Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 26

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Glöggt er gests augað, segir hið fornkveðna. Þetta spakmæli áekki síður við um tungumálið en önnur svið mannlífsins. Það eráhugaverð staðreynd að ýmsum merkilegum atriðum í íslenskumáli var fyrst veitt eftirtekt af útlendum málfræðingum. Þar á meðal eru fyrirbæri sem mikið hafa verið á dagskrá í alþjóðlegri umræðu um málvísindi síðustu áratugi. Einhverjum kann að virðast kyndugt að útlendingar geri slíkar „uppgötvanir“ en ekki Íslendingar, sem eiga þó al- tént íslensku að móðurmáli. Svona er þetta samt og ástæðan er vafalaust fyrst og fremst sú að Íslendingar eru svo vanir móðurmáli sínu að þeir gefa því ekki gaum að hvaða leyti það er frábrugðið öðrum málum. Kunn- átta í tungumáli dugir ekki ein og sér til skilnings á eðli þess; skólun í fræðikenningum í málvísindum er ekki síður mikilvæg. Bandaríski málvísindamaðurinn Avery Andrews dvaldi á Íslandi á átt- unda áratug síðustu aldar og rannsakaði íslensku í sam- anburði við ýmis önnur mál. Þá uppgötvaði hann auka- fallsfrumlög. Vonlegt er að einhver spyrji: „Hvað er aukafallsfrumlag? Hvaða fyrirbæri er það sem Íslendingar sjálfir, fræðimenn og venjulegir mál- hafar, voru um langan aldur ófróðir um?“ Svarið er í stuttu máli: Auka- fallsfrumlag er nafnliður í aukafalli – þolfalli, þágufalli eða eignarfalli – sem hegðar sér í setningu eins og frumlag, t.d. með tilliti til orðaraðar og annarra setningafræðilegra einkenna. Hefðbundin skilgreining á frum- lagi, ættuð úr latneskri skólamálfræði, er að frumlag í setningu standi í nefnifalli og nefnifall í setningu sé frumlag. Þetta eru vafasöm rök þar sem skýring á hugtakinu er gefin fyrir fram í skilgreiningunni á því. Dæmi um „hefðbundin“ nefnifallsfrumlög eru: Ég vil nammi, hún hatar apa, hann er þarfur í verkefninu. Eftirfarandi setningar hafa hins vegar að geyma aukafallsfrumlög: Mig langar í nammi, henni leiðast apar, hans er þörf í verkefninu. Nýlega hefur komið í ljós að aukafallsfrumlög eru mun útbreiddari í tungumálum heims en áður var talið. Mikilvægi íslensku í þessum rann- sóknum er ótvírætt og rétt er að halda því til haga að íslenskir málfræð- ingar lögðu fram þýðingarmikinn skerf til skilning á aukafallsfrumlögum eftir að þau voru uppgötvuð. Það er af Avery Andrews að segja að hann hefur lengst af starfað í há- skólanum í Canberra í Ástralíu, ásamt eiginkonu sinni Cynthiu Allen, sem er víðkunnur sérfræðingur í fornensku. Nýlega stóðu þau hjón ásamt öðrum að stórri ráðstefnu í sögulegum málvísindum sem málfræð- ingar hvaðanæva að úr heiminum sóttu. Þar voru fyrirlestrar um íslensku að vonum fyrirferðarmiklir – fluttir af íslenskum og erlendum málfræð- ingum – enda af nógu að taka um áhugaverð atriði í íslenskri málfræði, hvort heldur aukafallsfrumlög eða önnur merkileg fyrirbæri sem komið hafa íslensku máli á kortið í hinum alþjóðlega málvísindaheimi. Málvísindalegar uppgötvanir Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Nafnliður í aukafalli Auka- fallsfrumlög eru eins og bjúg- verpill, þau koma alltaf til baka.Dóra Ólafsdóttir, elzti núlifandi Íslendingurinn,sem varð 107 ára á laugardaginn fyrir viku,sýndi málstað andstæðinga orkupakka 3 mik-inn heiður með því að segja í samtali við Morgunblaðið á afmælisdaginn: „Við eigum ekki að samþykkja þriðja orkupakkann.“ Og bætti svo við: „Við eigum að halda áfram að vera Íslendingar og eiga okkar ríki, ekki gefa það frá okkur.“ Dóra er líka með hugann við minningu Jóns Sigurðs- sonar og segir: „… það virðist gleymast að hann bjargaði landinu, að við urðum sjálfstætt ríki.