Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019  Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu fór upp um fimm sæti og í það 17. á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í gær. Ísland hefur ekki komist hærra síðan 2012, þegar það var í 15. sæti, sem er besti árangur liðsins. Heimsmeistarar Bandaríkj- anna halda toppsætinu en Holland, silfurlið HM, fór upp í þriðja sætið. Holland og Ísland fóru bæði upp um fimm sæti og engin önnur lið á meðal 50 efstu fóru upp um fleiri.  Stjarnan hefur náð sér í frekari liðsauka fyrir kvennalið sitt í knatt- spyrnu, en bandaríski framherjinn Ca- mille Bassett fékk leikheimild með liðinu í gær. Hún er 22 ára og á að baki góðan feril í háskólafótboltanum ásamt því að spila með So Cal Union í bandarísku B-deildinni. Stjarnan, sem hefur ekki skorað í fimm leikjum í röð, er einnig komin með enska framherj- ann Shameeku Fishley sem lék með ÍBV í fyrra.  Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að meistaralið Juven- tus væri búið að gef- ast upp á að reyna að fá franska miðju- manninn Paul Pogba til sín á ný frá Manchest- er United. Ole Gunnar Sol- skjær vill halda Pogba hjá United en Real Madrid er nú talið eina félagið sem gæti náð hon- um í sínar raðir í sumar. Eitt ogannað FÓTBOLTI Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Það liggur vel á Skagamanninum Arnóri Sigurðssyni, leikmanni CSKA Moskvu, þegar Morgun- blaðið heyrir í honum hljóðið. Keppni á nýju tímabili í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er haf- in og CSKA flýgur í dag austur til borgarinnar Samara, þar sem liðs- ins bíður fyrsti deildarleikurinn á morgun. „Við erum búnir að spila fjóra leiki á undirbúningstímabilinu, tapa þremur en vinna einn. Það eru ekki úrslitin sem skipta öllu máli en það var gott að ná að enda þetta með sigri áður en við förum inn í mótið,“ segir Arnór, sem gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í síðasta æfinga- leiknum fyrir tímabilið á þriðjudag. Hann segir það muna miklu að hafa náð öllum undirbúningi liðsins í sumar, en í fyrra var deildin hafin þegar CSKA keypti hann frá Norr- köping í Svíþjóð í lok ágúst. „Þetta er allt annað. Það voru fimm eða sex leikir búnir í deildinni þegar ég kom inn í fyrra. Það skiptir máli að ná öllu undirbúnings- tímabilinu ofan á það að vera búinn með eitt tímabil. Nú kem ég inn af enn meiri krafti,“ segir Arnór, sem hefur fengið þau skilaboð að hann verði í stærra hlutverki hjá liðinu í vetur eftir að hafa slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili í fyrra. Hann var þá tilnefndur leikmaður ársins og mörk gegn Roma og Real Madrid í Meistaradeildinni fóru þar ekki framhjá neinum. „Stærra hlut- verk kemur með góðri frammistöðu og það er bara spennandi tímabil fram undan hérna í Moskvu.“ Aðdáendurnir eru rosalegir Arnór er tvítugur og hefur fallið vel inn í lið CSKA, sem hefur marga unga leikmenn í burðarhlutverkum. Hörður Björgvin Magnússon er 26 ára og meðal elstu manna, en liðið hafnaði í fjórða sæti deildarinnar í fyrra, sem var aðeins undir vænt- ingum. Liðið spilar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur. „Við stefnum hærra í ár og stefnd- um líka hærra í fyrra þó að liðið hafi verið enn yngra þá. Við erum með helling af flottum leikmönnum en þurfum bara að finna stöðugleika og ekki tapa stigum á móti liðum sem við eigum að vinna. Það er stór plús að vera í Evrópukeppni þó að við hefðum allir frekar viljað vera í Meistaradeildinni eftir að hafa próf- að það. En Evrópudeildin er líka risastór og við erum mjög spenntir og ákveðnir að ná langt þar,“ segir Arnór. Hann segir að rússneska deildin sé jafn sterk og hann bjóst við. Þar séu leikirnir frekar lokaðir og mikið um líkamlega baráttu. En helsti munurinn frá Svíþjóð, þar sem hann var áður, liggur í umgjörð og áhuga. „Aðdáendurnir hérna eru rosa- legir, og okkar eru alveg geggjaðir. Við erum með risastóran völl og fleiri lið eru með mjög flotta velli svo það skapast alvöru stemning í stóru leikjunum. Þá er allt frá 20 og upp í 60-70 þúsund manns á leikjum.