Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Pepsi Max-deild karla
Valur – KA ................................................ 3:1
Staðan:
KR 11 8 2 1 21:10 26
Breiðablik 11 7 1 3 22:13 22
Stjarnan 11 5 3 3 19:16 18
ÍA 10 5 2 3 15:12 17
Valur 12 5 1 6 21:18 16
Fylkir 10 4 3 3 18:18 15
FH 10 3 4 3 15:17 13
KA 11 4 0 7 16:19 12
Víkingur R. 10 2 5 3 15:17 11
Grindavík 10 2 5 3 7:9 11
HK 10 2 2 6 11:14 8
ÍBV 10 1 2 7 8:25 5
Inkasso-deild karla
Keflavík – Haukar ................................... 1:1
Dagur Ingi Valsson 42. – Ásgeir Þór Ing-
ólfsson 90. (víti).
Leiknir R. – Fjölnir ................................. 0:2
Jóhann Árni Gunnarsson 16., Ingibergur
Kort Sigurðsson 71.
Staðan:
Fjölnir 10 7 1 2 20:9 22
Grótta 9 5 2 2 19:13 17
Fram 9 5 2 2 15:11 17
Þór 9 5 1 3 15:10 16
Keflavík 10 4 3 3 15:11 15
Leiknir R. 10 5 0 5 16:17 15
Víkingur Ó. 9 4 2 3 9:6 14
Þróttur R. 9 3 1 5 16:15 10
Haukar 10 2 4 4 14:16 10
Afturelding 9 3 0 6 12:21 9
Njarðvík 9 2 1 6 8:17 7
Magni 9 1 3 5 10:23 6
2. deild karla
ÍR – Dalvík/Reynir.................................. 3:3
Axel Kári Vignisson 38., Már Viðarsson 50.,
Viktor Örn Guðmundsson 83. – Borja Lo-
pez 44., 46., 90. (víti).
Víðir – Þróttur V. .................................... 0:1
Alexander Helgason 45.
Kári – Tindastóll...................................... 4:0
Guðfinnur Þór Leósson 19., 40., Andri Júl-
íusson 44., Hilmar Halldórsson 75.
Staðan:
Leiknir F. 9 6 3 0 20:8 21
Selfoss 9 5 2 2 21:10 17
Víðir 10 5 1 4 17:14 16
Vestri 9 5 0 4 12:15 15
Völsungur 9 4 2 3 11:12 14
Fjarðabyggð 9 4 1 4 13:11 13
Þróttur V. 10 3 4 3 12:14 13
Dalvík/Reynir 10 2 6 2 13:13 12
ÍR 10 3 3 4 13:13 12
KFG 9 4 0 5 16:19 12
Kári 10 3 2 5 20:21 11
Tindastóll 10 0 2 8 8:26 2
4. deild karla A
Ísbjörninn – Björninn .............................. 1:3
Vatnaliljur – SR........................................ 2:1
Árborg – Ýmir .......................................... 2:1
Staðan:
Björninn 8 8 0 0 31:6 24
Árborg 8 5 1 2 14:7 16
Ýmir 8 4 1 3 23:12 13
SR 8 3 2 3 16:19 11
Vatnaliljur 8 3 0 5 17:20 9
Samherjar 7 2 2 3 11:12 8
Mídas 7 2 0 5 11:24 6
Ísbjörninn 8 1 0 7 10:33 3
KNATTSPYRNA
HANDBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Fjögur karlalið og eitt kvennalið
frá Íslandi verða að öllum líkindum
meðal þátttakenda í Evrópukeppn-
unum í handbolta á næstu leiktíð.
Umsóknarfrestur um að taka þátt í
keppnunum rann út síðasta þriðju-
dag en handknattleikssamband
Evrópu mun svo tilkynna í næstu
viku hvaða lið fá keppnisrétt og á
hvaða stigum hverrar keppni þau
munu hefja leik.
Eins og frægt er orðið var Ís-
landsmeisturum Selfoss í karla-
flokki synjað um þátttöku í sterk-
ustu keppninni, Meistaradeild
Evrópu, vegna þess að liðið gat
ekki leikið á heimavelli með nægi-
legum fjölda áhorfendasæta. Þess
vegna munu Selfyssingar senda lið
sitt til leiks í EHF-keppninni,
næststerkustu keppninni, en þar
eru kröfurnar ekki eins miklar. Í
umsókn Selfoss fyrir Meistara-
deildina var gert ráð fyrir því að
spila á Ásvöllum en liðið vonast til
þess að geta spilað heimaleiki sína
í EHF-keppninni á Selfossi, rétt
eins og á síðustu leiktíð. Fari svo
að Selfoss komist í gegnum undan-
keppnina og áfram í riðlakeppnina,
eins og litlu munaði í fyrra, þarf
liðið þá hins vegar líklega að færa
sig yfir á Ásvelli.
Haukar báðu um uppfærslu
Auk Íslandsmeistaranna munu
að minnsta kosti bikarmeistarar
FH spila í EHF-keppninni. FH-
ingar slógu Dubrava frá Króatíu út
í 1. umferð undankeppninnar í
fyrra en féllu út gegn Benfica í 2.
umferð.
