Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 20
Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig pípara? FINNA.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9 -12. Handavinnuhópur kl. 12-15.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40- 12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Félagsvist kl. 13.00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13-15. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13.00. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.15 Canasta. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur er kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum með Margréti kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45,upplestur kl.11, hádegisverður kl.11.30, ganga m.starfsmanni kl.14, síðdegiskaffi kl.14.30, bíó í betri stofunni kl.15.30.Uppl í s.4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl.10:30, létt ganga sem allir geta tekið þátt í kl. 13.30, vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 18:30. Við minnum á upprifjunar námskeið á snjallsíma á morgun (9. júlí) kl.10.00 og spjaldtölvu á miðvikudaginn (10. júlí) kl. 13.00. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 ✝ Helgi Þór-arinsson fædd- ist á Þorbrands- stöðum í Vopnafirði 12. maí 1929. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 7. júní 2019. Foreldrar hans voru Salína Aðal- björg Einarsdóttir, f. 5.4 1889, d. 27.6. 1952, og Guðmundur Þórarinn Ketilsson, f. 7.11. 1875, d. 3.11. 1948. Systkini Helga voru Jón- ína Sigurlaug, f. 26.3. 1920, d. 8.11. 1990, Ólafur, f. 2.9. 1921, d. 10.2. 1954, og Friðjón, f. 10.11. 1925, d. 27.1. 1975. Samfeðra systkin Helga voru Ólafur, f. 15.10. 1897, d. 11.4. 1916, Berg- ljót Sigrún, f. 3.5. 1900, d. 31.10. 1973, Signý, f. 18.8. 1901, d. 28.12. 1990, Guðni Ágúst, f. 17.7. 1906, d. 15.5. 1987, Alfreð, f. 9.7. 1911, d. 5.4. 1992. Helgi kvæntist árið 1954 Ásu Kristínu Hermannsdóttur, f. 22.4. 1928. Börn þeirra eru: 1) Ólafur Þórarinn, f. 30.5. 1954, í sambúð með Lindu Sunn- anväder, f. 10.9. 1949; sonur Ólafs Þórarins af fyrra hjóna- bandi er Jonas Patrick Tallroth, f. 17.9. 1981, kvæntur Samönthu Peat Tallroth, dóttir þeirra er Freyja. Börn Lindu af fyrra hjónabandi og stjúpbörn Ólafs Þórarins eru Petra og Christian. 1998, Mist, f. 19.10. 2001, og Anna, f. 26.10. 2004. Börn Gerð- ar og stjúpbörn Þrastar eru Ið- unn Anna og Oddur Bragi. Syn- ir Ásu Kristínar af fyrra hjónabandi eru: 1) Kolbeinn Hermann Brynjólfsson, f. 10. júlí 1948, stjúpsonur Helga, kvæntur Eygló Lilju Ásmunds- dóttur, f. 6.6. 1952, sonur Her- manns af fyrra hjónabandi er Brynjólfur Jón, f. 31.3. 1968, kvæntur Guðrúnu Döddu Ásmundardóttur, börn þeirra eru Guðrún, Kolbeinn og Kjart- an. 2) Reynir Brynjólfsson, f. 28.9. 1951. Helgi og Ása Kristín skildu árið 1980. Helgi var í sambúð með Sig- ríði Þorláksdóttur, f. 15.4. 1934, börn hennar af fyrra hjónabandi eru: Anna, f. 16.7. 1954, Magnús, f. 4.10. 1956, Hildur Kristjana, f. 29.7. 1960, og Guðfinna, f. 25.1. 1968. Helgi bjó í Vopnafirði til 17 ára aldurs, lengst af á Þorbrandsstöðum í Hofsárdal, en fór til náms í Iðnskólanum í Reykjavík árið 1946. Þaðan lauk hann prófi í trésmíðum og svo meistaraprófi í húsasmíðum ár- ið 1951. Hann var húsasmíða- meistari í Reykjavík til ársins 1969 er hann flutti ásamt fjöl- skyldunni til Svíþjóðar. Þar starfaði hann sem trésmiður til ársins 1974 er fjölskyldan flutti aftur heim. Helgi stundaði tré- smíðar í Reykjavík það sem eftir var starfsævinnar. Útför Helga fer fram frá Seljakirkju í dag, 8. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. 