Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 29

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 29
MINNINGAR 29Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 ✝ Margrét SóleyGuðmunds- dóttir fæddist á Neðra-Núpi í Mið- firði 30. maí 1931. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands Hvammstanga 3. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru þau Guð- mundur Jóhann- esson, bóndi á Urriðaá, f. 1903, d. 1975, og Þóra Jakobína Sig- urðardóttir, húsfreyja á Urr- iðaá, f. 1905, d. 1998. Systkini hennar voru Hörður, f. 1922, d. 1950. Salóme Fjóla, f. 1929, maki Björn Guðbrandsson, f. 1930. Þau eru búsett í Kópavogi. Heiðrún Brynja, f. 1942, gift Benedikt Björnssyni, f. 1943, d. börn, níu barnabörn og fjögur barnabarnabörn. Börn Margrétar og Magnúsar eru 1) Agnes Björk, f. 1951, gift Hallmundi Guðmundssyni, f. 1953, þau eiga fjögur börn, Að- albjörgu, f. 1976, Margréti Sól- eyju, f. 1978, Hafþór Atla, f. 1981, og Magnús Gunnar, f. 1992. Þau eiga þess til viðbótar sjö barnabörn. 2) Guðmundur Víðir, f. 1956. 3) Þóra Ösp, f. 1959, maki Haraldur Jón Ás- geirsson, f. 1962, þau eiga fjög- ur börn, Helgu Björk, f.1980, Sigurð Þór, f. 1992, Rannveigu Dögg, f. 1994, og Þóri Jón, f. 1999. Þau eiga sex barnabörn. Í samvinnu við Magnús rak Margrét stórt blandað bú að Efri-Torfustöðum. Þau unnu all- an sinn starfsaldur sem bændur. Einnig var hún virkur félagi í Kvenfélaginu Iðju í Miðfirði. Frá árinu 2015 dvaldi Mar- grét á Heilbrigðisstofnun Vest- urlands Hvammstanga. Útför Margrétar fer fram frá Melstaðarkirkju í Miðfirði í dag, 13. júlí 2019, klukkan 14. 2017, búsett á Neðri-Torfustöð- um. 1944 fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni að Urriðaá í Miðfirði og bjó hún þar til ársins 1950 en þá gekk hún að eiga Magnús Bene- dikt Gunnlaugsson frá Efri-Torfustöð- um, f. 1920, d. 2009. Foreldrar hans voru Gunn- laugur Pétur Sigurbjörnsson og Agnes Magnúsdóttir. Margrét og Magnús áttu allan sinn bú- skapartíma saman að Efri-Torfustöðum. Saman eiga þau þrjú börn en Magnús átti eina dóttur fyrir, Agnesi, f. 1947, gifta Gunnari Konráðs- syni, f. 1943, eiga þau fjögur Elsku amma mín. Snemma morguns þann 3. júlí sl. hringdi mamma í mig til að segja mér að þú værir farin. Maður getur aldrei undirbúið sig fyrir þessar fréttir þó svo að maður vissi að þetta væri í vænd- um. Elsku amma, það er rosalega erfitt að hafa þig ekki hjá okkur lengur og sakna ég þín endalaust, en það sem huggar mig er að núna ertu komin í sumarlandið til hans afa og þegar þú ert með afa þá veit ég að þér líður vel. Takk fyrir að vera besta amma í heimi. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið. Takk fyrir að hlæja með mér og hugga mig. Takk fyrir að skamma mig og hrósa mér. Takk fyrir að elska mig og að leyfa mér að elska þig. Amma mín. Amma var mitt æskuvor, alltaf; nótt sem degi. Áttum glettin gleðispor, á göng’ um lífsins vegi. Ef að þrautir sóttu sál saman færðum þær á bug. Ætíð reyndist einlægt mál okkur veita fró í hug. Við seinna deilum bros’ á brá er berast saman gleðistundir. Því þegar tíminn færist frá fangast blíðir endurfundir. (Hallmundur Guðmundsson) Þín Margrét Sóley Thorlacius Hallmundsdóttir. Margrét Sóley Guðmundsdóttir ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi- stund kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn. Kristina Kalló Szklenár er organisti. Kaffi og spjall eftir stund- ina. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Ferming. Kór Bústaðakirkju syng- ur, organisti er Þórður Sigurðsson. Messuþjónar aðstoða. Prestur er Pálmi Matthíasson. Hressing eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunnar Sigurjónsson messar. Org- anisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Boðið verður upp á kaffisopa í safn- aðarsal eftir messu. