Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Sá stærsti Risavaxinn gámakraninn gnæfir yfir umhverfið á Sundabakka í Sundahöfn á athafnasvæði Eimskips. Framkvæmdir í Sundahöfn eru í fullum gangi við hafnarbakkagerðina. Árni Sæberg Ein merkasta upp- finning mannsandans á eftir gúmmístígvélum er markaðurinn. Hvort tveggja þarfnast hug- vits til að verða til. Efnafræðikunnátta nýtist við framleiðslu gúmmístígvéla. Tísku- straumar leiddu til þess að bomsur urðu til, fyrir heldri konur. Markaðurinn varð til þegar mað- urinn uppgötvaði verkaskiptingu og hagkvæmni hennar. Sennilega hefur efnafræði heilans haft nokkuð um að segja. Einnig kemur til samkeppni en samkeppni er drifkraftur fram- fara og lífskjara. Markaðslögmálið byggist á fram- boði og eftirspurn. Eftir því sem verðið er hærra þeim mun meira framboðs má vænta á markaðinn. Því er öfugt farið með eftirspurnina, því lægra verð, þeim mun meiri spurn er eftir vöru eða þjónustu. Þegar báðir aðilar eru sáttir við verðið, sem er samnefnari fyrir framboð og spurn eftir vöru eða þjónustu, eiga sér stað viðskipti. Í flestum tilfellum eru báðir aðilar ánægðir. Þó ber svo við að aðili utan við viðskiptin er óánægður með við- skiptin og telur verðið rangt. Það er alviturt ríkisvald. Verðvitund kaupanda og seljanda Almennt er það svo að kaupandi vöru og þjónustu veit ekkert hvað varan og þjónustan „kostar“ í fram- leiðslu. Enginn með fullu viti myndi kaupa Coca Cola ef hann vissi um framleiðslukostnaðinn á Coca Cola í dós! Það er aðeins ein vara í heiminum, sem hefur verið seld á áætluðu kostnaðar- verði, en það eru ís- lenskar landbúnaðar- afurðir. „Sex manna nefndin“ taldi sig fara nærri um sannanlegan framleiðslukostnað, en það var víðs fjarri því sem neytendur vildu greiða. Þannig voru myglaðar kartöflur seldar á kostnaðar- verði. Yfirnefnd Verð- lagsráðs sjávarútvegs- ins vissi mjög mikið um það verð, sem kaupendur sjávarafurða voru tilbúnir að greiða. Nú er þekking verðlagsráðs horfin. Hún var þó framför frá því er Útflutningssjóður, frá 1957 til 1960, vissi nákvæmlega um framleiðslukostnað allra sjávar- afurða, og greiddi það sem vantaði þegar söluverð skilaði ekki fram- leiðslukostnaði. Nákvæmnin var með þremur aukastöfum í prósentu, og útreikningarnir miðuðust við vetrar-, vor- og haustvertíðir. Vinstri „intelegensían“ vissi allt um verð og hvernig átti að vinna fisk og markaðssetja. Markaðsbúskapur og vinstri hugsjón Þegar stjórnvöld í Þýska alþýðu- lýðveldinu gáfust upp á áætlana- búskap sínum um 1990, rómuðu þau mjög yfirburði markaðsbúskapar, sem þau hefðu „fundið upp“. Það entist um skamman tíma, því landið sameinaðist Þýska sambandslýð- veldinu, en þar hefur verið markaðs- búskapur frá dögum Otto von Bis- marck. Þegar vörugjöld voru afnumin af heimilistækjum töldu verkalýðs- hreyfing og vinstra lið að með af- námi vörugjalda væri verið að ívilna efnafólki og hátekjufólki. Heimilistæki eru til á öllum heim- ilum, hjá tekjulágum sem tekju- háum. Vörugjöld eru íhlutun í mark- aðsstarfsemi, því þau brengla verðhlutföllum. Vinstra lið hafnar markaðsbúskap en vill taka upp skattlagningu af ýmsu tagi til að „leiðrétta“ og stýra vali borgaranna. Afnám vörugjalda á heimilistækjum er stórkostleg kjarabót fyrir venju- legt fólk. Ísskápar eru þarfaþing fyrir alþýðu. „Leiðrétting“ eða neyslustýring með sköttum miðar að því að fá hegðun að skapi „intelegensíu“ vinstri flokka því „intelegensían“ veit hvað þjóðinni kemur vel! Íhlut- un og alvit „intelegensiunnar“ kem- ur að ofan, niður til fólksins. Venju- lega er það fólkið, sem er vald- gjafinn. Ég veit aftur á móti betur en aðrir hvað mér kemur vel. Að „draga úr drykkjuskap og að auka tekjur ríkissjóðs“ Fjármálaráðherra úr Framsókn- arflokki vildi „hækka verð á áfengi til að draga úr drykkjuskap og auka tekjur ríkissjóðs“. Hvort tveggja gat ekki gerst, því verðhækkun