Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 22

Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 50 ára Svanborg ólst upp í Garði en hefur bú- ið á Akranesi frá 1980. Hún er leikskólakennari að mennt og vinnur á Teigaseli. Maki: Heimir Krist- jánsson, f. 1969, vél- smiður hjá Akraborg. Börn: Tómas, f. 1989, Kristján Atli, f. 1997, og Andri Bergsteinn, f. 2003. Barnabörnin eru orðin tvö. Foreldrar: Bergmann Þorleifsson, f. 1943, húsasmiður, og Auður Sigurðar- dóttir, f. 1943, skrifstofutæknir. Þau eru búsett á Akranesi. Svanborg Bergmannsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er ekki stórmannlegt að geta ekki beðist afsökunar á mistökum sínum. Þú getur auðveldlega náð fram mark- miðum þínum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft ekki að hafa uppi neina til- burði til þess að vekja athygli. Langi þig í einhvern hlut skaltu hinkra við og sjá svo til, hvort hann er ennþá ómissandi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þú leggur áherslu á að hlusta og taka á móti visku annarra muntu koma mjög miklu í verk með mjög litlu erfiði. Láttu útlit ekki blekkja þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Örlögin eru í þínum höndum. Þú ert orkumikil/l og finnst þú eiga heiminn. Fall er fararheill. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það vefst eitthvað fyrir þér að taka ákvörðun um framhaldið í erfiðu máli. Langlundargeð þitt er á vörum allra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það gengur svo mikið á í kringum þig að þú þarft að gæta þess að verða ekki stressinu að bráð. Peningar koma og fara. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur verið varasamt að hlaupa upp til handa og fóta af minnsta tilefni. Vertu óhrædd/ur og farðu eftir eðlis- ávísun þinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það eru miklar breytingar í gangi í kringum þig. Reyndu að skyggn- ast undir yfirborð hlutanna áður en þú tekur afstöðu til þeirra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Minningar úr æsku þinni munu hugsanlega koma upp í hugann. Ekki hræðast það óþekkta. Láttu slag standa. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt ekki í erfiðleikum með að gera langtímaáætlanir í dag. Þú færð öllu þínu framgengt ef þú hækkar ekki róminn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í annarra mál að ástæðulausu. Þú lætur freistast til að kaupa hlut sem þig hefur lengi langað í. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fólk hlustar þegar þú talar, en í dag læturðu meira gott af þér leiða með því að hlusta. Reyndu að kynnast þér með því að vera ein/n í ró og næði. og sat í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni um árabil. „Ég lít á mig sem frekar félagslynda persónu og átti mjög ánægjulegt starf sem stjórnarmaður í Félagi eldri borg- ara og mjög ánægjuleg samskipti við menn og málefni innan Rotaryhreyf- ingarinnar bæði hérlendis og erlendis. Nú á ég fyrirmyndarsamskipti við fólk- ið þar sem ég bý í nágrenni Ríkis- útvarpsins í Hvassaleiti en þar er skemmtilegur félagsskapur. Svo fer ég í heimsókn á RÚV öðru hverju, en dóttir mín vinnur þar og sonur minn vann þar lengi. Ég fylgist enn með hvað er í sjónvarpinu og er haldinn af fréttasýki. Sem betur fer fer síðan tölu- verður tími í að fylgjast með fjölskyld- unni. Ég hef alveg nóg að gera og eftir að hafa afgreitt erfið veikindi fyrir 40 árum er ég við mjög góða heilsu og reyni að nýta mér það eins og ég get. Yfirleitt eru dagarnir frekar stuttir, ég bíð allajafna ekki eftir því að tíminn líði.“ Hinrik og kona hans voru lengi áhugasamir safnarar gamalla gripa; 31. maí 2006 færðu þau Sjóminjasafninu í Reykjavík safn sitt að gjöf, alls rúm- lega 700 muni. „Þetta eru munir sem við söfnuðum frá okkar upphafsstöðum en konan mín er úr Blöndudal. Við vild- ár að vinna sérverkefni fyrir Markús Örn Antonsson sjónvarpsstjóra.