Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 24

Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fylgjenduraukinssamruna innan Evrópusam- bandsins í átt að sambandsríki binda vonir við Ursulu von der Leyen, varnarmálaráðherra Þýskalands, sem tilnefnd hefur verið næsti forseti fram- kvæmdastjórnar ESB. Hún hefur talað í þá veru og er einn- ig stuðningsmaður Evrópu- hers. Í frétt á mbl.is var vitnað í Andrew Duff, forseta samtak- anna Spinelli Group, sem vilja að ESB verði að sambandsríki. Fagnaði hann því að von der Leyen liti líkt og Helmut Kohl, fyrrverandi Þýskalandskansl- ari, á Evrópusambandið sem óklárað verkefni og lokatak- markið væri sambandsríki. Bætti hann því við að auðveld- ara yrði að ná þessu lokatak- marki eftir að Bretar hefðu yfirgefið ESB, enda hefðu þeir beitt sér gegn þessari þróun. Með útgöngu Breta yrði stærsta hindrunin fjarlægð. Hætt er við að Duff sé þarna kominn nokkuð fram úr sjálf- um sér. Bretar eru ekki þeir einu sem gjalda varhug við auknum samruna innan sam- bandsins og áfram munu verða ýmsar hindranir á veginum. Nægir þar að vísa í grein í nýj- asta tölublaði vikuritsins The Economist með fyrirsögninni „Kapteinninn setur kúrsinn á klettana“ þar sem spurt er hvort Matteo Salvini, valda- mesti maður Ítalíu, muni nota völd sín til að rústa evrunni. Í grein í blaðinu Financial Times í vor var talað um að út- ganga Breta úr Evrópusam- bandinu, Brexit, hefði verið til- raun fyrir efasemdarmenn (kannski mætti kalla þá evra- semdarmenn?) um aukinn samruna. Sjónarspilið í kring- um Brexit hefði hins vegar kæft allar hugmyndir um að feta í fótspor Breta. Betra væri að vera áfram í sambandinu en virða einfaldlega að vettugi þær reglur sem ekki hentuðu. Í greininni er eins og búast mátti við sérstaklega talað um Pólverja og Ungverja, sem til dæmis neiti einfaldlega að upp- fylla kröfur Evrópusambands- ins um flóttamannakvóta. En þeir eru ekki einir um óþekkt. Blaðið bendir á að Ítalir og Frakkar virði kinnroðalaust að vettugi fjárlagareglur evru- svæðisins og hnýtir svo í þá fyrir að nýta sér þá lágu vexti af lánum sem þeir njóti vegna aðildar að því. Þá láti flest ríki ESB tilskipanir sambandsins um plastpoka sem vind um eyru þjóta. Af málflutningi stuðnings- manna þriðja orku- pakkans hér á landi mætti ætla að þessi mál væru óumdeild í Evrópusamband- inu, ef ekki ástsæl, en það er öðru nær. Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir skömmu hefur framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins stefnt átta að- ildarríkjum þess, þar á meðal Frakklandi, fyrir að fara ekki eftir reglum um skilyrðislaus útboð á dreifingu orku. Þar á bæ þykir greinilega ekki lyst- aukandi að kyngja orkupökk- unum með öllu tilheyrandi. Reyndar eru Frakkar þekkt- ir fyrir að líta á regluverk Evr- ópusambandsins sem hlaðborð. Þeir hafa fengið yfir sig marg- ar stefnur frá framkvæmda- stjórninni og bregðast iðulega ekki einu sinni við þótt dómar falli gegn þeim. Í grein blaðsins kemur fram að dregið hafi úr stefnugleði framkvæmdastjórnar ESB á hendur óhlýðnum aðildar- ríkjum, annars vegar vegna þess að hana skorti bolmagn og hins vegar af ótta við harkaleg viðbrögð í löndum þar sem stjórnvöld eru gagnrýnin á sambandið. Vissulega má velta fyrir sér hvort þessi greining sé rétt, því að Evrópusam- bandið er tilbúið að ganga ansi langt gagnvart sumum aðildar- ríkjum, einkum ef stutt er síð- an þau gengu í það, en lang- lundargeðið er öllu meira gagnvart meðlimum með lengri aðildarsögu. Þannig er látið óátalið þegar stjórnvöld misnota dómskerfið á Spáni en ekki má anda á dómstóla í Pól- landi. Þær hræringar sem raktar eru í blaðinu eru hins vegar til marks um það að þótt von der Leyen – verði hún næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB – sé hlynnt samruna sé það ekki ávísun á að Bandaríki Evrópu séu handan við hornið. Þær vekja