Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 16

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íbúum Akraness mun fjölga um þrjú þúsund þegar lokið verður við að byggja í þeim íbúðahverfum sem skipulögð hafa verið eða eru á loka- stigi skipulags. Verða íbúar þá orðnir yfir 10 þúsund eftir áratug. Gangi það eftir tvöfaldast íbúafjöldinn á 30 árum. Nú eru um 100 íbúðir í bygg- ingu á Akranesi og tæplega 1.100 íbúðir verða á þremur nýjum bygg- ingarreitum eða hverfum. Nýjar íbúðir hafa selst vel á Akra- nesi á síðustu árum og segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri að lóðir sem tilbúnar eru til bygginga séu uppseldar fyrir utan nokkrar lóðir í Skógahverfi sem bærinn bíður með úthlutun á vegna hugmynda um upp- byggingu á íbúðakjarna fatlaðra. Kemur það fram í því að íbúum hefur fjölgað á hverju ári í langan tíma. „Byggingaverktakar hafa verið að brýna okkur til að vera tilbúnir með nýjar lóðir.“ Nýir áfangar í Skógahverfi Úthlutað hefur lóð fyrir 140 íbúðir á Dalbrautarreit í miðbæ Akraness og verktakinn hefur hafið fram- kvæmdir við fyrsta áfanga hússins. Akraneskaupstaður kaupir 1.400 fer- metra á fyrstu hæð fyrir félagsstarf og þjónustu við aldraða í bæjarfélag- inu. Fljótlega kemur að því að hægt verður að úthluta annarri lóð á Dal- brautarreit en hún er hugsuð fyrir 50- 60 íbúða fjölbýlishús. Unnið er að skipulagi framhalds af Skógahverfi. Skipulagshugmyndir hafa verið kynntar íbúum og segir Sævar að formlegt skipulagsferli hefj- ist þegar farið hefur verið yfir ábend- ingar íbúa og reynt að mæta sjón- armiðum þeirra. Í hverfinu verða fjölbýlishús, parhús og einbýlishús. Hann áætlar að hægt verði að hefja úthlutun lóða eftir hálft ár eða svo. Bæjarstjórn hefur ákveðið að byggja nýjan leikskóla og er talið lík- legast að hann verði í þessu hverfi. Þá verður tekið frá pláss fyrir grunn- skóla. Þótt mikill áhugi sé á lóðum í Skógahverfi er mesti spenningurinn fyrir lóðum á svokölluðum Sements- reit, þar sem Sementsverksmiðja rík- isins var með starfsemi sína. Búið er að fjarlægja verksmiðjubyggingar og strompinn fræga og slétta svæðið. Eftir standa sementstankarnir sem enn eru í notkun. Svæðið er að verða tilbúið til úthlutunar. Ætlunin er að byggja þarna frekar lágreista íbúðabyggð, aðallega 2-3 hæða fjölbýlishús, með alls 368 íbúð- um. Svæðinu hallar á móti suðri og að sjó. „Það gerir hverfið einstakt og eft- irsótt. Það segja mér fjárfestar sem hafa verið að banka á dyrnar að þetta sé flottasta bygg- ingarland sem í boði er á landinu,“ segir Sævar. Sementsreit- urinn liggur að gamla miðbænum og er ætlunin að framlengja hann inn í hverfið. Lóð- ir verða þar fyrir verslun og þjón- ustu og gert er ráð fyrir byggingu hótels. Stjórnsýsluhús á reitnum? Deiliskipulag hefur verið afgreitt og þess vegna hægt að hefja úthlutun lóða. Sævar Freyr segir að ekki hafi verið ákveðið hvernig staðið verði að því. Til athugunar sé að byggja þar stjórnsýsluhús fyrir bæinn, til þess að flýta uppbyggingu miðbæj- arkjarna, og hugsanlegt sé að gera það í samvinnu við fjárfesta sem byggja upp á svæðinu. Ekki verði hægt að hefja úthlutun lóða fyrr en ákvörðun hafi verið tekin um það. Telur hann hægt að reikna með að fyrstu lóðunum verði úthlutað fyrir lok ársins sem þýðir að flutt verður inn í fyrstu íbúðirnar á árinu 2021. Bæta þarf sjóvarnir við Faxabraut sem liggur við Sementsreitinn og segir Sævar að það verði líklega gert með því að hækka götuna. Vegagerð- in sé að undirbúa framkvæmdina í samvinnu við Akraneskaupstað og hafi fengið 200 milljónir á fjárlögum til framkvæmda en heildarkostnaður er áætlaður 500 milljónir króna. Áætla má að það taki 5-10 ár að fullbyggja nýja hverfið. Sævar Freyr telur að ekki verði farið í útboð á lóðum á Sements- reitnum, þótt þær séu eftirsóttar. Bærinn hafi þá stefnu að selja lóðir á