staðan er í dag þurfum
við að halda aftur af okkur í mark-
aðssetningu til að ráða við eftir-
spurnina.“
Dreifa um alla Skandinavíu
Hraun Stofnendurnir Jósep Birgir Þórhallsson og Guðmundur Páll Líndal.
Lava Cheese fékk inn 100 milljónir í hlutafé í gegnum Funderbeam Stofnend-
urnir áfram með meirihluta Fyrrverandi þingmaður og frumkvöðull fjárfesti
Ostur
» Áætlað er að 220 þúsund
Lava Cheese-öskjur seljist á
þessu ári á Íslandi.
» Velta fyrirtækisins mun tvö-
faldast á þessu ári frá fyrra ári.
Árið 2018 tvöfaldaðist veltan
frá árinu 2017.
» Ráða bara flóttamenn.
sem voru eigendur Valitors á tíma
brotsins. Greiðslan skiptist þeirra á
milli.
Forsögu framangreindrar
greiðslu má rekja aftur til ársins
2011, þegar Datacell og Sunshine
Press Production voru að afla fjár
fyrir WikiLeaks. Á þeim tíma var
WikiLeaks að fjalla um umdeild
mál í Bandaríkjunum, og Valitor,
sem er með samninga við stór
fyrirtæki þar í landi, var beitt
þrýstingi til að loka á þjónustuna. Í
kjölfarið rauf Valitor greiðslugátt-
arþjónustu við fyrirtækin og var af
þeim sökum stefnt af Datacell og
Sunshine Press Production. Þjón-
usturofið var talið ólögmætt í dómi
héraðsdóms, en til stóð að áfrýja
honum. Nú er hins vegar ljóst að
ekkert verður af því.
Svo virðist sem fréttirnar hafi
lítil áhrif haft á gengi hlutabréfa
Arion banka, eiganda Valitors.
Verð bréfanna hélst óbreytt í gær.
Leiða má líkur að því að fjárfestar
hafi í talsverðan tíma verið undir
það búnir að til sambærilegrar
greiðslu kæmi, hvort sem það væri
vegna samkomulags eða sökum
dómsúrskurðar.
Valitor er nú í miðju söluferli en
ráðgert er að því ljúki síðar í mán-
uðinum.
Að undangengnu hagsmunamati
og með það fyrir augum að eyða
óvissu ákvað stjórn Valitors að
ganga frá samningum við Datacell
og Sunshine Press Production, út-
gáfufélag WikiLeaks. Það var gert
í stað þess að áfrýja dómi héraðs-
dóms til Landsréttar. Samkomu-
lagið felur í sér greiðslu 1,2 millj-
arða króna í skaðabætur, sem er sú
upphæð sem Héraðsdómur Reykja-
víkur hafði dæmt Valitor til að
greiða. Ljóst er að greiðslan er
talsvert fjárhagslegt högg fyrir
Landsbankann og Arion banka,
Valitor greiðir rúman milljarð króna
Gengu frá samkomulagi um greiðslu
skaðabóta til að eyða allri óvissu
Valitor Fyrirtækið mun greiða rúm-
an milljarð króna í skaðabætur.
● Orkuveita Reykjavíkur skráði í gær
fyrsta græna skuldabréfaflokk sinn á
markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær
skuldabréf. Verðmæti skuldabréfa-
flokksins er um 7,5 milljarðar króna að
nafnvirði og er til 36 ára. Fyrsta útgáfa
flokksins var gefin út 18. febrúar sl., en
OR hyggst halda áfram að gefa út
skuldabréf í flokknum næstu ár. Við út-
gáfu bréfanna fylgdi OR grænum
ramma sem tryggir að fjármagnið sem
fæst við útgáfuna verði nýtt í umhverf-
isvæn og samfélagslega ábyrg verkefni.
