Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 skrefum frá, við Garðastræti, bjó Ólafur Thors með sinni Ingi- björgu og nú var ég kominn með minni Ingibjörgu, móður minni, á þennan merkilega blett. Ólaf Thors sá ég oft koma og fara frá heimili sínu, en fyrir at- beina Ásgeirs sýslumanns, eins og hann var löngum kallaður, náði ég að hitta hann og heilsa og spjalla svo við hann stundarkorn. Og hefur mér þótt sá litli „fund- ur“ sífellt betri eftir því sem lengra líður frá. Síðar urðum við Ásgeir vinir og hittumst iðulega og fór ég marg- fróðari af þeim fundum öllum. Hann var sögumaður góður og þekkti til atburða sem ég var sólginn í að heyra frá, ekki síst um þá sem snertu Sjálfstæðis- flokkinn og þróun hans og hvern- ig átökum innan hans leið og hvernig liðsskipanin var þar á hverjum tíma og hvað réð mestu um hana. Flokkurinn var að taka út sinn þroska og var með heillegri sýn á því hvernig skyldi tryggja að þjóðin kæmist örugglega frá fá- tækt sinni og til bjargálna. Aðrir flokkar leituðu fremur í smiðjur alþjóðlegra „isma“ en Sjálfstæðisflokkurinn sem var, að áliti Ásgeirs Péturssonar, ís- lenskastur flokka. Hann sagði að Ólafur Thors hefði réttilega forð- ast að flokkur hans hengdi sig um of aftan í svokallaða systurflokka í nálægum löndum, þótt sjálfsagt væri að hafa við þá eðlileg og góð skipti. Ásgeiri þótti mjög mikið til Ólafs koma og ekki dró úr að faðir hans hafði til dauðadags verið hans nánasti samstarfsmaður. Bjarna Benediktsson virti hann ekki síður og í fámennum hópi eða í tveggja manna tali rifjaði hann upp viðhorf Bjarna til þeirra álitamála sem hæst fóru og eins þeirra sem lutu eingöngu um- ræðu innan Sjálfstæðisflokksins sjálfs og þótti mikið til vitsmuna Bjarna koma, áræðis hans og eft- irfylgni og hafði reyndar starfað náið með honum um skeið. Þá hafði Ásgeir stofnað til traustrar vináttu við þriðja formann Sjálf- stæðisflokksins, Geir Hallgríms- son, við stjórnmála- og félagsstarf stúdenta á háskólaárunum og entist sú vinátta og styrktist á meðan báðir lifðu. Makar allra þessara manna skiptu miklu um samheldni þessa einstæða hóps. Mér þykir vænt um að mega telja mig til vina Ásgeirs Péturs- sonar úr röðum formanna Sjálf- stæðisflokksins. Hólavöllur, hið fagra og reisu- lega hús Péturs og Ingibjargar og myndarlegrar fjölskyldunnar, stendur á einstökum og söguleg- um stað. „Þar hefur einn varafor- maður Sjálfstæðisflokksins búið og einn formaður sama flokks,“ sagði Ásgeir eitt sinn glaðbeittur við mig og tók engin undanbrögð til greina. En hann og hans stórglæsilega eiginkona, Sigrún Hannesdóttir, gátu ekki síður verið stolt yfir sín- um ranni í Sólheimum 9 í Reykja- vík. Það var annálað menningar- heimili og víst er að vinir bókanna gleyma seint bókastofu þeirra hjóna eftir að hafa litið hana fyrsta sinni. Þau Ásgeir og Ástríður mín hurfu iðulega fljótt á Oddaslóðir og Móeiðarhvols þegar þau hitt- ust en þangað átti Ásgeir bæði æskuminningar og ættir að rekja. Við Ástríður hugsum með hlýju og þakklæti til Ásgeirs Pét- urssonar á kveðjustund. Davíð Oddsson. Þegar Ásgeir tók við sýslu- mannsembættinu í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum 1961 fengu héraðsbúar hugmyndaríkan og framsýnan liðsmann á breiðu sviði héraðsmenningar. Fram- vinda og þróun menningar geng- ur oft í hæðum og lægðum. Ásgeir átti ekki langt að sækja menning- arhugsjón sína. Borgfirðingar höfðu ekki