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11, minnum á bílastæðin við Alþingi. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Ástvaldur Traustason leiðir almennan safnaðarsöng. GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi- húsamessa kl. 11. Séra Arna Ýrr Sig- urðardóttir prédikar og þjónar. For- söngvari leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson. GRENSÁSKIRKJA | Messufrí vegna sumarleyfa. Næsta messa er 11. ágúst kl. 11. Bent er á guðsþjónustur í Bústaðakirkju öll sunnudagskvöld í sumar kl. 20. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Helgistund kl. 20. Prestur er Karl V. Matthíasson og organisti er Hrönn Helgadóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa í Garðakirkju á Álftanesi kl. 11, gömlu sóknarkirkju Hafnfirðinga. Vegna sum- arleyfa er ekki messa í Hafnarfjarð- arkirkju þennan sunnudag. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messu- þjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Kjartan Jósefsson Ognibene. Alþjóð- legt orgelsumar: Tónleikar laugard. kl. 12 og sunnud. kl. 17. Johannes Zein- ler frá Austurríki leikur. Fyrirbæna- guðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár- degismessa miðvikud. kl. 8 og hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12. Tónleikar Alþjóðlegs orgelsumars fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Org- anisti er Kristján Hrannar Pálsson, HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11.Translation into Engl- ish. Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes en español. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking ser- vice. KLYPPSSTAÐARKIRKJA í Loð- mundarfirði | Árleg messa á Klypps- stað fer fram 14. júlí kl. 14. Prestar eru Jóhanna I. Sigmarsdóttir og Þor- geir Arason. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur frá Borg- arfirði leiða sönginn. Kirkjukaffi í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á staðnum að messu lokinni. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjón- ar fyrir altari og fer með hugleiðingu. Þórður Sigurðarson organisti spilar á orgel og leiðir alm. safnaðarsöng. Kirkjuvörður er Lilja Þorsteinsdóttir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Sr. Gunnar Sigurjónsson þjónar. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson og prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Blöð og litir fyrir yngri kynslóðina. Kaffi og samfélag á Torginu eftir messu. SELJAKIRKJA | Sumarmessa með fermingu kl. 11, prestur er Jón Ómar Gunnarsson, Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggertsson leikur á org- el, messukaffi í lokin. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs- þjónusta 14. júlí kl. 11. Séra Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og pré- dikar. Organisti er Jón Bjarnason. Sönghópurinn Simultaneo frá Póllandi syngur í athöfninni. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta 14. júlí kl. 14. Prédikun og alt- arissakramenti. Þjónustuna annast sr. Skírnir Garðarsson. Orð dagsins: Verið miskunnsamir Morgunblaðið/Ómar Stokkseyri Stokkseyrarkirkja. (Lúk. 6) ✝ Jóhanna Elísa-bet Pálsdóttir, alltaf kölluð Lísa, fæddist 27. janúar 1935. Hún andaðist á Landspítalanum 22. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Páll Jó- hannsson Snæfeld, fæddur 12. janúar 1893, dáinn 19 ágúst 1989, og Guð- laug Guðrún Bjarnadóttir, fædd 23. febrúar 1911, dáin 9. desem- ber 1996. Lísa átti sex systkini sam- feðra, þau voru: Jóhann Snæ- feld, fæddur 1919, dáinn 1977, Ólafur Bjarni, fæddur 1920, dá- inn 2015, og Ragnhildur, fædd 1922, dáin 2012. Alsystkini Lísu eru Bjarni, fæddur 1931, Diljá Sjöfn, fædd 1940, og Björn Haukur, fæddur 1950. Lísa ólst upp í Reykjavík og lauk þaðan skólagöngu, eftir Snæfeld, fædd 1974, börn henn- ar eru Margrét Ósk, fædd 1992, faðir hennar er Víðir Kristjáns- son, Björn Ísak, fæddur 