“ Það er uppörvandi fyrir andstæðinga orkupakka 3 að fá slíka hvatningu frá konu sem hefur náð svo háum aldri og um leið er það umhugsunarefni, hvers vegna meira er um að eldra fólk láti í ljósi slíkar skoðanir en yngri kyn- slóðir. Vafalaust eru margar skýring- ar á því. Við sem fæddumst í kon- ungsríkinu Danmörku-Íslandi og munum eftir okkur á Þingvöllum 17. júní 1944 drukkum í okkur þjóðerniskenndina með móðurmjólkinni, ef svo má að orði komast. Og ekki er fráleitt að ætla að kennsla í Íslandssögu strax í barnaskóla hafi ýtt undir þær tilfinningar. Kenn- arar okkar hafa auðvitað verið mótaðir af sama andrúmi og það hefur áreiðanlega birtzt í túlkun þeirra á sögu lands og þjóðar í kennslustundum. Stundum hef ég velt því fyrir mér, hvort minni kynslóð hafi verið innrætt, bæði í skóla og heima fyrir, andúð á Dönum. Þá andúð losnaði ég ekki við fyrr en eftir að hafa unnið eitt sumar á dönskum búgarði, 17 ára gamall, og kynnzt þar bændum og búaliði. Þegar yngri kynslóðir eru spurðar um slíkar tilfinningar skilja þær ekki spurning- una, þeim finnst hún svo fráleit. Framan af mótaðist sterk þjóðerniskennd kynslóðar Dóru Ólafsdóttur og afkomenda þeirrar kynslóðar áreið- anlega mjög af sögu þjóðar okkar og sjálfstæðisbarátt- unni, sem náði ákveðnum hápunkti á Þingvöllum 1944, en átti þó með sínum hætti eftir að standa fram til 1. desem- ber 1976, þegar síðustu brezku togararnir sigldu frá Ís- lands ströndum. En þegar ég las fyrst um hugmyndir Guðmundar Hálf- dánarsonar, prófessors, um að landið sjálft og náttúra þess væri í vaxandi mæli að móta þjóðarvitund okkar fannst mér strax blasa við að hann hefði rétt fyrir sér. Ferðalög um óbyggðir Íslands hafa svo sterk áhrif á tilfinningu fólks fyrir landinu og sögu þjóðarinnar í þessu landi, að þeim verður vart lýst með orðum. Fyrir nokkr- um dögum bárust mér skilaboð, bæði ofan af Arnarvatns- heiði og af Fjallabaksleið syðri, sem staðfestu enn einu sinni, hvílík upplifun náttúra lands okkar er fyrir fólk. Það eru þessar tilfinningar sem ráða miklu um afstöðu þeirra sem á undanförnum mánuðum hafa lagst gegn samþykkt Alþingis á orkupakka 3 og sem fyrir nokkrum árum tóku upp baráttu gegn aðild Íslands að ESB. Og af sömu ástæðum sagði ég á fundi nokkurra hverfa- félaga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í Valhöll hinn 30. ágúst á síðasta ári: „Við hina ungu forystusveit Sjálfstæðisflokksins í dag langar mig til að segja: Gætið að ykkur. Sá þráður í sálarlífi þessa flokks, sem snýr að fullveldi og sjálfstæði, er mjög sterkur. Flokkur- inn virðist hafa misst varanlega um þriðjung af sínu fylgi. Hann má ekki við meiru. Sýnið þeirri sögu sem hér hefur verið rakin virðingu.“ Þeir sem finna hjá sér hvöt til að lýsa skoðunum sem hafa mót- ast með þeim hætti sem hér hefur verið lýst á þann veg að þar séu á ferð þröngsýnir einangrunar- sinnar eða tala niður til þeirra með tilvísun til aldurs hinna sömu verða að eiga það við sjálfa sig. Hér eru hvorki á ferð þröngsýnir einangrunarsinnar né „eldri menn“ með skoðanir „sem ekki er mikil eftir- spurn eftir“ eins og lýst var í sjónvarpsþætti í vetur, held- ur einfaldlega fólk, ungt og gamalt, sem hefur mótast af því landi sem við búum í og sögu þessarar þjóðar. Og hér eru á ferð svo sterkar tilfinningar að það er ein- faldlega hyggilegt fyrir þá sem stjórna ferðinni í þessu landi í krafti þess að vera þjóðkjörnir fulltrúar á Alþingi, að sýna þeim skoðunum og sjónarmiðum sem svona hafa orðið til virðingu og skilning fremur en hroka, yfirlæti og geðvonzku. Og stundum er einfaldlega