Haft er eftir Bjarna Bjarnasyni, for-
stjóra OR, í tilkynningu sem Orkuveitan
sendi frá sér í gær að mikil ánægja sé
með viðtökur útgáfunnar. Þá virðist
sem mikil eftirspurn sé eftir bréfunum
meðal fjárfesta.
Fyrstu grænu skulda-
bréf OR skráð á markað
5. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.13 125.73 125.43
Sterlingspund 157.37 158.13 157.75
Kanadadalur 95.49 96.05 95.77
Dönsk króna 18.93 19.04 18.985
Norsk króna 14.614 14.7 14.657
Sænsk króna 13.434 13.512 13.473
Svissn. franki 127.05 127.75 127.4
Japanskt jen 1.1617 1.1685 1.1651
SDR 173.31 174.35 173.83
Evra 141.3 142.1 141.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.5458
Hrávöruverð
Gull 1425.1 ($/únsa)
Ál 1754.5 ($/tonn) LME
Hráolía 64.8 ($/fatið) Brent
Landsbankinn og Landsbréf hafa
ákveðið að kaupa svokallaða UFS-
greiningu af fyrirtækinu Reitun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
bankanum.
Greining af þessu tagi er til þess
gerð að leggja hlutlægt mat á um-
hverfislega og félagslega þætti sem
og stjórnarhætti við mat á fjárfest-
ingarákvörðunum. Markmiðið með
slíku mati er að draga úr áhættu og
skila sjálfbærri ávöxtun til langs
tíma, eins og segir í tilkynningunni.
Með samstarfinu er það vilji bank-
ans og dótturfélagsins Landsbréfa
að leggja fyrrnefnt mat á útgefendur
hlutabréfa og skuldabréfa sem eru í
þessu tagi víða erlendis á undanförn-
um árum. Með greiningunni er ekki
aðeins lagt mat á umhverfislega og
félagslega þætti auk stjórnarhátta
heldur gerir einkunnagjöf á grunni
þessa mats einnig mögulegt að bera
viðkomandi fyrirtæki saman við önn-
ur.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaða hjá Lands-
bankanum, og Helgi Þór Arason,
framkvæmdastjóri Landsbréfa,
segja fyrirtækin taka mikilvægt
skref í átt að ábyrgari fjárfestingum
með samstarfinu við Reitun. „Við
settum okkur metnaðarfulla stefnu
varðandi ábyrgar fjárfestingar strax
á árinu 2013 og höfum síðan þá inn-
leitt þá stefnu í fjárfestingarákvarð-
anir. Þessum þjónustusamningi er
ætlað að gera þá vinnu skilvirkari og
faglegri miðað við nýjustu viðmið á
hverjum tíma.“ ses@mbl.is
stýringu félaganna tveggja.Hin svo-
kallaða UFS-reitun hefur verið sam-
starfsverkefni milli Reitunar,
Klappa – grænna lausna og Þrastar
Olafs Sigurjónssonar, dósents við
Háskóla Íslands. Þessir aðilar hafa
byggt upp og þróað greininguna með
innlendan markað í huga. Mikill
vöxtur hefur verið í þjónustu af
Taka upp UFS-reitun
Landsbankinn
og Landsbréf setja
sér ný viðmið
Ábyrgar fjárfestingar Landsbank-
inn og Landsbréf taka af skarið.
● Litlar hreyfingar
voru á gengi bréfa í
kauphöllinni í gær.
Verð á hlutabréfum
í Högum hækkaði
mest, eða um
1,84% í 94 millj-
óna króna við-
skiptum. Næst-
mest var hækkunin
hjá Eik og Reitum,
eða um 1,55% í
annars vegar 104 milljóna króna við-
skiptum og hins vegar í 32 milljóna
króna viðskiptum. Einungis hlutabréfa-
verð Símans lækkaði í dag, eða um
0,33% í 19 milljóna króna viðskiptum.
Hlutabréfin í Högum
hækkuðu mest í gær
Kauphöll Hagar
hækkuðu mest.
STUTT