Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 33

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 ✝ Oddný LínaSigurvinsdóttir fæddist á Ísafirði 1. maí 1958. Hún lést á heimili sínu 16. júní 2019. Oddný ólst upp í Bolungarvík fyrstu uppvaxtarár sín en fluttist suður við sex ára aldur. Hún bjó lengst af í Reykjavík, þó með nokkurra ára stoppi á Ísafirði sem ung kona og sjö ár í Noregi (1985-92). Árið 2018 flutti hún aftur til Bolungarvíkur. Foreldrar henn- ar voru Aðalheiður Halldóra Guðbjörnsdóttir, f. 9. nóvember 1938 á Ísafirði, d. 20. júní 2003, og Sigurvin Jónsson, f. 13. ágúst 1937 í Bolungarvík, d 25. desem- ber 2012. Systkini Oddnýjar eru Guðbjörn Magnús Sigurvinsson, f. 8. júní 1959, Viktor Jón Sig- urvinsson, f. 13. júní 1961, Sig- urvin Heiðar Sigurvinsson, f. 25. nóvember 1962, Kolbrún Eva Sigurvinsdóttir, f. 30. mars 1964, d. 13. júlí 1964, drengur Sig- urvinsson, f. 24. október 1965, d. 29. október 1965, Jón Ásgeir Sigurvinsson, f. 21. desember 1970. Börn hennar eru Oddur Andri Thomasson Ahrens, f. 12. des- ember 1983 í Reykjavík, og Charlotta Rós Sig- mundsdóttir, f. 16 nóvember 1990 í Noregi. Oddný kom víða við á lífsleið sinni og má t.d. nefna Sokkabandið, sem var ein af fyrstu kvennahljómsveitum landsins. Hún rak Auglýsinga- stúdíóið og verslunina Lókal ásamt barnsföður sínum. Hún starfaði sem geðhjúkrunar- fræðingur úti í Noregi og félags- liði hér heima. Oddný hóf tvíveg- is nám tengt geðrænum vandamálum eða þroskaskerð- ingu en varð frá að hverfa vegna sinna eigin veikinda. Útför Oddnýjar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, 13. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 16. Lífsfögnuður verður haldinn henni til heiðurs á heimili hennar að athöfn lokinni. Engin orð geta lýst tilfinning- um mínum við fráfall þitt, elsku mamma. Þú varst mamma mín, besta vinkona, trúnaðarvinur og klettur. Nú hefurðu fundið ró og frið. Læt hér fylgja með sálm sem ég veit að þér þótti ægilega vænt um. Elska þig og sakna, mamma mín. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði og lífsins veginn greiði. Mig styrk í stríði nauða, æ styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Páll Jónsson) Oddur Andri. Oddný Lína Sigurvinsdóttir✝ Sveinn Magn-ússon fæddist á Ytra-Lóni á Langanesi, Norð- ur-Þingeyjarsýslu, 17. apríl 1936. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 22. júní 2019. Foreldrar hans voru Magnús Hlíð- dal Magnússon, f. 11. júlí 1910, d. 13. maí 1995, og Halldóra Súsanna Halldórs- dóttir, f. 6. janúar 1913, d. 15. maí 2003. Alsystkini Sveins eru: Stúlka, f. 1930, d. 1930; Baldur, f. 3.2. 1932, d. 5.6. 1967; Stefanía Arn- Börn þeirra eru: Sveinn, f. 25.1. 1987, Viktor, f. 8.2. 1990, og Emilía, f. 15.7. 1996. 2) Svan- hvít, f. 6.10. 1968, gift Ásmundi Vilhelmssyni, f. 20.7. 1968. Dæt- ur þeirra eru: Ástrós Linda, f. 13.2. 1990, Stefanía Hildur, f. 3.12. 1993, og Gunnhildur, f. 24.11. 1995. Langafabarn Sveins er Lísa Björk Sveins- dóttir, f. 4.12. 2017. Sveinn ólst upp á Þórshöfn á Langanesi. Um tvítugt flutti hann með foreldrum sínum og systkinum á Sveinsstaði í Mos- fellsbæ. Árið 1967 byggðu hann og eiginkona hans fjölskyldu sinni hús í Markholti 8 og bjó hann þar til æviloka. Sveinn starfaði mestallan starfsferil sinn í Mosfellsbæ, lengst af hjá bæjarfélaginu. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. fríður, f. 8.10. 1934; Anna Mar- grét Hlíðdal, f. 12.11. 1939; Hólm- fríður Hlíðdal, f. 18.8. 1941; Þór- arinn, f. 12.7. 1943; Sigríður, f. 19.10. 1946; Jóhanna Sús- anna Hlíðdal, f. 24.1. 1949; Magnús Hlíðdal, f. 15.10. 1950. Uppeld- isbróðir Sveins er Svanur Hlíð- dal, f. 25.8. 1958. Sveinn giftist 6. júlí 1960 Gunnhildi Valtýsdóttur, f. 2.7. 