einnig til umhugs- unar um það hvað allt sem frá Brussel kemur er tekið bók- staflega hér á Íslandi, hvort sem það er auðmýkt þorra þingheims í garð þriðja orku- pakkans eða að hengja sig í langsóttar, lagatæknilegar ástæður til að knýja fram um- hverfismat á breikkun Vestur- landsvegar um Kjalarnes þeg- ar ljóst er að áhrifin eru engin og vegurinn orðinn það hættu- legur að framkvæmdin þolir enga bið. Á tímum Sovétríkjanna var sagt að hnerruðu menn í Kreml fengju Búlgarar kvef. Það er óþarfi að íslenska stjórnkerfið fái lungnabólgu þótt kommiss- ararnir hnerri í Brussel. Bókstafshyggja á Íslandi er á skjön við hentistefnu aðildar- ríkja ESB gagnvart regluverkinu} Hin óstýrilátu F jölmiðlarekstur, flutninga- starfsemi, fjármálaþjónusta, póst- burður, orkuframleiðsla, orku- sala, heilbrigðisþjónusta og verslunarrekstur. Allt eru þetta dæmi um starfsemi sem einkaaðilar eru full- færir um að sinna – enda gera þeir það á hverj- um degi. Á sama tíma á ríkið beina aðkomu að öllum þessum atvinnugreinum, í flestum til- vikum í samkeppni við einkaaðila. Það vekur oft athygli – og furðu – hversu áköf ríkisfyrirtækin eru í samkeppni við einka- aðila og á það sérstaklega við hin opinberu hlutafélög (ohf.) Isavia rekur bílastæði við flug- stöð og reynir að hrekja í burt samkeppni, Ís- landspóstur undirbýður sendibílastöðvar til að keyra út vörur fyrir IKEA og RÚV þurrkar upp auglýsingamarkaðinn fyrir stóra viðburði. Þessi opinberu hlutafélög gefa ekkert eftir og ganga jafnvel harðar fram í samkeppninni en nokkurt einkafyrirtæki myndi gera. Ekkert af þessu hefur þó með almannaþjónustu að gera. Það er ekki nauðsynlegt fyrir ríkið að selja nærföt og sælgæti í flugstöðinni eða sinna bílastæðum við hana, svo tekin séu dæmi. Hin opinberu félög haga sér oft eins og ríki í ríkinu og kæra sig lítið um það að stjórnmálamenn hafi skoðanir á því hvernig þau haga sér. Staðreyndin er þó sú að stjórn- málamenn eru kjörnir fulltrúar almennings, hins raun- verulega eiganda félaganna. Ríkisfyrirtækin eiga sig ekki sjálf og eru þar síður í eigu stjórnenda þeirra. Það þarf ekki að nálgast ríkisrekstur eins og trúar- brögð, annaðhvort vera með eða á móti. Það er þó í raun engin ástæða fyrir ríkið að veita alla þá þjónustu sem það gerir í gegnum fjölmörg fyrirtæki sín ef að einkaaðilar eru til þess falln- ir að veita hana. Ríkið þarf ekki að reka fjöl- miðil, það þarf ekki að reka póstþjónustu, flug- stöð þarf ekki að vera í ríkiseigu og ríkið þarf ekki að reka fjármálafyrirtæki. Ríkið ætti frekar að einbeita sér að því að forgangsraða í þá grunnþjónustu sem við höfum komið okkur saman um að ríkið sinni. Við sem staðsetjum okkur hægra megin við miðju megum ekki vera feimin við að nefna þetta. Markmiðið er skýrt; við viljum að hér búi fólk við framúrskarandi lífskjör, njóti fjöl- breyttra tækifæra og hafi aðgang að öflugri grunnþjónustu. Með það að markmiði er mik- ilvægt að forgangsraða verkefnum ríkisins – ekki síst til að gæta þess að stíga ekki á tær einkaaðila í samkeppnisrekstri. Það ætti aldrei að vera hægt að réttlæta atvinnurekstur ríkisins í samkeppni við einkaaðila. Ef einkaaðilar eru ekki að sinna tiltekinni þjón- ustu, þá fyrst getum við rætt hvort og hvernig ríkið ætti að sinna henni. Við stjórnmálamenn þurfum að hafa burði til þess að búa til umhverfi þar sem fjölbreyttur atvinnurekstur þrífst og samfélag þar sem verðmæti eru sköpuð. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Nærbuxnaverslun ríkisins Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heil-brigðisráðherra staðfesti ífyrradag samkomulagSjúkratrygginga og Rauða krossins (RKÍ) um framlengingu á samkomulagi um kaup og rekstur sjúkrabíla til ársins 2022. Svandís skrifaði í pistli í Morgunblaðinu í gær að öllum ágreiningi hefði verið „ýtt til hliðar og hagsmunir almennings og heilbrigðiskerfisins settir í forgang.