Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjöldi fólks sækir reglulegar
qigong-æfingar á Klambratúní í
Reykjavík sem eru tvisvar í viku út
ágústmánuð, alla þriðjudaga og
fimmtudaga, klukkan 11. Allir eru
velkomnir í ókeypis kennslu og leið-
sögn og voru 130 manns mættir í
mikilli sumarblíðu síðastliðinn
þriðjudag en aldrei færri en hundrað
hafa mætt á æfingar það sem af er
sumri.
Spornar gegn lífsstílssjúkdómum
„Vinsældir þessarar kínversku
hreyfingar springa nú út á Vestur-
löndum enda mæla rannsóknir ein-
dregið með henni til að sporna gegn
öllum helstu lífstílssjúkdómum og
streitu nútímans. Harvardháskólinn
segir að besta hreyfing sem hægt sé
að stunda sé þessi – auk sunds og
gönguferða. Einkenni qigong og
taichi er að allir geta iðkað hana sér
til heilsubótar og gildir einu aldur og
ásigkomulag,“ segir Kristrún Heim-
isdóttir sem er einn aðstandenda
þessara æfinga
Það eru Tveir heimar – miðstöð
qigong/taichi á Íslandi og Aflinn – fé-
lag qigong-iðkenda sem standa að
Klambratúnsæfingunum í sumar.
Þykir þetta vera einstakt framtak á
Íslandi á sviði almenningsíþrótta því
allt að þúsund manns kynnist allt
öðruvísi hreyfingu en Íslendingar
eru vanir og sem hægt er að stunda
af miklum krafti sem orkugjafa alla
ævi. Elstu iðkendur á Klambratúni
eru 95 ára.
Mannlegt umhverfi
Yfir vetrartímann er boðið upp á
kennslu og þjálfun hjá Tveimur
heimum í Suðurhlið 35 og hjá Afl-
inum á ýmsum stöðum í bænum, en
mikill áhugi er á því þessir aðilar
sameini krafta sína í stærri æfingasal
til að taka á móti þessari nýju
sprengingu í áhuga. „Best er að
stunda æfingarnar í kyrrlátu rými
með fagra náttúru og gróður í kring
sem uppfyllir feng shui-reglur um
mannlegt umhverfi. Því miður njóta
almenningsíþróttir sem sérstaklega
henta eldri borgurum ekki sambæri-
legrar fyrirgreiðslu í borgarkerfinu
og keppnisíþróttir hinna yngri, sem
er hugsunarháttur sem er úreltur og
þarf að breytast,“ segir Kristrún.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sumar Fjöldi fólks mætir jafnan á æfingarnar og gerir þær af krafti. Elstu þátttakendurnir eru á tíræðisaldri.
Qigong á Klambratúni
Kínverskar æfingar tvisvar í viku Einstakt framtak á
sviði almenningsíþrótta Til heilsubótar á öllum aldri
Þjálfun Best þykir að stunda æfingarnar í kyrrlátu rými með gróður í kring.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég vissi að hún myndi blanda sér í
toppbaráttuna ef við næðum tíma,
hún er svo snögg en ég átti ekki von á
þessum tíma,“ segir Þórarinn Ey-
mundsson, reiðkennari og tamn-
ingamaður á Sauðárkróki. Hann er
Íslandsmeistari í 150 metra skeiði, á
Gullbrá frá Lóni á tímanum 14,10.
Fyrstu Íslandsmeistararnir
fengu verðlaun sín afhent í fyrra-
kvöld á Íslandsmótinu í hestaíþrótt-
um sem haldið er á félagssvæði Fáks
í Víðidal. Konráð Valur Sveinsson
sigraði í 250 skeiði á Kjarki frá Ár-
bæjarhjáleigu, eftir harða baráttu
við Guðmund Björgvinsson á Glúmi
frá Þóroddsstöðum sem hafnaði í
öðru sæti. Árni Björn Pálsson varð í
öðru sæti í 150 metra skeiðinu, á
Korku frá Steinnesi.
Hún er fljót á skeiðinu
Þórarinn og Gullbrá náðu ekki
tíma í fyrri umferð skeiðkeppninnar.
„Hún kom á kýrstökki út úr básnum í
báðum sprettum og þá er erfitt að
leiða hana inn á skeiðið. Hún er
snögg út og ef hún kemur á réttu
stökki er hún fljót á skeiðinu. Þetta
gekk allt upp hjá okkur í seinni um-
ferðinni,“ segir Þórarinn.
Hann segist hafa fengið hryss-
una lánaða í skeiðkeppni fyrir norðan
fyrir rúmu ári. „Eftir það losnaði ég
ekki við hana úr hausnum á mér og
fékk hana á endanum keypta og er
mjög þakklátur fyrir það.“
Þórarinn hyggst keppa á henni í
100 metra skeiði og gæðingaskeiði
síðar á mótinu. Hann telur að hún
geti náð góðum tíma í 100 metra
skeiðinu en tekur fram að hún sé
óreynd í gæðingaskeiði.
