Morgunblaðið - 08.07.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.07.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisútvarpiðleikur laus-um hala á auglýsingamark- aði, nánast eftir- litslaust, og nýtir sér þar fimm millj- arða forskot frá skattgreið- endum. Þetta hefur ítrekað komið í ljós og í tengslum við stærri viðburði, líkt og heims- meistaramótið í knattspyrnu eða Eurovision-söngvakeppn- ina, hefur stofnunin leyft sér að ganga enn lengra en hún annars gerir. Stjórnendur stofnunarinnar kannast aldrei við yfirgang sinn og brot og þeir sem eftirlit eiga að hafa með þeim og gæta þess að þeir hegði sér í sam- ræmi við stöðu stofnunarinnar og lög sem um hana gilda, eða almenn samkeppnissjónarmið, gera lítið sem ekkert til að hemja þessa yfirgangssömu stofnun. Á dögunum gerðist það þó að Fjölmiðlanefnd, sem hefur al- mennt lokað augum og eyrum fyrir framkomu Ríkis- útvarpsins en um leið einbeitt sér að því að þvælast fyrir einkareknum miðlum, úrskurð- aði gegn Ríkisútvarpinu. Stofn- unin hafði gengið allt of langt í kostun á þáttum í tengslum við Eurovision. Í lögum um Ríkis- útvarpið er almennt bann við kostun, þó með þeim undan- tekningum að beita megi kost- un „við útsendingu íburðarmik- illa dagskrárliða til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningar- rétti“ og „við út- sendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllun um þá“. Ríkisútvarpið ákvað að setja sér reglur um auglýsingar út frá lögunum og bætti inn í þær að stofnunin mætti beita kostun í þeim tilvikum sem lögin greina og auk þess í því sem Ríkis- útvarpið kallar „afleidda dag- skrá“. Með þessari viðbót, sem er án lagastoðar, hefur Ríkis- útvarpið selt mun víðtækari kostun en heimild er fyrir. Fjölmiðlanefnd finnur að þessu og segir Ríkisútvarpið hafa brotið lög, en bætir því við að vegna fyrri samskipta við Fjöl- miðlanefnd, þar sem nefndin stóð sig ekki sem eftirlitsaðili, þá sé fallið frá sektarákvörðun í þeim málum sem um ræðir. Þetta hjáróma tiltal Fjöl- miðlanefndar verður tæplega til að Ríkisútvarpið breyti framgöngu sinni á auglýs- ingamarkaði. Þeir sem stofn- uninni stýra hafa séð að þeir komast upp með nánast hvað sem er og þegar þeir brjóta lög um auglýsingar, og brjóta þar með gegn keppinautum á markaði, meðal annars Síman- um, sem er sá sem kvartaði undan ofangreindum brotum, þá fá þeir ekkert annað en laufléttar skammir og geta haldið áfram að leita að nýjum leiðum til að teygja og toga þau lög sem stofnunin á að fara eft- ir. Ríkisstofnun brýtur lög með ósvífnum hætti og kemst upp með það } Lögbrot Ríkisútvarpsins Nýleg skoð-anakönnun breska fyrir- tækisins YouGov var forvitnileg, ekki síst fyrir þær sakir að breski Verkamanna- flokkurinn, sem hefur verið annar af lykilflokkum breska flokkakerfisins í rúmlega hundrað ár, mældist þar með um 18% fylgi, það minnsta í áratug, og lenti í fjórða sæti. Ýmsar ástæður mætti tína til fyrir þessu fylgishruni. Til dæmis hefur stefna flokksins færst allt of langt til vinstri og forysta flokksins hefur ekki verið trúverðug þegar kemur að útgöngu Breta úr Evrópu- sambandinu. Þá hefur flokk- urinn á síðustu misserum mátt glíma við þá ömurlegu ímynd að innan vébanda hans blómstri nú fólk sem hatist út í gyðinga. Allar þessar ástæður og fleiri eiga rót í einum og sama mann- inum, formanninum Jeremy Corbyn. Þar hefur ekki síst spilað inn í óákveðni í Brexit- málunum, þar sem hjarta Cor- byns virðist slá með út- göngusinnum, á sama tíma og flest- ir af þingliði og for- ystu flokksins vilja helst reyna að koma í veg fyrir að Bretar yfirgefi