Morgunblaðið - 13.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
Stjórnmálamenn ræða iðulegaum þessar mundir þörfina á að
verja starfsemi frjálsra fjölmiðla og
er ekki vanþörf á. Fjárhagsstaða og
efnahagslegar aðstæður eru meðal
þess sem rætt er og þá ekki síst
hvernig
skapa megi
fjölmiðlum
lífvænlegt
starfs-
umhverfi.
Stjórn-andi Stofnunar Reuters um
rannsóknir í blaðamennsku, Ras-
mus Kleis Nielsen, ræddi þetta á
dögunum á ráðstefnu um varðstöðu
um fjölmiðlafrelsi. Þar gagnrýndi
hann að rafrænar útgáfur bæru
fullan virðisaukaskatt í Bretlandi,
20%.
Á hverju skyldi gagnrýnin helsthafa byggst? Jú, á því að ann-
að form blaðaútgáfu, það er að
segja á pappír, ber engan virðis-
aukaskatt í Bretlandi. Þetta taldi
Nielsen ósanngjarnt, sem von er.
En það er ekki aðeins Bretlandsem leggur engan virðisauka-
skatt á prentuð dagblöð; hið sama á
við um fleiri ríki Evrópu. Og flest
ríki álfunnar sem á annað borð
leggja virðisaukaskatt á blöð hafa
hann mjög lágan, aðeins örfá pró-
sent.
Þetta er sú leið sem flest ríkihafa valið til að styðja við
frjálsa fjölmiðla. Um leið gæta
mörg þeirra að því að ríkisfjöl-
miðillinn sé ekki að flækjast fyrir á
auglýsingamarkaði.
Svona hefur þetta verið víða í ná-grannaríkjum okkar um árabil,
öfugt við það sem hér þekkist. Hér
er umræðan allt önnur og er ekkert
annað en einmitt það; umræða.
Umræðan
hér og þar
STAKSTEINAR
Nokkuð hefur borið á hraðakstri á
Suðurlandsvegi, milli Hveragerðis
og Selfoss, en unnið er að fyrsta
áfanga tvöföldunar vegarins.
Til að hvetja vegfarendur til að
draga úr hraðanum hafa Íslenskir
aðalverktakar (ÍAV) gripið til þess
ráðs að setja upp hraðaskilti við
vestari enda hjáleiðar um veginn.
Hraðaskiltin eru í formi broskarla
sem brosa og lýsa grænir þegar
hraði bíla er undir hámarkshraða en
gretta sig með fýlusvip og rauðum
lit ef ekið er yfir hámarkshraða.
„Við settum upp tvo broskarla
fyrir tíu dögum og þeir virka mjög
vel. Einhvern veginn virðist inn-
byggt í fólk að sækjast eftir bros-
karli en vilja ekki fýlukarl. Vilja
ekki allir fá fallegt bros?“ er haft
eftir Ágústi Jakobi Ólafssyni, yfir-
verkstjóra ÍAV, í frétt á heimasíðu
Vegagerðarinnar. Hann segir jafn-
framt að einstaka bílstjóri hafi tekið
fram úr á þessum kafla, sem er al-
gerlega bannað. En að flestu leyti
hafi umferðin gengið vel og öku-
menn verið til fyrirmyndar.
„Framkvæmdirnar ganga vel. Við
erum nokkurn veginn á áætlun þrátt
fyrir einhverjar tafir og stefnum að
því að klára verkið um miðjan októ-
ber,“ segir Ágúst Jakob.
sisi@mbl.is
Broskallarnir virka vel á ökumenn
Breikkun Suðurlandsvegar er á
áætlun hjá ÍAV Verklok í október
Ljósmynd/Vegagerðin
Fjölmargar umsóknir bárust í fjögur
laus embætti presta í Austfjarða-
prestakalli. Þetta er nýtt sameinað
prestakall fyrir nokkrar sóknir á
Austurlandi.
Eftirtaldir sóttu um. Sumir sóttu
um fleiri en eitt hinna fjögurra
prestsembætta: Alfreð Örn Finnsson
guðfræðingur, Benjamín Hrafn
Böðvarsson guðfræðingur, séra Erla
Björk Jónsdóttir, Dagur Fannar
Magnússon guðfræðingur, Ingimar
Helgason guðfræðingur og Jar-
þrúður Árnadóttir guðfræðingur.
Biskup Íslands skipar í embættin
frá 1. september til 1. nóvember til
fimm ára. Umsóknir hljóta umfjöllun
matsnefndar um hæfni til prestsemb-
ættis og að fenginni niðurstöðu henn-
ar fjallar kjörnefnd prestakallsins um
umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því
búnu milli umsækjendanna og skipar
biskup Íslands þá umsækjendur sem
hljóta löglega kosningu.
Prestakallið, sem er myndað með
sameiningu fimm prestakalla á Aust-
fjörðum, nær frá Brekkusókn í Mjóa-
firði í austri til Hofssóknar í Álftafirði
í suðri. Gert er ráð fyrir að tvö þess-
ara embætta hafi sérstakar þjón-
ustuskyldur við Norðfjarðar-,
Brekku-, Reyðarfjarðar-, Eski-
fjarðar- og Fáskrúðsfjarðarsókn,
með sérstökum hæfniskröfum á sviði
sálgæslu annars vegar og í barna- og
æskulýðsstarfi hins vegar.
Tveimur embættanna fylgja
prestssetur með búsetuskyldu prest-
anna, þ.e. á prestssetursjörðinni Hey-
dölum í Breiðdal annars vegar og á
Djúpavogi hins vegar. Sá prestur sem
verður búsettur á Djúpavogi mun
hafa sérstakar þjónustuskyldur við
Djúpavogssókn, Berufjarðarsókn,
Berunessókn og Hofssókn.
Allir prestarnir munu síðan þjóna
prestakallinu í heild á grundvelli sam-
starfssamnings og erindisbréfa.
Þá voru tveir umsækjendur um
embætti prests í Langanes- og
Skinnastaðaprestakalli, með aðsetur
á Þórshöfn. Þeir eru guðfræðingarnir
Alfreð Örn Finnsson og Jarþrúður
Árnadóttir. sisi@mbl.is
Margar umsóknir
um laus embætti
Nýtt sameinað
prestakall sókna á
Austurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Guðshús Djúpavogskirkja hin nýrri.
FORNUBÚÐUM 12, 220 HAFNARFJÖRÐUR | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/