Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 22

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hann sagðist í samtali við mbl.is aðeins geta upplýst að skjólstæðing- urinn væri „bandarískur fjárfestir með áratuga reynslu af fjölþættum flugrekstri“. Þá segir Páll Ágúst í sama samtali að áform fjárfestisins hafi verið í kynningu hjá íslenskum stjórnvöld- um sem tengd séu flugrekstri, en ekki sé vitað hvenær stjórnvöld ljúki við að afgreiða erindið. Í samtali Morgunblaðsins við aðila á flugmarkaði var getum leitt að því að lýsingin á hinum bandaríska aðila gæti átt við Indigo Partners, sem átti í ítarlegum viðræðum við WOW air síðustu mánuðina í rekstri félags- ins. Í frétt vefsíðunnar Turisti.is í gær var hins vegar haft eftir tals- konu Indigo að félagið hefði engar eignir keypt úr búi WOW air. Fréttavefur Viðskiptablaðsins, vb.is, greindi svo frá því um miðjan dag í gær að heimildir blaðsins hermdu að kaupandi eignanna væri auðug kona frá Virginíuríki í Banda- ríkjunum, Michele Ballarin, og félag henni tengt, Oasis Aviation Group. Á Linkedin-síðu Ballarin kemur fram að hún sé stjórnarformaður félags- ins, sem starfi mest í Afríku og sé með bækistöð í Sómalíu. Páll Ágúst gat ekki staðfest þessar fregnir í samtali við mbl.is í gær. Á vef OAG kemur fram að fyrir- tækið er með aðsetur í skrifstofuhús- næði að 45025 Aviation Drive við Dulles-flugvöll í Washington. Fyrir- tækið er hins vegar í fyrirtækjaskrá Vestur-Virginíuríkis og var skráð þar 21. ágúst 2017. Með einstaka forsögu Í samantekt mbl.is um Ballarin segir að stjórnandinn og líklegur eigandi OAG sé með einstaka for- sögu, en hún hefur meðal gefið tilefni til fjölmiðlaumfjöllunar fyrir að hafa reynt að miðla lausnargjaldi þegar sjóræningjar undan ströndum Sóm- alíu tóku skip og áhafnir í gíslingu. Fram kemur í umfjöllun Wash- ington Post um Ballarin að hún hafi rætt um að hún væri með áætlun um það hvernig væri hægt að koma á friði í landinu. Sjóræningjarnir eru sagðir hafa gefið henni nafnið Amira, sem þýðir prinsessa á arabísku. WOW selt Bandaríkjamönnum Morgunblaðið/Eggert Rekstur WOW air gæti byrjað að fljúga aftur sem lággjaldafélag.  Fréttirnar höfðu mikil áhrif á verð bréfa í Icelandair  Ekki fengist staðfest hverjir keyptu  Áformin sögð hafa verið kynnt íslenskum stjórnvöldum Flug » WOW air varð gjaldþrota í lok mars sl. » Margir hafa sýnt áhuga á að reisa félagið við og hefja aftur rekstur lággjaldaflugfélags. » VB.is segir að Michele Ball- arin og félag henni tengt, Oasis Aviation Group, séu kaupandi eigna úr þrotabúi WOW air sem tengjast flugrekstri. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Gengi bréfa flugfélagsins Icelandair lækkaði mikið í Kauphöll Íslands í gær, eða um rúm 7% í 190 milljóna króna viðskiptum, eftir að greint hafði verið frá því í Fréttablaðinu að stór bandarískur aðili hefði keypt allar eignir þrotabús flugfélagsins WOW air sem tengjast flugrekstri, en þar er um að ræða vöru- og mynd- merki WOW, lén, hugbúnað og ýms- an annan búnað hins fallna félags. Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabús WOW air, staðfesti fréttirnar við fjölmiðla, en sagt er í fréttinni að kaupverðið hlaupi á hundruðum milljóna króna. WOW air varð gjaldþrota í lok mars sl. eftir að þreifingar höfðu ver- ið um margra mánaða skeið við ýmsa aðila um að koma að rekstri félags- ins, þar á meðal Icelandair. Frá því félagið var lýst gjaldþrota hafa reglulega borist fregnir af aðilum sem áhuga hafa sýnt á að reisa félag- ið við og hefjast rekstur lággjalda- flugfélags undir merkjum WOW air. Sagt var frá því nú síðast fyrr í vikunni að tveir fyrrverandi lykil- starfsmenn WOW hefðu stofnað fé- lögin WAB og Neo og hygðu á að stofna nýtt flugfélag. Þeir eru ekki í hópi þeirra sem kaupa eignir WOW. Varðist allra frétta