1941. Dætur þeirra eru: 1) Val- dís Svava, f. 3.9. 1961, gift Þor- geiri Þorgeirssyni, f. 26.2. 1960. Við fráfall tengdaföður míns langar mig að minnast hans með örfáum orðum. Það var árið 1987 sem ég hitti Svein fyrst, hann var faðir kærustu minnar sem síðar varð eiginkona mín og hefur verið til 27 ára. Sveinn var mjög hjartahlýr og með góða nærveru og hann tók mér strax vel. Þegar við Svanhvít hófum svo að búa saman og eignast okkar fyrsta bíl leituðum við til tengdapabba en hann var ein- staklega handlaginn og klár í öllum viðgerðum og fram- kvæmdum. Sveinn starfaði á þessum tíma sem verkstjóri í áhaldahúsinu í Mosfellsbæ og hafði starfað þar lengi. Hann kenndi mér góðar aðferðir í bíl- skúrnum við eitt og annað og hjá honum lærði ég á flest verk- færi. Hann var aldrei ráðalaus þegar kom að ýmsu handverki eða viðgerðum, „allt skal nú lag- ið hafa“ sagði hann oft þegar verkinu var lokið. Hann hafði skemmtilegan húmor sem stytti okkur stundir í skúrnum og víða. Þessar stundir voru mér afar kærar og fyrir þær er ég óendanlega þakklátur. Sveinn hafði allt fram á síð- ustu dagana gaman að gesta- þrautum, hann dundaði sér við að leysa slíkar þrautir af miklum áhuga og með þolinmæðina að vopni. Hann hugsaði vel um lík- amann og var í fínu formi eftir gönguferðir um hverfið eða upp- hífingar og armréttur í stofunni eða eldhúsinu. Ferðir okkar með honum og tengdamömmu vestur á Fellströnd voru margar og eft- irminnilegar enda fannst honum alltaf gaman að koma vestur og dunda sér þar við ýmislegt. Sveinn var frábær afi og góð fyrirmynd fyrir barnabörnin sex og hafa þau alla tíð elskað hann og dáð, enda hef ég ekki kynnst öðrum eins öðlingi og það kunna allir að meta, ekki síst börnin. Minningar hrannast upp, t.d. þegar hann kenndi öllum barna- börnunum að ganga á tréstult- um í Markholtinu í Mosfells- bænum. Sveinn var trausta manngerð- in sem talaði aldrei um eigið ágæti, bað ekki um hjálp og kvartaði aldrei undan neinu. Hann var og verður áfram mér fyrirmynd í svo mörgu og hvern- ig hann hafði góð gildi í heiðri eins og þakklæti, nægjusemi, æðruleysi, þolinmæði, örlæti og gjafmildi eða hreinlega vera góð manneskja sem elskar sína nán- ustu af öllu hjarta án þessa að ræða það neitt sérstaklega mik- ið. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Sveini og átt með honum margar gæðastundir þau 32 ár sem við höfum verið saman í ferðalaginu um lífsins veg. Þó svo að sorgin og söknuðurinn séu erfið glíma þá munu hlýjar og kærar minningar um einstak- an mann fylgja mér um ókomna tíð. Góða ferð á næsta stað, elsku tengdapabbi, og hver veit nema við hittumst síðar. Takk fyrir allt. Ásmundur Vilhelmsson. Elsku besti afi og langafi okk- ar. Afa mætti lýsa sem manni sem byggði hús sitt á bjargi og líf á traustum og góðum gildum. Afi og amma voru einstakir gestgjafar saman og skipa stóru heimboðin um hátíðirnar og bæjarhátíðir stóran sess í minn- ingum okkar um afa. Í kaffitím- anum var hans besti staður á kollinum við eldhúsborðið í horninu við gluggann. Hann hafði sérstakar gætur á því að gestir fengju nóg af kaffi og með því. Þar hafði hann líka gott sjónarhorn á aðra gestkomandi og var snöggur til dyra, og sá auk þess vel á hitamælinn, sem var mikilvægt enda mikill áhugamaður um veðrið. Afi hafði gaman af að láta okkur glíma við gestaþrautir og átti hann þó nokkuð safn af þeim. Þá hafði afi dálæti á bílum og öryggi í akstri, en ætli maður verði ekki þannig af því að vera bílstjóri ofurst- anna í herliðinu á eftirstríðsár- unum? Við, barnabörn afa, tilheyrum öll þúsaldarkynslóðinni sem ætl- ar sér stóra hluti í framtíðinni. Það er því sérlega hollt fyrir okkur að minnast þeirra góðu gilda sem afi hlúði að allt sitt líf. Hann var nægjusamur og gætti þess