nauðsynlegt fyrir þá sem starfa á vettvangi stjórnmála að horfast í augu við þann pólitíska veruleika sem við þeim blasir. Í því sambandi er ástæða til að vekja athygli á frétt sem birtist á mbl.is, netútgáfu Morgunblaðsins, í fyrra- dag. Þar var sagt frá skoðanakönnun sem fyrirtækið Orb International gerði fyrir brezka blaðið Daily Telegraph. Þar sagði: „Þannig myndu 92% kjósenda Íhaldsflokksins styðja flokkinn í næstu þingkosningum ef Bretland fer úr Evrópusambandinu 31. október en 5% Brexit-flokkinn. Verði Bretar ekki komnir úr sambandinu á þeim tíma- punkti, munu aðeins 56% kjósenda Íhaldsflokksins styðja flokkinn en 35% Brexit-flokkinn samkvæmt könnuninni.“ Þetta er óneitanlega eftirtektarverð niðurstaða. Getur verið að þetta sé sá pólitíski veruleiki sem bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur standi nú frammi fyrir vegna orkupakka 3? Um það ættu þingmenn beggja þessara flokka að hugsa næstu vikur. Og kannski líka, að það er ekki alltaf skynsamlegt fyrir þá sem valdið hafa að sýna það vald. Uppörvandi hvatning frá elzta Íslendingnum Skilaboð af Arnarvatnsheiði og Fjallabaksleið syðri Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Eitt meginhlutverk vísindannaer að gera greinarmun á sýnd og reynd, skynveruleika og raun- veruleika. Það er að endurskoða og leiðrétta þá mynd af veruleikanum, sem við fáum fyrir tilstilli skynfær- anna. Jörðin sýnist til dæmis flöt, en er í raun hnöttótt. Annað dæmi er munurinn á nafnvöxtum og raunvöxtum: Ef maður tekur lán á 5% vöxtum í 3% verðbólgu, þá eru raunvextir 2%, þótt nafnvextir séu 5%. Mér varð hugsað til þessa grein- armunar á sýnd og reynd, þegar Sjálfstæðisflokkurinn varð níræður á dögunum. Það er alveg rétt, sem jafnan er sagt, að hann varð til, þegar Íhaldsflokkurinn og Frjáls- lyndi flokkurinn sameinuðust 25. maí 1929. Síðan er iðulega sagt með skírskotun til þess, að í flokknum takist á frjálslynd öfl og íhaldssöm. Menn mega þó ekki láta nöfnin blekkja sig. Íhaldsflokkurinn var í raun frjálslyndur flokkur, en Frjálslyndi flokkurinn íhaldssamur. Þetta má sjá með því að kynna sér stefnuskrár flokkanna, starfsemi og verk. Jón Þorláksson stofnaði Íhaldsflokkinn 24. febrúar 1924, vegna þess að hann vildi halda í fengið frelsi, eins og hann skýrði út í snjallri grein í Eimreiðinni 1926. Hann vildi verja þetta frelsi gegn nýstofnuðum stéttarflokkum, Framsóknarflokki bænda og Al- þýðuflokki verkalýðsrekenda. Ólíkt frjálslyndishugtakinu er íhaldshug- takið afstætt frekar en sjálfstætt: Öllu máli skiptir, í hvað er haldið. Þegar Jón var fjármálaráðherra 1924-1927, jók hann atvinnufrelsi með því að leggja niður ríkisfyr- irtæki og lækka skuldir hins op- inbera. Sigurður Eggerz, leiðtogi Frjálslynda flokksins, hafði hins vegar verið örlátur á almannafé, á meðan hann var fjármálaráðherra 1917-1920, og safnað skuldum. Frjálslyndi flokkurinn, sem var að vísu losaralegur sína stuttu starfstíð, lagði megináherslu á ramma þjóðernisstefnu, en hún er auðvitað af ætt íhaldsstefnu frekar en frjálshyggju. Einn aðalmaður Frjálslynda flokksins, Bjarni Jóns- son frá Vogi, hafði einmitt sett það skilyrði fyrir stuðningi við stjórn Íhaldsflokksins, að ný ættarnöfn yrðu bönnuð með lögum, því að hann taldi þau óíslenskuleg. Annar forystumaður Frjálslynda flokks- ins, Benedikt Sveinsson, hafði verið andvígur sambandslagasáttmálan- um 1918, því að hann vildi ekki veita Dönum þau réttindi á Íslandi, sem kveðið var á um í sáttmálan- um. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Ekki er allt sem sýnist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.