Morgunblaðið - 13.07.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.07.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 vinnu við góða á á Norðurlandi næstu vikur bar sig þó vel í gær. „Maður verður alltaf að vera já- kvæður og þakklátur náttúrunni,“ sagði hann bjartsýnn. En vitað er að í aðstæðum sem þessum reynir á starfsfólk við árnar sem aldrei fyrr. Fleiri stórir í Elliðaánum Veiðimenn standa vaktina alla daga við Sjávarfoss og Breiðu neðst í Elliðaánum – enda lykilstaðir í án- um fyrri hluta veiðitímabilsins – og blasa þar við vegfarendum. Blaða- maður heilasði í gær upp á Jón Þ. Einarsson, veiðivörð við árnar, og blaðaði í veiðibókinni. Göngur eru lakari þar sem annars staðar á vest- urhluta landsins, þó ekki eins og í Borgarfirði, en 72 laxar veiddust í Elliðaánum í liðinni viku saman- borið við 97 í fyrra og 107 sumarið 2017. „Það hafa veiðst sjö til ellefu laxar undanfarna morgna en seinni vaktin er alltaf lakari,“ sagði hann. „Laxinn er orðinn vel dreifður um ána, menn hafa fengið laxa í Höf- uðhyl, Símstreng, á Hrauni og í Hundahyl, þessir staðir eru allir fín- ir.“ Besti dagurinn var á miðviku- dag en þá veiddust alls 17. Jón segir 19 laxa hafa farið um teljarann nóttina á undan en farið sé að draga úr fjöldanum. Á fimmta hundrað hefur farið í gegn og er það lægri tala en sést hefur langa lengi. Það hefur hins vegar glatt marga veiðimenn í Elliðaánum undanfarið að óvenju margir laxar hafa snúið í ána, eftir tvo vetur í sjó, sem stór- laxar. Allt upp í 90 cm langir. „Ég hef veitt hér í hátt í fjörutíu ár og man ekki eftir svona svakalegum drellum hér,“ segir Jón. Göngur eru líka rólegar í Ytri- Rangá enn sem komið er, þótt þær búi að miklu magni hafbeitarseiða. Blaðamaður veiddi þar dag í vikunni og á svæði sem fjórar stangir deildu komu ekki nema tveir laxar á land. En rígvænir sjóbirtingar neðst á veiðisvæðinu hafa glatt suma. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 100 200 300 400 500 Staðan 10. júlí 2019 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 11. júlí 2018 12. júlí 2017 Urriðafoss í Þjórsá 4 502 718 531 Eystri-Rangá 12 405 216 145 Miðfjarðará 6 202 515 749 Blanda 14 175 417 514 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 164 401 570 Elliðaárnar 6 153 325 345 Þverá – Kjarrá 14 140 1.186 1.001 Haffjarðará 6 133 487 420 Brennan (í Hvítá) 3 122 229 168 Laxá í Aðaldal 17 114 175 171 Grímsá og Tunguá 8 94 301 361 Norðurá 15 83 834 794 Selá í Vopnafi rði 6 62 215 157 Flókadalsá 3 58 155 192 Víðidalsá 8 57 125 230 „Þetta er alveg skelfilegt“  Verulegur samdráttur í laxveiðinni á vesturhluta landsins enda augsýnilegt að smálaxagöngur eru lélegar  Laxveiði í sumum bestu ánum í síðustu viku ekki nema 10 til 30 prósent af veiði síðustu ára Pattaralegur Kristinn Ágúst Ingólfsson hjá veiðileyfavefnum Veida.is með bústinn 78 cm sjóbirting sem hann veiddi á neðsta svæði Ytri-Rangár. STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Umræðuefni stangveiðimenna hvar sem þeir hittast, ef þeir veiða lax, er tregveiðin og sú mynd sem er óðum að skýrast, að smálaxagöngur, og þá einkum á vesturhluta landsins, eru mjög lélegar. Tölurnar tala sínu máli. Vissulega hafa einstakir þurrkar aukið hressilega á erfiðleik- ana en ef litið er til veiðisvæða sem búa yfir ágætu vatni, eins og Grímsá til dæmis, þá eru göngurnar augsýnilega daprar. Í liðinni viku veiddust í Grímsá 28 laxar á átta dagsstangir, að meðaltali hálfur lax á stöng á dag. Sömu viku í fyrra veiddust 126 laxar, 128 í þessari viku sumarið 2017. Og þetta er sag- an í á eftir á sem horft er til; 28 lax- ar veiddust líka í Norðurá í liðinni viku en á mun fleiri stangir eða 15. Það gerir 0,26 lax á stöng á dag, eða lax fjórða hvern dag. Og þetta á að vera besti veiðitími sumarsins. Sama vika í Norðurá í fyrra gaf 277 laxa, og ári áður 219 laxa. Ef horft er fjögur ár aftur í tímann þá veidd- ust 408 laxar í þessari viku í Norð- urá. „Það verða engin veiðimet slegin í sumar,“ var haft eftir Guðna Guð- bergssyni, sérfræðingi hjá Haf- rannsóknastofnun, hér í blaðinu í gær. „Þetta er alveg skelfilegt,“ sagði vanur veiðimaður sem var við Norð- urá í vikunni. Hann hafði áður lent þar í litlu vatni en ekki svo fáum gengnum fiskum um leið. Leiðsögumaður sem var á leið í Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.