á að draga úr spurn eftir vöru og því var annað tveggja hægt að gera, þ.e. að draga úr drykkjuskap eða auka tekjur ríkissjóðs. En vegna mark- aðsbresta óteyginnar spurnar eftir áfengi jukust aðeins tekjur ríkis- sjóðs, áfengiskaup voru óbreytt. Því miður er það svo að lögmál mark- aðarins verka ekki alltaf á þann veg sem menn helst vildu. Það eru brest- ir! Drykkjumaður einn í borginni hafði eitt sinn orð á því að áfengi væri orðið svo dýrkeypt að hann hefði ekki ráð á því að kaupa sér skó. Markaðslögmál í heilbrigðisþjónustu Vinstri „intelegensían“, sem hefur mikla trú á markaðslögmálum við stýringu á neyslu, telur alveg fráleitt að heilbrigðisþjónusta sé veitt á „markaði“. Hinn eini rétti vett- vangur á veitingu heilbrigðisþjón- ustu er sjúkrahús á vegum ríkisins og heilsugæslustöðvar á vegum rík- isins. Þar er búið að finna út hvað sé eðlilegur biðtími á kvölum eða sjón- leysi. Mikinn hluta heilbrigðisþjón- ustu er hægt að veita utan sjúkra- húsa. Þá kvartar „intelegensían“ yfir því að sjúkrahúsin sitji uppi með verstu tilfellin. Það er nefnilega þannig að sjúkrahús eiga að með- höndla verstu tilfellin, annað er hægt að annast utan sjúkrahúsa. Hvað sem þessu líður þá geta þeir, sem þess óska gefið skít í vinstri „intelegensíu“, farið út úr biðröðinni og keypt sér þjónustu hérlendis eða í útlöndum og borgað allt sjálfir, þrátt fyrir sjúkratryggingu í sköttum. Nýtt æði í markaðsmálum Nú er runnið upp nýtt æði við notkun markaðslögmála. Bætist það á annað æði, sem er hvers kyns kol- efnaskattar, en þeir eiga að leiða til þess að fólk fái flugviskubit af því að ferðast. Nú er talið að þjóðin sé úr hófi of feit. Til að draga úr þessum skavanka er helst eitt ráð en það er að hækka verð á þeim vörum, sem taldar eru valda hinni meintu offitu. Því er haldið fram að sykur af öllu tagi valdi þessari offitu. Sennilega er hann einn skaðvaldurinn. Stóri skað- valdurinn er ofát vegna leti, væru- kærðar og hreyfingarleysis. Skattlagning á sykur og sykraða vöru er flókin og flækjustig hátt. Sértæk skattlagning af þessu tagi er sennilega mjög dýr í framkvæmd og afmörkun skattlagningar umdeilan- leg. Sértæk skattlagning er einnig andstæð meginreglum um einföldun skattlagningar. Til þess eru tekju- skattur og virðisaukaskattur. Út- færsla þeirra skatta er tiltölulega einföld þrátt fyrir tveggja þrepa virðisaukaskatt, sem ríkisskattstjóri hefur náð þokkalegum tökum á, sér- staklega eftir að áfengi var fært í lægra þrep virðisaukaskatts. Eru til önnur ráð en sérhannaðir skattar? Það fer stundum um huga þess er þetta ritar hvort megi ekki ná skyn- samlegum markmiðum með fræðslu. Fræðsla og kynning eru stórkost- lega vanmetin við umfjöllun á heilsu- tengdu líferni. Það má nota mark- aðslögmálin á annan veg en hingað til í heilbrigðisþjónustu. Það má verðleggja lífsstílstengda heilbrigðisþjónustu eftir vigt þess er þjónustuna kaupir. Það er einnig hægt að neita þeim sem reykja um þjónustu vegna reykingatengdra sjúkdóma nema með ofurgjaldi. Mér er kunnugt um vanda þess að falla í freistni. Ég veiti mér það reglulega að falla í freistni og fæ mér gosdrykk, alls ekki sykur- lausan, um helgar. Læt ég þá „fað- irvorið“ mig litlu varða. Ég veit hvað ég þarf að hreyfa mig fyrir gosdós- ina. En er ekki alltaf sama hugsunin undirliggjandi í fagurri hugsjón megrunar og neyslustýrandi skatta hjá vinstri „intelegensíu“; að draga úr ofáti og auka tekjur ríkissjóðs? Eins og með áfengið hjá framsókn- arráðherranum forðum daga! For- gangsröðunin er oft önnur en ætla mætti. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Ég veiti mér það reglulega að falla í freistni og fæ mér gos- drykk, alls ekki sykur- lausan, um helgar. Læt ég þá „faðirvorið“ mig litlu varða. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Markaðslögmál og brestir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.