Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 48

Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Inkasso-deild kvenna Þróttur R. – Fjölnir ................................. 5:1 Rakel Sunna Hjartardóttir 9., Linda Líf Boama 31., 61., Lauren Wade 64., Margrét Sveinsdóttir 79. – Eva María Jónsdóttir 78. Haukar – Grindavík ................................ 4:0 Heiða Rakel Guðmundsdóttir 11., Dagrún Birta Karlsdóttir 56., Hildur Karítas Gunn- arsdóttir 89., 90. Afturelding – ÍA ...................................... 1:0 Samira Suleman 39. Tindastóll – ÍR ......................................... 6:1 Murielle Tiernan 18., 48., Vigdís Edda Friðriksdóttir 33., 52., Jacqueline Altsc- huld 75., María Dögg Jóhannesdóttir 90. – Sigrún Erla Lárusdóttir 89. Staðan: FH 8 6 1 1 21:9 19 Þróttur R. 8 6 0 2 28:7 18 Tindastóll 8 5 0 3 25:18 15 Afturelding 8 4 1 3 10:9 13 ÍA 7 3 2 2 8:6 11 Grindavík 8 3 2 3 11:13 11 Haukar 8 3 0 5 12:9 9 Augnablik 7 3 0 4 6:7 9 Fjölnir 8 2 2 4 11:18 8 ÍR 8 0 0 8 3:39 0 2. deild karla KFG – ÍR ................................................... 2:3 Kristófer Konráðsson 9. (víti), Pétur Árni Hauksson 54. – Axel Kári Vignisson 6., Ágúst Freyr Hallsson 37., Gunnar Óli Björgvinsson 77. Staðan: Leiknir F. 11 6 4 1 22:11 22 Selfoss 11 6 2 3 26:12 20 Vestri 10 6 0 4 13:15 18 Fjarðabyggð 11 5 2 4 18:14 17 Völsungur 10 5 2 3 13:13 17 Víðir 10 5 1 4 17:14 16 ÍR 11 4 3 4 16:15 15 Þróttur V. 10 3 4 3 12:14 13 Dalvík/Reynir 10 2 6 2 13:13 12 KFG 11 4 0 7 19:25 12 Kári 11 3 2 6 20:25 11 Tindastóll 10 0 2 8 8:26 2 Danmörk Midtjylland – Esbjerg ............................. 1:0  Mikael Anderson kom inná hjá Midt- jylland á 85. mínútu og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins. KNATTSPYRNA HANDBOLTI Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Íslenska U21 árs landslið karla í handknattleik heldur á morgun út til keppni á heimsmeistaramótinu sem haldið er á Spáni. Liðið stoppar stutt í Hollandi áður en það heldur áfram til Spánar, en liðið á að vera komið á áfangastað um klukkan 22 á mánu- dag. Aðeins 12 tímum síðar er svo komið að fyrsta leik í riðlinum, gegn Síle. „Markmiðið er í það minnsta að ná besta árangrinum í nokkur ár. Það hefur ekkert U21 árs lið Íslands komist í átta liða úrslit, svo það er fyrsta markmið þó að stefnan sé allt- af sett á að fara alla leið,“ segir Elliði Snær Viðarsson, fyrirliði íslenska liðsins, í samtali við Morgunblaðið á æfingu landsliðsins þar sem það undirbjó sig fyrir mótið. Ísland er í ógnarsterkum riðli, en auk Síle eru þar Argentína og Evr- ópuliðin Danmörk, Noregur og Þýskaland. Ísland leikur fimm leiki á sjö dögum og verða einu frídagarnir í riðlinum á fimmtudag og á sunnu- dag eftir viku. Lokaleikurinn í riðl- inum verður gegn Þýskalandi mánu- daginn 20. júlí, en efstu fjögur liðin í riðlinum komast áfram í 16 liða úr- slit. Fyrir tveimur árum komst Ísland upp úr riðlinum en tapaði í 16 liða úrslitum fyrir Túnis og hafnaði að lokum í 12. sæti. Eru í erfiðasta riðlinum „Við erum líklega í erfiðasta riðl- inum. Við höfum keppt við þessi lið áður og bæði unnið og tapað fyrir Þýskalandi til dæmis. Við þekkjum því flest liðin vel, spiluðum við Arg- entínu um daginn svo það er kannski helst Síle sem við þekkjum minnst,“ segir Elliði, en telur jákvætt að byrja á þeim andstæðingi sem minnst er vitað um. „Maður gerir ráð fyrir að þeir séu ekki jafn sterkir og hin liðin, en samt má ekki vanmeta þá neitt því þeir munu koma inn af fullum krafti. Það hefur verið uppgangur í Suður- Ameríku og Argentínumenn komu okkur virkilega á óvart þegar við kepptum við þá um daginn,“ segir Elliði, en íslenska liðið mætti Arg- entínu á fjögurra þjóða móti í Portú- gal í lok síðasta mánaðar og vann þriggja marka sigur, 23:20. Fjórir gáfu ekki kost á sér Það verða skörð í íslenska liðinu á mótinu, en A-landsliðsmennirnir Haukur Þrastarson úr Íslandsmeist- araliði Selfoss og Teitur Örn Einars- son, leikmaður Kristianstad í Sví- þjóð, gáfu ekki kost á sér. Það gerðu ÍR-ingarnir Sveinn Andri Sveinsson og Arnar Freyr Guðmundsson ekki heldur. Mbl.is leitaði viðbragða hjá þeim Hauki