gleymt og bjuggu enn að forystu sr. Magnúsar Andrés- sonar afa hans á Gilsbakka í menningar- og framfaramálum héraðsins. Ásgeir hafði verið síð- ustu árin á undan fulltrúi í menntamálaráðuneytinu, honum voru því allir hagnýtir hnútar kunnugir á sviði menningar og lista, þegar hann kom til okkar í Borgarfjörðinn. Hann kallaði saman áhugasama liðsmenn og vinnumenn sér til aðstoðar. Fyrsta verkefnið var að stofna Æskulýðsráð Borgarfjarðar. Verkefni þess væru menningar- mál, félagslíf og samkomuhald unga fólksins. Þetta verkefni náði góðri fótfestu í héraðinu og vakti mikla ánægju þeirra er þess nutu. Sérstaka athygli vöktu unglinga- dansleikirnir, sem haldnir voru í mörg ár og fóru fram í félagshei- milum víðsvegar í sýslunum. Tónlistarmálin voru Ásgeiri mjög hugleikin. Um þetta leyti voru tónlistarfélög og tónlistar- skólar að stíga sín fyrstu spor. Reykjavík var í forystu í mörg ár, en síðan komu Akureyri, Ísafjörð- ur, Keflavík og Selfoss á síðari ár- um. Árið 1966 boðaði Ásgeir til fundar áhugasama skólamenn í héraðinu og áhugamenn um tón- listarmenningu. Þar var sleginn réttur tónn hjá Ásgeiri. Tónlistar- félag Borgarfjarðar var stofnað og stjórn félagsins fékk það verk- efni að koma af stað tónlistar- kennslu í öllum grunnskólum sýslnanna og stofna Tónlistar- skóla Borgarfjarðar. Saga Tón- listarfélagsins og Tónlistarskól- ans verður ekki rakin hér. Þessar tvær stofnanir hafa blómstrað og veitt tónlistinni brautargengi inn á fjölda heimila og veitt einstak- lingum gleði á hamingjustundum og sefað sorgina á rauna- og sakn- aðarstundum. Tónlistarunnendur Borgar- fjarðar þakka forystumanni sín- um framtakið og munu áfram leit- ast við að vinna að blómstrandi tónlist í Borgarfjarðarhéraði. Blessuð sé minning Ásgeirs Péturssonar. Hjörtur Þórarinsson. Enginn fær umflúið sitt skapa- dægur og misjafn er sá tími sem okkur mannfólkinu er skammtað- ur. Nú hefur Ásgeir Pétursson fyrrverandi sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hlýtt kall- inu á 98. aldursári. Þótt líkaminn væri farinn að gefa sig hin síðari ár var andinn óbilaður. Ásgeir var um margt yfirburða maður og verður ávallt minnisstæður þeim sem honum kynntust. Hann var maður fjölfróður, skarpgreindur og flugmælskur. Gilti þá einu hvort málin voru rædd á góðri stund eða á fundum þar sem margir komu saman. Ásgeir var kominn af sterkum stofni. Afi hans, séra Magnús Andrésson prófastur og alþingismaður Gils- bakka var forystumaður í héraði á marga lund. Faðir Ásgeirs var Pétur Magnússon bankastjóri og fjármálaráðherra. Ásgeir var al- inn upp á heimili þar sem stjórn- málaumræða var ofarlega á baugi. Það veganesti átti eftir að fylgja honum fram á veginn og mótaði lífsskoðanir hins unga manns. Hann hóf snemma af- skipti af stjórnmálum og sinnti þar margvíslegum trúnaðarstörf- um fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Árið 1961 var hann skipaður sýslumaður í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu. Í þá daga veitti sýslumaður jafnframt fram- kvæmdavaldi í héraði forystu sem oddviti sýslunefnda. Á þeim vett- vangi lét Ásgeir mjög til sín taka og beitti sér fyrir margvíslegum framfaramálum. Má þar helst nefna forystu hans í bygginganefnd og síðar í stjórn dvalarheimilis fyrir aldraða í Borgarnesi samtals um sextán ára skeið. Þá beitti hann sér mjög fyrir byggingu brúar yfir ósa Hvítár í Borgarfirði. Var það bæði á