1995, og Natan Dagur, fæddur 1999, fað- ir þeirra er Benedikt Viggósson, og Aleksander Johan, fæddur 2013, faðir hans er Johan Nym- an. Lísa var að mestu heimavinn- andi á meðan börnin voru lítil en starfaði svo á leikskólanum í Ólafsvík. Var það hennar uppá- haldsvinnustaður því hún elsk- aði að vera nálægt börnum og þau löðuðust mjög að henni. Stuttu eftir andlát Bubba flutti Lísa til Reykjavíkur og fór að vinna á Grensásdeild Land- spítalans og starfaði þar um tíma. Síðan réð hún sig sem barnfóstra til hjónanna Grétu Ingþórsdóttur og Gísla Hjart- arsonar. Lísa elskaði það starf og var það upphaf mikillar vin- áttu og virðingar sem hefur staðið allar götur síðan. Lísa greindist með krabba- mein í september og hún vildi enga meðferð. Var sátt við að fá að lifa í 84 ár og vildi að hún fengi hvíldina sína á sem nátt- úrulegastan hátt. Að ósk Lísu var útförin í kyrrþey 10. júlí 2019. það vann hún við ýmis störf, m.a. við fiskvinnslu hjá Bæj- arútgerð Reykja- víkur. Árið 1956 réð Lísa sig til vinnu hjá Kirkjusandi í Ólafsvík. Þar kynntist hún eigin- manni sínum, Birni Markúsi Leó, Bubba eins og hann var kallaður, og giftu þau sig ár- ið 1958. Bubbi andaðist 1. júlí 1989. Börn þeirra Lísu og Bubba eru eftirfarandi: 1) Páll Snæ- feld, fæddur 1959, sonur hans er Leó Snæfeld, fæddur 1997. Móðir hans er Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir. 2) Birgir Snæ- feld, fæddur 1961, eiginkona hans er Elínborg Lárusdóttir. Dætur þeirra eru Eva Dögg, fædd 1989, og Ástrós, fædd 1992, dóttir Ástrósar er Áróra Líf, fædd 2014. 3) Hrafnhildur Mig langar að minnast tengda- móður minnar í nokkrum orðum. Við kynntumst í gegnum frænku mína nokkuð löngu áður en ég kynntist manninum mínum og þú sagðist eiga fínan strák fyr- ir mig, sýndir mér gamla hallær- islega mynd af honum og ég móðgaði þig rosalega með því að segja „heldurðu að ég taki bara hvað sem er“. Löngu seinna kynntist ég Bigga og þegar ég fór að venja komur mínar heim til þín sagðir þú „ertu bara farin að taka hvað sem er“ þannig að það var geymt en ekki gleymt. Við byrjuðum að búa á neðri hæðinni hjá ykkur Bubba, þar var alltaf glatt á hjalla og mjög mikið hlegið. Okkar samskipti fyrstu árin voru oft erfið, við vorum báð- ar ráðríkar og særðum oft hvor aðra með óþarfa skotum eins og oft er algengt hjá tengdamæðg- um. Biggi var augasteinninn þinn og það var erfitt að sleppa takinu Þegar Bubbi greindist með krabbamein aðeins rúmlega fimmtugur varst þú og Palli son- ur ykkar hans stoð og stytta. Bubbi andaðist 1989 og aðeins ör- fáum vikum síðar andaðist faðir þinn. Að missa manninn sinn og pabba með svo stuttu millibili tók mjög á þig, en þú varst dugleg en lokaðir á tilfinningarnar og í þá daga var engin áfallahjálp. Það var erfitt fyrir þig að flytja til Reykjavíkur eftir að Bubbi dó en þú vildir vera yngsta barninu þínu til stuðnings þegar hún fór í hárgreiðslunám þangað. Sjálf- stæð varstu og keyptir þér íbúð í Gautlandi og bjóst þar allar götur síðan. Þegar við hjónin eignuðumst svo lifandi trú á Jesú Krist breyttist allt. Ég fór að biðja fyrir þér og biðja Guð að blessa sam- bandið okkar og það er minn stærsti vitnisburður um Guð að hann kom inn í okkar kringum- stæður og gaf okkur skilyrðis- lausa ást hvorri til annarrar. Við höfum verið óaðskiljanlegar vin- konur síðan og talað saman á hverjum degi. Það tók mjög á þig þegar þú greindist með krabbamein í sept- ember í fyrra og ekki skrýtið þar sem þú hafðir misst bæði eigin- mann og föður með mjög stuttu millibili úr sama sjúkdómi. Þú varst samt alltaf sterk og vildir ekki láta vorkenna þér, tókst á við veikindin af stakri ró og vildir alls ekki fara í neinar meðferðir. Þegar svo fór að halla undan fæti í vor vildir þú vera sem lengst heima og á sonur þinn hann Palli heiður skilið fyrir að hafa verið til staðar svo að þér gæti orðið að ósk