“ Hinrik sat í stjórn Bandalags ís- lenskra listamanna 1972-76, í fram- kvæmdanefnd alþjóðaárs barnsins 1979, í stjórn kvikmyndasjóðs í nokk- ur ár frá 1979, auk þess sem hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í stéttarfélögum kennara, borgar- starfsmanna og fyrir Félag kvik- myndagerðarmanna. Þá hefur hann starfað ötullega innan Rotaryhreyf- ingarinnar á Íslandi, var m.a. íslensk- ur ritstjóri Rotary Norden 2006-2009, H inrik Bjarnason fædd- ist 8. júlí 1934 í Rana- koti á Stokkseyri. „Ég er afsprengi fólks sem vann sjálfsþurftar- búskap til lands og sjávar, það voru ekki miklir peningar í umferð en það leið enginn skort. Þetta voru vinnu- samir og hamingjuríkir dagar bæði í mýrinni og fjörunni. Ég ólst upp í Ranakoti fram yfir fermingu og fór þá til borgarinnar að borgarvæða mig og var í þeim uppeldismálum sjálfur. Svo er annarra að meta hvernig til hefur tekist.“ Hinrik lauk kennaraprófi frá KÍ 1954, var í leikskóla Lárusar Páls- sonar 1952-54, stundaði nám í fé- lags- og uppeldisfræðum í Dan- mörku og Svíþjóð 1958-59 og var Fulbright-styrkþegi í Bandaríkj- unum 1959-60, sótti námskeið í gerð og upptökustjórn sjónvarpsþátta hjá sænska sjónvarpinu 1968 og hef- ur sótt fjölda námskeiða í uppeldis- og kennslufræði, tómstunda- og æskulýðsstarfi, kvikmyndagerð og sjónvarpsstörfum. Hinrik var starfsmaður á Kefla- víkurflugvelli 1953-56, skólastjóri á Vistheimilinu í Breiðuvík 1956-58, kennari við Breiðagerðisskóla 1960- 63 og Réttarholtsskóla 1963-71, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur 1971-79, stundaði þáttagerð við Sjónvarpið 1966-75, var frumkvöðull að gerð barnaefnis fyrir Sjónvarpið og fyrsti umsjón- armaður Stundarinnar okkar. Hann starfaði hjá Nordvision við gerð samnorrænna barna- og ung- lingaþátta 1969 og 1970, var deildar- og dagskrárstjóri lista- og skemmti- deildar Sjónvarps 1979-85 og mark- aðsdeildar Sjónvarps frá 1985-2000, er hann fór á eftirlaun. „Það vildi þannig til að þegar ég var kennari þá var ég með börn í framsögn og leik- list og vegna þeirrar athygli sem það vakti var mér boðið að taka það að mér að sjá um barnaefni í sjónvarp- inu,“ segir Hinrik aðspurður. „Það var mjög áhugavert og mikill aflvaki í mínu lífi. Ég vann frá haustinu 1966 við að undirbúa opnun sjón- varpsins og fram á nýja öld, því þeg- ar ég fór á eftirlaun 2000 var ég í eitt um koma mununum á góðan stað og erum mjög ánægð með þetta ráðslag.“ Fjölskylda Hinrik kvæntist 23.3. 1963 Kolfinnu Bjarnadóttur kennara, f. 30.5. 1937, d. 18.7. 2016. Hún var dóttir hjónanna Bjarna Jónassonar, bónda og fræði- manns í Blöndudalshólum, og Önnu Sigurjónsdóttur, bónda og húsfreyju. Börn Hinriks og Kolfinnu eru: 1) Bjarni, f. 6.9. 1963, myndasöguhöf- undur og þýðandi, sambýliskona hans er Susan Diol leikkona, en sonur hans og Dönu Fisarova Jónsson er Breki vinnusálfræðingur, f. 12.1. 1994; 2) Anna, f. 9.6. 1965, fjölmiðlafræðingur og yfirþýðandi við RÚV, sonur hennar er Hinrik Kolmar Önnuson, f. 23.7. 2011. Systkini Hinriks: Valgerður, f. 7.8. 1936, húsmóðir í Reykjavík; Kristín Sigrún, f. 26.5. 1938, húsmóðir í Reykjavík; Sigurður, f. 10.11. 1940, fyrrv. tannlæknir í Reykjavík; Guðjón, f. 10.11. 1940, d. 12.9. 2011, húsvörður í Reykjavík. Foreldrar Hinriks voru hjónin Bjarni Sigurðsson, f. 6.8. 1893, d. 16.11. 1954, bóndi og formaður í Ranakoti, og Þuríður Guðjónsdóttir, f. 19.4. 1900, d. 10.4. 1963, húsfreyja. Hinrik Bjarnason, fyrrverandi dagskrárstjóri á RÚV – 85 ára Nýárskvöld á Tenerife 2012 F.v.: Hinrik B., Bjarni, Anna, Kolfinna með Hinrik Kolmar og Breki. Sjónvarpið var mikill aflvaki Á Ítalíu Hinrik Kolmar og Hinrik B. á bryggju í Akropoli við Napólíflóa sunnanverðan í maí síðastliðnum. 40 ára Margrét er Reykvíkingur, býr í Grafarholti og er bók- ari að mennt. Maki: Hafsteinn Þór Eggertsson, f. 1982, múrarameistari og rekur eigið fyrirtæki, sem nefnist HM múr. Börn: Freyja Lind, f. 1998, Birta Sól, f. 2008, og Henrik Logi, f. 2010. Foreldrar: Ásgeir J. Kristjánsson, f. 1958, kranamaður hjá DS lausnum, og Hólmfríður Árný Vilhjálmsdóttir, f. 1960. Þau eru búsett í Reykjavík. Margrét Halldóra Ásgeirsdóttir Til hamingju með daginn Húsavík Heimir Dór Arnþórsson fæddist á Sjúkrahúsinu á Akureyri klukkan 7.33 þann 2. nóvember 2018, tæpum 6 vikum fyrir tímann. Hann vó 2.400 grömm og var 45 cm að lengd. Foreldrar hans heita Ásrún Ásmundsdóttir og Arnþór Hermannsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.