Páll Ágúst Ólafsson, lögfræðingur þeirra bandarísku aðila sem keypt hafa eignir úr þrotabúi WOW air, varðist allra frétta af því í gær um hvaða aðila væri að ræða, þrátt fyrir fyrirspurnir mbl.is þar um. efnahagshrunið árið 2008 auk þess sem ræddar voru leiðir til að stuðla að auknum fjármálastöðugleika. Fengnir voru seðlabankastjórar frá öðrum smáum ríkjum í Evrópu til að flytja erindi og taka þátt í um- ræðum. Ýmislegt var sameiginlegt með aðstæðum ríkjanna í kringum hrunið og var ráðstefnan nýtt til skoðanaskipta og upplýsingamiðl- unar. Meðal gesta á ráðstefnunni voru Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri Írlands, Ilmars Rimsevics, seðlabankastjóri Lett- lands, Carlos da Silva Costa, seðla- bankastjóri Portúgals og Esther George, forstjóri ríkisbanka Kan- sas City, auk Jon Nicolaisen, seðla- bankastjóra Noregs. Tilgangur ráðstefnunnar var fyrst og fremst að miðla þeirri þekkingu sem skapast hafði í kring- um hrunið fyrir rúmum tíu árum. Í erindum nær allra ræðumanna kom fram að gífurlega mikilvægt væri að vitneskjunni yrði komið til skila svo hægt væri að læra af reynsl- unni. aronthordur@mbl.is Fjöldi merkismanna var saman- kominn á Grand Hóteli í gær þar sem ráðstefna á vegum Seðlabanka Íslands var haldin. Ráðstefnan bar yfirskriftina: „Horft aftur og fram í tímann: Hvernig viðhöldum við stöðugleika?“ Ráðstefnan var tvískipt en fyrri partur fundarins var nýttur til um- ræðna um krísustjórnun og endur- uppbyggingu fjármálakerfis í smáum Evrópuríkjum. Síðari hlut- inn snerist að mestu um breytingar á reglugerðum eftir alþjóðlega Mikilvægt að miðla reynslunni áfram  Fjöldi seðlabankastjóra var samankominn á ráðstefnu Seðlabanka Íslands Morgunblaðið/Aron Þórður Ræða Seðlabankastjóri Portúgals. ● HB Grandi hf. hefur keypt allt hlutafé í sölufélögum Útgerðarfélags Reykja- víkur (áður Brim) í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, sem og þjónustu- félagi á Íslandi sem tengist framan- greindum félögum. Kaupverðið sam- svarar alls 31,1 milljón evra, eða jafnvirði um 4,4 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB Granda. Sagt var frá fyrirætlununum í Við- skiptaMogganum á miðvikudag, en þar var haft eftir Kristjáni Þ. Davíðssyni, stjórnarformanni HB Granda, að með kaupunum sköpuðust möguleikar á að sækja af meiri krafti inn á mjög stóran, verðmætan og ört vaxandi markað. „Lífskjör fólks í þessum heimshluta fara ört batnandi, og með vaxandi kaup- mætti eykst eftirspurnin eftir hágæða- vöru eins og íslensku sjávarfangi.“ HB Grandi kaupir sölu- félög ÚR á 4,4 ma. kr. 13. júlí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.58 126.18 125.88 Sterlingspund 157.75 158.51 158.13 Kanadadalur 96.2 96.76 96.48 Dönsk króna 18.949 19.059 19.004 Norsk króna 14.683 14.769 14.726 Sænsk króna 13.372 13.45 13.411 Svissn. franki 127.3 128.02 127.66 Japanskt jen 1.1606 1.1674 1.164 SDR 173.77 174.81 174.29 Evra 141.5 142.3 141.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.8707 Hrávöruverð Gull 1423.1 ($/únsa) Ál 1811.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.81 ($/fatið) Brent ● Hagfræðideild Landsbankans spá- ir því að verðbólg- an lækki um 0,1% á milli júní og júlí. Verðbólgan var 3,3% í júní, en bankinn spáir því að hún verði 3,2% í júlí. Í júní hækkaði verðbólgan um 0,38% milli mánaða. Samkvæmt bráðabirgðaspá bank- ans verður verðbólgan í október 2,9%. Júlímæling vísitölu neysluverðs verð- ur birt 22. júlí nk. tobj@mbl.is Spá lækkun ársverð- bólgu úr 3,3% í 3,2% Mæling Verðbólga gæti lækkað. STUTT Fallegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýbyggingu Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Sýningar- íbúðir tilbúnar Bókið skoðun Dalsbraut 4 - Reykjanesbæ VERÐ FRÁ KR. 29.900.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.