Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan. Ólína Thoroddsen, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, og Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, lögðust báðar gegn því að stofnað yrði til fimm ára deildar í Grunnskóla Sel- tjarnarness. Þetta kemur fram í um- sögn þeirra til skólanefndar Seltjarn- arness en það var íbúi á Nesinu sem lagði fram erindið um stofnun fimm ára deildar við skólanefnd. „Að baki þessu liggja bæði fagleg- ar og praktískar ástæður. Þær fag- legu má m.a. rekja til laga og aðal- námskrár leikskóla, en þær praktísku að hluta til þess að börnum hefur nú fjölgað umtalsvert í Mýrar- húsaskóla og á frístundaheimili fyrir aldurshópinn 6-9 ára þannig að Grunnskóli Seltjarnarness er ekki af- lögufær um húsnæði, hvorki sem stendur né á komandi árum,“ segir í umsögn skólastjórnendanna. Þær telja einnig að faglegt starf fyrir fimm ára börn eigi að vera í sam- ræmi vð aðalnámskrá fyrir leikskóla, með áherslu á að halda í leikinn og annað sem tilheyrir leikskólanum sérstaklega. „Vissulega má finna dæmi um ólík rekstrarform þar sem börn á leikskólaaldri eru í skóla með grunnskólabörnum, en þau geta einnig ráðist af praktískum ástæðum sem eiga ekki við á Seltjarnarnesi,“ segir ennfremur í umsögninni. mhj@mbl.is Vilja ekki 5 ára bekk í skólann  Faglegar og praktískar ástæður, segja skólastjórar Morgunblaðið/Golli Seltjarnarnes Fimm ára börn verða áfram í leikskóla á Seltjarnarnesi. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Enginn starfsmanna Efstadals II greindist með E. coli-sýkingu en um þriðjungur starfsmanna hefur verið rannsakaður. Fjögur börn, 14 mán- aða til fjögurra ára, greindust í fyrradag og eitt bættist í gær í hóp þeirra 12 sem áður höfðu greinst með E. coli STEC-sýkingu. 17 börn hafa nú þegar greinst með E. coli STEC og þykir flest benda til að or- sök sýkingarinnar komi úr ís sem framleiddur og seldur var í Efstadal II, skammt frá Laugarvatni. Vona að allir jafni sig Sölvi Arnarsson, sem rekur Efstadal II ásamt systkinum sínum og fjölskyldum, segir að þau hugsi ekki um neitt annað en börnin sem veikst hafi og aðstandendur þeirra. „Hugur okkar er allur hjá börn- unum og fjölskyldum sem lent hafa í gríðarlegum áföllum og vanlíðan. Samkenndin er öll hjá þeim og okk- ar eina von er að allir komist heilir út úr veikindunum, annað skiptir ekki máli,“ segir Sölvi Jóhannes Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segir að upplýsingar um stöðuna hafi verið sendar fé- lagsmönnum í samráði við Embætti landlæknis. Að öðru leyti felist hlut- verk samtakanna í því að ráðleggja félagsmönnum um góða viðskipta- hætti og hvernig skynsamlegast sé að koma upplýsingum til almenn- ings. Upplýsingagjöfin fari eftir eðli og alvarleika mála. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að álag hafi aukist á heilsu- gæslustöðvarnar vegna fyrispurna og fjölgunar saursýna sem komið sé með, en sýnin eru send þaðan á sýkladeild til ræktunar. Sigríður segir að ekki sé tekið við saursýnum nema beiðni um slíkt frá lækni fylgi með og sýnið sé í sérstöku saur- sýnisíláti. Best sé að hafa samband við heilsugæslustöðvarnar ef fólk finni til einkenna. Allt gert sem hægt er Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segist áhyggjufullur yfir er- lendum ferðamönnum sem komið hafa í Efstadal II. Send hafi verið tilkynning á ensku til Samtaka ferðaþjónustunnar og Safe Travel og þau beðin um að dreifa þeim áfram til þeirra sem hafa verið á þeirra vegum. Einnig hafi Sótt- varnastofnun Evrópu og Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin, WHO, verið upplýst um stöðu mála. „Við erum búin að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að ná sem flestum sem höfðu viðkomu í Efsta- dal II. En ég er hræddur um að það sé óvinnandi vegur að ná í alla sem hlut eiga að máli í þessum faraldri,“ segir Þórólfur, sem segir enga ein- hlíta skýringu á því hvernig faraldur sé skilgreindur. Venjulega komi upp eitt til fjögur tilfelli hér og þar sem ekki sé hægt að tengja. En í tilfell- inu sem gangi yfir núna þar sem hægt sé að tengja saman á litlum stað mörg tilfelli sé það orðið far- aldur og það fyrir löngu. Þórólfur segir að ekki sé vitað hvers vegna E. coli-bakterían valdi alvarlegri einkennum hjá börnum en öðrum. Þórólfur telur að hugs- anlega gæti það verið út frá ónæm- isfræðilegum þáttum og hugsanlegt sé að á meðan við vöxum úr grasi myndum við ónæmi fyrir þessum bakteríum. Alþjóðastofnanir látnar vita  Sautján E. coli STEC-smit staðfest  Faraldurinn tilkynntur til WHO og Sótt- varnastofnunar Evrópu  „Hugur okkar hjá börnunum og fjölskyldum þeirra“ Morgunblaðið/Hari Efstidalur II Margir hafa átt góðar stundir í návígi við dýrin í Efstadal. Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir segir að ekki megi skapa ofsahræðslu gagnvart bakteríum. Þær séu lífs- nauðsynlegar til þess að við lifum og þar á meðal séu E. coli-bakteríur í þörmum. Mann- fólkið setji í sig alls konar bakteríur á hverjum degi en verði sjaldnast veikt, því þann- ig sé sambýlið við náttúruna og bakteríur. Þórólfur segir að E. coli STEC sem börn hafa sýkst af að undanfarið standi fyrir shigatoxin-myndandi E. coli sem geti valdið breytingum í þörmunum, oft blóðugum nið- urgangi og alvarlegum breyt- ingum eins og nýrnabilun, blóðleysi og krampa, sér- staklega hjá börnum, og erf- iðleikum hjá fullorðnum. E. coli sé samheiti yfir ákveðnar bakt- eríutegundir en noro sé veira og salmonella sé baktería sem valdi m.a. niðurgangi og geti valdið blóð- eða liðasýkingum. E. coli-bakt- eríur nauðsyn BAKTERÍUR Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Hún er á batavegi. Nýrun eru farin að taka við sér. Við tökum einn dag í einu,“ segir Áslaug Fjóla Magnús- dóttir, móðir tæplega þriggja ára stúlku, sem hlaut nýrnabilun eftir að hafa smitast af E. coli í Efstadal um miðjan júní en einkennin komu fram í lok júní. Stúlkan þurfti að fara í kviðskil- unarvél og lá þungt haldin á sjúkra- húsi um tíma. Hún fékk að fara heim í helgarleyfi í gær en mætir aftur á sjúkrahúsið á sunnudagsmorgun, það er að segja ef henni hrakar ekki heima hjá sér. Áslaug er vongóð um að hún útskrifist fyrir þriggja ára afmælið sem er 28. júlí næstkom- andi. Barnið hefur verið á sjúkrahúsi í 16 daga en hún var lögð inn 26. júní. Síðustu þrjá daga hefur rofað til og líðan hennar hefur verið nokkuð stöðug og hún hefur ekki þurft að nota kviðskilunarvél. „Matarlystin er að koma og hún er að braggast,“ segir Áslaug. Ekki er hægt að segja til um hvort hún eigi eftir að ná sér alveg eftir eitrunina. „Það er ekki hægt að segja til um það strax hvort hún nái sér að fullu eftir þessa eitrun. Læknarnir segja að það sé hægt í fyrsta lagi eftir ár. Næsta árið verð- ur hún undir eftirliti,“ segir Áslaug. Gulnaði upp í fangi föður síns Síðustu tæpar þrjár vikur hafa verið fjölskyldunni vægast sagt erf- iðar. Talsverðan tíma tók að greina E. coli-bakteríuna í barninu og á meðan þjáðist hún af krömpum og miklum verkjum. Þegar nýrun biluðu kom það fljótlega í ljós. „Þetta var hræðilegur tími,“ segir Áslaug og bætir við að á sjötta degi eftir að einkennin komu fram hafi nýrun gefið sig mjög snögglega sunnudaginn 30. júní í miklu maga- krampakasti. „Ég sé hana gulna upp í fanginu á föður sínum, þá var þetta að gerast. Sem betur fer vorum við á sjúkrahúsinu og læknar og hjúkr- unarfólk þyrptist að og allt fór í gang,“ segir Áslaug. Stúlkan þurfti að fara í bráðaað- gerð, þar sem kviðskilunarlegg var komið fyrir í kviðarholinu á henni. Þá þurfti hún að vera á gjörgæslu- deild fyrsta sólarhringinn meðan leggurinn var að gróa, en ekki er hægt að nota hann fyrr til að hreinsa nýrun. Það varð að gera kviðskilunina handvirkt fyrst um sinn ef svo má að orði komast til að bjarga lífi hennar áður en hægt var að tengja hana við vélina,“ segir Ás- laug. Þegar nýrun biluðu varð bjúg- söfnun við hjarta og önnur líffæri en heilinn slapp. Áslaug bendir á að HUS-eitrun af völdum E. coli-bakteríunnar sé lífs- hættuleg, dæmi eru um að börn hafi látist af völdum hennar. Bráð nýrna- bilun og blóðleysi stafar meðal ann- ars af því að E. coli gefur frá sér eit- ur sem lætur blóðið storkna í æðum líkamans, sérstaklega í nýrunum. 17 börn hafa greinst með E. coli- bakteríuna á síðustu dögum. Áslaug hvetur foreldra þeirra barna til að hafa samband við sig. „Við erum að ganga í gegnum það sama og það er alltaf gott að miðla af reynslunni,“ segir hún og er fegin að komast loksins heim til sín í skamma stund með dóttur sína, Anítu Katrínu. Taka einn dag í einu eftir E.coli-smit  Verður undir eftirliti næsta árið vegna smitsins E. coli Stúlkan var þungt haldin og þurfti að fara í kviðskilun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.