að lifa ekki um efni fram. Hann vissi líka vel að það var óþarfi að kaupa margar raðir í lottó þegar stóri laugardags- vinningurinn vinnst á einni röð. Hann hlúði ávallt vel að hlutum heima í Markholti og var stöð- ugt að bera á húsgögn og dytta að í bílskúrnum. Hann var mjög meðvitaður um mikilvægi hreyf- ingar fyrir heilsuna og stundaði göngutúra á síðari árum. Áður fyrr hafði hann gaman af skaut- um og fimleikaæfingum í hringj- um enda hreystimenni. Hann sýndi okkur svo æfingar í stof- unni á bambusstilkunum í Mark- holtinu, svo öflugar að ömmu leist ekki alltaf á blikuna. Af öðrum mannkostum má nefna hugulsemi og umburðarlyndi, og af tali hans mátti heyra að hann lagði áherslu á jafnræði og sann- girni í samskiptum við náung- ann. Í hjólhýsinu fyrir vestan leið afa vel. Ætli það sé ekki meðal annars vegna þess að þar var oft öll fjölskyldan komin saman heilu helgarnar? Það var alltaf gaman að koma vestur sem barn, jafnvel þótt þar væri eng- inn hoppukastali. Þar var útiver- an í náttúrunni með fjölskyld- unni aðalatriðið. Afi var fyrst og fremst fjölskyldumaður sem unni okkur öllum eins og við er- um. Hann hugsaði alltaf svo vel um okkur, og án þess að hafa um það mörg orð, sýndi það í verki að hann elskaði okkur öll. Þetta eru aðeins brot af þeim dásamlegu minningum sem við höfum um afa og þá einingu sem afi og amma í Markholti hafa alltaf verið fyrir okkur. Með kærri þökk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Hvíldu í friði elsku afi og langafi. Ástrós Linda, Stefanía Hildur, Gunnhildur, Viktor, Emilía, Sveinn og Lísa Björk barnabarnabarn. Fallinn er frá elskulegur föð- urbróðir minn, Sveinn Magnús- son, eftir stutta sjúkdómslegu. Sveinn, eða Mannsi eins og hann var ávallt kallaður, var ekki maður margra orða né maður mikilla breytinga, bjó nánast alla sína búskapartíð í Markholti 8 í Mosfellssveit, húsi sem þau hjón byggðu sér og dætrum sín- um tveimur, einhvern tímann upp úr 1960, en þá höfðu for- eldrar mínir byggt sitt hús sem stóð skáhallt á móti, í Markholti 3, og var mikill samgangur á milli heimila. Árum saman var hann dyggur starfsmaður Mos- fellshrepps, síðar Mosfellsbæjar, og víst er að sjaldan vantaði hann til vinnu. Mannsi og Gunný konan hans voru mjög samhent alla tíð og gerðu alla hluti sam- an. Þau áttu sér afdrep á ætt- arslóðum Gunnýjar á Fells- ströndinni og þar nutu þau þess að dvelja á sumrum meðan heilsa beggja leyfði þau ferða- lög. Við leiðarlok vil ég þakka honum samfylgdina og vottum við fjölskyldan Gunný, dætrun- um og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Margrét Þóra Baldursdóttir og fjölskylda. Sveinn Magnússonog styðjum hvert annað í þessusorgarferli. Við sem nutum glettni, kær- leika og hlýju Guðmundar munum áfram vera til staðar fyrir ykkur bræður og fjölskyldur sem eftir sitjið í tóminu. Fyllum tómið með góðum minningum og andrúmið með kærleika og ást. Guðjón, Halla og stelpurnar. Fátt býr okkur undir skyndi- legt dauðsfall. Fimmtudaginn 27. júní kom símtalið sem allir kvíða. Samstarfsmaður okkar, Guð- mundur Salómon Ásgeirsson, lést í slysi við störf sín á Vestfjörðum. Guðmundur kom til starfa sem vélamaður hjá Vegagerðinni í mars árið 2015 og átti þá langan starfsferil að baki. Eins og aðrir unglingar í sjávarþorpum fór hann snemma að vinna, við fisk- vinnslustörf og beitningu. Guð- mundur starfaði hjá JFE bygg- ingarfyrirtæki í Bolungarvík, á vörubílum og gröfum, meðal ann- ars við vegagerð og byggingu rat- sjárstöðvarinnar á Bolafjalli. Hann vann hjá Áhaldahúsi Ísa- fjarðarbæjar á vélum og tækjum og við akstur vöruflutningabif- reiða milli Ísafjarðar og Reykja- víkur sem þykir ein kröfuharðasta flutningaleið á landinu. Hann ók fyrir Eimskip, Ísafjarðarleið og