Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 6
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti hrepps- nefndar Árneshrepps, segir að Drangavíkurkortið sem Sigurgeir Skúlason landfræðingur teiknaði að beiðni Sifjar Konráðsdóttur, fyrrver- andi aðstoðarmanns Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra stangist á „við öll önnur kort af svæð- inu“. Fréttamiðilinn Bæjarins besta (BB) greindi frá því um helgina að kortið hefði verið gert að beiðni Sifjar. Samkvæmt frétt BB kemur þetta fram í bréfi sem Guðrún Anna Gunnarsdótt- ir, einn eigenda Drangavíkur, ritaði úr- skurðarnefndumhverfis- og auðlinda- mála. Guðrún stendur ekki að kærunni til úrskurðarnefndarinnar þar sem þess er krafist að framkvæmdir vegna Hvalárvirkjunar verði stöðvaðar. Meirihluti landeigenda Drangavíkur hefur kært deiliskipulag og fram- kvæmdaleyfi fyrir fyrsta áfanga Hval- árvirkjunar til úrskurðarnefndarinnar. Guðrún Anna segir í bréfinu að kort- ið sem sýnir landamörk Drangavíkur og fylgir kærunni hafi Sigurgeir Skúla- son dregið upp að beiðni Sifjar. Þar kemur líka fram að Sigurgeir hafi stað- fest þetta og að hann hafi fyrst gert annan uppdrátt sem hafi verið hafnað. Guðrún segir í bréfinu að jarðamörk Dranga, Drangavíkur og Engjaness hafi verið óumdeild um aldir það best sé vitað. Hún segir kort Sigurgeirs ekki byggt á ríkjandi hefðum til fjalla sem eru vatnaskil í þessu tilfelli. Hún gerir formlega athugasemd við kær- una sem hún segir vísvitandi setta fram á fölskum forsendum einungis til þess að valda öðrum skaða. „Þetta er einn af þeim liðum sem er inni í kæru þeirra á hendur okkur. Þannig þetta fer bara löglegar leiðir,“ segir Eva spurð um kortið og næstu skref. „Óbyggðanefnd er búin að gera kröfu í Drangajökul hér og þeirra kort er alveg eins og við þekkjum það. Drangavíkurkortið, þetta nýjasta, er alls ekki eins og önnur kort.“ Nýja kortið sýnir að jörðin Dranga- vík eigi allt land til jökuls, handan við Eyvindarfjarðarlónið og jörðin Engja- nes ekkert. Eldri kort sýna að Engja- nes eigi landið handan við lónið og Drangavík ekkert. Ef nýja kortið yrði viðurkennt myndi Drangavík marg- faldast að stærð á kostnað Engjaness. Stangast á við öll önnur kort  Drangavíkurkort harðlega gagnrýnt Kortið Hér má sjá mynd af korti Sigurgeirs Skúlasonar sem deilt er um. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum SCREEN RÚLLUGARDÍNUR Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Veitur ohf., dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, hafa aug- lýst eftir verktaka til að örva lág- hita borholu á Norðurnesi, norð- anverðu Geldinganesi. Hola RV-43, eins og hún er nefnd, er stefnuboruð á rúmlega 1.830 metra dýpi og var boruð á árinu 2001. „Örvunin fer fram með pakkara sem verktaki kemur fyrir í holu,“ segir í útboðslýsing- unni. „Pakkari er einskonar tappi sem er hægt að setja í borholur til að stýra því hvert vatnið, sem við dælum ofan í holuna undir þrýstingi, fer,“ segir Ólöf Snæ- hólm Baldursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Veitna, þegar hún var spurð nánar um þetta fyrirbæri. Hún bætir við að áform séu um að bora aðra vinnsluholu á svæð- inu. Geldinganes er lághitasvæði, svipað og svæðin í Laugarnesi og Elliðaárdal. Rannsóknir benda til að þarna sé hár hiti nálægt yf- irborði, en ekki er vitað hvort svæðið gefi af sér mikið vatn. Á nesinu er ein borhola, boruð 2001, sem ef til vill má nýta til jarðhita- vinnslu, en fleiri holur hafa verið boraðar í rannsóknaskyni. Holan er mjög heit en gefur lítið af vatni. Ætlunin er að örva holuna til vatnsframleiðslu með pakkara, þ.e. dæla vatni í hana undir þrýstingi, eins og gert var við nánast allar aðrar borholur á höf- uðborgarsvæðinu svo að þær framleiði meira vatn. Mögulega tengd við kerfið Engar holur á Geldinganesi eru tengdar inn á hitaveitu Veitna, en ef örvun og borun gengur vel stendur til að tengja þær inn á kerfið, að sögn Ólafar. Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 11.00 hinn 1. ágúst 2019 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur. Í Wikipediu, frjálsa alfræðirit- inu, segir að Geldinganes sé all- stórt nes eða eyja í Reykjavík fyrir norðan Eiðisvík og liggi að hluta til samsíða Viðey. Norðan við Geldinganes er Þerney. Geld- inganes er tengt landi með eiði sem nú er ökufært, en var áður fyrr aðeins fært á fjöru. Geld- inganes er óbyggt, en þar voru á sínum tíma geldsauðir aldir fyrir fálkarækt þá sem fór fram á Val- húsahæð á Seltjarnarnesi. Þessi geldsauðir áttu að verða fálk- unum fóður þegar þeir voru flutt- ir utan. Er nafnið þannig til- komið. Seinna áttu menn lengi haga- göngu hrossa á Geldingarnesi og átti t.d. Hestamannafélagið Fák- ur slíka hagagöngu þar á þriðja áratug 20. aldar. Síðar var þar lengi skotæfingasvæði og seinna grjótnáma en úr henni hafa verið teknar þúsundir tonna af grjóti. Stefnt var að því að á nesinu yrð byggt íbúðahverfi fyrir yfir 15.000 manns á 2,20 km² svæði. Ekki sé gert ráð fyrir að íbúð- arbyggð rísi í Geldinganesi á tíma núgildandi aðalskipulags sem gildir til 2030 en samþykkt hefur verið að úthluta þar svæði fyrir kirkjugarð. Morgunblaðið/Ingó Geldinganes Rannsóknir benda til að þarna sé hár hiti nálægt yfirborði en óvíst er hvort nýtanlegt vatn finnist. Hyggjast örva bor- holu á Geldinganesi  Holan mjög heit en gefur lítið af vatni enn sem komið er Ríflega tvö ár eru síðan þáverandi dómsmálaráðherra, Sigríður Á. And- ersen, sagði í svari við fyrirspurn um umsóknarferli hjá sýslumönnum að þegar í stað myndi hún „setja af stað undirbúning þess að heimila töku stafrænna mynda af umsækjendum um ökuskírteini á starfsstöðvum sýslumanna, í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra“. Ekkert virðist hafa breyst í þess- um málum en málið varðar það fyr- irkomulag að þeir sem sækja um öku- skírteini þurfa að láta fylgja passamynd á pappír með umsókninni. Ekki er heimilt að senda myndina rafrænt og ekki er mögulegt að not- ast við myndir sem teknar hafa verið til afnota í vegabréf, að því er fram kemur á vefsíðu sýslumanna. Á skrif- stofum sýslumanna er ekki boðið upp á töku passamynda af þessari tegund en hins vegar eru þar teknar myndir fyrir vegabréf. Reglur um þetta eru bundnar í reglugerðir en hjá sýslumanni feng- ust þær upplýsingar að reglugerðir kveði á um að ekki sé heimilt að af- henda myndir úr vegabréfaskrá, nema til nánustu ættingja ef vega- bréfshafi er látinn. Þá er skylt að af- henda mynd á ljósmyndapappír þeg- ar sótt erum ökuskírteini. Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á höfuð- borgarsvæðinu, kveðst ekki hafa heyrt af vinnu við að breyta fyr- irkomulaginu og segist telja að hann myndi hafa heyrt af því ef svo væri. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, segist ekki þekkja rökin á bak við reglurnar en furðar sig á því að þær hafi ekki verið færðar til nútímans. „Þetta eru einhverjir hnökrar í stjórnkerfinu. Í öðru tilvik- inu er tekin mynd á staðnum og hinu ekki. Þetta eru kannski einhverjar leifar frá gamalli fornöld.“ Þá bætir hann við: „Maður hefði haldið að upp- lýsingatæknibyltingin ætti að minnka vesen og skera burt milliliði.“ Í svari frá dómsmálaráðuneytinu við fyrirspurn Morgunblaðsins sagði m.a.: „Þessa dagana leiðir fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnuhóp með fulltrúum allra ráðuneytanna, sem hefur það hlutverk að greina löggjöf sem heyrir undir hvert ráðuneyti þannig að eyða megi lagahindrunum fyrir stafrænni þjónustu. Öku- skírteini heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, þótt fram- kvæmdin sé á vegum sýslumanns- embætta. Sýslumenn geta því ekki breytt verklagi sínu nema til komi breytingar á lögum eða reglugerð- um.“ teitur@mbl.is Verða enn að skila passamynd á pappír  Ný ökuskírteini fást á gamla mátann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.