vett- vangi sýslunefnda og síðar alþing- is þegar hann sem varaþingmað- ur fékk samþykki þingsins fyrir því að ráðist yrði í undirbúnings- rannsóknir vegna brúargerðar- innar. Ásgeir var sívökull gæslumað- ur hagsmuna Borgarfjarðar og ýtti úr vör fjölmörgum málum sem til heilla horfðu. Hann taldi mikilvægt að hlúa að menningar- arfi Borgarfjarðar og halda hon- um á lofti. Hann beitti sér einnig í æsku- lýðsmálum, meðal annars með stofnun Tónlistarskóla Borgar- fjarðar. Þannig setti hann mark sitt á Borgarfjörð á þeim árum sem umbreytingar í héraði voru hvað mestar. Ásgeir var gæfu- maður í einkalífi. Kona hans Sig- rún Hannesdóttir stóð þétt við hlið manns síns í leik og starfi. Þau hjón voru stórglæsileg og heimili þeirra ávallt rekið af rausn og héraðinu til mikils sóma. Hinum mörgu og djúpu spor- um Ásgeirs Péturssonar í fram- farasögu Borgarfjarðar verða ekki gerð skil í stuttri minning- argrein. Fyrir nokkrum árum fékk ég símtal frá Ásgeiri og bað hann mig um að heimsækja sig. Ég sat hjá honum drykklanga stund og við ræddum liðna tíma. Þá fann ég glöggt hversu sá tími sem hann gegndi sýslumannsembætti í Borgarfirði var honum hugleikinn og mikils virði. Honum var þakk- læti efst í huga eftir hartnær 20 ára samfylgd Borgfirðinga. Við leiðarlok er þó ljóst að þakkar- skuldin er stærst hjá þeim sem nutu verka hans og vináttu. Ég votta fjölskyldu Ásgeirs innilega samúð við fráfall hans. Óðinn Sigþórsson, Einarsnesi. Þegar skyggnst er yfir æviferil Ásgeirs Péturssonar fer ekki hjá því, að athyglin beinist að þátt- töku hans í stjórnmálum. Hann ólst upp í föðurgarði á Hólavelli þar sem heimilisfaðirinn tók virk- an þátt í landstjórninni með setu í bæjarstjórn Reykjavíkur, setu á Alþingi og í ríkisstjórn áratugum saman. Þetta var á þeim tíma sem að mörgu leyti voru mótunarár í íslenskum stjórnmálum. Fullveldi og lýðveldisstofnun, kreppuár, stríðsár, hersetu og þátttöku Ís- lands í vestrænni samvinnu í NATO og EFTA bar sennilega hæst. Ásgeir átti kost á að fylgjast með umræðum um lýðveldisstofn- unina, rökum „hraðskilnaðar- sinna“ og andrökum þeirra sem ekki vildu aðskilnað við Dan- mörku að svo stöddu, og nefndu sig „lögskilnaðarmenn“ af mikilli hógværð. Sem betur fer urðu rök þeirra fyrrnefndu ofan á og lýð- veldið var stofnað, eins og al- kunna er, árið 1944. Ásgeir tók þátt í og leiddi með öðrum varnir Alþingis 1949, þeg- ar lýðræðislegum ákvörðunum þingsins var ógnað með skipu- lagðri atlögu utanfrá, sem ætlað var að koma í veg fyrir lögmæta samþykkt Alþingis um inngöngu í NATO. Það reynist kannski erfitt að setja sig í spor þeirra sem lögðu sig í hættu við að verja lög- gjafarsamkunduna, en sannleik- urinn er sá, að þetta er vafalaust mesta eldraun sem hið unga lýð- veldi gekk í gegnum, og ekkert svipað gerðist næstu 60 árin eða svo. Ásgeir tók þátt í stjórnmál- um með beinum hætti með for- mennsku í SUS og Heimdalli og svo með framboði til Alþingis í Mýrasýslu 1959 og síðar í Vest- urlandskjördæmi. Hann varð sýslumaður Mýra- manna og Borgfirðinga um þetta leyti og vann í krafti þess að margvíslegum framfaramálum í héraðinu, sem enn eiga sér stað. Ferill hans sem embættismanns staðfestist enn frekar þegar hann varð bæjarfógeti í Kópavogi, allt þar til hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. Ásgeir var vel liðið yfirvald, sanngjarn og sáttfús og miðlaði málum þegar þess var kostur. Mér er ofarlega í huga saga sem gerðarþoli sagði mér af því þegar Ágeir kom sem bæjarfógeti til að bjóða upp heimili hans, en krafan var smáfjárhæð sem sögu- maður hafði neitað að borga því hann taldi hana ekki réttmæta. Fógeti skoraði á gerðarþola að greiða en hann neitaði og sagði fógeta að hann skyldi bara bjóða upp. Þá dró Ásgeir upp veskið og sagðist skyldu greiða skuldina sjálfur. Síðan sagði sögumaður við mig: „Hvernig getur maður annað en borið virðingu fyrir svona mönnum.