Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! Öryggissvæði fyrir hættulegan farm, svokallaðan „hot cargo“, á Keflavíkurflugvelli verður stækkað í framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á flugvellinum á vegum Banda- ríkjahers og Atlantshafsbandalags- ins. Þetta kom fram á mbl.is í gær. Samkvæmt upplýsingum frá ut- anríkisráðuneytinu er svæðið eink- um ætlað herflugvélum, til dæmis ef flytja þarf vopn, en gæti þó nýst fyrir borgaraleg loftför þurfi af einhverjum ástæðum að einangra þau, svo sem ef upp kemur bráð- smitandi veirusýking um borð eða annars konar hættuástand. Kefla- víkurflugvöllur er óvenjulegur að því leytinu til að þar fer bæði fram borgaralegt flug og flug vopnaðra herflugvéla, og því nauðsynlegt að halda slíku aðgreindu. Stækkun svæðisins er í takt við aukin um- svif Bandaríkjahers á svæðinu undanfarin ár, einkum þegar kem- ur að kafbátaeftirliti, að því er fram kemur í svari utanríkisráðu- neytisins við fyrirspurn mbl.is. Svæðið sem áður hefur nýst undir þessa starfsemi er flugskýli 831, austanmegin á vellinum, en það er æ meira undirlagt almennu millilandaflugi og er það hluti ástæðunnar fyrir stækkun svæð- isins. Ekki er þó útlit fyrir neina sér- staka breytingu á vopnaflutningum um flugvöllinn eftir stækkun, og í samtali við mbl.is útilokar upplýs- ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins að til greina komi að flytja kjarn- orkuvopn um íslenska lofthelgi. Samrýmist það enda ekki íslenskri þjóðaröryggisstefnu. Öryggissvæðið stækkað  Svæði fyrir hættulegan farm á Keflavíkurflugvelli aukið í tengslum við framkvæmdir Bandaríkjahers og NATO Morgunblaðið/Árni Sæberg Varnarmál Frá heræfingu Banda- ríkjamanna á Keflavíkurflugvelli. Tæplega helmingur rekstraraðila í miðborg Reykjavíkur er mjög and- vígur göngugötum allt árið og 62% eru þeim ýmist mjög eða frekar andvíg, sam- kvæmt könnun sem Zenter framkvæmdi fyr- ir Miðborgina okkar í maí- mánuði. 29,9% rekstraraðila eru mjög eða frekar hlynnt göngugöt- um í miðborg Reykjavíkur allt árið, en alls bárust svör frá 191 rekstraraðila. Frá þessu var skýrt á mbl.is í gær. Zenter framkvæmdi sambærilega könnun meðal viðhorfshóps síns, 1.800 einstaklinga 18 ára og eldri búsettra á höfuðborgarsvæðinu. Tæplega helmingur svarenda, sem voru 923, var mjög eða frekar hlynntur göngugötum í miðborg Reykjavíkur allt árið, en 32,7% voru því mjög eða frekar andvíg. Íbúar í póstnúmeri 101 voru líkleg- astir til að vera hlynntir göngugöt- um allt árið, sem og þeir sem nýttu sér þjónustu í miðborginni vikulega eða oftar. Þeir sem aldrei kváðust nýta sér þjónustu í miðborginni voru andvígastir göngugötum allt árið. Mikil and- staða við göngugötur  Rekstraraðilar vilja ekki loka allt árið Laugavegur Deilt er um lokunina. