Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Alls sóttu 47 konur, karlar og börn
frá 16 löndum um alþjóðlega vernd
hér á landi í júnímánuði. Það eru
umtalsvert færri
en í sama mánuði
í fyrra þegar 87
sóttu um vernd.
Flestar umsóknir
komu frá fólki
með ríkisfang í
Írak og Vene-
súela, sjö frá
hvoru landi, fimm
komu frá Íran og
jafnmargar frá
Sýrlandi.
Þórhildur Hagalín, upplýsinga-
fulltrúi Útlendingastofnunar, segir
að miklar sveiflur séu jafnan á milli
mánaða í umsóknum. Ekki sé hægt
að draga ályktanir um fjölgun eða
fækkun umsækjenda af fjölda um-
sókna í einstökum mánuðum.
Alls bárust 369 umsóknir um al-
þjóðlega vernd á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs. Á sama tímabili í
fyrra voru umsóknirnar 322.
Í ár hefur 46 umsækjendum verið
veitt vernd hér á landi og 55 hafa
fengið svokallaða viðbótarvernd,
sem er veitt þeim sem eiga á hættu
dauðarefsingu, pyntingar eða
ómannúðlega meðferð af einhverju
tagi. Tíu fengu mannúðarleyfi.
Samtals eru þetta 111 einstakling-
ar; 28 konur, 45 karlar, 21 stúlka og
17 drengir.
Fleiri umsóknir frá Moldóvum
118 hefur verið synjað um dvalar-
leyfi það sem af er árinu, 99 sendir
úr landi á grundvelli Dyflinnar-
reglugerðarinnar, 88 hafa fengið
vernd í öðru ríki og 84 mál eru skráð
sem önnur lok. Það þýðir að um-
sækjandi hafi dregið umsókn sína til
baka eða horfið frá henni áður en
Útlendingastofnun tekur ákvörðun
um umsóknina.
Fækkun hefur orðið í hópi þeirra
sem koma frá svokölluðum öruggum
ríkjum, sem eru lönd þar sem talið
er að grundvallarmannréttindi séu
virt. Í ár hafa 49 umsóknir borist frá
borgurum slíkra ríkja, en fyrstu sex
mánuði ársins í fyrra voru þær 58.
Eina örugga ríkið þaðan sem um-
sóknum hefur fjölgað er Moldóva,
þær eru 18 það sem af er þessu ári
en voru þrjár fyrstu þrjá mánuði
ársins í fyrra. Þórhildur segir ástæð-
ur þeirrar fjölgunar ekki liggja fyrir,
slíkar umsóknir komi í bylgjum.
Í hópi þeirra sem hafa sótt um
vernd hér á landi í ár eru fjórir
fylgdarlausir drengir sem komu frá
Afganistan, Albaníu, Sómalíu og
Jemen. Engar stúlkur hafa komið
hingað án fylgdar í ár. Frá árinu
2016 hafa alls 67 fylgdarlaus börn
komið hingað til lands samkvæmt
tölum Útlendingastofnunar, 62
drengir og fimm stúlkur. „Þetta er
fjöldi þeirra sem hafa sagst vera
fylgdarlaus börn við komuna til
landsins, en þau hafa síðan ekki öll
reynst vera það,“ segir Þórhildur.
Umsækjendur um alþjóðlega
vernd eru ýmist búsettir á Ásbrú
sem er búsetuúrræði á vegum Út-
lendingastofnunar á gamla varnar-
liðssvæðinu eða í húsnæði í þeim
þremur sveitarfélögum sem eru með
samning við stofnunina; Reykjavík,
Hafnarfirði og Reykjanesbæ. Þór-
hildur segir að reynt sé að aðskilja
fjölskyldur frá einstaklingum þannig
að fjölskyldufók búi oftast á vegum
sveitarfélaganna, einstaklingar séu
á Ásbrú. „Það er vegna þess að fé-
lagsþjónustur sveitarfélaganna eru
betur í stakk búnar að veita fjöl-
skyldum þá þjónustu sem þær
þurfa,“ segir hún.
