Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 10

Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 10
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Fjölmennt var á hinni árlegu gos- lokahátíð í Vestmannaeyjum sem haldin var um helgina en 100 ára af- mæli Vestmannaeyjakaupstaðar var einnig fagnað á Heimaey á föstudag- inn var. Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi flutti ferjan rúmlega 6.000 farþega til Vestmannaeyja frá fimmtudegi til sunnudags. Dagskrá goslokahátíðarinnar hófst með 100 ára afmælishátíð á Skanssvæðinu á föstudaginn þar sem Leikhópurinn Lotta setti upp sýningu og stutt ávörp voru flutt m.a. af fulltrúum ríkisstjórnarinnar, Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni, auk þess sem Eliza Reid forsetafrú sagði nokkur orð. Fullbókað var á stórtónleika sem haldnir voru á föstudagskvöldið í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja, í tilefni af afmælishátíðinni. „Það hefur gengið ofboðslega vel. Dagskráin var mjög fjölbreytt og svo hefur veðrið leikið við okkur, menningin og mannlífið hefur blómstrað um helgina,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, í samtali við Morgun- blaðið. „Ef ég á að velja eitthvað sem stendur upp úr þá var það athöfnin úti á Skansi og afmælistónleikarnir en mér fannst öll dagskráin heppn- ast mjög vel. Allt hefur iðað af lífi, mjög margir sóttu okkur heim,“ seg- ir Íris sem bætir við að allir hafi not- ið sín sérstaklega vel vegna veður- blíðunnar. Hún segir auk þess að dagskráin hafi gengið frábærlega á laugardaginn en mikið var um vera bæði yfir daginn og um kvöldið. „Þetta var allt mjög vel heppnað. Mikil áhersla var á menningar- og listatengda viðburði og frábær þátt- taka í öllu.“ Veðurblíða lék við gesti á goslokahátíð og 100 ára afmæli Vestmannaeyjakaupstaðar Skansinn Fjölmennt var á 100 ára afmælishátíð á Skansinum á föstudaginn þar sem Leikhópurinn Lotta skemmti gestum í veðurblíðunni. Gaman Mikið var um að vera fyrir börn á hátíðinni en þau gátu skemmt sér konunglega í leiktækjum sem komið var fyrir við Stakkagerðistún. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Göngumessa Landakirkja hélt sérstaka göngumessu í tilefni af goslokahá- tíðinni þar sem gengið var frá kirkjunni að krossinum við Eldfell. Tónlist Fjölmennt var á stórtónleikum sem haldnir voru í tilefni 100 ára afmælis Vestmannaeyjakaupstaðar á föstudaginn. Blíðvirði Jafnt börn sem fullorðnir nutu veðurblíðunnar til hins ýtrasta á goslokahátíðinni og margir völdu að snæða úti til að njóta sólarinnar. Mannlífið blómstraði á goslokahátíðinni 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 15-20% afsláttur af ÖlluM AEG VÖruM OrMssOn DAGAR RUSLAFÖTUR Lágmúla 8 - 530 2800 OG BÚSÁHÖLD 20% afsláttur 20-25% afsláttur POTTAR OG PÖnnUR 15% afsláttur 15% afsláttur 20% afsláttur 15% afsláttur ÞVOTTAVÉLAR HELLUBORÐ VEGGOFnAR OG FLEIRI HEIMILISTÆKI ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR Engin gögn liggja því til grundvall- ar að starfsmenn sem unnu hjá Eld- um rétt hafi verið látnir sæta ósæmilegri meðferð eða brotið hafi verið gegn réttindum þeirra, eins og látið er liggja að í tilkynningu Efl- ingar. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Eldum rétt í kjölfar þess að Efling – stéttarfélag greindi frá því í fyrradag að fyrirtækið hefði hafnað sáttatilboði stétt- arfélagsins á fundi á föstudags- kvöld. Málið snýst um laun fjögurra starfsmanna sem unnu hjá Eldum rétt í gegnum starfsmannaleiguna Menn í vinnu en samkvæmt Eflingu voru mennirnir látnir sæta þving- unum, vanvirðandi meðferð og brot- ið var á ýmsum réttindum þeirra í samræmi við kjarasamninga. „Það er hörmulegt að fyrirtækið haldi áfram þessum leik að skýla sér á bak við einhverja lagatæknilega fimleika,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, og gef- ur lítið fyrir röksemdir Eldum rétt. Morgunblaðið/Hari Kjaramál Sáttaumleitanir Eldum rétt og Eflingar enn árangurslausar. Hafna ásök- un Eflingar  Neita ósæmilegri meðferð á starfsfólki Fasteignavelta á höfuðborgarsvæð- inu dróst saman um 9,7% milli maí- og júnímánaðar. Nam fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu alls 29.275 milljónum kr. í júní sem er rúmum 3.000 milljónum kr. minna en í maí- mánuði. Þetta kemur fram vef Þjóð- skrár Íslands. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga dróst saman einnig um 20,4% á sama tímabil. Meðalupp- hæð á hvern kaupsamning var 59 milljónir króna. Fasteignavelta utan höfuðborgar- svæðisins dróst einnig saman í júní- mánuði og nam alls 10.154 millj- ónum króna, sem er rúmlega 2.000 milljónum minna en í maímánuði. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Norðurlandi í júní 2019 var 101, mest allra landsvæða utan höfuðborgarsvæðisins. Heild- arveltan var 3.338 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33 millj- ónir króna. Fasteignavelta dróst saman milli mánaða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.