Morgunblaðið - 08.07.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 08.07.2019, Síða 24
 Íslensku stúlkurnar í U17 ára lands- liðinu í knattspyrnu mæta heimaliði Svía í dag um bronsverðlaun á Norð- urlandamótinu. Um er að ræða hálf- gerðan úrslitaleik Norðurlandaliða, því Þýskaland og England mætast í úr- slitaleik mótsins. Ísland fór taplaust í gegnum riðlakeppnina eftir 1:1 jafn- tefli í lokaleiknum gegn Dönum á laug- ardag. Amanda Jacobsen Andradóttir skoraði markið og skoraði því í öllum þremur leikjum Íslands í riðlinum.  Körfuknattleikslið Tindastóls og Þórs frá Þorlákshöfn bættu bæði við sig erlendum leikmönnum í gær. Þórs- arar sömdu við Omar Sherman, 23 ára bandarískan framherja, á meðan Tindastóll tilkynnti um samning við Jasmin Perkovic. Sá er 38 ára gamall Króati og varð deildarmeistari í Sló- vakíu á síðustu leiktíð, en þar á undan varð hann deildarmeistari í Austurríki.  Íslensku stúlkurnar í U18 ára lands- liðinu í körfuknattleik töpuðu í gær öðrum leik sínum í B-keppni Evr- ópumótsins sem fram fer í Norður- Makedóníu. Ísland mætti þá Portúgal og tapaði 65:49, eftir að hafa verið níu stigum undir í hálfleik. Ásta Júlía Gríms- dóttir fór á kostum, var stigahæst á vell- inum með 16 stig og tók 11 fráköst. Ís- land mætir Sviss í þriðja leik á morg- un. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Eitt ogannað Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is María Rún Gunnlaugsdóttir bætti sinn besta árangur í sjöþraut þegar hún vann til bronsverðlauna á Evr- ópubikarmóti í fjölþrautum sem fram fór á portgúgölsku eyjunni Madeira um helgina. Af sex ís- lenskum keppendum sem skráðu sig til leiks bættu þrír sinn besta árangur. María hlaut alls 5.562 stig, en átti áður best 5.488. María var í fjórða sæti af 25 keppendum eftir fyrri keppnisdag- inn á laugardag. Hún hljóp þá 200 metrana á 25,51 sekúndu, 100 metra grindahlaup á 14,46 sek- úndum, stökk 1,75 metra í hástökki og kastaði 11,94 metra í kúluvarpi. Á öðrum degi í gær stökk hún 5,44 metra í langstökki, kastaði 43,45 metra í spjótkasti og hljóp 800 metra hlaup á 2:20,50 mínútum. Það skilaði henni bronsverðlaunum og alls 5.562 stigum eins og áður sagði. Glódís Edda Þuríðardóttir varð í 13. sæti með 4.777 stig sem einnig er hennar besti árangur. Hún hljóp 800 metrana þá meðal annars á 2:20,33 mínútum og vann sína riðla bæði í 100 metra grindahlaupi, á 14,69 sekúndum, og í 200 metra hlaupi á 25,60 sekúndum. Benjamín í fimmta sætinu Í karlaflokki hafnaði Benjamín Jóhann Johnsen í 5. sæti í tugþraut með 7.146 stig sem er hans besti árangur. Hann vann meðal annars hástökkskeppnina þegar hann fór yfir 1,98 metra. Þá vann hann einn- ig sinn riðil í stangarstökki þegar hann fór yfir 4,40 metra. Þá kast- aði hann 58,47 metra í spjótkasti, sem var næstlengsta kastið í hans riðli og kom fjórði í mark í 1.500 metra hlaupi á 4:40,95 mínútum. Ísak Óli Traustason hafnaði í 13. sæti með 6.695 stig, sem er nálægt hans besta árangri. Hann vann sinn riðil í 100 metra hlaupi á 11,18 sekúndum og var annar í sínum riðli í 400 metra hlaupi á 50,37 sek- úndum. Andri Fannar Gíslason hætti keppni á öðrum degi í gær eftir að hafa fellt byrjunarhæð í stangar- stökki og þá hætti Sindri Magnús- son vegna meiðsla á fyrri keppnis- degi. María bætti sig og vann bronsið  Þrjú náðu sínum besta