Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 172. tölublað 107. árgangur
FYRST KVENNA
TIL AÐ SYNDA Í
LAND FRÁ EYJUM FERNIR TÓNLEIKAR
ÞEFA YNGRA
FÓLK UPPI
Í KANNANIR
REYKHOLTSHÁTÍÐ 28 VIÐSKIPTAMOGGINNEYJASUNDIÐ 11
Þóroddur Bjarnason
Stefán E. Stefánsson
Enn hefur greiðsla fyrir flugrekstr-
areignir úr þrotabúi WOW air ekki
borist. Þetta herma heimildir Við-
skiptaMoggans. Hinn 12. júlí síðast-
liðinn var greint frá því á forsíðu
Fréttablaðsins að viðskiptin væru
frágengin en enn á eftir að hnýta
lausa enda. Mikla athygli vakti þegar
upplýst var að þrotabúið hefði náð
skuldbindandi samkomulagi við
bandarísku athafnakonuna Michele
Ballarin um kaupin á eignunum og að
hún hygðist endurreisa WOW air
sem varð gjaldþrota 28. mars síðast-
liðinn. Í ítarlegu einkaviðtali í Við-
skiptaMogganum í dag ræðir hún um
fyrirætlanir sínar um endurreisn fé-
lagsins og segir að ásamt fjárfestum
sé hún búin að tryggja allt að 100
milljónir dollara til rekstursins.
„Fyrstu sex mánuðina gerum við
ráð fyrir 25 milljóna dala framlagi til
félagsins, eða rúmum þremur millj-
örðum króna. Það er bara eitt sem við
viljum tryggja: að það skorti ekki fé.“
Þrátt fyrir talsverð umsvif í
bandarísku athafnalífi og ótrúleg
tengsl inn í stjórnmálalíf í Sómalíu
hefur Ballarin afar sjaldan veitt við-
töl af þessu tagi. En að þessu sinni
ræðir hún þau tækifæri sem hún sér
í íslenskri ferðaþjónustu og hvernig
endurreist flugfélag geti styrkt ís-
lenskt samfélag til frambúðar. Á
síðustu mánuðum hefur hún átt
samtöl við áhrifafólk í íslensku sam-
félagi og sest niður með lykilfólki
sem kom að rekstri WOW air. Meðal
annars hefur hún átt samtöl við
Skúla Mogensen, stofnanda og for-
stjóra hins fallna félags. Spurð út í
þær skorður sem settar eru við eign-
arhaldi fjárfesta utan Evrópska
efnahagssvæðisins á flugfélögum
segir hún að félagið utan um „WOW
2“ verði að meirihluta í eigu íslensks
fyrirtækis en 49% hlutur í banda-
rískri eigu.
„Við munum uppfylla öll skilyrði
þannig að WOW verði að meirihluta í
íslenskri eigu,“ segir Ballarin.
Kaupin enn ófrágengin
Michele Ballarin hyggst enn kaupa eignir úr þrotabúi WOW air Greiðsla fyrir
eignirnar hefur dregist Framtíðaráform um endurreisn útlistuð í ítarlegu viðtali
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þruma úr heiðskíru lofti Það var á síðasta ári sem Michele Ballarin fékk augastað á WOW air. Hún átti pantað flug með vél félagsins sem kyrrsett var í
Baltimore 27. mars. Hún hefur átt samtöl og fundi með fjölda fólks hér á landi sem tengist með einu eða öðru móti flugrekstri og flugtengdri starfsemi.
M »ViðskiptaMogginn
Ursula von der Leyen, verðandi for-
seti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, óskaði í gær Boris
Johnson til hamingju með sigur
hans í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í
Bretlandi en varaði við því að nýi
leiðtoginn og forystumenn ESB
ættu „erfiðan tíma fyrir höndum“
vegna deilna um útgöngu Bretlands
úr sambandinu. Donald Trump
Bandaríkjaforseti óskaði Boris
Johnson til hamingju með sigurinn,
fyrstur erlendra leiðtoga, og sagði
að hann yrði „frábær“ forsætisráð-
herra.
Mikil óvissa ríkir um hvort John-
son geti staðið við loforð sitt um að
tryggja að Bretland gangi úr ESB
31. október vegna óeiningar meðal
þingmanna Íhaldsflokksins um
hvort landið eigi að ganga úr sam-
bandinu án samnings náist ekki
samkomulag um skilmála útgöng-
unnar. »12-14 og ViðskiptaMogginn
Spáir „erfiðum tíma“
AFP
Nýr leiðtogi Boris Johnson við höfuðstöðvar Íhaldsflokksins í Lundúnum.
ESB býr sig undir deilur við Johnson
Miklatorg, sem á
og rekur IKEA á
Íslandi, hagnaðist
um 528 milljónir
króna á síðasta
rekstrarári.
Hagnaðurinn
dróst verulega
saman frá fyrra
ári þegar hann
nam 982 milljón-
um króna. Stjórn
félagsins lagði fyrir aðalfund tillögu
um greiðslu 500 milljóna króna arðs
út úr félaginu. Er það annað árið í röð
sem tillaga um slíka arðgreiðslu er
borin upp og samþykkt. Árið 2016
nam arðgreiðsla út úr félaginu 900
milljónum króna.
Síðasta áratuginn nema arð-
greiðslur Miklatorgs til eigenda sinna
tæpum 3,5 milljörðum króna. Bræð-
urnir Jón og Sigurður Gísli Pálma-
synir eiga IKEA á Íslandi. Á undan-
förnum árum hafa þeir einnig byggt
upp mikil umsvif í tengslum við sömu
starfsemi í Eystrasaltsríkjunum.
IKEA á Íslandi var opnað árið 1981
og var þá deild í Hagkaupum. Frá
árinu 2006 hefur félagið verið með
starfsemi í ríflega 20 þúsund fermetra
verslun í Kauptúni í Garðabæ.
»ViðskiptaMogginn
Hálfur
milljarð-
ur í arð
IKEA hagnast um
3,4 milljarða á áratug
IKEA Mikill hagn-
aður af rekstri.
„Það er al-
menn regla hjá
Þjóðminjasafn-
inu að ásælast
aldrei gripi,
hvorki kirkju-
gripi né aðra
muni. Söfn met-
ast heldur ekki
um gripi. Það er
löngu liðin tíð,“
segir Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður.
Hún sagði að ummæli Óskars Magn-
ússonar í blaðinu í gær um að safna-
menn og söfn hefðu ásælst kirkju-
gripi og viljað hafa þá í sinni vörslu
tilheyrðu löngu liðnum tíma. »4
Margrét
Hallgrímsdóttir
Þjóðminjasafnið
ásælist ekki gripi
Hlutfall innflytjenda og annarrar
kynslóðar innflytjenda af íbúafjöld-
anum á Norðurlöndum hefur breyst
mikið á þessari öld. Í Svíþjóð
bjuggu í fyrra tvöfalt fleiri innflytj-
endur en árið 2000. Árið 2000 voru
þeir um milljón en um tvær millj-
ónir í fyrra. Við það bætast innflytj-
endur af annarri kynslóð. Innflytj-
endum hefur einnig fjölgað mikið
hér á landi. Samkvæmt gögnum frá
hagstofum ríkjanna bjuggu um 3,7
milljónir innflytjenda á Norður-
löndunum árið 2018. »10
Innflytjendum fjölg-
ar á Norðurlöndum