Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Veldu öryggi SACHS – demparar ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA ar að sér fjölda gesta á hverju ein- asta sumri ásamt því að vekja athygli á staðnum, menningunni og svæðinu í heild,“ segir Bryndís og bendir á að sýningin auðgi menn- Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Alþjóðlega myndlistarsýningin Rúllandi snjóbolti/12 verður opnuð í Bræðslunni á Djúpavogi í dag kl. 15. Alls taka 24 listamenn frá Íslandi, Evrópu, og Asíu þátt í sýn- ingunni sem er skipulögð af Chi- nese European Art Center (CEAC) eða Kínversk-evrópsku menningar- miðstöðinni. Sýnendur þetta sum- arið eru Axis Art project; Eva Ísleifs; Eygló Harðardóttir; Guð- rún Benónýsdóttir; Halldór Ásgeirsson; Hildigunnur Birgis- dóttir; Jin Jing; Jos Houweling; Kjartan Ari Pétursson; Kristján Guðmundsson; Lilja Birgisdóttir; Liu Yuanyuan; Luuk Schröder; Marianne Lammersen; Marjan Teeuwen; Meiya Lin; Nanda Runge; Nick Renshaw; Örn Alex- ander Ámundason; Rakel McMa- hon; Styrmir Örn Guðmundsson; Twan Janssen; Una Margrét Árna- dóttir og Yan Jian. Auðgar menningarlífið „Sýningin sem er ein stærsta samtímalistasýning á Íslandi er samvinnuverkefni Djúpavogs- hrepps og CEAC. Þessi kínversk- evrópska menningarmiðstöð er löngu orðin þekkt í kínverska og evrópska listaheiminum og hefur staðið fyrir mörgum, stórum sýn- ingum í Kína og á Íslandi,“ segir Bryndís Reynisdóttir, atvinnu- og menningarmálafulltrúi Djúpavogs- hrepps. Bendir hún á að Rúllandi snjóbolti hafi hlotið Menningar- verðlaun Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) árið 2015 og til- nefningu til Eyrarrósarinnar árin 2016, 2017 og 2018. „Sýningin hefur verið haldin ár- lega á Djúpavogi frá 2014 og við erum eini staðurinn á Íslandi þar sem sýningin er sett upp. Við vilj- um meina að þetta sé eina sýning sinnar tegundar sem sett er upp á landinu,“ segir Bryndís og tekur fram að sýningin hafi mikla þýð- ingu fyrir Djúpavog. „Sýningin lað- ingarlífið á staðnum til muna. CEAC er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð árið 1999 af Ineke Guðmundsson í Xiamen í Kína með fjárhagslegum stuðningi eigin- manns hennar, Sigurðar Guð- mundssonar listamanns. Þegar blaðamaður náði tali af Sigurði voru þau hjónin önnum kafin við að setja upp sýninguna. „Þetta er allt að smella. Verkin eru öll komin til landsins og síðustu listamennirnir eru á leiðinni til landsins. Í gær sótti ég út á Egilsstaðaflugvöll tvær öflugar og flottar listakonur frá Kína sem lögðu á sig 24 klukkustunda ferðalag frá Kína til Íslands til að vera með.“ Eins og áhugavert landslag Spurður hvað stýri valinu á lista- fólki í ár segir Sigurður að þau hjónin hafi alltaf lagt áherslu á að hafa öfluga listamenn. „Stór nöfn í bland við ungt fólk. Í raun er engin strategía í valinu heldur rennur þetta allt svona náttúrulega,“ segir Sigurður og bendir á að það hafi hins vegar aldrei hallað á konur í því vali. Inntur eftir því hvort sjá megi eitthvert leiðarstef í verkum sýningarinnar í ár svarar Sigurður því neitandi. „CEAC hefur alltaf forðast það að hafa þema, nema með einni undantekningu í Kína fyrir um tuttugu árum í sýningunni She eða Hún þar sem aðeins voru sýnd verk listakvenna,“ segir Sig- urður og bendir á að CEAC setji upp um tíu sýningar í Xiamen á ári ásamt því að setja upp sýningar víðs vegar um Evrópu. „Okkar leiðarljós er