árangri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brons María Rún Gunnlaugsdóttir bætti sinn besta árangur í sjöþraut. Viðar Örn Kjartansson, landsliðs- maður í knattspyrnu, skoraði sitt sjötta deildarmark fyrir Hammar- by þegar liðið vann stórsigur á Fal- kenberg, 6:2, í sænsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gær. Viðar Örn er í láni hjá Hammar- by frá Rostov í Rússlandi, en láns- samningurinn rennur út þann 14. júlí. Hammarby á ekki næst leik fyrr en daginn eftir og því gæti þetta hafa verið kveðjumark Viðars hjá liðinu. Hammarby hefur mikinn áhuga á að halda Viðari hjá félag- inu, en óvíst er hvort það takist. Kveðjumark hjá Viðari Erni? Ljósmynd/@Hammarbyfotboll Hammarby Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt sjötta mark um helgina. Eftir tólf ára bið eftir titli fagnaði Brasilía loks í Ameríkubikarnum í knattspyrnu eftir sigur á Perú í úr- slitaleik mótsins á Maracana- leikvanginum í Ríó í gærkvöldi, 3:1. Gabriel Jesus, leikmaður Man- chester City, var áberandi þar sem hann lagði upp fyrsta markið fyrir Everton, skoraði annað markið og var svo rekinn af velli með rautt spjald á 70. mínútu. Það kom þó ekki að sök því Richarlison innsigl- aði sigur Brasilíu úr vítaspyrnu, en áður hafði Paolo Guerrero skorað úr víti fyrir Perú fyrr í leiknum. Brasilía hefur nú unnið þessa keppni níu sinnum, síðast árið 2007, en Úrúgvæ á flesta titla að baki eða 15 talsins. Í öðru sæti yfir flesta titla er Arg- entína með 14 slíka, en liðið vann ríkjandi meistara Síle, 2:1, í leikn- um um þriðja sætið á laugardag. Mörkin skoruðu Sergio Agüero og Paulo Dybala áður en Arturo Vidal minnkaði muninn. Mesta athygli vakti þó að stærsta stjarna argent- ínska liðsins, Lionel Messi, fékk rautt spjald í fyrri hálfleik og neit- aði að taka við bronsverðlaunum sínum vegna ósættis við dómgæsl- una í mótinu. yrkill@mbl.is Fyrsti titill til Brasilíu í 12 ár AFP Meistarar Brasilíska landsliðið með sigurlaun sín í Ameríkubikarnum í gær- kvöld, en þetta er níundi sigur liðsins í keppninni og sá fyrsti frá árinu 2007. 1991. Þá unnu Sovétríkin í síðasta sinn, en það var raunar 17. titillinn í röð eftir samfellda sigurgöngu frá árinu 1960. Sovétríkin unnu alls 20 Evrópumeistaratitla, en Spánverjar eru nú komnir í annað sætið yfir flesta titla með fjóra talsins. Rúss- ar, sem höfnuðu í 8. sæti mótsins í ár, koma næstir með þrjá titla á bakinu. Heimakonur frá Serbíu unnu bronsverðlaun eftir sigur á Bret- landi í leiknum um þriðja sætið, 81:55, en þetta var í fyrsta sinn sem Bretar komast svona langt á Evrópumóti. yrkill@mbl.is Spænska kvennalandsliðið í körfu- knattleik fagnaði í gærkvöldi sínum öðrum Evrópumeistaratitli í röð eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik í Belgrad, 86:66. Þetta er í fjórða sinn í röð sem Frakkar fá silfur- verðlaun um hálsinn, en þeir unnu keppnina síðast fyrir áratug. Spán- verjar hafa hins vegar unnið þrjár af síðustu fjórum Evrópukeppnum og minna á sig sem stórveldi í körfuboltaheiminum. Það er óhætt að segja að Spán- verjar hafi fetað í söguleg fótspor með því að verja titil sinn, því það hefur engu liði tekist frá árinu Spánverjar í söguleg fótspor AFP Evrópumeistarar Spænska landsliðið er hér með Evrópubikarinn á lofti í fjórða sinn í sögu sinni eftir sigurinn á Frökkum í úrslitaleik í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.