Morgunblaðið - 24.07.2019, Page 8

Morgunblaðið - 24.07.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 Nýjasta dæmið um afleiðingar afstefnu Reykjavíkurborgar er að borgin er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Ís- lendingum fækkar. Í Reykjavík fækkaði Íslendingum um eitt þús- und á árunum 2016 til 2019, en vegna aðflutnings útlendinga var nokkur fjölgun í borginni.    Þessu er ólíkt farið annars staðará landinu en á landinu í heild fjölgaði Íslendingum um vel á sjö- unda þúsund á þessum árum.    Og eins og áður segir er þessueinnig ólíkt farið í nágranna- sveitarfélögum Reykjavíkur þar sem Íslendingum heldur áfram að fjölga.    Hvernig ætli standi á því að þeirsem best þekkja til eru farnir að flýja borgina?    Getur verið að það hafi eitthvaðmeð stefnu borgaryfirvalda að gera?    Getur verið að þetta sé sláandidæmi um þá röngu stefnu sem borgaryfirvöld hafa fylgt í ýmsum málaflokkum?    Getur verið að stefnan í skipu-lagsmálum, samgöngumálum, skólamálum og svo framvegis hafi orðið til þess að þeir sem helst geta lagt mat á aðra kosti velji þá?    Eða er þetta bara allt saman ámisskilningi byggt hjá þeim Íslendingum sem nú flýja höfuð- borgina? Íslendingar flýja borgina STAKSTEINAR Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Auðvelt að þrífa • Má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Flugsveit úr bandaríska flughern- um, sem mun sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland, kemur til landsins á morgun, fimmtudag. Þetta staðfestir Sveinn Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, í samtali við Morgunblaðið. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á laugardag munu allt að 110 liðsmenn bandaríska flughersins, og fimm F-16 orrustuþotur, mæta til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu verður verkefnið framkvæmt með sama fyr- irkomulagi og fyrri ár. Í fyrra var flokkur Bandaríkjamanna þó nokk- uð stærri, þegar um 300 liðsmenn komu hingað til lands með fimmtán orrustuþotur með sér. Bandaríkjamenn koma á morgun  110 bandarískir hermenn úr flug- hernum með fimm F-16 orrustuþotur Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugtak F-15 orrustuþota tekst á loft á Keflavíkurflugvelli í fyrra. Hið íslenska reðasafn við Laugaveg í Reykjavík hefur falast eftir því að fá reður eða reði af grindhvalatörfum sem strönduðu á Löngufjörum á Snæfellsnesi á dögunum. „Við eigum tvo reði af grindhvölum en við erum safn og erum alltaf að safna. Við notum hvert tækifæri sem gefst til að nálgast nýja limi,“ sagði Hjörtur Gísli Sigurðsson safnstjóri. Þeir höfðu samband við Hafrann- sóknastofnun sem sendi fólk á Löngufjörur í gær og ætlaði það að hafa safnið í huga. Marsvínatyppin eru lítil miðað við stærsta grip safns- ins sem er limur af búrhval en sá er um 75 kg og 170 sentimetra langur. Hið íslenska reðasafn á nú um 300 safngripi af meira en 90 tegundum. „Við höfum bætt miklu við af er- lendum eintökum undanfarin ár. Við vorum komin með eiginlega allt af þessu íslenska og höfum bætt við fleiri eintökum. En það er alltaf að bætast við útlenskar tegundir. Við fengum til dæmis lim af gíraffa í fyrra og alls konar antílópum frá Ís- lendingi sem hefur veitt í Namibíu. Þetta er hirt í staðinn fyrir að henda því,“ sagði Hjörtur. Yfir 80.000 gestir komu á Reða- safnið í fyrra. Hjörtur segir að þau finni fyrir einhverjum samdrætti í komum erlendra ferðamanna sem hafa verið 99% gestanna. „En við er- um hæstánægð og þetta gengur bara vel,“ sagði Hjörtur. Konur hafa allt frá upphafi verið í miklum meirihluta gesta Reðasafns- ins eða um 2⁄3 þeirra. „Karlarnir virðast vera feimnari við þetta en konurnar og bíða jafnvel úti á meðan þær taka rúntinn,“ sagði Hjörtur. „Ég veit ekki hvað veldur, hvort það er minnimáttarkennd sem heldur körlunum frá þessu?“ gudni@mbl.is Vilja fá fleiri mar- svínalimi í safnið  Konur eru mikill meirihluti gesta Reðasafnsins Ljósmynd/Hið íslenska reðasafn Búrhvalstyppi Stærsti gripurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.