sambandið. Það kann því að vera nokkuð fyrirsjáanlegt að aðildarsinnar innan Verkamannaflokksins flykkist frekar að Frjáls- lyndum demókrötum, sem hafa verið einarðir í andstöðu sinni við Brexit. Þá hefur Brexit- flokkurinn veitt útgöngusinn- um, einkum úr Íhaldsflokknum en einnig Verkamannaflokkn- um öruggt skjól. Corbyn er í klemmu, þar sem hann hefur fælt frá sér báðar hliðar. Víst er að þetta vonleysi Verkamannaflokksins er heimatilbúinn vandi, en á sama tíma virðist Íhaldsflokkurinn vera að byrja að ná vopnum sín- um, þrátt fyrir að formanns- kjöri þar sé ekki enn lokið. Fátt bendir þó til þess, að Corbyn sé á útleið og líklega mun hann þurfa að gjalda afhroð í kosn- ingum til þess að stöðu hans verði ógnað. Vonleysi Verka- mannaflokksins skýrist af Corbyn} Forystuleysið hefnir sín H vernig lífið blómstrar, hvernig við gleðjumst og brosum hvert til annars þegar sólin skín. Ég er í raun svo auðmjúk og glöð yfir því hvernig lífið skiptir um lit þegar sólin umvefur okkur eins og hún hef- ur gert nú í sumar. Ég spái ekki einu sinni í það hvernig það er á Kanarí, hvernig það er á Tenerife eða hvernig það er hvar sem er. Heima er langbest akkúrat núna. Að stofna stjórnmálaflokk sem berst gegn fátækt ætti að höfða til allra þeirra sem ég er að berjast fyrir. Ekkert hefur verið ofar í huga mínum frá upphafi en að útrýma fátækt á Íslandi. Ég hlýt að velta því fyrir mér hvort fólkið mitt eins og ég vil kalla það, hvort ör- yrkjar og allir þeir sem eiga undir högg að sækja í sam- félaginu hafi ekki áttað sig á því að þeir eiga málsvara á Alþingi Íslendinga. Ég spyr: hvers vegna ekki að skoða eitthvað annað en það sem hefur ekki virkað hingað til? Svona er það bara. Ég er kannski ekki eins og formaður stjórn- málaflokks á að vera. En hvernig á hann að vera? Ég vil vera einlæg, sönn og tæta niður spillinguna sem er hér allt um kring. Ég skrifa hér litla pistla á 9 daga fresti, mig langar svo mikið til að þið heyrið það sem ég er að segja. Hvernig þessir litlu pistlar mínir enduróma Flokk fólksins og það sem við stöndum fyrir. Ég vil, til að mynda, alhæfa að án Flokks fólksins væri umræðan um bágindi og fá- tækt okkar minnstu bræðra og systra ekki eins og hún er nú. Allir stjórnmálaflokkar keppast við að þykjast vilja hjálpa en staðreyndin er sú að þeir hafa allir haft ærin tækifæri en hafa ekkert gert og er nákvæmlega sama. Ég er gjörsamlega furðu lostin því að í mínum huga getur það ekki annað en blasað við hvernig hefur verið farið með viðkvæmustu samfélagshópana í boði ekki bara núverandi stjórnvalda heldur þeirra sem á undan voru? Gullfiskaminnið Að öðru. Er það ekki skrítið að fyrrverandi forsætis- ráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafi til dæmis ekki gert neitt í því að koma í veg fyrir innleið- ingu orkupakka þrjú þegar hann gat það, heldur stígur nú fram eins og eitthvert óskabarn þjóðarinnar án þess að láta sjá sig í fyrstu umræðu um orkupakkann? Bara lítið dæmi um það hvernig pólitíkin virkar og allir eru búnir að gleyma öllu þegar tjaldið fellur. Því miður. Inga Sæland Pistill Sumar og sól Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Aðgerðir þar sem lögreglaleggur hald á mikið magnfíkniefna hafa yfirleitteinungis lítil áhrif á fíkni- efnamarkaðinn, bæði hérlendis og erlendis, og eru áhrif þeirra yfirleitt í mesta lagi tímabundin. Þetta segir Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morg- unblaðið en nýlega hafa verið flutt- ar fréttir af því að þrír ungir menn, rétt yfir tvítugt, sitji í gæslu- varðhaldi eftir að hafa verið teknir með risastóran