2) Salína Aðal- björg, f. 16.11. 1958, gift Einari Long, f. 2.9. 1958, börn þeirra eru: Kristín Björk, f. 31.10. 1984, í sam- búð með Atla Má Þorgrímssyni, dæt- ur þeirra eru Hekla og Silfa Mjöll. Þór- ir, f. 7.3. 1989, í sambúð með Lilju Björk Runólfsdóttur. 3) Guð- mundur Örn, f. 28.8. 1961, í sam- búð með Hildi Jósefsdóttur, f. 27.2. 1965, dóttir þeirra er Helga Vilborg, f. 13.3. 1996, í sambúð með Jacob Erik Atte- hed, dóttir þeirra er Ellí Hildur María; synir Guðmundar Arnar af fyrra hjónabandi eru Emil Þór, f. 30.3. 1984, í sambúð með Valgerði Halldórsdóttur, sonur þeirra er Halldór Eldur. Krist- ján Oddur, f. 6.10. 1989, í sam- búð með Veroniku Sól Jóns- dóttur, sonur þeirra er Líam Þór. Dætur Hildar og stjúpdæt- ur Guðmundar eru Lena Sigríð- ur, f. 11.6. 1985, gift Glenn Hemmingsen, dætur þeirra eru Jenny Mairin, Saga Elise og Freyja Mund. Íris Andrea, f. 13.4. 1987, í sambúð með Stefan Wallnerström Karlsson. 4) Þröstur, f. 13.10. 1967, í sambúð með Gerði Jónsdóttur, f. 7.6. 1979; dætur Þrastar af fyrra hjónabandi eru Hlökk, f. 15.5. Pabbi talaði um það síðustu dag- ana að hann þyrfti fljótlega að komast austur. Það var ekkert nýtt. Hann var eiginlega alltaf á leiðinni austur. Hann var fæddur á Þorbrandsstöðum í Hofsárdal í Vopnafirði. Þar stóð torfbær sem var heimili hans þar til hann var 17 ára og fór til náms í Reykjavík. Hann missti föður sinn 19 ára og móður 23 ára. Hann var yngstur í stórum hópi systkina sem öll eru fallin frá fyrir margt löngu. Systk- inin voru pabba mjög kær og hann hélt góðu sambandi meðan þau lifðu. Þetta var glaðsinna og skemmtilegt fólk. Ég held hann hafi saknað þeirra mikið eins og æskuslóðanna. Hann var í essinu sínu þegar hann rifjaði upp gamla tíma, sagði sögur af fólki úr sveit- inni og fór með kveðskap. Ég skildi þetta alveg því ég var fjögur sumur í sveit á Þorbrandsstöðum hjá Hallgrími og Rúnu sem bæði voru skyld okkur. Þarna er dásamleg sveit og gott fólk. Pabbi var hlýr maður, yfirveg- aður og ákaflega lítið frekur, en ákveðinn þegar hann vildi það við hafa. Hann var þolinmóður pabbi og skilningsríkur, felldi ekki dóma þótt manni yrði á. Það var alltaf gott að leita til hans. Stundum sagði hann ekki margt en það sem hann orðaði skipti máli. Hann hafði lag á því að miðla af reynslu sinni á jákvæðan hátt, án þess að boða eða banna. Ég fékk að vinna með hon- um yfir sumarmánuði á mennta- skólaárunum. Þar kynntist ég öðr- um hliðum á honum. Hann var mikill fagmaður og slakaði aldrei á kröfum um gott handverk og vand- virkni. Hann var góður leiðbein- andi en skortur á verkviti fór í taugarnar á honum, jafnvel svo að jafnlyndi hans var ögrað. En mér þótti líka skemmtilegt að heyra hann rökræða af festu um fagið sitt, pólitík og önnur málefni. Hon- um gat þó blöskrað þegar óvarleg orð voru látin falla enda sjálfur ekki maður stórra yfirlýsinga. Pabbi hafði óþrjótandi áhuga á fólki og sögum þess. Hann las reiðinnar býsn af ævisögum, þjóðlegum fræðum, átthagarit- um að austan, ættfræði, hvers konar sagnfræðiritum og skáld- skap. Hann var auðvitað áskrif- andi að Glettingi, tímariti um austfirsk fræði. Maður kom aldr- ei að tómum kofunum ef talið barst að Austfirðingum, hvað þá austfirskum skáldum. Gunnar var þar aðalmaðurinn en líka Páll, Kristján fjallaskáld, Erla o.fl. Og öll skyld okkur auðvitað. Pabbi hafði sögur af sérkenni- legu fólki í hávegum og hafði sjálfur þann ágæta eiginleika að sjá iðulega eitthvað frásagnar- vert í fari fólks. Oft var eins og það söfnuðust að honum áhuga- verðir karakterar. Hann lá inni á spítulum síðustu mánuðina og það brást ekki að hann hafði frá skemmtilegu