Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 -25% S U M A R Ú T S A L A Unfurl svefnsóf i kr . 109 .900 nÚ kr. 87.920 10 - 50 % afsláttur af öllum vörum The Telegraph velti um daginnvöngum yfir því hversu margir af áköfustu stuðningsmönnum að- ildar Bretlands að ESB gætu út- skýrt hvernig sambandið veldi í æðstu stöður. Og blaðið sagði að ef þeir þekktu þetta ekki, eins og það gerði ráð fyrir, þá væru þeir hrifnir af „hugmyndinni um ESB, ekki ólýðræðis- lega skrifræðis- brjálæðinu sem ESB er í raun“.    Ákafir stuðnings-menn aðildar, hvort sem er í Bret- landi eða annars staðar, með Þýska- land sem mögulega undantekningu, þekkja ekki heldur þann sem varð ofan á í vali sem næsti forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen.    Þessi varnarmálaráðherra Þýska-lands hefði aldrei náð kjöri í lýðræðislegum kosningum til æðsta embættis slíks ríkjasambands, en ESB lýtur ekki lýðræðislegum lög- málum svo það kom ekki að sök.    En hver er Ursula von derLeyen? Á mbl.is um helgina var bent á að hún hefði „ítrekað lýst þeirri skoðun sinni á liðnum árum að hún vilji að Evrópusambandið verði að sambandsríki á svipuðum nótum og Bandaríkin eða Sviss. Þá hefur hún einnig verið mikill tals- maður þess að sambandið komi sér upp eigin her.“ Bent var á að fleiri forystumenn innan Evrópu- sambandsins hefðu talað á sömu nót- um á undanförnum árum.    Þá kemur fram að forseti sam-taka sem vilji að ESB verði sambandsríki segi að auðveldara verði að ná þessu markmiði eftir að Bretland yfirgefi sambandið, þar sem það hafi staðið gegn þessari þróun. Ursula von der Leyen ESB þokast nær sambandsríki STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ 611 umsóknir bárust umboðsmanni skuldara frá fyrsta janúar til fyrsta júlí í ár. Það er talsvert minna en á sama tímabili síðustu þrjú ár eða 15% minna en á sama tímabili í fyrra þeg- ar umsóknirnar voru 718 talsins. Þetta kemur fram í minnisblaði umboðsmanns skuldara. Þó bárust fleiri umsóknir vegna greiðsluaðlögunar einstaklinga en á sama tímabili síðustu þrjú ár. 258 umsóknir bárust vegna þess þetta árið og er það tæplega fjórðungi meira en á sama tímabili í fyrra. Í greiningu umboðsmanns skuld- ara á aldursskiptingu umsækjenda um greiðsluaðlögun kemur fram að á síðustu árum hafi orðin ákveðin kyn- slóðaskipti í þeim hópi. Árið 2012 voru einstaklingar á aldrinum 17-29 ára 4,86% umsækjenda en hlutfall þeirra hefur vaxið jafnt og þétt og var hópurinn 27,3% umsækjenda í fyrra. Einstaklingum 40 ára og eldri sem sækja um greiðsluaðlögun hefur far- ið fækkandi frá árinu 2012. Stærstur hluti þeirra sem sóttu um greiðsluaðlögun í fyrra, rétt eins og fimm ár þar á undan, var fólk á aldrinum 30-39 ára. Sá aldurshópur var í fyrra 30,1% af umsækjendum. ragnhildur@mbl.is Fleiri sækja um greiðsluaðlögun  Hlutfall ungs fólks hefur vaxið úr tæpum 5% í rúm 27% á sex árum Morgunblaðið/Hari Umboð Húsnæði umboðsmanns skuldara stendur við Kringluna. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa á síðustu dögum orðið varir við fljúgandi asparfræ, sem minna á snjódrífu, víða um borgina. Grasafræðingurinn Jóhann Páls- son segir í samtali við Morgunblaðið að öspin felli fræ óvenjusnemma í ár. Fella fræ þremur vikum fyrr „Venjulega eru aspirnar að fella fræ um mánaðamótin júlí-ágúst. Það er ekki komin nema rúm vika af júlí þegar hún byrjar núna,“ segir Jóhann og bætir við að ástæðan fyrir því sé hversu snemma voraði. „Það er eiginlega allur gróður þremur vikum fyrr á ferðinni en venjulega.“ Jóhann segir merkilegt hversu mikið sé af asparfræjum miðað við hversu mikill þurrkur hafi verið þetta sumarið. Segir hann að rign- ingin sem hafi komið eftir þurrkinn hafa bjargað gróðrinum. „Þetta er eiginlega alveg eins og dúnn. Mikið af hárum og örlítið fræ í þessu. Ef maður leggur þetta í raka mold þá spírar þetta á tveimur til þremur dögum og litlar aspar- plöntur koma upp.“ Jóhann segir asparfræ venjulega ekki valda ofnæmi og kveðst halda flest ofnæmisvaldandi frjókorn séu hætt í dreifingu. „Svo held ég að flest grös séu bú- in, að minnsta kosti hér í byggð,“ segir Jóhann en bætir við að enn geti einhver grös valdið ofnæmi enda eigi einhver eftir að blómgast eða blómgist aftur eftir að gras er slegið. Sumarsnjór víða í höfuðborginni Morgunblaðið/Baldur Sumarsnjór Asparfræin vöktu at- hygli vegfarenda á leið um Skeifuna.  Asparfræin óvenjusnemma á ferðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.