Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 47

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Einu sinni var stelpa sem var að gera flotta hluti í ónefndu Reykjavíkurliði. Stelp- an er fædd í kringum aldamótin og er því ung að árum en hún var að spila reglulega með lið- inu sem nú er í toppbaráttu í 1. deild kvenna, Inkasso-deildinni. Í vetur ákvað hún hins vegar að söðla um yfir Miklubrautina og semja við lið í öðru bæjarfélagi sem leikur í efstu deild. Þessi efnilega stúlka á að baki tíu leiki með U19 ára landsliði Íslands og ellefu leiki með U17. Alls á hún að baki 45 leiki með ónefnda Reykjavík- urliðinu og var hún algjör lyk- ilmaður í liðinu síðasta sumar þar sem hún var meðal annars valin í lið ársins af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar, þá aðeins 18 ára gömul. Hún hefur ekki ennþá byrjað leik í deildinni fyrir sitt nýja fé- lag. Hún hefur komið inn á sem varamaður í nokkrum leikjum í sumar þar sem hún hefur feng- ið svokallaðar ruslmínútur. Þegar hún hefur spilað hefur hún lent í ákveðnum vandræð- um og þegar maður horfir á hana fær maður það á tilfinn- inguna að hún sé ekki alveg tilbúin í efstu deild, enda bara 19 ára gömul. Nú sel ég það ekki dýrara en ég keypti það að félagaskiptin hennar yfir Miklubrautina hefðu meðal annars verið vegna utan- aðkomandi áhrifa frá foreldri. Þetta er ekki fyrsta sagan sem maður heyrir um unga íslenska leikmenn sem söðla um og halda að grasið sé grænna hinumegin, undir áhrifum frá veruleikafirrtum foreldrum. Þegar ég heyri svona sögur þá hristi ég hausinn. Hvort er mikilvægara fyrir unga leik- menn í dag að fá að spila eða sitja á bekknum? BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is FRJÁLSAR Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram í 93. sinn um helgina, en í þetta sinn fer mótið fram á Laugardalsvelli. Flest okkar besta frjálsíþróttafólk er skráð til leiks, með nokkrum undantekningum þó, en fjölmargir keppendur hafa farið mikinn það sem af er tímabili og freista þess að gera enn betur um helgina þar sem Íslandsmeistaratitl- arnir eru í húfi. Ekkert verður af því að sjá vinkon- urnar Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur og Tiönu Ósk Whitworth berjast sín á milli á hlaupabrautinni. Guðbjörg, sem á fjórða besta tímann í Evrópu í 200 metra hlaupi 20 ára og yngri, keppir í greininni en hún bætti Ís- landsmetið á dögunum, 23,45 sek- úndur. Tiana einbeitir sér hins vegar að 100 metra hlaupi, en þar á hún átt- unda besta tímann í Evrópu í ár, 11,57 sekúndur. Það verður ekki síður spennandi hlaupakeppni í karlaflokki. Ari Bragi Kárason og Kolbeinn Höður Gunn- arsson eru þar skráðir til leiks í 100 og 200 metra hlaupum, en þeir hafa háð harða baráttu síðustu árin en voru ekki með í greinunum í fyrra. Þá vann Jóhann Björn Sigurbjörnsson báðar greinarnar og er einnig á meðal keppenda í ár. Aníta Hinriksdóttir er svo skráð til leiks í 800 og 1.500 metra hlaupi. Aníta freistar þess að komast undir tvær mínúturnar í 800 metrunum í fyrsta sinn, en Íslandsmet hennar er 2:00,05 frá því fyrir tveimur árum. Uppgangur í kastgreinum Það er töluverður uppgangur í kastgreinum og sérstaklega í kvenna- flokki að undanförnu. Thelma Lind Kristjánsdóttir bætti 36 ára gamalt Íslandsmet Guðrúnar Ingólfsdóttur skömmu eftir Meistaramótið í fyrra og hún er skráð til leiks bæði í kringlukasti og kúluvarpi. Hún fékk þátttökurétt á Evrópumeistaramóti 23 ára og yngri í Svíþjóð um helgina en hætti við þátttöku vegna meiðsla svo það er ekki víst að hún geti