Þórarinn er einn af þeim lands-
liðsmönnum sem stefna að því að
komast í landslið Íslands á Heims-
leikum íslenska hestsins sem fram
fer í Berlín í ágúst og er því að sýna
sig fyrir landsliðsþjálfurum á mótinu.
Hann vill fara með hestinn Veg frá
Kagaðarhóli í fimmgangskeppni leik-
anna. Hann er kominn með hann í A-
úrslit á Íslandsmótinu. „Það eru
verkin þar sem tala. Þetta er heil-
steyptur hestur í gangtegundum og
geðslagi, traustur og fallegur og
fangar athygli fólks,“ segir Þórarinn.
Ótrúleg breidd í keppninni
Í dag verður forkeppni í tölti á
Íslandsmótinu í Víðidal. Í fyrramálið
verður gæðingaskeið, B-úrslit riðin
eftir hádegið og 100 metra skeið um
kvöldið. Á sunnudag verða úrslit í öll-
um flokkum.
Þórarinn segir að vellirnir í Víði-
dal séu frábærir og rigningarskúrir
hafi ekki drepið niður mótið. „Það er
ótrúleg breidd í keppninni,“ segir
hann.
Gekk allt upp í
seinni umferð
skeiðkeppninnar
Fyrstu Íslandsmeistararnir á Ís-
landsmóti í hestaíþróttum í Víðidal
Ljósmynd/Gísli Guðjónsson
Íslandsmeistari Þórarinn Ey-
mundsson vann 150 metra skeið.
ÍYFIRRÉTTI ( E. HIGH COURT OF JUSTICE)
Nr. CR-2018-009151
FYRIRTÆKJA- OG FASTEIGNADÓMSTÓLAR
(E. BUSINESSAND PROPERTY COURTS),
ENGLANDS OGWALES
VARÐANDI
ROYAL & SUNALLIANCE INSURANCE PLC
-og-
VARÐANDI
THE MARINE INSURANCE COMPANY LIMITED
-og-
VARÐANDI
MERCANTILE INDEMNITY COMPANY LIMITED
-og-
VARÐANDI
LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI FRÁ
ÁRINU 2000 („THE FINANCIAL SERVICESAND
MARKETSACT 2000“)
HÉR MEÐTILKYNNIST í samræmi við 2. mgr. 114. gr. breskra laga
um fjármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial
Services and Markets Act 2000) („lögin“) að hinn 13. júní kvað yfir-
rétturinn High Court of Justice of England andWales upp úrskurði
skv. 111. gr. laganna, sem heimilar áætlun („áætlunin“) um framsal til
Mercantile Indemnity Company Limited („Mercantile“) á tiltekinni
eftirstandandi almennri vátryggingastarfsemi í Bretlandi á vegum
Royal & Sun Alliance Insurance plc („RSAI“) og The Marine
Insurance Company Limited („MIC“) („framseld starfsemi“).
Gert er ráð fyrir að áætlunin taki gildi kl. 00:01 að breskum
sumartíma (BST) hinn 1. júlí 2019.
Sé annað EES-ríki en Bretland ríkið þar sem áhættan vegna tiltekin-
nar vátryggingar sem felst í framseldu starfseminni er staðsett (eins
og það orðalag er skilgreint að því er varðar 2.mgr. 114. gr. laganna)
og vátryggingartakinn á rétt á því, vegna áætlunarinnar, að ógilda
vátrygginguna samkvæmt lögum þess EES-ríkis er unnt að nýta
þann rétt innan 30 daga frá dagsetningu þessarar tilkynningar eða
(séu þau önnur) innan þeirra tímamarka sem lög þess EES-ríkis
kveða á um. Vegna þess að allar vátryggingar sem felast í framseldu
starfseminni eru eftirstandandi frá fyrri tíð (e. legacy policies) myndi
slík ógilding ekki veita vátryggingartaka rétt á endurgreiðslu á
neinum iðgjöldum, heldur svipta hann réttinum til að leggja fram
bótakröfu.
Vakni spurningar um framsalið, eða sé frekari upplýsinga þörf, má
hafa samband við Norton Rose Fulbright LLP að 3 More London
Riverside, London SE1 2AQ, Bretland, eða í síma +44 20 7283
6000, og skal þá nota tilvísunarnúmerið RAXH/1000099615.
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma5331320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
af húðslípunmeðferð
þegar greitt er fyrir 4 skipti!
15%afsláttur
Í umfjöllun í Morgunblaðinu og á
mbl.is um Bjarna Haraldsson, kaup-
mann á Sauðárkróki, sem Sveitar-
félagið Skagafjörður útnefndi sem
heiðursborgara, var þess ekki getið
að Jón Þ. Björnsson skólastjóri var
fyrsti heiðursborgari Sauðárkróks-
kaupstaðar. Beðist er velvirðingar á
þessu en upplýsingarnar komu í
upphafi frá sveitarfélaginu.
LEIÐRÉTT
Jón fyrsti heiðurs-
borgari Sauðárkróks
Allt um
sjávarútveg