að allir lista- menn eru einstakir, en ekki þekkj- anlegir vegna tegundarinnar sem þeir eru kenndir við. Þetta er eins og að koma inn í grasagarð þar sem sjá má samansafn af ein- stökum grösum. Þessi samsetning býður upp á kemistríu sem ekki er hægt að líma á neitt sérstakt þema. Þetta verður fremur eins og áhugavert landslag, í stað einhvers konar yfirlýsingar innan nútíma- listarinnar,“ segir Sigurður um listafólkið sem sýnir á Rúllandi snjóbolta þetta sumarið. „Meðal þeirra sem sýna hjá okk- ur eru Eygló Harðardóttir, sem er handhafi Íslensku myndlistarverð- launanna í ár. Það er skemmtilegt tilviljun, því við völdum hana áður en hún hlaut verðlaunin. Hún er því aðalmanneskjan frá Íslandi í ár. Svona eru tilviljanir skemmti- legar.“ Aðspurður segir Sigurður að- sóknina á sýninguna vera góða. „Síðustu ár hefur verið stöðugur straumur af fólki þessar fimm vik- ur sem sýningin stendur, bæði íslenskir ferðamenn og erlendir. Útlendingarnar eru alltaf jafnhissa að sjá í fiskiþorpi svona harðkjarna nútímalist, enda er það óvenjulegt og skemmtilegt,“ segir Sigurður og tekur fram að nokkuð sé einnig um það að erlendir listunnendur leggi leið sína sérstaklega til landsins til að sjá og upplifa Rúllandi snjó- bolta. Þess má að lokum geta að sýn- ingin stendur til 18. ágúst og er op- in alla daga vikunnar milli kl. 11 og 16. Að vanda er aðgangur ókeypis. „Allir listamenn eru einstakir“ Gólfskúlptúr Eygló Harðardóttir, handhafi Íslensku myndlistarverð- launanna í ár, sýnir gólfskúlptúr frá árinu 2018 á Rúllandi snjóbolta/12. Ljósmyndir/Bryndís Reynisdóttir Göng Ónefnd verk eftir hollensku listakonuna Marianne Lammersen.  Alþjóðlega myndlistarsýningin Rúllandi snjóbolti sett upp á Djúpavogi í sjötta sinn  24 listamenn frá Íslandi, Evrópu og Kína taka þátt  Eins og grasagarður með samansafni af einstökum grösum Litir Transaction of a point eftir Guðrúnu Benónýsdóttur. Sýningin Jahérna! verður opnuð í Safnasafninu í Eyjafirði í dag, laugardag, klukkan 14. Um er að ræða norræna sýningu sem á tveimur árum er sett upp í söfn- um og sýningasetrum í Finlandi, Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Noregi. Á sýningunni má sjá verk þar sem unnið er með hefðbundnar handverksaðferðir, til dæmis prjón, hekl og útsaum af ýmsu tagi, en einnig verk unnin úr plastpokum, leir og tré. Verkin voru valin á sýninguna af finnsku sýningarstýrunum Elina Vuori- mies og Minna Haveri. Hver sýn- ingarstaður krefst nýrrar nálg- unar við uppsetningu verkanna, en markmiðið með framkvæmd- inni er að sýna þá fjölbreytni og leikgleði sem fólgin er í verkum einfara og hvernig þau nota tækni og efni á nýstárlegan hátt. Listafólkið sem á verk á sýning- unni hefur ólíkan bakgrunn, sum eru fötluð en önnur ekki. Það sem sameinar þau er að þau vinna með hefðbundið handverk út frá hugkvæmni og hugmyndaflugi sínu. Margar nýjar sýningar eru í Safnasafninu með verkum starf- andi íslenskra listamanna, auk verka eftir lista- og handverks- menn sem fallnir eru frá. Meðal sýnenda eru Eygló Harðardóttir, Atli Már Indriðason, Rúna Þor- kelsdóttir, Steingrímur Eyfjörð og Auður Lóa Guðnadóttir. Þá eru sýnd verk eftir Kíkó Korríró og Valdimar Bjarnfreðsson – Vapen. Leikgleði Sum verkanna á sýning- unni eru eftir fatlaða listamenn. Norræn sýning, Ja- hérna!, í Safnasafninu  Sýna fjölbreytni í verkum einfara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.