skammt af kókaíni á Keflavíkurflugvelli í maí. Sagði fréttastofa RÚV frá því að um 16 kílógrömm væri að ræða, sem væri um fjórðungur alls magns kókaíns sem lögregla hefði lagt hald á á ára- bilinu 2014-2018. Segir Helgi að þessar fréttir séu kannski eins konar „endur- speglun á ástandi“ hér á landi og séu í takt við fréttir sem fluttar voru í vor af því að magn kókaíns í frárennslisvatni frá Reykjavík hefði margfaldast miðað við fyrri ár. „Mesta furða“ „Við höfum sögu af þessu hér heima. Við höfum fengið stór mál og höfum þá getað séð það hversu mik- il áhrif þetta hafði á markaðinn í kjölfarið, og það hefur í mesta lagi áhrif í mjög skamman tíma,“ segir Helgi spurður um hvaða áhrif stór- ar aðgerðir eins og sú sem nefnd er að ofan hafi á fíkniefnamarkaðinn. Nefnir hann í þessu dæmi mál eins og „skútumálið“ og „stóra fíkniefna- málið“ og segir: „Það er mesta furða, finnst manni stundum, hvað þetta hefur oft lítil áhrif á mark- aðinn.“ Segir hann að svo virðist sem fíkniefnainnflytjendur„hinkri“ í skamma stund eftir að stórar að- gerðir komast í hámæli. „Menn eru þá kannski komnir með efni inn í landið, og draga þá aðeins andann, og svo er þetta oft komið í sama horfið aftur mjög fljótt. Þetta kem- ur heim og saman við rannsóknir erlendis varðandi stórar aðgerðir þar sem lagt er hald á mikið magn fíkniefna. Þær hafa í sjálfu sér voðalega lítil áhrif á framboð eða markaðinn.“ Spurður hvaða vísbendingar um þróun fíkniefnamarkaðarins mál eins og ofannefnt gefa segir Helgi: „Það virðist vera mikil eftispurn. Það virðist vera talsvert mikið um þessi efni í okkar samfélagi,“ og vís- ar aftur á aðra mælikvarða eins og mælingu magns kókaíns í frárennsl- isvatni. „Því miður“ opinn markaður Spurður um aðgerðir af þess- um toga, þar sem hald er lagt á mikið magn fíkniefna, segist Mar- geir Sveinsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá miðlægri rannsókn- ardeild lögreglunnar, eiga erfitt með að segja til um hversu mikil áhrif slíkar aðgerðir hafi en segir það „klárt mál“ að mál á þessu stigi hafi einhver áhrif á fíkniefnamark- aðinn. „Þetta er eins og með annað. Þegar lítið framboð er á einhverju, sama á hvaða vöru það er, þá má búast við að verð hækki,“ segir hann og bætir við: „Hvort þetta þýðir að neysla á öðrum efnum aukist get ég ómögulega sagt til um.“ Eins og Helgi segir Margeir að áhrifin séu vitanlega tímabundin og segir: „Svona mál hafa auðvitað áhrif en ég get ómögulega sagt til um hversu lengi þau vara. Við erum bara að fást við opinn markað, það er bara því miður þannig.“ Áhrif aðgerðanna einungis tímabundin Morgunblaðið/Júlíus Fíkniefnainnflutningur Á árunum 2014-2018 lagði lögreglan hald á um 65 kílógrömm af kókaíni. Í maí lagði hún hald á 16 kílógrömm á einu bretti. „Samkvæmt rannsóknum er- lendis er þumalfingursreglan að það sé lagt hald á um það bil tíu prósent [innfluttra fíkniefna],“ segir Helgi aðspurður. „Það er metið út frá alls kyns gögnum sem menn eru með. Sjálfur hef ég alltaf metið sem svo að við séum með heldur hærra hlut- fall,“ bætir Helgi við og segist hafa byggt það á því að Ísland sé eyja og því séu leiðir til landsins torfærari heldur en „til dæmis í Evrópu þar sem menn geta ek- ið á milli landa og landamærin eru miklu opnari“. Segir hann hins vegar að þegar hann hafi viðrað þetta mat sitt meðal samstarfsmanna hér á landi, hafi það verið annarra mat að hlutfallið sé líklega það sama hér á landi og annars stað- ar. „Þess vegna minna.“ Leggja hald á um 10% HLUTFALLIÐ LÍKLEGA ÞAÐ SAMA Á ÍSLANDI Helgi Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.