Morgunblaðið - 13.07.2019, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef haft áhuga áChurchill frá því ég var 12ára strákur. Það semkveikti fyrst áhugann hjá
mér var þegar mér var gefin ævisaga
Churchill eftir Thorolf Smith, en þar
var farið mjög lofsamlegum orðum
um manninn og ég heillaðist.
Skömmu síðar hitti ég Magnús Er-
lendsson sem sá Churchill þegar
hann kom til Íslands 16. ágúst 1941.
Hann lánaði mér umdeilda bók eftir
líflækni Churchill, sem fjallar op-
inskátt um heilsufar hans. Við það
efldist áhuginn og þegar ég fór skipti-
nemi til Bandaríkjanna 1984 komst
ég í fleiri bækur um Churchill. Eftir
því sem fram liðu stundir áttaði ég
mig á að fleiri en ég hefðu áhuga á
karlinum. Margir muna aðeins eftir
litlum feitum karli með stóran vindil
sem barði bresku þjóðinni kjark í
brjóst í seinni heimsstyrjöldinni, en
vita lítið um manninn sjálfan. Hann
hafði margar hliðar og var gríðarlega
áhugaverður persónuleiki. Hann var
ekki aðeins stjórnmálamaður, hann
hóf feril sinn sem hermaður, var
stríðsfréttaritari og hafði verið stríðs-
fangi. Hann barðist í skotgröfunum í
fyrri heimsstyrjöldinni og hóf ferilinn
sem riddaraliðsforingi á hestbaki í
valdatíð Viktoríu Bretadrottningar.
Hann endaði feril sinn sem fyrsti for-
sætisráðherra Elísabetar núverandi
drottningar, sem er langalanga-
ömmubarn Viktoríu. Þá var Bretland
kjarnorkuveldi, svo Churchill lifði
ótrúlegar framfarir á sinni ævi. Hann
sat á breska þinginu í 64 ár, lengst
allra á tuttugustu öldinni,“ segir Árni
Sigurðsson, prímus mótor í Churc-
hill-klúbbnum á Íslandi, en hann ætl-
ar að vera fararstjóri í ferð sem farin
verður í haust á helstu slóðir Churc-
hill í Lundúnum og nágrenni.
„Öllum er frjálst að skrá sig í
ferðina þó að hún sé á vegum klúbbs-
ins, en Churchill-klúbburinn er hugs-
aður sem fræðsluvettvangur fyrir ævi
og störf Sir Winston Churchill og þau
gildi sem hann hafði í heiðri: Hug-
rekki, staðfestu, stórlyndi, velvilja og
virðingu fyrir lýðræði og frelsi ein-
staklingsins,“ segir Árni og bætir við
að klúbburinn sé aðili að Inter-
national Churchill Society.
Manndómsmerki ef drukkið
var hraustlega og mikið reykt
Árni segir að Churchill-klúbbur-
inn hafi boðið upp á fræðslufundi og
ferðir á þeim ellefu árum sem liðin
eru frá því hann var stofnaður, og
vissulega hafi hann verið spurður
hversu marga fundi sé hægt að halda
um einn mann.
„Þetta er ótæmandi brunnur,
ógrynni bóka er til um Churchill, til
dæmis heil bók um hversu gott hon-
um þótti að drekka og borða, en hann
nýtti sér málsverði sem tæki til að
hafa áhrif á menn og málefni. Hann
mýkti menn upp með góðum mat og
vínföngum og í framhaldinu byrjaði
hann að semja. Hann vissi að leiðin að
hjartanu liggur í gegnum magann,“
segir Árni og hlær. „Churchill var
mikill lífsnautnamaður en á fyrri
hluta síðustu aldar þótti manndóms-
merki ef menn drukku hraustlega og
reyktu mikið. Hann gerði í því að ýkja
þetta, hann og Roosevelt Bandaríkja-
forseti notuðu báðir áfengi á hverjum
degi en þeir voru af þeirri kynslóð að
það sá aldrei á þeim vín, þeir fóru hóf-
lega með það. Ef menn urðu drukknir
hjá þeim þá var þeim ekki boðið aftur,
menn áttu að verða skrafhreifir og
kunna að fara vel með vín,“ segir Árni
og bætir við að Churchill hafi stund-
um verið hvefsinn, en það hafi aldrei
verið illa meint.
„Hann var aldrei andstyggileg-
ur, en þegar honum lá mikið á hjarta
gleymdi hann stundum að sýna full-
komna mannasiði.“
Tókst á við þunglyndið með
því að mála olímyndir
Churchill var líka bóhem, bæði
rithöfundur og málari.