Sendir brott á grundvelli
Dyflinnarreglugerðarinnar
Fengu vernd í öðru ríki
Skráð sem önnur mál
99
88
84
Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi
Þjóðerni umsækjenda um alþjóðlega vernd í júní
Það sem af er ári
Heimild: Útlendingastofnun
47 sóttu um alþjóðlega vernd í júní
Afgreiðsla umsókna Veitt leyfi til dvalar Synjanir
46
55
10
Hafa
fengið
vernd
Hafa
fengið
viðbótar-
vernd
Hafa
fengið
mann-
úðarleyfi
Karlar
KonurDrengir
Stúlkur
45
28
17
21
Írak: 7
Sómalía: 1
Afganistan: 2
Senegal: 1
Marokkó:2
Íran: 5
Pakistan: 1Tyrkland: 2Kína: 4
Georgía: 3
Hvíta-Rússland: 1
Nígería: 3
Venesúela: 7
Albanía: 2 Úganda: 1Sýrland: 5
Flestir frá Írak
og Venesúela
Færri umsóknir frá öruggum ríkjum
Þórhildur
Hagalín
& 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
Garðatorg 2, 210 Garðbæ
73,2 fm – 2ja herb – laus strax
Afar falleg og björt 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með afgirtri verönd og
stæði i bílskýli. Íbúðin skiptist í gott anddyri, eldhús, stofa/borðstofa sem eru
opin og samliggjandi rými, baðherbergi, svefnherbergi og baðbergi. Frábær
staðsetning í miðbæ Garðabæjar. Stutt í alla helstu þjónustu svo sem skóla,
leikskóla, frístunda og íþróttaiðkun, heilsugæslu, verslanir, apótek, bókasafn
ofl.
44.800.000,-
71.500.000,-
163,9 fm – bílastæði
Glæsileg 150,4 fm íbúð í ásamt stæði í bílageymslu í góðu lyftuhúsi við
Borgartún 30a. Lyftan opnast beint inní íbúðina. Þvottahús er innan íbúðar.
Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott eldhús, flísalögð sólstofa með útgengi á
svalir, mjög stórar samliggjandi borðstofu/setustofur, gestasalerni, hjónasvíta
með baðherbergi, fataherbergi og þvottahúsi innaf. Afar glæsileg íbúð á
eftirsóttum stað.
Borgartún 30a, 105 Reykjavík
47.000.000,-
2ja herb. útsýnisíbúð á 7. hæð
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús-borðstofu, setustofu með útgengi á
útsýnissvalir, baðherbergi. Frábær staðsetning, stutt í alla helstu verslun og
þjónustu. Kringlan verslunarmiðstöð hinum megin við götuna. Í húsinu er
rekin þjónstumiðstöð fyrir eldri borgara á vegum Reykjavíkurborgar. Heitur
matur í hádeginu, ýmis dægradvöl. Hárgreiðslustofa og snyrtistofa eru
einnig starfræktar í húsinu.
Hvassaleiti 58, 105 Reykjavík
74.900.000,-
Strandvegur 6, 210 Garðabær
Aukin lofthæð – 4 svefnherb – bílastæði
Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á efstu hæð í góðu húsi við
Strandveg. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er með aukinni
lofthæð að hluta sem gefur henni mikla sérstöðu. Fjögur svefnherbergi eru
í íbúðinni. Þvottahús er innan íbúðar. Eignin er 137,7 fm - þar af geymsla
6,7 fm.
Opið hús
mánud. 15. júlí
17:15 til 17:45
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur ákveðið að kæra
ákvörðun Skipulagsstofnunar um að
fyrirhuguð breikkun Vesturlands-
vegar um Kjalarnes skuli háð mati á
umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin verður kærð til úr-
skurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála. Kærufrestur rennur út á
næstkomandi mánudag, 15. júlí.
Að mati Vegagerðarinnar er
ákvörðunin ekki í samræmi við fyrri
fordæmi og túlkun laga um mat á
umhverfisáhrifum hvað snertir
matsskyldu framkvæmda þegar ver-
ið er að breikka veg úr tveggja ak-
reina vegi í 2+1 veg. Þetta kemur
fram í frétt á heimasíðu hennar.
Nauðsynlegt sé því að fá frekari
umfjöllun um ákvörðunina með tilliti
til fordæmisgildis gagnvart öðrum
sambærilegum framkvæmdum.
