Morgunblaðið - 24.07.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.07.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ríkisstjórnin hyggst gera átak í frið- lýsingu svæða, eins og fram hefur komið í fréttum. Á Íslandi eru 115 friðlýst svæði og búið er að friðlýsa 21,6% af flatarmáli Íslands eða rúm- lega 22.000 ferkílómetra. En hver er munurinn á friðlýstu svæði og svæði sem ekki er friðlýst? Þeirri spurningu svarar Sigrún Ágústsdóttir, lögfræðingur og sviðs- stjóri hjá Umhverfisstofnun. „Friðlýst svæði nýtur sérstakrar verndar með lög- um meðan önnur svæði gera það ekki. Á frið- lýstum svæðum eru staðbundnir skilmálar um hvað megi og megi ekki gera. Mjög misjafnt er hversu ítarlegir og strangir skil- málarnir eru milli svæða. Það fer fyrst og fremst eftir því hvers er þörf til að tryggja verndargildi og sérstöðu svæðisins,“ segir Sigrún. Mikilvægur munur á friðlýstum og ófriðlýstum svæðum felst í um- sjón og stuðningi hins opinbera við friðlýst svæði, segir Sigrún. Ríki og stundum sveitarfélög leggja til fjármuni til verndar svæð- unum. Umhverfisstofnun er til dæmis með fastráðna starfsmenn á níu stöðum á landinu sem sinna frið- lýstum svæðum árið um kring. Þá eru einnig fjölmargir starfsmenn sem vinna við Þjóðgarðinn á Þing- völlum og í Vatnajökulsþjóðgarði. Fjöldi landvarða er einnig ráðinn tímabundið, aðallega á sumrin, til að veita fræðslu til ferðamanna sem og sinna öðrum verkefnum á svæð- unum. Með vaxandi fjölda ferða- manna hefur uppbygging innviða á friðlýstum svæðum aukist gífurlega á síðastliðnum árum. Á friðlýstum svæðum er einnig aukin fræðsla í formi skilta, fræðslugangna eða jafnvel sýninga. Þá er mikið efni um friðlýst svæði aðgengilegt á vefnum sem og í gegnum samfélagsmiðla. „Lykilatriðið er að tryggja að sú sérstaða vegna lífríkis, jarðfræði eða landslags spillist ekki en á sama tíma leyfa almenningi að njóta nátt- úrunnar eins og kostur er,“ segir Sigrún. Merkileg svæði hafa glatast Merkileg svæði á Íslandi hafi glat- ast eða látið verulega á sjá vegna ágangs mannsins. Ágætt dæmi eru Rauðhólarnir í nágrenni Reykjavík- ur þar sem um 80 gervigígar mynd- uðust fyrir um 5.200 árum en flestir þeirra eru nú horfnir vegna efnis- töku, aðallega á tímum seinni heims- styrjaldarinnar. Svæðið var friðlýst árið 1961 og er í dag vinsælt útivist- ar- og ferðamannasvæði. Dæmi eru um friðlýst svæði þar sem öll umferð er bönnuð sem og framkvæmdir og nýting nema í al- gjörum undantekningatilfellum s.s. Surtsey, Viðey í Þjórsá og tilteknir viðkvæmir hellar (sem eru jafnvel teknir af kortum). Á flestum svæðum eru skilmál- arnir hins vegar ekki eins strangir, heldur fela í sér takmörkun á til- teknum atriðum jafnvel á afmörk- uðum stöðum innan svæðanna. Til dæmis er jarðrask bannað í Reykja- nesfólkvangi en öllum er frjálst að ferðast um svæðið. Það er því alls ekki þannig að friðlýsing feli alltaf í sér takmarkanir á nýtingu til ferða- mennsku, útivistar eða auðlindanýt- ingar. Sigrún nefnir Gullfoss sem dæmi um friðlýst svæði sem mjög margir ferðamenn sækja heim árlega og veitt er þjónusta í næsta nágrenni við. „Oft felur friðlýsing í sér aukin tækifæri með því að draga athygli að sérstöðu svæðisins sem og með því að njóta stuðnings hins opinbera,“ segir Sigrún Ágústsdóttir. Friðlýst svæði njóta sérstakrar verndar  Umhverfisstofnun með fastráðna starfsmenn á 9 stöðum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gullfoss Friðlýstur árið 1979. Markmiðið var að friða fossinn og gljúfrið neðan hans og leyfa fólki að njóta náttúruundra á heimsmælikvarða. Sigrún Ágústsdóttir Grill hafa selst mun betur í sumar en í fyrrasumar að sögn nokkurra versl- unareigenda, þökk sé blíðviðrinu í sumar. Rekstrarstjóri BYKO, Íris Sig- tryggsdóttir, segir