“ Napoli og fleiri að fylgjast með Eftir gott gengi á fyrsta tímabili sínu var Arnór strax orðaður burt frá CSKA. Fullyrt var jafnvel að hann væri búinn að semja við ítalska félagið Napoli. Hann segir það aldr- ei hafa verið komið jafn langt og rætt var í fjölmiðlum, en staðfestir að félagið sé áhugasamt. Eins séu fleiri lið að fylgjast með. „Það hefur ekkert alvarlegt verið í gangi og félagaskiptaglugginn er þannig séð bara nýopnaður. En eins og ég hef alltaf sagt um þetta hugsa ég ekkert út í svona fyrr en þess þarf. Það eru nokkur lið sem eru að fylgjast með. En öll einbeiting mín er á fyrsta leik. Á meðan ég er leik- maður CSKA er ég bara að hugsa um það,“ segir Arnór. Rússneski veturinn engu líkur Þrátt fyrir að hafa sannað sig gegn sterkum liðum í Meistara- deildinni síðasta vetur hefur Arnór aðeins leikið fjóra A-landsleiki. Hann spilaði í fyrsta sinn á Laugar- dalsvelli í júní þegar hann kom inn á sem varamaður, sem hann sagði hafa verið skemmtilega stund. Hann er þó lítið að kippa sér upp við það þó að umræðan hafi verið á þá leið að hann eigi að fá stærra hlutverk í landsliðinu. „Það er erfitt að segja þegar liðið er að spila svona vel, sérstaklega fyrst við náðum í sex stig úr tveimur erfiðum leikjum júní. En það var mjög góð tilfinning að spila í fyrsta sinn á Laugardalsvelli,“ segir Arnór, sem aðeins fékk vikufrí eftir lands- leikina áður en hann þurfti að vera mættur aftur til CSKA. Deildin tek- ur hins vegar í staðinn langt vetr- arfrí frá desember og fram í mars. Það er að skilja á Arnóri að það sé gott fyrirkomulag. „Jú, annað er bara ekkert hægt miðað við hvernig veðrið er. Frostið fer alveg niður í -20 gráður, sem maður hefur aldrei séð áður,“ segir Arnór Sigurðsson. „Nú kem ég inn af enn meiri krafti“  Vel fylgst með Arnóri Sigurðssyni  Finnur fyrir auknu trausti í Moskvu AFP CSKA Arnór Sigurðsson fagnar marki í Meistaradeildinni síðasta vetur. Deildarkeppnin í Rússlandi hófst á ný í gær, aðeins sjö vikum eftir að hún kláraðist í vor. Fyrirkomulagið er þannig að deildin fer í lengra vetrarfrí en sumarfrí þar sem ekk- ert er leikið frá miðjum desember og alveg fram í mars þegar mestu vetrarhörkurnar ríkja í Rússlandi. Alls eru nú sex íslenskir knatt- spyrnumenn á mála hjá rúss- neskum félagsliðum og hvergi eru þeir fleiri hjá úrvalsdeildarliðum í atvinnumennsku utan Norður- landa. Flestir eru þeir hjá Rostov en þar hafa Björn Bergmann Sig- urðarson og Ragnar Sigurðsson verið í eitt og hálft ár og voru í burðarhlutverkum í fyrra þegar liðið hafnaði í níunda sæti. Viðar Örn Kjartansson er einnig samn- ingsbundinn Rostov og snýr aftur úr láni frá Hammarby í Svíþjóð eft- ir helgi. Í samtali við Morgunblaðið á dögunum útilokaði hann ekki að vera áfram hjá félaginu. Hjá CSKA Moskvu leika þeir Arnór Sigurðsson og Hörður Björg- vin Magnússon sitt annað tímabil og verða í stórum hlutverkum eins og í fyrra, en liðið verður einnig í riðla- keppni Evrópudeildarinnar næsta vetur eftir að hafa hafnað í fjórða sæti í deildinni. Þá er Jón Guðni Fjóluson sömuleiðis að leika sitt annað tímabil í Rússlandi með Krasnodar. Hann spilaði þó lítið í fyrra þegar Krasnodar hafnaði í þriðja sæti á og komst í 16-liða úr- slit í Evrópudeildinni. Liðið kemur nú inn í 3. umferð forkeppni Meist- aradeildarinnar og freistar þess að komast í riðlakeppnina í vetur. Bíða verður fram þangað til 21. september eftir fyrsta Íslend- ingaslagnum þegar CSKA tekur á móti Krasnodar. Rostov kemur svo í heimsókn til Moskvu 5. október. yrkill@mbl.is Sex í sjöttu sterk- ustu deild Evrópu Morgunblaðið/Eggert Rostov Björn Bergmann Sigurð- arson og Ragnar Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.