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Bæði bæjarráð Kópavogsbæjar og bæjarráð Garðabæjar hafa hafnað beiðni Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og Golfklúbbs- ins Odds (GO) um fjárstuðning vegna Íslandsmóts golfklúbba í 1. deild sem haldið verður á völlum beggja klúbba um næstu helgi. Var það von klúbbanna að hvort sveitar- félag styrkti framkvæmd mótsins um 500.000 krónur að því er kemur fram í beiðninni. Var það meðal annars vegna þess að keppt verður á báðum völlum samtímis og þannig tryggt að mótsumgjörð sé hin sama hjá körlum og konum. Í samtali við Morgunblaðið segir Þorvaldur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri GO, að ekki hafi bor- ist rökstuðningur með höfnuninni, en reyndar hafi styrkbeiðnirnar verið sendar út tiltölulega seint. Ekki stutt nógu vel við golfið „En við erum samt ekkert sér- staklega kát með þetta. Við hefðum viljað fá einhvern smá styrk í þetta,“ segir Þorvaldur. „Við erum að reyna að gera meira úr þessu móti en hefur verið gert hingað til. Þetta er liðakeppni, Íslandsmót golfklúbba, en ekki höggleikur ein- staklinga. Við erum að halda þetta sameiginlega, þ.e. 1. deild karla og kvenna á sama tíma, svo þetta verð- ur svolítið meira um sig. Ástæðan fyrir styrkbeiðninni er líka að við vildum hafa aðeins hátíðlegri um- gjörð í kringum þetta, eins og loka- hóf. Við erum að reyna að setja þetta mót á þann stall sem það á skilið.“ Aðspurður segir Þorvaldur að ekki sé þó útlit fyrir að hætta þurfi við einhver áform sökum þess að styrkurinn fékkst ekki. „Það er hins vegar ekkert laun- ungarmál að almennt finnst okkur sveitarfélög ekki styðja nægilega vel við bakið á golfíþróttinni,“ bætir Þorvaldur við og segir: „Ég held að sveitarfélög átti sig ekki almenni- lega á mikilvægi golfklúbba í sínum sveitarfélögum. Ekki bara á höfuð- borgarsvæðinu heldur sérstaklega úti á landi. Menn horfa oft ekki á þetta sem lýðheilsuíþrótt, eins og þetta er. Meðalaldur kylfinga er um fimmtugt, og fólk sem spilar golf er almennt í betra formi en annað fólk því það fær sína hreyfingu.“ Samningar þegar í gildi Í samtali við Morgunblaðið segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, spurður um ástæðu þess að styrkbeiðninni var hafnað, að á milli Garðabæjar og golfklúbb- anna séu þegar samningar um rekstur og framkvæmdir. „Við lítum bara svo á að það sé ákvörðun klúbbanna að halda svona mót og að þá haldi þeir það bara innan þess fjárhagsramma sem þeir hafa.“ Styrkbeiðnum golfklúbba hafnað  „Ekkert sérstaklega sátt,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds  Mót karla og kvenna verð- ur haldið samtímis á tveimur völlum um næstu helgi  Hátíðlegri umgjörð en hefur verið er á áætlun Morgunblaðið/Kristinn Högg Íslandsmót golfklúbba fer fram á tveimur völlum um helgina. Stóran hluta mánaðarins hefur orðið vart við svífandi fræ á höfuðborgarsvæðinu, en öspin felldi fræ óvenju snemma þetta árið að því er fram kom í viðtali blaðsins við Jóhann Pálsson, grasafræðing 8. júlí sl. Ljósmyndari var á ferðinni í Laugardal í gær þar sem fræin mátti sjá á gangstéttum og gras- flötum, en Laugardalurinn er meðal grænustu svæða borgarinnar og fjölbreytta flóru er þar að finna, meðal annars í Grasagarðinum. Þar kunna margir vel við sig í grænni náttúru og góðu veðri, en í dag er von á hægt vaxandi norð- austlægri átt, 8.15 m/s upp úr miðnætti og hvassast verður á annesjum. Skýjað verður með köflum og skúrir sunnanlands fram á kvöld. Víða verður rigning, en úrkomulítið norðvestan- lands og birtir til á Suðurlandi. Hiti verður 10-18 stig, hlýjast fyrir sunnan. Fræin lenda og lita stéttir og flatir hvítar Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.