að grill og al- mennar sumarvörur seljist betur í ár en í fyrra. „Það selst bara allt betur í sumar en síðasta sumar. Allt sem tengist sumrinu í rauninni; garðhúsgögnin, grillin, blómin, ferðalagið. Það er bú- in að vera mikil og góð sala hjá okkur hérna á þessum árstíðatengdu vörum,“ sagði Íris. Spurð hvort sala hafi minnkað á „vetrarvörum“ að sumri til svaraði hún neitandi. „Þegar svona viðrar þá er bara góð sala í öllum deildum,“ sagði hún og bætti við að sölutölur hefðu sér- staklega hækkað í málningardeild frá því seinasta sumar. „Það eru allir að bera á pallana sína og mála húsin sín og allt sem því tengist,“ sagði hún. Gasgrill hafa selst betur en kola- grill undanfarin ár en kolagrillin hafa þó verið að sækja í sig veðrið. Íris segir að þar sé um ákveðna tískubylgju að ræða. Kristinn Einarsson, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs Húsa- smiðjunnar, sagði að grill hefðu þar selst mun betur í sumar en fyrra- sumar. „Það helgast áreiðanlega af því hve veðrið hefur verið frábært hérna á syðri hluta landsins,“ sagði hann. Hann segir að gasgrill séu jafnan vinsælust en kolagrillin seljist lítil- lega betur nú en áður. „Það eru ein- hverjir sem trúa því að kolagrillin gefi sterkara grillbragð,“ sagði hann. Grill seljast betur í sumar en í fyrra  Sumarvörur seljast vel í sumar  Kola- grill vaxa í vinsældum Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir Ljúfmeti Landinn er duglegri að grilla í sumar en í fyrra. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Sjósundskappinn Sigrún Þuríður Geirsdóttir varð í fyrrinótt fyrsta konan til að synda Eyjasundið svo- kallaða, milli Vestmannaeyja og Landeyjasands. Sigrún hafði ekki tilkynnt opinberlega að hún myndi reyna við sundið og segir í samtali við Morgunblaðið ástæðuna fyrir því meðal annars vera að hún sé nokkuð feimin að eðlisfari, svo og að aldrei sé hægt að vita „hvernig sundið end- ar“. Sigrún er enginn nýgræðingur þegar kemur að sjósundi en árið 2015 varð hún fyrsta íslenska konan til að synda Ermarsundið milli Eng- lands og Frakklands. Mun sjósunds- reynslan hafa nýst Sigrúnu vel á leiðinni milli Eyja og lands en á tímabili varð henni flökurt og þurfti að kasta upp í miðju sundi. Höfrungar fylgdu Sigrúnu „Mér líður bara vel. Svolítið þreytt,“ sagði Sigrún þegar blaða- maður sló á þráðinn til hennar laust eftir hádegi í gær, um tólf klukku- stundum eftir að hún lagði af stað frá Eyjum. „Það gekk allt bara mjög vel. Þetta voru alveg kjöraðstæður.“ sagði hún spurð um sundið. Naut hún liðsinnis dýra á svæðinu en auk sjófugla er fylgdust með henni fylgdu höfrungar henni eftir fyrstu tvo klukkutíma sundsins. Spurð hvort það sé einfaldlega hluti af sjó- sundi að kasta upp í miðju sundi sagði Sigrún: „Nei nei. Það er auð- vitað hundfúlt að kasta upp. Austur- fallið var svolítið að stríða mér. Sjór- inn var nokkuð mikið á iði og þá varð mér flökurt. Þá kastaði ég bara upp nokkrum sinnum. Auðvitað er það ömurlegt og tekur frá manni orku en eftir að maður kemur í land er það bara gleymt. Þá er bara gleði.“ Í september mun Sigrún þreyta sundið yfir Ermarsundið á ný, þó nú í boðsundi, með hópi kvenna sem kalla sig Marglytturnar. Hreystimennið Sigrún kát er hún kemur upp úr sjónum í dagrenningu í gær. Að baki eru kílómetrarnir ellefu frá Eyjum og að Landeyjasandi. Fyrsta konan til að synda Eyjasundið Afrek Sigrúnar » Sigrún synti rúma 11 kíló- metra leið milli Vestmannaeyja og Landeyjasands á 4 klukku- stundum og 31 mínútu. » Árið 2015 varð Sigrún fyrsta íslenska konan til að synda Ermarsundið milli Englands og Frakklands. Það gerði hún á 22 klukkustundum. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Útsalan heldur áfram 30 - 50% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.