Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni
sýningarverkefna allt að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningarverkefna,
útgáfu-/rannsóknarstyrkir allt að
2.000.000 kr.
Aðrir styrkir allt að 1.000.000 kr.
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunarreglur
og leiðbeiningar má finna á vefsíðu
myndlistarráðs, myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í septembermánuði.
Um er að ræða síðari úthlutun úr sjóðnum
árið 2019.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 20.ágúst 2019
Opið er fyrir
umsóknir í
myndlistarsjóð
» Helga Steffensenhefur í tæp fjörutíu
ár stýrt Brúðubílnum
við miklar vinældir
yngstu áhorfenda. Sýn-
ingarnar fara fram víðs
vegar um borgina í júní
og júlí, en allar nánari
upplýsingar um
sýningarstaði og -tíma
má nálgast á vefnum
brudubillinn.is. Aðgang-
ur er ávallt ókeypis.
Brúðubíllinn á ferð og flugi um höfuðborgina út júlímánuð
Morgunblaðið/Hari
Vinsæl Brúðubíllinn sýndi á Árbæjarsafni í vikunni. Næsta sýning er við Sundlaug Vesturbæjar á mánudag kl. 14.
Gleði Eftirvænting og gleði skein úr augum áhorfenda á öllum aldri á sýningu Brúðubílsins fyrr í vikunni.
Samfylgd Lilli er ein þekktasta brúðan úr smiðju Helgu Steffensen.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Aðdáendur myndasagna geta glaðst
því nú hafa í fyrsta sinn komið út
Marvel-myndasögubækur á
íslensku. Fyrir útgáfunni stendur
Bjarni Gautur Eydal Tómasson en
hann hefur stofnað útgáfufyrirtækið
DP-in og samið við Marvel um
íslensku þýðinguna. „Ég hafði bara
samband við þá og þeir voru rosa til
í þetta,“ segir Bjarni. Fyrstu tvær
bækurnar sem hann gefur út eru
um Hulk og X-Men. Aðalþýðandi
bókanna er Hrafn Jóhann ásamt Ír-
isi Árnadóttur og grafísk hönnun er
í höndum Gísla Dan.
„Ég ólst upp í Svíþjóð og las rosa-
lega mikið af myndasögum þar. Sví-
ar gáfu eiginlega bara allt út á
sænsku, þar á meðal Marvel-
bækurnar. Mér fannst það vanta
þegar ég kom til Íslands. Hér er
ekki nógu mikið úrval af þýddum
myndasögum.“
Auðvitað fyrir alla aldurshópa
Bjarni segir að þörfin fyrir slíkar
bækur sé mikil meðal íslenskra
barna og ungmenna. „Ég á lítinn
frænda sem var alltaf að kaupa sér
myndasögur á ensku en skoðaði
bara myndirnar og fannst mjög leið-
inlegt að geta ekki lesið. Svo var ég
að vinna á frístundaheimili og þá tók
ég eftir því að krakkarnir vildu vera
að æfa sig að lesa og fannst það
mjög gaman.“ Hann segir krakkana
frekar hafa gripið til Andrésar And-
ar en bóka með meiri texta. „Ég
hugsaði að það væri gaman að hafa
eitthvert millistig eins og Marvel-
bækurnar fyrir þessa krakka. Það
var svona aðalhugmyndin en sög-
urnar eru auðvitað fyrir alla aldurs-
hópa,“ segir Bjarni.
„Marvel hefur alltaf verið rosa
vinsælt. Þeir hafa alltaf verið með
bestu sögurnar og núna eftir að
myndirnar komu út held ég að það
sé rosa mikill vilji hjá fólki á öllum
aldri að sjá svona hvernig þetta
byrjaði allt og lesa sögurnar í réttri
röð.“ Bjarni nefnir að ensku útgáfur
Marvel-bókanna séu ekki merktar
eftir tímaröð og það geti valdið rugl-
ingi. „Mér fannst spennandi að gefa
sögurnar út í réttri tímaröð og hafa
röðina mjög skýra.“
Vinna að fleiri þýðingum
Bjarni segir aðdáendur Marvel-
kvikmyndanna geta öðlast innsýn í
forsögu persónanna með því að lesa
bækurnar. „Það er gaman að núna
er sýningum á Avengers: Endgame,
sem er svona lokasagan, að ljúka í
bíó. Þá er skemmtilegt að lesa
fyrstu ævintýri Hulks og sjá hvern-
ig þetta byrjaði allt saman.“
Bjarni segir að stefnan sé að gefa
út að minnsta kosti tvær bækur í
viðbót í ár. „Við erum að þýða
Spider-Man og Þór núna, við erum
að vinna að bók tvö um X-Men og
við erum að reyna að púsla saman
hvernig næsta bók um Hulk myndi
vera. Eins lengi og fólk hefur áhuga
á þessu munum við halda áfram að
gefa út.“
Haldið verður útgáfuhóf í Spila-
vinum í dag kl. 12 og segir Bjarni
alla vera velkomna þangað. Þar
verður hægt að næla sér í eintak af
Hulk og X-Men. „Við ætlum að hafa
teiknimyndasamkeppni, svo krakk-
ar geta komið og t.d. teiknað sína
eigin ofurhetju eða eitthvað Marvel-
tengt,“ segir Bjarni. Nýju bæk-
urnar tvær verða í verðlaun fyrir
þann sem teiknar flottustu mynd-
ina.
Halda áfram á meðan áhugi er
Myndasögur Nú geta aðdáendur lesið Marvel-sögurnar í íslenskri þýðingu.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Útgáfa Haukur Jóhann þýðandi, Bjarni Gautur útgefandi og ritstjóri og
Gísli Dan, grafískur hönnuður, með afrakstur samvinnu sinnar.
Myndasögubækur Marvel gefnar út í fyrsta sinn á íslensku Ritstjóri segir ekki vera nóg úrval af
þýddum myndasögum hér á landi Útgáfuhóf og teiknimyndasamkeppni í Spilavinum í dag kl. 12