Deildarmeistarar Hauka og
Valsmenn sóttu um sæti í Áskor-
endakeppninni og hafa rétt á sæti
þar en Haukar báðu um í sinni um-
sókn að verða færðir upp í EHF-
keppnina sem þriðja íslenska liðið
þar. Ísland fékk þrjú sæti í EHF-
keppninni í fyrra og því mögulegt
að sú verði einnig raunin nú. Í
fyrra hófu FH og Selfoss keppni í
1. umferð undankeppninnar en þá-
verandi Íslandsmeistarar ÍBV
komu inn í 2. umferð. Selfoss var
eina íslenska liðið sem komst í 3.
og síðustu umferð fyrir riðlakeppn-
ina en tapaði þar fyrir pólska lið-
inu Azoty-Pulawy, samtals 60:54.
Ekkert íslenskt lið var í Áskor-
endakeppni karla á síðustu leiktíð
en árin tvö þar á undan komust ís-
lensk félagslið í undanúrslit, fyrst
Valur og svo ÍBV. Í bæði skiptin
féllu þau úr leik gegn Potaissa
Turda frá Rúmeníu sem vann
keppnina árið 2018.
Valskonur í EHF-keppnina
Aðeins eitt kvennalið verður
með í Evrópukeppni á komandi
leiktíð en Íslands-, deildar- og bik-
armeistarar Vals hafa skráð sig til
leiks í EHF-keppninni. Valskonur
léku í Áskorendakeppninni síðasta
vetur en féllu þar úr leik gegn
Quintus frá Hollandi í leikjum um
sæti í aðalkeppninni, sem hefst
með 16-liða úrslitum, samtals
45:40. Ísland átti síðast fulltrúa í
EHF-keppninni haustið 2015 þeg-
ar Framkonur komust þar í gegn-
um 2. umferð en féllu úr keppni í
síðustu umferðinni fyrir 16-liða úr-
slitin.
Valskonur hefðu mögulega getað
farið í Meistaradeild Evrópu en
sjálfsagt hefði umsókn þess efnis
strandað á sama skorti á nægilega
stórri handboltahöll sem Selfyss-
ingar fundu fyrir. Framkonur
munu hafa íhugað sterklega að
senda lið til Evrópukeppni en auk
þeirra áttu ÍBV og Haukar rétt á
því sem félögin nýttu ekki, en mik-
ill kostnaður fylgir þátttöku í Evr-
ópukeppnum í handbolta.
Fimm íslensk handboltalið
í Evrópukeppnum í haust
Tvö eða þrjú íslensk karlalið verða í EHF-keppninni Valur eina kvennaliðið
Ljósmynd/Guðmundur Karl
EHF-keppnin Íslandsmeistarar Selfoss fengu ekki sæti í Meistaradeild Evrópu en leika í EHF-keppninni.
Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir mun leika í
norsku úrvalsdeildinni í handbolta á komandi leiktíð eft-
ir að hafa skrifað undir samning við Oppsal. Fylk-
iskonan hefur síðustu tvö ár leikið með Volda, undir
stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar, og skoraði 72
mörk í 1. deild á síðustu leiktíð þegar liðið var nálægt
því að fara í umspil um sæti í úrvalsdeild.
Oppsal endaði í 8. sæti af 12 liðum norsku úrvalsdeild-
arinnar í fyrra. Endre B. Fintland, þjálfari liðsins, fagn-
ar því að hafa fengið hina 22 ára gömlu Theu í hópinn:
„Ég er mjög ánægður með þessa undirskrift og er viss
um að Thea muni smellpassa inn í hópinn. Nú þegar
Thea er komin er hópurinn fyrir næstu leiktíð að verða klár.“
Volda hefur aftur á móti fengið til sín annan íslenskan leikmann, hina 19
ára gömlu Söru Dögg Hjaltadóttur. Sara Dögg lék með Fjölni áður en hún
fór til Noregs en hún hefur þar leikið með Kongsvinger í 2. deildinni síð-
ustu tvær leiktíðir. Þessi leikstjórnandi, sem leikið hefur með yngri lands-
liðum Íslands, gerði samning til tveggja ára við Volda. sindris@mbl.is
Thea og Sara upp um deild
Thea Imani
Sturludóttir
Perú leikur til úrslita í Ameríkubikarnum í fótbolta á
sunnudagskvöld í fyrsta sinn í 44 ár, eða frá því að Perú
vann keppnina árið 1975. Þetta varð ljóst með frábærum
3:0-sigri Perú á Síle, sigurvegara tveggja síðustu móta, í
Brasilíu í fyrrinótt.
Andstæðingur Perú í úrslitaleiknum verður Brasilía
sem vann einmitt Perú 5:0 í riðlakeppni mótsins. Perú
hefur farið heldur rólega í gegnum mótið, endaði í 3.
sæti síns riðils og vann Úrúgvæ í vítakeppni í 8-liða úr-
slitum, en á móti Síle gekk allt upp. Edison Flores, Yos-
himar Yotún og Paolo Guerrero skoruðu mörkin. Þess
má geta að í byrjunarliði Perú voru sex af þeim leik-
mönnum sem byrjuðu í 3:1-sigrinum gegn Íslandi í mars á síðasta ári, þeg-
ar liðin bjuggu sig undir HM í Rússlandi.
Ljóst er að Brasilía verður án Chelsea-mannsins Willian í úrslitaleiknum
en hann meiddist í sigrinum á Argentínu í undanúrslitum. sindris@mbl.is
Perú batt enda á 44 ára bið
Edison
Flores
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
MÁLA
Í SUMAR?
VITRETEX á steininn.
HJÖRVI á járn og klæðningar.