„Ákvörðunin eins og hún er fram
sett getur að mati Vegagerðarinnar
valdið vafa um hvernig meðhöndla
eigi aðrar slíkar framkvæmdir með
tilliti til mats á umhverfisáhrifum.
Vegagerðin mun samhliða flýta
undirbúningi verkefnisins eins og
kostur er þannig að framkvæmdir
tefjist sem allra minnst,“ segir í
fréttinni.
Fyrr í vikunni fól bæjarráð Akra-
ness bæjarstjóranum, Sævari Frey
Þráinssyni, að kæra ákvörðun
Skipulagsstofnunar.
Helstu rök Skipulagsstofnunar
voru þau að með framkvæmdunum
yrði Vesturlandsvegur breikkaður
umtalsvert. Og með tengdum fram-
kvæmdum yrði rask talsvert meira
vegna endurbóta á núverandi hliðar-
vegum auk lagningar nýrra hliðar-
vega, allt að 11 kílómetrar. Þá væri
ótalið rask vegna annarra tengdra
framkvæmda eins og reiðvega og
göngu- og hjólastíga.
Vegagerðin unir
ekki ákvörðun
Flýtir undirbúningi á breikkun vegar
Morgunblaðið/Ómar
Umferðin Á álagstímum er bíll við
bíl á Vesturlandsvegi og slysahætta.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Undirbúningur fyrir bæjarhátíðina
Bryggjudaga á Þórshöfn stendur
sem hæst en yngsta kynslóðin tekur
þar fullan þátt og vinnur baki brotnu
í kassabílasmiðju af því tilefni enda
verður kassabílarallýið opnunar-
atriði Bryggjudaga.
Hátíðin hefst á fimmtudaginn 18.
júlí með því að þessir rennilegu
kassabílar bruna um bæinn og fjög-
ur börn verða að jafnaði með hvern
bíl. Kassabílasmiðjan er nýbreytni í
aðdraganda Bryggjudaga en hún er
staðsett í húsnæði smíðafyrirtækis í
bænum undir leiðsögn húsasmíða-
meistara og annarra laghentra svo
öll börn sem áhuga hafa geta mætt í
smiðjuna og tekið þátt í rallýinu.
Dagskrá Bryggjudaga er metn-
aðarfull og hefur nefndarfólk unnið
af kappi við að hafa hana sem fjöl-
breytilegasta og fyrir sem breið-
astan aldurshóp. Börnin bíða spennt
eftir „búbblubolta“ og froðufjöri sem
er löðrandi sápurennibraut, hoppu-
kastali verður á svæðinu og börnum
boðið á hestbak. Dorgveiðikeppnin á
bryggjunni hefur einnig mikið að-
dráttarafl og kjötsúpa verður á boð-
stólum við höfnina á föstudags-
kvöldi. Síðar um kvöldið mæta á
bryggjuna kraftmiklar drossíur og
reykspóla þar af krafti en bíla-
áhugafólk lætur sig aldrei vanta á
„burnout“.
Þá er ótalinn Brekkusöngur á
laugardagskvöldið við íþróttahúsið
og stórdansleikur sama kvöld þar
sem hljómsveit Tomma Tomm
ásamt og Regínu Ósk og Magna sér
um fjörið.
Kassabílarallý á Bryggjuhátíðinni
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Smíðað Húsasmíðameistarinn Kristján Úlfarsson aðstoðar unga bílasmiði.
Rannsókn á hnífstunguárásinni í
Neskaupstað á miðvikudagskvöldið
miðar vel áfram að sögn Jónasar
Wilhelmssonar Jensen, yfirlög-
regluþjóns hjá lögreglunni á Aust-
urlandi. Einn var úrskurðaður í
fjögurra vikna gæsluvarðhald
vegna málsins í fyrradag en mað-
urinn hyggst kæra gæslu-
varðhaldsúrskurðinn til Lands-
réttar.
Sagði Jónas í samtali við mbl.is í
gær að tæknideild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu hefði komið
austur og aðstoðað lögregluna á
Austurlandi við vettvangsrannsókn
í fyrradag.
Jónas sagði að málið væri annars
á viðkvæmu stigi og því væri ekki
hægt að gefa nánari upplýsingar
um framgang rannsóknarinnar eða
málsatvik að svo stöddu.
Í gæsluvarðhald
vegna hnífstungu