fólki að segja í hverri einustu heimsókn. Ég á eftir að sakna samtala við pabba um skáld og bækur og ég á eftir að sakna þess að heyra hann segja sögur af fólki og skella upp úr með honum. Ég sé eftir því að hafa ekki lært eitthvað af þeim aragrúa vísna sem hann hafði á hraðbergi um fólk og fyrirbæri; geri ekki ráð fyrir að þær varð- veitist í munni margra úr þessu. Ég vildi að ég hefði átt fleiri stundir með honum og sömuleið- is dætur mínar. Ég minnist með hlýju ferðalaga með honum sem áttu einhvern veginn alltaf upp- haf, miðju eða endi fyrir austan, veiðitúra upp í Ánavatn, rúnta á bílasölur bæjarins, bíóferða á unglingsárum og ótal stunda við bókaskápana; þar byrjaði lestr- aráhugi minn. Umfram allt er ég þakklátur fyrir góðhjartaðan föður. Þröstur Helgason. Á björtum og fallegum sum- ardegi kvaddi stjúpi minn, Helgi Þórarinsson. Við kynntumst fyrst 1955, hann og móðir mín, Ása, höfðu þá hafið sambúð og bjuggu á Bragagötunni. Ég hafði búið hjá ömmu og afa á Ísafirði en átti nú að hefja skólagöngu og flutti því til þeirra. Pabbi byrjaði á að labba með mér í mjólkur- búðina, spjölluðum við saman á leiðinni og hann stakk upp á að ég kallaði hann pabba sem gladdi mig mikið og það hef ég gert síðan og mjólkurbrúsann sem við vorum með á ég enn. Ólst ég upp á þessu yndislega heimili ásamt systkinum mínum Óla, Línu, Gumma og Þresti. Pabbi las mikið og var mjög fróð- ur sem kom vel fram í óteljandi tjaldferðum okkar fjölskyldunn- ar um landið. Pabbi og Friðjón bróðir hans voru miklir áhuga- menn um bíla og var oft var drjúgum tíma eytt á bílasölum að skoða og fannst mér það hinar skemmtilegustu ferðir. Pabbi kenndi mér að keyra og umgang- ast bílinn og halda snyrtilegum og hreinum. 1969 flytur fjöl- skyldan til Malmö í Svíþjóð og heimsóttum við Lilja þau þang- að. Það var auðvitað drifið í að fara í útilegu vítt og breitt um Skán og eigum við góðar minn- ingar úr þeirri ferð. 1974 flytur fjölskyldan heim aftur og sest að í Breiðholti. Mamma og pabbi skildu. Nokkru síðar kom Didda þá inn í líf hans og bjuggu þau saman upp frá því og voru þau dugleg að ferðast og njóta lífsins saman. Pabbi starfaði við smíðar alla tíð og voru verkefnin ærið mis- jöfn og mörg allt frá því að hjálpa okkur Lilju að byggja hesthús yfir í að ljúka starfsæv- inni á því að byggja Seljakirkju. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar og Diddu og fjöl- skyldu. Takk fyrir allt, pabbi minn, hvíl í friði. Hermann Brynjólfsson. Elsku afi Helgi, eins og við kölluðum þig alltaf, frá þeim degi þegar Sigríður Telma fæddist. Þegar þú varðst níræður 12.05. 2019 voru nákvæmlega 35 ár síðan ég hitti þig í fyrsta skipti með mömmu. Við höfum átt margar skemmtilegar stundir saman. Á tímabili voru Tommi og Jenni í sjónvarpinu, nákvæmlega kl. 19.55, ef ég var heima, kallaðir þú á mig og við horfðum á þá saman. Þú minntist á þetta þegar við hittumst í vor og við fórum að skellihlæja. Þegar við eignuðumst Sigríði Telmu hændist hún að afa sínum, þið gátuð setið og lesið saman í tíma og ótíma og margt annað lærði hún af afa sínum sem hún tal- ar ennþá um. Elsku afi Helgi, við gætum hald- ið áfram út í hið óendanlega en við kveðjum þig núna, elsku afi, takk fyrir ferðalagið sem við höfum átt saman. Elsku mamma, þú hefur misst góðan mann og vin en minningin lifir. Við vottum börnum Helga, barnabörnum og mökum innilega samúð. Góða ferð, elsku afi Helgi. Kveðja, Guðfinna, Eiríkur og Sigríður Telma. Í dag kveð ég Helga Þórarins- son frænda, yngstan ömmusystk- ina minna, Bergljótar Sigrúnar. Þó vald örlöganna stýrði því svo að við vissum hvor af öðrum, en