“ Samningaviðræður milli RKÍ og ríkisins hafa staðið frá því að samn- ingstímabili samnings sem tók gildi 2012 lauk í árslok 2015. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, fram- kvæmdastjóri RKÍ, sagði að afstaða stjórnvalda hefði breyst frá árinu 2015. Þá hefðu þau litið til þess að ljúka samstarfinu en hefðu á síðustu mánuðum sannfærst um að það væri ekki rétt leið. „Stjórnvöld hafa fengið betri yfirsýn yfir málið og verið tilbúin að skoða það á víðari grunni en áður. Rauði krossinn hefur sett bíla, búnað og fjármuni inn í þetta verkefni um áratuga skeið og þegar það er skoðað með sanngjörnum hætti verður þessi niðurstaða til,“ sagði Kristín. Hún sagði að Rauði krossinn hefði alltaf viljað annast rekstur sjúkrabílanna. Hann væri samofin sögu félagsins. „Við höfum alltaf sagt að vilji rík- ið fela öðrum þetta verkefni látum við það af hendi, en þá þarf að gera sam- starfið upp og gera upp við okkur,“ sagði Kristín. Hún sagði að í viðræð- unum við ríkið hefði aldrei komið fram hver ætti að taka við rekstri sjúkra- bíla, ef hann yrði færður frá Rauða krossinum. „Á meðan voru sjúkrabíl- arnir reknir frá mánuði til mánaðar og allt frá árinu 2016 var búnaður end- urnýjaður en bílarnir ekki, því við höfðum ekki samþykkta fjárfest- ingaáætlun sem er hluti af samningi um reksturinn.“ „Mér finnst að nú hafi náðst far- sæl lausn. Við erum nú með samning sem gildir út árið 2022. Það liggur ekkert fyrir um það hvort við höldum áfram eftir þann tíma, enda nægur tími til að hugsa það. Einn stærsti kosturinn við nýja samkomulagið er að sú staða að hafa bara samning til eins mánaðar getur ekki komið upp aftur. Hér eftir mun samningurinn framlengjast um eitt ár í senn séu báð- ir aðilar sammála um það. Með þessu móti getum við gert fjárhagsáætlanir og keypt nýja sjúkrabíla þegar þörf er á.“ Staðan metin í árslok 2021 Kristín sagði að gert hefði verið samkomulag um að samningurinn sem gilti milli Sjúkratrygginga og RKÍ til loka 2015, og unnið hefur ver- ið eftir síðan, gilti áfram. Ákveðið er að meta stöðuna í árslok 2021 þegar ár verður eftir af samkomulaginu. Hvor aðili um sig getur óskað eftir breytingum. Óski annar hvor eftir að slíta samstarfinu gefst ár til þess en vilji hvorugur gera breytingar fram- lengist samningurinn sjálfkrafa í eitt ár. Kristín sagði að mikil ánægja sé á meðal sjúkraflutningamanna og fleiri með nýja samkomulagið. Upp- söfnuð þörf sé fyrir endurnýjun sjúkrabíla og nú verði farið að vinna að henni af krafti. Hún benti á að sjúkrabílarnir væru vinnutæki sjúkraflutningamanna og einnig mik- ilvægt öryggistæki fyrir alla sem væru veikir eða slösuðust og þyrftu að komast sem fyrst undir lækn- ishendur. Það væri ekki hægt að una við það að sjúkrabílar biluðu í útkalli. Á höfuðborgarsvæðinu tæki skamma stund að fá sjúkrabíl í staðinn en úti á landi væri staðan önnur og alvarlegri ef sjúkrabílar biluðu í út- kalli. Ríkið skipti um skoð- un um sjúkrabílana Opnun tilboða vegna kaupa á 25 nýjum sjúkrabílum hefur verið frestað fjórum sinnum. Nú er ákveðið að tilboðin verði opnuð í ágúst nk. Kristín S. Hjálmtýs- dóttir, framkvæmdastjóri RKÍ, segir að RKÍ muni ganga inn í útboðið og kaupa bílana á grundvelli nýgerðs sam- komulags við ríkið. „Við fögnum því að fá nýja sjúkrabíla þó að það verði ekki fyrr en á næsta ári,“ sagði Kristín. „Það er mikil þörf fyrir endurnýjun.“ Engir nýir sjúkrabílar hafa bæst við frá árinu 2016. Samn- ingur RKÍ og ríkisins kveður á um að í landinu séu 68 sjúkrabílar í rekstri, en þeir eru nú 84. Því ræður aukið álag og nauð- syn þess að hafa ætíð tiltæka vara- bíla. Tilboðin opn- uð í ágúst NÝIR SJÚKRABÍLAR Kristín S. Hjálmtýsdóttir Morgunblaðið/Jakob Fannar Sjúkrabílar Tilboð í 25 nýja sjúkrabíla verða opnuð í ágúst. Talin er þörf á að endurnýja 6-10 sjúkrabíla á ári til að viðhalda sjúkrabílaflotanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.