Landflutninga, og var verkstjóri hjá afgreiðslu Landflutninga/ Samskipa á Ísafirði. Öll þessi reynsla gerði hann að eftirsókn- arverðum starfsmanni fyrir Vega- gerðina. Á þeim tíma sem Guðmundur hóf störf hjá Vegagerðinni var hann að ganga í gegnum mikla erfiðleika en í júlí sama ár missti hann eiginkonu sína Ingibjörgu Sigríði Guðmundsdóttur eftir snarpa baráttu við MND-sjúk- dóminn. Hann hlaut góðan stuðn- ing samstarfsmanna sinna á Ísa- firði í öllum þeim erfiðleikum. Guðmundur var fastráðinn í janúar 2016 sem verkstjóri. Hann var frábær starfsmaður, hægt að treysta á hann í öll störf og gekk hann í þau óhikað. Það er ljóst af samtölum við vini Guðmundar og samstarfsmenn að hann var mjög vel liðinn og góður samstarfsmaður, félagi og vinur. Fólk minnist hans af hlýju og oft er brosað og hlegið þegar Guð- mundur berst í tal, enda var hann þannig maður, léttur og kátur. Hann var mikill pabbi og afi í sér, en hann átti þrjá syni, þá Ásgeir, Arnar og Aron, tvær tengdadætur og þrjá sonarsyni. Dauði Guðmundar er öllu Vegagerðarfólki harmafregn en hugurinn er ekki síst hjá sonum hans, fjölskyldu og vinum. Við vottum þeim okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir. Góður og traustur félagi er fall- inn frá. Félagar í karlakórnum Erni hafa nú misst mikilvægan liðs- mann, Guðmund S. Ásgeirsson. Guðmundur, sem var afbragðs- söngmaður, söng í fyrsta tenór. Hann naut þess að syngja og var léttur og skemmtilegur kórfélagi. Hann féll vel í hópinn allt frá upp- hafi og það er félögum hans hugg- un harmi gegn að hann var með í söngferð kórsins til Edinborgar á vordögum. Ekki alls fyrir löngu var Bítlasyrpan flutt af kórnum og var unun að heyra sterka rödd Guðmundar þar, enda dró hann ekkert af sér. Bítlarnir voru greinilega í uppáhaldi hjá honum. Sú harmafregn að Guðmundur hefði látist af slysförum var sem reiðarslag og verður hans sárt saknað af kórfélögum hans. Karlakórinn Ernir þakkar Guð- mundi fyrir einstaklega ljúfar og gefandi stundir. Jafnframt eru sonum hans, tengdadætrum, barnabörnum og öðrum ástvinum færðar samúðarkveðjur. Fyrir hönd karlakórsins Ernis, Guðjón Torfi Sigurðsson, Ívar Kristjánsson og Hlynur Hafberg Snorrason. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN RÓSA EINARSDÓTTIR, Melteigi 19, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 2. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 17. júlí klukkan 13. Gestína Sigurðardóttir Kristín Rósa Sigurðardóttir Þórður K. Magnússon Bjarni Sigurðsson Guðríður Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, OLGA STEINUNN WEYWADT STEFÁNSDÓTTIR, lést mánudaginn 1. júlí á líknardeild Landspítalans. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 19. júlí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð fyrir börnin (kt. 080480 4909, reikningur 0370-22-015051). Gísli Álfgeirsson Stefán Sævar Weywadt Gíslason Gísli Snær Weywadt Gíslason Sóley Diljá Weywadt Sigurðardóttir, Bjarki Björnsson Sigurlína H. Axelsdóttir Stefán Ólafsson Weywadt Ólafur Weywadt Stefánsson Anna Gísladóttir Eygló Jónsdóttir Eyjólfur Eyjólfsson Sævar Kristinsson Ólöf Kristín Sívertsen Álfgeir Gíslason Guðný Sigrún Eiríksdóttir Stjúpfaðir minn, afi, langafi og langalangafi, MAGNÚS GUÐNASON, fv. rafmagnseftirlitsmaður, Árskógum 6, Reykjavík, andaðist á hjartadeild Landspítala föstudaginn 28. júní. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 15. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið. Jón Steinar Snorrason Guðrún Grímólfsdóttir Jóhanna Bjarney Jónsdóttir Sigurður Ormarsson Svava Jónsdóttir Jón Sindri Sigurðsson Helena Ericsson Magnús Ólafur Sigurðsson Valdemar Steinar Jónsson systkinabörn og aðrir ættingjar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.