þinni. Sjúkra- húsvistin var ekki nema rétt tæp- ar tvær vikur. Elsku hjartans yndislega Lísa mín, ég á eftir að sakna þín mjög mikið og allra samverustundanna sem við áttum og það verður skrýtið að koma í Gautlandið og fá ekkert knús og rembingskoss. Ég kveð þig með sorg í hjarta en þó þá von að við hittumst aftur. Ég er þess fullviss að frelsar- inn Jesús Kristur hefur tekið vel á móti þér með útbreiddan faðm- inn. Þú varst hetjan mín og ég mun alltaf elska þig. Svo segir Drottinn: Á tíma náðarinnar bænheyri ég þig, á degi hjálpræðisins hjálpa ég þér, … (Jes. 49:8) Mínar innilegustu samúðar- kveðjur sendi ég til ættingja og vina og bið algóðan Guð að blessa ykkur og styrkja í sorginni. Elínborg Lárusdóttir (Ellen). Ég held að Lísu hafi verið ætl- að að koma inn í líf okkar Gísla. Í árslok 1998 vorum við að leita að konu til að passa Emmu okkar og fyrir röð tilviljana var hún allt í einu mætt með Helgu Gunnars, þáverandi samstarfskonu minni og vinkonu Lísu. Hún er búin að vera í lífi okkar síðan og var löngu orðin amma Lísa. Hún átti ljúft samband við börnin okkar og hafði einstakt lag á að ræða við þau á þeirra for- sendum. Hún vissi um vinina og áhugamálin, hvað dúkkurnar hétu, hvaða föt þær áttu og hvað þær vantaði. Hún var endalaust að prjóna og föndra og gaukaði fí- neríi að Döddu dúkku og vinkon- um hennar. Hún fór með krakk- ana í Húsdýragarðinn, fór með í leikhús eða bíó, mætti árum sam- an í jóla- og páskaföndur í þrálát- um forföllum foreldranna og var til í að passa, ýmist heima hjá sér eða okkur. Hún var til taks þegar á þurfti að halda. Lísa átti stærstan þátt í lífi Emmu, sem var bara hálfs árs þegar Lísa byrjaði að passa hana. Þvílíkt lán að fá alla athyglina, mjúku knúsin, sögur, vísur og alls konar örvun. „Hún er svo geðrík, þessi elska,“ sagði Lísa um Emmu. Einhver annar hefði kannski sagt að hún mætti nú bara róa sig í frekjunni. En ekki Lísa. Þær voru bestu vinkonur og víst er að Lísa saknaði Emmu eft- ir að hún dó. Hún skildi svo vel hvað Emmu lá á og var mikið niðri fyrir. Á dánarstundinni var eins og Emma biði eftir Lísu sinni. Það voru allir komnir til að kveðja nema Lísa, sem sagðist ekki treysta sér. Svo kom hún, settist hjá Emmu og talaði aðeins við hana og eftir smástund skildi Emma við. Greipur og Halldóra áttu at- hygli hennar óskipta. Lísa sat og litaði eða teiknaði og ræddi við þau um öll þeirra hjartans mál. Við eigum myndband af Halldóru að spjalla við Lísu í síma áður en hún var almennilega farin að tala. Þetta var langt samtal og Lísa skildi allt. Lísa gladdist ákaflega þegar sonur Baldvins, fyrsta barna- barnið okkar, kom í heiminn. Hún var ekki nógu hress til að vera við skírnina en vildi endilega fá Braga litla í heimsókn. Af henni varð sem betur fer nú í maí og við náðum að mynda Braga í fanginu á ömmu Lísu. Hún sat með hann miklu lengur en hún hafði í raun krafta til en var alsæl. Lísa var félagslynd og mætti í handavinnuna í Gullsmára eins lengi og hún gat, fór í ferðir með eldri borgurum, var með fasta miða í báðum leikhúsum og keyrði litla bílinn sinn út um allan bæ langt fram á síðasta ár. Lísa vildi ekkert mikið vera að tala um krabbameinið eða aðra erfiðleika sem hún hafði svo sannarlega fengið sinn skerf af á lífsleiðinni. Hún sagði frá sínu fólki og spurði um okkar þegar við hittumst, bara eins og vanalega. Lísa var Baldvini, Emmu, Greipi og Halldóru sem besta amma og skildi flestum öðrum betur söknuðinn eftir Emmu sem hún deildi með okkur og gátum við setið löngum stundum og rifj- að upp sögur af henni. Við þökk- um af öllu hjarta fyrir að hafa fengið Lísu í líf okkar og sam- fylgdina við hana í meira en 20 ár. Afkomendum og öðrum aðstand- endum sendum við samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Lísu. Gréta Ingþórsdóttir. Jóhanna Elísabet Pálsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.