“ Ágeir Pétursson var maður þrekvaxinn, meðalmaður á hæð, vel á sig kominn, liðugur og hraustmenni. Hann var ágætis eftirherma, drátthagur karíkatúr-teiknari og á síðari árum ágætur listmálari. Stjórnmálaskoðanir hans voru mótaðar af samúð og skilningi á kjörum þeirra sem minna máttu sín og bjargfastri sannfæringu um kosti frelsis til orðs og æðis. Hann var glaðlyndur alvörumað- ur, sem lifði lengur en flestir og hafði séð og lifað meira en flestir aðrir. Blessuð sé minning hans. Pétur Kjartansson. Við upphaf 43. landsfundar Sjálfstæðisflokksins 16. mars 2018 sagði Ásgeir Pétursson mér að hann hefði farið með föður sín- um, Pétri Magnússyni, varafor- manni flokksins, í fyrsta sinn á landsfund árið 1943. Þegar Bjarni Benediktsson var kjörinn formað- ur árið 2009 hittust þeir Ásgeir og Bjarni í Valhöll. Þar með hefði hann heilsað öll- um formönnum Sjálfstæðis- flokksins með handabandi. Flokk- urinn var stofnaður 1929 þegar Ásgeir var sjö ára. Það var notalegt og fróðlegt að hitta Ásgeir þar sem hann sat á friðarstóli í Sunnuhlíð í Kópavogi og rifjaði upp kynni sín af mönn- um og málefnum og atvik úr stjórnmálasögunni. Minnið var einstakt og atburðir urðu ljóslif- andi í frásögn hans. Hann átti dýrmætar minningar um náið áralangt samstarf við föður minn og góða vináttu þeirra Sigrúnar við foreldra mína. Bar þar aldrei á neinn skugga og birtan yfir minn- ingu hans um þau var einlæg og hlý. Fyrir allt það skal nú þakkað á kveðjustund. Þá er mér ljúft að minnast framlags Ásgeirs til hugsjónabar- áttunnar sem leiddi til aðildar Ís- lands að Atlantshafsbandalaginu. Á námsárum í Háskóla Íslands varð hann forgöngumaður um samstarf við vestræn ríki um varnir landsins. Hann ritaði árið 1948 greinina „Á varðbergi“ um valdarán kommúnista í Austur- Evrópu. Hugsjóninni lagði Ásgeir lið í verki þegar hann stóð í fremstu röð þeirra sem vörðu Alþingis- húsið í mars 1949. Árið 2013 skýrði Ásgeir í fyrsta sinn frá því opinberlega að hann hefði verið foringi varnarliðs Al- þingishússins til aðstoðar lög- reglu 30. mars 1949 þegar menn óttuðust að kommúnistar og aðrir andstæðingar NATO-aðildar ætl- uðu að ráðast inn í þinghúsið og rjúfa þingfund. Ásgeir gaf varnarliðinu fyrir- skipun um að ryðjast ásamt lög- reglu út úr þinghúsinu eftir að lögreglustjórinn í Reykjavík leit- aði til hans. Ásgeir átti ríkan þátt í að stofna Samtök um vestræna sam- vinnu fyrir rúmum 60 árum en þau starfa nú undir nafninu Varð- berg sem skírskotar beint til greinar Ásgeirs frá 1948. Hann fylgdist alla tíð af áhuga með al- þjóðamálum og vék aldrei frá skoðun sinni á heillaskrefinu sem stigið var með aðildinni að NATO. Sem sýslumaður í Borgarnesi lét Ásgeir sig málefni Reykholts miklu varða. Hann beitti sér fyrir samkomu í Reykholti í tilefni af átta alda afmæli Snorra Sturlu- sonar. Hann átti hlut að því að bygg- ing Snorrastofu og kirkju í Reyk- holti var ákveðin. Hann sat lengi í Reykholtsnefnd