Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033
30-50%
afsláttur
ÚTSALA
karlmenn
Flottir í fötum
Í tilefni tíu ára af-
mælis hrunsins langar
mig til að setja nokkur
orð á blað.
Ég er ekki í hús-
næðisvandræðum en
mér er ekki sama um
samborgara mína eins
og stjórnvöldum virtist
vera á árunum eftir
hrun. Ég þekki nokkur
ljót dæmi frá Dróma og
mig langar til þess að nefna tvö til
þrjú þeirra af handahófi í tilefni af-
mælisins.
Drómi varð til úr Spron og Frjálsa
fjárfestingarbankanum eftir hrun.
Ég þekki gamlan mann sem stóð í
stríði við Dróma í ca. sex ár eftir
hrun. Tvö þúsund svefnlausar nætur
sem lauk haustið 2016 með fullnað-
arsigri gamla mannsins. Það var
eins og innheimtumenn Dróma
hefðu ekkert siðferði. Þeir lögðu
loksins inn á reikning gamla manns-
ins upphæðina sem deilt var um,
daginn áður en taka átti upp málið
fyrir héraðsdómi. Ég spyr mig, hvað
voru margir búnir að gefast upp
fyrir Dróma þegar þarna var komið
sögu? Græðgin gerir menn blinda,
enda hafði norræna velferðarstjórn-
in sett þessa innheimtumenn Dróma
á prósentur til að fremja glæpinn.
Þá má nefna það líka að á haust-
dögum 2016 kom fram í þættinum á
Sprengisandi á Bylgjunni í viðtali
við Jóhannes Karl Sveinsson, hæsta-
réttarlögmann og einn af aðalsamn-
ingamönnum norrænu velferð-
arstjórnarinnar við
hrægammasjóðina, að hann hefði
viljað að ríkisvaldið hefði farið öðru-
vísi að gagnvart
Dróma.
Árna Páls-lögin
svokölluðu
Mig langar til að
nefna annað dæmi þar
sem fjölskylda keypti
íbúð tveimur árum
fyrir hrun og borgaði
50% útborgun. Það var
allur þeirra sparnaður
til margra ára og þar
með taldir fermingar-
peningarnir. Svo tóku
þau 50% erlent lán þar sem afborg-
unin var ca. 150 þúsund á mánuði. Sú
upphæð fór í um 400 þúsund á mán-
uði eftir hrun og þau börðust við að
borga af láninu þar til í mars 2010 og
fóru eftir öllum skilmálum lánsins. Í
kjölfarið fóru þau að gefa eftir og
borguðu ekki fullar afborganir í fáa
mánuði eða fram á vor 2010. Í júní
2010 dæmdi Hæstiréttur þessi er-
lendu lán ólögleg en Drómi segir
blessuðu fólkinu að þar sem þau hafi
ekki staðið 100% í skilum með allar
afborganir af láninu fram að dómi
(júní 2010) þá verði þau að fara eftir
einhverjum reglum sem þeir sjálfir
setja, sem voru reyndar glæpsam-
legar og óraunhæfar og höfðu eitt-
hvað með svokölluð „Árna Páls-lög“
að gera. Þetta fólk er enn þá að berj-
ast fyrir rétti sínum núna tíu árum
eftir hrun!
Þriðja dæmið sem ég nefni hér, er
um fjögurra manna fjölskyldu sem
Drómi, sem ekki hafði einu sinni inn-
heimtuleyfi, hrakti úr landi til
Noregs á árunum eftir hrun. Um var
að ræða algjörlega glæpsamlegt at-
hæfi af þeirra hálfu. Nú er þetta
sama fólk komið aftur til Íslands að
leita réttar síns því það hefur komið
2.000 svefnlausar næ
Eftir Halldór
Úlfarsson
Halldór Úlfarsson
Lífið er ljóðasafn.
Hver upplifun, sérhver
minning, hvert andar-
tak er ljóð sem safnast
saman og verða að
ljóðasafni áður en þú
veist af.
Lífið er nefnilega
ekki bara eitt ljóð og
ekki bara ein ljóðabók
frá ákveðnu tímabili
heldur þegar allt kem-
ur til alls heilt ljóðasafn.
Lífið er núna
Lífið, það er núna. Það tekur
sinn tíma. Gefðu þér stundarkorn
og njóttu þess að fylgja með. Vertu
ekki sífellt að bíða eftir einhverju
sem verður kannski seinna. Lifðu
lífinu lifandi núna. Láttu það eftir
þér, því að núna er þín stund. Vertu
ekki eins og skugginn af sjálfum
þér.
Að lifa lífinu er að gefa sér tíma,
núna. Tíma til að staldra við og
njóta þess að vera í núinu, í ljósi ei-
lífðarinnar. Tíma sem
er dýrmætur og flýgur
hratt. Tíma sem ekki
kemur aftur. Vertu því
á meðan þú ert því það
er of seint þegar þú ert
farinn.
Andartak eilífðar
Ef von mín hins veg-
ar næði aðeins til þess-
arar ljúfsáru allt of
stuttu ævi, þá væri ég
afar aumkunarverður
maður. Þá væri lífið
hreinlega allt of stutt, heldur napurt,
full snautt og jafnvel steindautt.
Eilífðin er nefnilega augnablik
sem aldrei líður. Þar sem ólýsanlegar
minningar. Hin dásamlegustu
augnablik verða að eilífð. Því að einn
dagur er sem þúsund ár hjá Guði og
þúsund ár sem einn dagur. Andar-
takið getur sannarlega verið stutt en
varað út eilífðina.
Ævin er stutt en lífið er langt
Ævin er stutt en lífið er langt.
Ævin er eins og meðganga sem fylgir
samdráttur og oft harðar fæðingar-
hríðir inn til lífsins ljóma. Þeirrar
dýrðar sem koma skal og engan endi
mun taka. Ævin er stundleg og stutt
en lífið er tímalaus eilífð.
Ævi mannsins er nefnilega eitt en
líf hans annað. Þó samofin þar til
dauðinn skilur að. Ævinni lýkur við
síðasta andvarp. En lífið heldur
áfram. Það heldur á fund eilífs friðar
og lífs hjá Guði.
Því er svo dýrmætt að geta notið
hverrar stundar í ljósi eilífðarinnar.
Þökk sé þér kærleiksríki Guð, höf-
undur og fullkomnari lífsins. Þökk
sé þér Jesús Kristur sem ert vegur-
inn, sannleikurinn og lífið. Þú sem
ert upprisan og lífið sjálft. Og þökk
sé þér heilagi góði lífsins andi sem
biður fyrir okkur með andvörpum
þínum sem minna okkur á hversu
dýrmæt við raunverulega erum í
augum skaparans.
Þökk sé þér sem styður okkur og
styrkir hverja stund og varðveitir
ljóðin okkar hver sem þau eru, sár
sem ljúf. Og upplifanir allar, bænir,
þrár og beiðnir sem verða að fallegu
ljóðasafni þegar yfir lýkur.
Já, gott er að fá að hvíla með
þakklæti í lífsins undri.
Með einlægri sumar-, kærleiks-
og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Lífið er ljóðasafn
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson »Hver upplifun, sér-
hver minning, hvert
andartak er ljóð sem
safnast saman og verða
að ljóðasafni áður en þú
veist af.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?