beitt sér af fullum krafti. Í kúluvarpinu keppir einnig Erna Sóley Gunn- arsdóttir en hún kastaði 16,13 metra í apríl, sló tvö aldursflokkamet og á þriðja besta árangurinn í Evrópu af keppendum 20 ára og yngri á árinu. Vigdís Jónsdóttir mun freista þess að endurheimta Íslandsmet sitt í sleggjukasti, en Elísabet Rut Rún- arsdóttir sló metið í vor með kasti upp á 62,16 metra. Elísabet er ekki skráð á meðal keppenda um helgina en Vigdís, sem áður var búin að fjór- bæta Íslandsmetið, vann á mótsmeti í fyrra með kasti upp á 58,59 metra. Í karlaflokki keppir Hilmar Örn Jónsson í sleggjukasti eins og síðustu ár, en hann er í hörkuformi og bætti Íslandsmetið í vor með kasti upp á 75,26 metra. Ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason keppir í kringlu- kasti, sinni sterkustu grein, og í kúlu- varpi. Þá mun Sindri Hrafn Guð- mundsson keppa í spjótkasti, en hann á þriðja lengsta kast íslenskra spjót- kastara upp á 80,91 metra frá því í fyrra. Hann keppti á sínu fyrsta stór- móti fullorðinna síðasta sumar þegar hann hafnaði í 20. sæti á EM í Berlín. María mætir eftir bronsið Sjöþrautarkonan María Rún Gunnlaugsdóttir er skráð til leiks í fimm greinum, en hún fékk brons- verðlaun í sjöþraut í Evrópubik- arkeppni um síðustu helgi. Þá keppir langhlauparinn Arnar Pétursson í þremur greinum. Birna Kristín Kristjánsdóttir, sem á sjöunda lengsta langstökkið 18 ára og yngri í Evrópu upp á 6,12 metra, gæti svo mætt Íslandsmethafanum Hafdísi Sigurðardóttur í gryfjunni og yrði gaman að fylgjast með þeirra keppni. Þá eru fjölmargir aðrir keppendur ótaldir sem munu gera atlögu að met- um. Það vantar nokkra sterka kepp- endur á mótið um helgina. Spjótkast- arinn Ásdís Hjálmsdóttir missir af sínu fyrsta meistaramóti í níu ár. Hún er skráð í félag í Svíþjóð og má því ekki keppa um Íslandsmeistaratitil. Þá eru þau Andrea Kolbeinsdóttir, Dagbjartur Daði Jónsson og Irma Gunnarsdóttir í eldlínunni á EM U23 í Svíþjóð, en Dagbjartur mun þar meðal annars keppa í úrslitum spjót- kasts í dag. Markið er sett á met og meistaratitla í Laugardal  Meistaramót Íslands trekkir að flest okkar besta frjálsíþróttafólk um helgina Ljósmynd/Frjálsíþróttasamband Íslands Á spretti Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (22) og Tiana Ósk Whitworth (57) eru sigurstranglegar á hlaupabrautinni. Spænska meistaraliðið Barcelona staðfesti loks í gær það sem legið hefur í loftinu varðandi komu franska landsliðsmannsins Antoine Griezmann til félagsins. Barcelona sagðist hafa borgað Atlético Ma- drid 120 milljónir evra, sem jafn- gildir 17 milljörðum íslenskra króna, og borgað þannig upp samning hans. Við það eru for- ráðamenn Atlético hins vegar ekki sáttir. Í samningi Griezmann sagði að klásúla væri upp á 200 milljónir evra til 1. júlí, en eftir það lækkaði hún í 120 milljónir evra. For- ráðamenn Atlético vilja hins vegar meina að Griezmann hafi sam- þykkt að ganga til liðs við Barcelona fyrir 1. júlí, og telja sig því eiga rétt á 80 milljónum til viðbótar. Málið gæti verið útkljáð fyrir spænsk- um dómstólum. Griezmann er 28 ára gamall og hefur verið hjá Atlético Madrid í fimm ár, eða síðan hann kom frá Real Sociedad árið 2014. Hann skor- aði 133 mörk í 256 leikjum með Atlético og var markahæsti leikmaður liðsins öll fimm árin. Þá á hann að baki 72 leiki með Frökkum og 29 mörk. Hvað mun Griezmann kosta? Barcelona Antoine Griezmann. ERTU AÐ FARA Í HESTAFERÐ ? Þú færð hestavörurnar hjá okkur ! Sendum um allt land www.fodur.is gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.