og Teiti um hvers vegna þeir hefðu ekki gefið kost á sér. Haukur sagðist hafa þurft að taka ákvörðun um að sitja hjá eftir að hafa verið undir miklu álagi í vetur. Hann er enn gjaldgengur í U19 ára liðið og útilokaði ekki að taka slaginn með því á HM í ágúst. Teitur sagði að það hefði verið sameiginleg ákvörð- un sín og forráðamanna Kristians- tad að hann færi ekki. Hann hefði meiðst undir lok síðasta tímabils og liðið kæmi aftur saman til undir- búnings fyrir það næsta nú á mánu- dag. Landsliðsþjálfarinn Einar Andri Einarsson sagði það að sjálfsögðu vonbrigði að missa tvo af sterkustu leikmönnum sem gjaldgengir eru í liðið, en að aðrir fengju þá bara gott tækifæri til að sanna sig. Fyrirliðinn Elliði Snær, sem spil- aði alla deildarleiki ÍBV á síðasta tímabili, er spenntur að fara fyrir ís- lenska liðinu á mótinu. „Þetta er mjög flottur hópur. Við erum flest- allir búnir að vera mjög lengi saman og við þekkjumst allir mjög vel. Það er mjög jákvætt,“ segir Elliði Snær Viðarsson við Morgunblaðið. Stefnan er alltaf sett á að fara alla leið  21-árs landsliðið í handbolta mætir Síle í fyrsta leik á HM á þriðjudag Morgunblaðið/Eggert Fyrirliðinn Elliði Snær Viðarsson er bjartsýnn á gott gengi íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu þó sterkir leikmenn verði ekki með. Knattspyrnumaðurinn Mikael And- ersen skoraði sitt fyrsta mark fyrir danska úrvalsdeildarfélagið Midt- jylland í gær þegar hann tryggði liðinu 1:0-sigur gegn Esbjerg í fyrsta leik tímabilsins í deildinni þar í landi. Mikael byrjaði á bekkn- um í leiknum en kom inn á sem varamaður á 85. mínútu og skoraði sigurmark leiksins á 90. mínútu. Þessi 21 árs gamli miðjumaður á að baki einn A-landsleik og 10 leiki fyrir U21 árs landslið Íslands en hann er uppalinn hjá Midtjylland í Danmörku. Fyrsta markið var sigurmark Morgunblaðið/Eggert Sigurmark Mikael Anderson tryggði Midtjylland sigur. Eva Björk Davíðsdóttir, landsliðs- kona í handknattleik, gekk í gær til liðs við Skuru, eitt besta kvennalið Svíþjóðar, sem varð deildarmeist- ari og endaði í öðru sæti í úrslita- keppninni um meistaratitilinn þar í landi í vor. Hún kemur þangað eftir að hafa leikið með Ajax í dönsku úr- valsdeildinni undanfarin tvö tíma- bil og áður eitt ár með Sola í Nor- egi.  Ítarlegt viðtal við Evu um skiptin og atvinnumennskuna er að finna á mbl.is/sport/handbolti. bjarnih@mbl.is Eva komin í eitt besta lið Svía Morgunblaðið/Eggert Svíþjóð Eva Björk Davíðsdóttir fer frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms. EM U18 kvenna B-deild í Norður-Makedóníu: Keppni um sæti 9-16: Slóvenía – Ísland .................................. 72:45  Ísland mætir Úkraínu í dag í keppni um sæti 13 til 16. EM U20 karla B-deild í Portúgal: Hvíta-Rússland – Ísland...................... 79:74  Ísland mætir Írlandi í dag, Rússlandi á morgun og Ungverjalandi á miðvikudag.  Jón Daði Böðv- arsson, landsliðs- maður í knatt- spyrnu, er kominn til liðs við þriðja félag sitt í ensku B- deildinni á þremur árum, en hann gekk í gær til liðs við Lundúnafélagið Millwall. Samningur hans er til „langs tíma“ eins og það er orðað á vef Millwall. Jón Daði lék með Wolves tíma- bilið 2016-17, var keyptur þangað frá Kaiserslautern í Þýskalandi, en hefur síðan leikið með Reading undanfarin tvö tímabil. Á þessum þremur tímabilum hefur hann leikið 95 leiki í deildinni og skorað í þeim 17 mörk. Millwall hafnaði í 21. sæti af 24 liðum síðasta vetur, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti og þremur stig- um á eftir Reading, sem endaði í 20. sætinu. Millwall er frá Bermondsey-hverfinu í Suður- London og hefur lengst af flakkað á milli B- og C-deilda, kom síðast upp 2018, en lék þó í efstu deild árin 1988 til 1990. Jón Daði er fyrsti Íslending- urinn sem spilar með Millwall. Hann fór beint til Portúgals með liðinu í æfingaferð síðdegis í gær, en fyrsti leikur tímabilsins 2019-20 er á heimavelli gegn Preston laugardaginn 3. ágúst. vs@mbl.is Jón fyrstur Íslend- inga með Millwall Jón Daði Böðvarsson ÞJÓNUSTA FYRIR ÁSKRIFENDUR HLJÓÐMOGGI FYRIR FÓLK Á FERÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.