kynnt- umst ekki náið fyrr en seint á lífs- leiðinni, sköpuðust frændsemi og tryggðarbönd sem héldu til hinsta dags. Fyrir níu árum komst á fjöl- mennt ættarmót í móðurætt mína. Allt frá Kleif á Fljótsdal til Grunnavatns í Jökuldalsheiði, um Vopnafjörð og Akureyri til Reykja- víkur. Staða- og ættarsöguna frá þeirri tíð þekktu fáir betur en Helgi og flutti hann framsögu af þekkingu og myndarskap. Þar urð- um við frændsystkinin og vensla- fólk margs vísari, enda Helgi mál- efninu kunnur. Við heimsókn á Landakot nokkru fyrir andlát, var okkur báð- um ljóst hvert stefndi. Tilfinninga- rík kveðjustund. Takk fyrir sam- fylgd og tryggð minn kæri frændi. Aðstandendum votta ég samúð. Þorberg Ólafsson. Okkur langar til að minnast Helga sem amma kynnti til leiks á Hótel Sögu þegar Hildur og Atli voru nýbúin að gifta sig. Hann varð strax órjúfanlegur hluti af fjöl- skyldu okkar. Helgi kom með ný sjónarmið og góðan anda inn í fjölskylduna. Hann studdi ömmu Diddu og börn- in hennar með ráðum og dáðum. Hann var klettur sem hægt var styðja sig við, smiður sem var oft leitað til, höfðinginn í útilegunni á Stóra Hofi og afi sem brúaði bil á milli kynslóða og tók vel á móti nýj- um fjölskyldumeðlimum. Ómetan- legt að amma hafi fundið hann. Hann var ómissandi hluti af jólahaldi fjölskyldunnar. Það var keppst við að skoða allar bækurnar sem hann fékk og stundum voru þær fengnar að láni. Hann vildi kjötið sitt ávallt vel steikt. Engar áhættur teknar þar. En skoðanir hans á jólabókaflóðinu og málefn- um líðandi stundar voru öllu djarf- ari og sköpuðu umræður fram eftir kvöldi. Þrátt fyrir að halda í hefðirnar var Helgi umburðarlyndur og ákaflega vel lesinn. Hann miðlaði visku sinni listilega áfram án þess að skyggja á aðra. Það er ekki hægt að minnast Helga án þess tala um hversu gott var að hlæja með honum. Þá notaði hann minni sitt, þekkingu og góðan húmor til að gleðja aðra. Minningin um einstakan mann lifir. Ásgeir Runólfsson, Hulda Björk Halldórsdóttir, Guðbjörg Runólfsdóttir, Anna Arnardóttir og Runólfur Rúnar Bjarna- son. Helgi Þórarinsson Ástkær móðir mín, unnusta, systir, mákona og frænka, KRISTÍN AÐALSTEINSDÓTTIR, lést á Kaiser-sjúkrahúsinu í Los Angeles hinn 25. júní. Útför verður auglýst sýðar. Aðalsteinn Dan Árnason John Bergeson Ragnar S. Aðalsteinsson Jónína Magnúsdóttir Eggert B. Aðalsteinsson Svanlaug Aðalsteinsdóttir Sigurjón Kristinsson systkinabörn Elsku engillinn okkar, mamma, tengdamamma, amma og langamma, MARÍA SIGURBORG JONNÝ RÓSINKARSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Melseli 8, kvaddi á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 1. júlí. Útför fer fram frá Fossvogskirkju 18. júlí klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar og B2 fyrir fagmennsku, alúð og manngæsku. Ottó K. Ólafsson Björk Baldursdóttir Jakob Ólafsson Helena S. Leósdóttir Little Rósinkar S. Ólafsson Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir Guðný Ólafsdóttir Ómar Þ. Gunnarsson Ásgeir K. Ólafsson Aðalheiður Gylfadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN FRIÐRIKSDÓTTIR, áður til heimilis á Lindargötu 66 og síðustu mánuði á Droplaugarstöðum, Reykjavík, lést á Landspítalanum 2. júlí 2019. Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju hinn 12. júlí kl. 15. Innilegar þakkir til starfsfólks A6 sem annaðist hana og okkur aðstandendur af einstökum hlýhug og nærgætni við andlát hennar. Edda Arndal Todd Zuvich Sunna Rún Baldvinsdóttir og fjsk. Sesselja Friðriksdóttir og fjsk. Þórður Friðriksson og fjsk. og afkomendur Kristínar Friðriksdóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.