„Hann naut þess að mála en
hann byrjaði á því árið 1915 þegar
hann þá ungur flotamálaráðherra öfl-
ugasta flota veraldar þurfti að segja
af sér eftir ófarirnar við Hellusund í
fyrri heimsstyrjöldinni. Þá sótti að
honum gríðarlegt þunglyndi og til að
komast í gegnum það byrjaði hann að
mála. Hann náði góðum tökum á því
og hélt því áfram allt sitt líf og eftir
hann liggja um 500 olíumálverk. Þau
verk hans sem enn ganga kaupum og
sölum á almennum markaði seljast á
offjár.“
Mesta afrekið að fá hana
Clementine til að giftast sér
Rætur Churchill í bresku kon-
ungsfjölskyldunni lágu ansi djúpt,
enda var hann góður vinur Bretlands-
konungs Georgs 6. og náinn sam-
starfsmaður.
„Þegar Georg féll óvænt frá árið
1952 og Elísabet dóttir hans tók við
þjóðhöfðingjaembættinu mjög ung,
aðeins 26 ára leit Churchill á sig sem
mikilvægan ráðgjafa til að hjálpa
henni að komast vel af stað hennar
fyrstu valdaár í drottningarstóli.
Hann varð hennar fyrsti forsætisráð-
herra og leit á hana með föðurlegum
augum, nánast sem dóttur sína, enda
átti hann sjálfur þrjár dætur á svip-
uðum aldri og Elísabet,“ segir Árni
og bætir við að hjónaband Churchill
og Clementine konu hans hafi verið
afar farsælt.
„Churchill segir að sitt stærsta
afrek í lífinu hafi verið að fá konu sína
til að giftast sér og að hann hafi lifað
hamingjusamlega upp frá því. Hún
lék stórt hlutverk í hans ferli og var
mikilvægur ráðgjafi fyrir hann. Hún
var stoð hans og stytta og öll hennar
orka fór í að styðja við bakið á honum.
Þau eignuðust fimm börn, en misstu
eitt mjög ungt. Í seinni heimsstyrj-
öldinni sinnti hún allskonar hjálp-
arverkefnum til dæmis fyrir Rauða
krossinn. Churchill hefði ekki náð
þeim árangri sem hann náði, án henn-
ar.“
Facebook: Churchill-klúbburinn
á Íslandi
Hann hóf feril sinn á hestbaki
Hann mýkti menn upp
með góðum mat og vín-
föngum og í framhaldinu
byrjaði hann að semja.
Winston Churchill var
einn stórbrotnasti og lit-
ríkasti stjórnmálamaður
tuttugustu aldar. Árni
Sigurðsson er fjölfróður
um manninn og verður
fararstjóri í haustferð á
helstu slóðir Churchill í
Lundúnum og nágrenni.
AFP
Með vindil milli vara Í seinni heimsstyrjöld 25. mars 1945, Winston Churchill, þáverandi forsætisráðherra Bret-
lands, gengur á land á austurbakka Rínar í Frakklandi. Fyrir aftan Bernard Montgomery hershöfðingi (annar t.h.).
Morgunblaðið/Eggert
Árni Sigurðsson Hann er prímus mótor í Churchill-klúbbnum.
Ljósmynd/Wikipedia/Yousuf Karsh
Urrandi ljón Yousuf Karsh kallaði þessa
ljósmynd sína The Roaring Lion, eða
Öskrandi ljónið. Myndin var tekin 1941.
Churchill-klúbburinn á Íslandi
býður til haustferðar á slóðir
Churchills í Lundúnum og nágrenni
11. til 14. október 2019:
Föstudagur 11. okt:
Komið til Lundúna um hádegis-
bil. Skoðunarferð um breska þingið
síðdegis.
Laugardagur 12. okt:
Hádegisverður í Blenheim-höll,
þar sem Churchill fæddist, skoð-
unarferð og gengið að gröf Churc-
hills í Bladon steinsnar frá.
Sunnudagur 13. okt:
Churchill War Rooms (aðgerðar-
stöð Churchills í Lundúnum) og
Churchill safnið því tengt.
Mánudagur 14. okt:
Hádegisverður í Chartwell sem
var sveitasetur Churchills í Kent,
og hans sælureitur. Hús og garðar
skoðað. Brottför til Íslands um
kvöldið.
Skráning í ferðina á netfangi:
lilja@betriferdir.is
Verðlækkun!
Allt að...
AFSLÁTTUR
50%
facebook // verslunin.karakter
instagram // karakter_smaralind