Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 2

Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Rekstrarhagnaður hótela á lands- byggðinni var almennt lakari en í Reykjavík á síðasta ári, og var rekstrarafkoman að meðaltali nei- kvæð á Vesturlandi og Norðurlandi en jákvæð á Suðurlandi og Suður- nesjum. Þá sýnir samanburður við fyrri ár að rekstrarafkoman hefur farið versnandi frá 2016 um allt land. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun sem KPMG vann fyr- ir Ferðamálastofu um afkomu hót- elfyrirtækja 2018 með samanburði við fyrri ár. Í könnuninni kemur einnig fram að laun séu að jafnaði hærra hlutfall af tekjum hjá hótelum á landsbyggð- inni en í Reykjavík, en laun sem hlutfall af tekjum námu 44,8% hjá hótelum á landsbyggðinni árið 2018, en 36,3% hjá hótelum í Reykjavík á sama tímabili. Segir í fréttatilkynn- ingu Ferðamálastofu um könnunina að útskýringuna megi að hluta til rekja til þess að veitingasala sé al- mennt hærra hlutfall af tekjum hjá fyrirtækjum úti á landi en í Reykja- vík. Þá kemur einnig fram í niður- stöðum könnunarinnar að meðalverð á herbergi er lægra og herbergja- nýting minni á landsbyggðinni en í Reykjavík. Lakari afkoma á landsbyggðinni  Rekstrarafkoma versnað frá 2016 Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Afkoma hótela er lakari á landsbyggðinni en í Reykjavík. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur nú birt þrjú mál til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, en málin tengjast fyrirhuguðum lagabreyt- ingum sem gera þarf vegna stuðn- ings stjórnvalda við gerð lífskjara- samninganna svonefndu í apríl síðastliðnum. Eiga aðgerðir stjórn- valda að styðja við markmið um stöðugleika í efnahagsmálum og bætt kjör launafólks. Þrjú mál eru nú til umsagnar í gáttinni, en þar má nú skoða drög að lagafrumvarpi um skref til af- náms verðtryggingar, áform um lagabreytingar vegna jöfnunar líf- eyrisréttinda og áform um stuðning við öflun íbúðarhúsnæðis. Gefst fólki kostur á að veita umsögn um málin fram til 26. ágúst næstkom- andi. Vísitala án húsnæðis nú leyfð Nái fyrirhugaðar breytingar á lögum nr. 38/2001 um vexti og verð- tryggingu fram að ganga verður heimilt að notast við annaðhvort vísitölu neysluverðs eða vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Segir í nýjum millilið 14. greinar frum- varpsins að grundvöllur verðtrygg- ingar í neytendalánum og fast- eignalánum til neytenda skuli vera vísitala neysluverðs án húsnæðis. Þá er sérstaklega tiltekið að láns- tími verðtryggðra neytendalána og fasteignalána til neytenda eigi að vera á bilinu tíu til 25 ár, en þó megi veita undanþágu frá þeim há- markstíma ef lántaki er yngri en 44 ára eða skattskyldar tekjur lántaka eru undir 4,2 milljónum hjá ein- staklingum og 7,2 milljónum ef fleiri en einn taka saman lán. Lífskjara- mál sett í samráð  25 ára hámark á verðtryggðum lánum Morgunblaðið/Hari Lífskjarasamningur Stjórnvöld samþykktu að liðka til við gerð kjarasamninga í apríl síðastliðnum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skráð atvinnuleysi í júní var 3,4% samkvæmt áætlun Vinnumálastofn- unar. Atvinnuleysið hefur því minnk- að um 0,3% frá því í apríl er það náði hámarki eftir gjaldþrot WOW air. Samtals 688 einstaklingar fóru af atvinnuleysisskrá í júnímánuði og fóru þar af 365 í vinnu eða um 53%. Minnkandi atvinnuleysi skýrist því ekki fyrst og fremst af fjölgun starfa nú yfir hábjargræðistímann. Flugfélagið fækkaði þotum og sagði upp hundruðum manna í des- ember sl. Var það meginskýring þess að atvinnuleysið jókst í 3% í jan- úar. Gjaldþrot félagsins 28. mars er svo meginskýringin á því að atvinnu- leysið jókst í 3,7% í apríl. Vegna sam- dráttar, einkum í ferðaþjónustu, hafa fleiri fyrirtæki sagt upp fólki. Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, segir aðspurður að 3,4% atvinnuleysi í júní sé mikið í samhengi síðustu áratuga á Íslandi. Leita þurfi til samdráttarskeiðanna 1993-97 og 2003-4 og áranna eftir efnahagshrunið 2009 til að finna sambærilegar tölur um sumarið. Meiri aukning hjá útlendingum Að jafnaði voru 6.723 einstakling- ar á atvinnuleysisskrá í júní. Það voru 44 færri en í maí en 2.657 fleiri en í júní í fyrrasumar. Spár um að þúsundir myndu missa vinnuna með falli WOW virðast hafa raungerst. Af þessum 6.723 sem voru án vinnu í júní voru 2.578 erlendir ríkis- borgarar án vinnu sem samsvarar 7,4% atvinnuleysi meðal þeirra. Hef- ur þeim fjölgað um 79 frá því í apríl. Á sama tímabili hefur hlutfall ís- lenskra ríkisborgara án vinnu lækk- að. Að sögn Karls má gera ráð fyrir að atvinnuleysið aukist í haust, eins og jafnan gerist á Íslandi, og að það verði síðan meira sumarið 2020 en í sumar, eða í kringum 4%. Færri hjá starfsmannaleigum Alls voru 913 starfsmenn skráðir hjá innlendum og erlendum starfs- mannaleigum í júní og voru þeir á vegum 26 starfsmannaleiga. Til sam- anburðar voru 1.552 starfsmenn hjá 30 starfsmannaleigum, innlendum sem erlendum, í júní í fyrrasumar. Það er samdráttur um 41%. Síðustu þrjá mánuði hafa verið greiddir 5 milljarðar í hefðbundnar atvinnuleysisbætur. Við það bætast tæplega 600 milljónir króna í barna- dagpeninga og tekjutengdar at- vinnuleysistryggingar. Atvinnuleysi minnkar milli mánaða  Var 3,4% í júní  Um 5 milljarðar í atvinnuleysisbætur frá apríl til júní Atvinnuleysi í júnímánuði og spá fyrir 2020 9% 8% 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% 1990 1992 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018 2020 jan. feb. mars apríl maí júní Atvinnuleysi frá áramótum 3,0% 3,1% 3,2% 3,7% 3,6% 3,4% Atvinnuleysi í júnímánuði Meðaltal 1990-2018, 3,1% Heimild: Vinnumálastofnun Glitbrúsi, afar sjaldgæfur gestur, náfrændi him- brima og lóms, hefur undanfarna daga haldið til á vatni á Norðurlandi. Þessi fuglategund sást í fyrsta sinn hér á landi í júlí 2016, svo óyggjandi sé. Glitbrúsa er þó getið í íslenskum ritheim- ildum frá því um og fyrir aldamótin 1900. Glit- brúsi er á stærð við lóm. Nefið er samt ekki eins uppsveigt og á hinum síðarnefnda, heldur líkist fremur nefi himbrima, en er mun grennra. Glæsilegur glitbrúsi á ferð fyrir norðan Ljósmynd/Mikael Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.