kostnaðarverði til þess að spenna ekki upp fasteignaverð. Hann segir að húsnæðisverð á Akranesi sé al- mennt 25-40% lægra en á höfuðborg- arsvæðinu. Munurinn samsvari því að fólk sem kaupir 100 fermetra íbúð sé að greiða um 70 þúsund krónum minna á mánuði af lánum. Lóðirnar á Sementsreit verða eitt- hvað dýrari en lóðir í öðrum hverfum bæjarins, að sögn Sævars, vegna þess að lagt er í meiri kostnað við að gera þær byggingarhæfar. Á móti kemur að nýtingarhlutfall verður hærra. Ekki vaxtarverkir Íbúum bæjarins hefur fjölgað á hverju ári í mörg herrans ár. Útlit er fyrir stór stökk á næstu árum og íbúafjöldinn fari yfir 10 þúsund íbúa markið eftir 6-10 ár. Sævar segir að sú öra fjölgun sem framundan er þurfi ekki að hafa í för með sér vaxt- arverki. Bærinn þarf ekki að ráðast í miklar framkvæmdir við skóla fyrr en íbúa- fjöldinn fer yfir 10 þúsund manns. Hægt er að þróa grunnskólana tvo næstu árin og taka þar við fleiri börn- um. Byggja þarf leikskóla sem reikn- að er með að verði í Skógahverfi. „Grunnskólar eru með dýrustu fram- kvæmdum sveitarfélaga og því er mikilvægt að tímasetja þær þannig að þær verði sem hagkvæmastar fyr- ir sveitarfélagið,“ segir Sævar. Í vor var opnuð glæsileg frí- stundamiðstöð við golfvöllinn og ver- ið er að huga að næstu skrefum við uppbyggingu á íþróttasvæðinu á Jað- arsbökkum. „Það er ekkert endilega markmiðið að vaxa umfram almenna fjölgun þjóðarinnar. Fyrir Akranes er það nauðsynlegt eins og staðan er núna. Við höfum þá sérstöðu að vera með autt svæði í miðju bæjarins eftir að verksmiðjan var rifin og þar verðum við að byggja upp svo ekki verði lengi sár í miðju bæjarins,“ segir Sævar. Hann bætir því við að ákveðin stærðarhagkvæmni sé í rekstri sveit- arfélaga. Yfirbyggingin breytist lítið þótt íbúunum fjölgi að ákveðnu marki og því hægt að nota fjármunina frek- ar í beina þjónustu við íbúana. Loks nefnir hann að mikilvægt sé að bæj- arfélagið sé sjálfbært og opið fyrir nýliðun. Það fáist með því að fjöl- skyldufólk flytji í bæinn og vilji búa þar. Hugað að gagnaveri Ekki er ætlunin að gera Akranes að dæmigerðum svefnbæ þar sem íbúarnir vinna mest annars staðar. Stórir vinnustaðir eru í bænum og í næsta nágrenni hans þótt HB Grandi hafi flutt fiskvinnslu sína annað. Sæv- ar segist hafa áhuga á að efla nýsköp- un og þróun í bæjarfélaginu. Akranes er talið einn af ákjósanlegustu stöð- um landsins til að byggja upp gagna- ver, ekki síst vegna góðra tenginga við rafmagnsframleiðslu. Verið er að ráða erlenda ráðgjafa til að undirbúa sókn á því sviði. Þá er litið til upp- byggingar í ferðaþjónustu. Nú þegar er Akranesviti vinsæll áfangastaður ferðafólks og baðstað- urinn Guðlaug á Langasandi hefur slegið í gegn. Áhugi er fyrir að þróa þessa atvinnugrein áfram, meðal annars með úthlutun lóðar fyrir hót- el. Loks nefnir Sævar að nýtt svæði fyrir atvinnuhúsnæði hafi verið skipulagt, Flóahverfi, og reiknar með að tilkynnt verði á næstunni um fyrstu framkvæmdirnar þar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sementsreitur Sement var framleitt í húsum sem stóðu þar sem flagið er núna. Efsti hluti verksmiðjustrompsins stendur í miðju flagi. Hann mun gegna einhverju hlutverki í hverfinu. Þróun íbúafjölda á Akranesi fram til 2029 Þúsundir íbúa 1. janúar 1998-2019 og áætlun fyrir 2029* 12 10 8 6 4 2 1998 2003 2008 2013 2018 2019 2029 Heimild: hagstofa.is, Akraneskaupstaður 5,1 6,4 7,3 5,6 6,6 7,4 10,0*Áætlun miðuð við áframhaldandi uppbyggingu íbúða Sævar Freyr Þráinsson Stefnt að 10 þúsund íbúa markinu  100 íbúðir eru í byggingu á Akranesi og skipulögð eru hverfi fyrir tæplega 1.100 íbúðir  Sementsreiturinn í miðju bæjarins er líklegur til að verða eitt eftirsóttasta íbúðahverfi landsins Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA VERÐ FRÁ 69.900 KR. ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.