og skólanefnd Reykholtsskóla. Sem formaður stjórnar Snorrastofu færi ég Ásgeiri þakk- ir fyrir framsýni hans og hollustu við Reykholt. Þar birtist virðing hans fyrir menningararfinum og þjóðlegum metnaði. Við Rut vottum börnum Ás- geirs og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð. Blessuð sé minning Ásgeirs Péturssonar. Björn Bjarnason. Fremstur með hlutverk höfðingjans fer Hólavellir staðurinn Ættboginn nú sem höfuðlaus her horfinn aðalmaðurinn Með djúpri virðingu, þökk og mikilli eftirsjá. Jakob Frímann Magnússon. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Seiðakvísl 18, Reykjavik, lést mánudaginn 1. júlí á líknardeild Landspítalans. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. júlí klukkan 13. Jón Hrafnkelsson Björn Jónsson Guðbjörg Jónsdóttir Hrafnkell Jónsson Þorbjörg R. Guðmundsdóttir Þórey Björnsdóttir Guðmundur Á. Björnsson Henný Hraunfjörð Ásgeir Þ. Másson og barnabörn Ástkær dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, EVA ÓSK ÞORGRÍMSDÓTTIR frá Ólafsvík, lést þann 17. júní. Útförin hefur farið fram. Þorgrímur R. Kristinsson Gerður H. Sigurðardóttir Birgitta Sif Pétursdóttir Karl Óskar Pétursson Heiðrún Líf Erludóttir Aþena Mist Ragnarsdóttir Kristján Helgi Evuson Alexandra Von Karlsdóttir Þér ég þakka vináttu og góðar stundir. Hlýja hönd og hand- leiðslu, okkar stundir saman. Bjartar minningar lifa ævina á enda. (Hulda Ólafsdóttir) Hvíldu í friði, Kalli minn. Vigdís (Dísa). Elsku bróðir. Kallið kom fljótt, ég hef ekki áttað mig á því ennþá. Það stækkar alltaf skarðið, Gunna og Magnús Hrafn látin og þú núna. Mig langar að minnast okkar tíma þegar við bjuggum á Bú- staðavegi 61. Við lékum okkur oft öll saman, ég fékk að koma með ykkur á rúntinn í stóra bílnum eins og hann leit út í mínum aug- um. Fórum oft í litla og stóra skóg, Karl Magnússon ✝ Karl Magn-ússon fæddist 19. október 1945. Hann lést 10. júní 2019. Útför Karls fór fram í kyrrþey. þar lékum við okkur í feluleik og kabbó. Þegar við vorum heima lékum við okkur í brennó, dimmalimm, undir og yfir og hinum ýmsu leikjum. Svo fórstu í fyrsta skipti á sjó- inn, skip sem hét Selfoss, varst lengi í einu á sjónum, en þegar þú komst heim gafst þú mér fallegan dúkkuvagn, peninga- kassa, nammi, epli og margt fleira. Þú varst svo mikill dýravinur, þú áttir kött sem hét Jonni, hann var svo blíður og góður. Þú leyfðir mér oft að fara með Jonna í göngutúr um hverfið í nýja dúkku- vagninum, ég setti barnahúfu á hann og fór í dúkkuleik með hann, öllum fannst hann Jonni vera svo falleg kisa. Ég fékk líka að koma með þér í sveitina, á Ásbjarnastaði. Fékk að fara í gamla torfbæinn sem Magga gamla átti heima í, mér fannst allt vera svo skrítið þar, koppar undir rúmum, eldhúsið með moldarveggjum, kamar úti þar sem ég þurfti að pissa í, mér fannst þetta voða skrítið. Svo fór- um við á Þorgrímsstaði þar sem ég hitti Adda og systkinin hans. Sendum Dísu og fjölskyldu innilegustu samúðarkveðjur. Takk fyrir allt, elsku bróðir, og stundirnar okkar saman. Þín syst- ir Erla Kristín og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA Elsku pabbi, takk fyrir allt. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) þín dóttir, Inga Rós. Afi við elskum þig öll af öllu hjarta og við söknum þín ofboðslega mikið. Þinn Kristján. Afi minn besti, ég elska þig og sakna þín. Þinn Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.