Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 ✝ KristínTryggvadóttir fæddist í Reykjavík 11. júní 1943 og ólst upp í foreldra- húsum, fyrstu árin á Guðrúnargötu og síðan í Melgerði og Búðagerði í hinu nýja smáíbúða- hverfi. Hún and- aðist 9. júlí 2019. Foreldrar Krist- ínar voru Tryggvi Sigurðsson, f. 6. ágúst 1913, d. 27. apríl 1963, og Jósefína Kristjáns- dóttir, f. 10. ágúst 1917, d. 23. ágúst 2004. Bróðir Kristínar var Jóhannes Tryggvason, f. 5. des. 1945, d. 4. mars 2017, og uppeldisbróðir Jón Jónsson, f. 11. maí 1957. Hinn 11. nóvember 1962 gift- ist Kristín Þorsteini Víði Þórð- arsyni, f. 6. ágúst 1943. For- eldrar hans voru Þórður Ágúst Þórðarson, f. 7. ágúst 1907, d. 6. ágúst 1985, og Aðalheiður Þor- steinsdóttir, f. 2. nóv. 1917, d. 7. mars. 2008. Börn þeirra eru Tryggvi, f. 8. júlí 1962, og Aðal- heiður, f. 18. jan- úar 1964. Barna- börn eru fjögur og barnabarnabörn fjögur. Kristín stundaði nám í hár- greiðslu og lauk meistaraprófi í þeirri grein. Auk starfa við hárgreiðslu starfaði Kristín við sölumennsku og bankastörf hjá ýmsum bönkum. Hún fór í Toll- skólann og starfaði hjá Toll- stjóranum í Reykjavík, m.a. við móttöku tollskjala og síðar í lögfræðideild. Útför Kristínar fór fram í kyrrþey. Elsku Stína mín, þú hefur nú kvatt mig og ástvini okkar í hinsta sinn. Þú varst svo mikill hluti af lífi mínu, varst mér svo góður vinur og félagi að ég veit ekki hvernig ég á að takast við líf- ið án þín. Einmanaleikinn og við- brigðin að hafa þig ekki mér við hlið í hinu daglega amstri er hluti af staðreyndum lífsins, en ég á erfitt með að venjast því og sætta mig við það. Eftir að þú greindist fyrst með þennan skelfilega sjúkdóm sem krabbamein er, og greindist nokkrum sinnum eftir það, en hafðir sigur í þau skipti, vissi ég, án þess að þú talaðir nokkurn tíma um það, að það mátti alltaf eiga von á að þetta tæki sig upp eina ferðina enn. Í hvert sinn er einhver pest gekk sá ég á þér hvað hugurinn var bundinn við óvininn. Það skilur enginn, fyrr en á reynir, hvað þetta tekur á andlega hlið sjúklings. Við elskuðum hvort annað svo mikið. Þrátt fyrir löng og erfið veikindi hugsaðir þú alltaf fyrst um aðra. Þú varst ekki að bera þín veikindi á annarra borð. Við höfum átt yndislegt líf saman, baslað mikið, unnum tvö- falda og þrefalda vinnu til að komast í okkar fyrsta eigin hús- næði og komum undir okkur fót- unum af eigin rammleik. Við elsk- uðum landið okkar og ferðuðumst mikið um það með börnin, til að þau fengju að njóta þess með okk- ur. Fyrst í tjaldi, síðan í fellhýsi og loks kom húsbíllinn. En utan- landsferðirnar heilluðu líka, og var farið í fjölda slíkra nú síðustu ár. Við áttum samleið í frístund- um, stunduðum saman badmin- ton til fjölda ára, hestamennsku í tuttugu ár og nú síðast golfið sem átti hug þinn allan síðustu árin. Golfferðin okkar til Flórída í október var slegin af. En það sem ég ætla að muna eru gleðistundirnar með þér, og þær voru margar. Það er margt sem yljar manni er litið er til baka. Húmorinn í góðu lagi og stundum smá saklausir hrekkir, sem hlegið var að. Ferðalögin með börnum og vinum, hestaferð- ir um hálendið, golf hér heima og erlendis og það sem mér fannst best, nándin, bara vita af þér ná- lægt. Ég og okkar yndislegu börn og afkomendur þeirra eigum minn- inguna um bestu manneskju í heimi í hjörtum okkar. Þú munt aldrei hverfa úr huga okkar. Í erfiðleikum mínum varst þú mín sterkasta stoð, sem ég mun aldrei gleyma. Ég mun hugsa til þín, vitandi að þú munt vaka yfir okkur. Ég er svo innilega þakk- látur fyrir að hafa fengið að deila lífinu með þér og veit satt að segja ekkert hvað verður án þín. Kannski sagði ég aldrei allt sem átti ég að segja, kannski þagði ég stundum, þegar ekki mátti þegja. Hversdagsþys og heimsins glys hafa stundum villt mér sýn, en þú varst allaf elskan mín, þú varst alltaf elskan mín. (Jónas Friðrik) Takk fyrir allt, ástin mín – ég elska þig. Þinn elskandi Þorsteinn (Steini). Elsku mamma. Það er sárt að kveðja þig, en á slíkum stundum fer maður í minningabankann og hlýjar sér. Þú varst ákveðin kona en hugs- aðir fyrst og fremst um fjölskyld- una. Ég man að það voru alltaf ákveðnar grunnreglur á okkar heimili. Það var góð regla að allir borðuðu alltaf saman kvöldmat. Þitt markmið var að koma okkur krökkunum til manns. Ég fór ekki til rakara fyrr en eftir þrítugt í fyrsta sinn því þú klipptir mig alltaf. Stundum gerðum við smá tilraunir, t.d. vor- um við frumkvöðlar í strípum fyr- ir karlmenn, og krullur sem minntu á afró, fjólublátt skol o.fl. Það var mjög flott. Reyndar var ég einu sinni eins og mávur hefði dritað á hausinn á mér. Vinir mínir voru alltaf vel- komnir á heimilið og voru sem heimalningar. Stundum komu þeir í mat án þess að ég væri heima enda alltaf velkomnir. Þeg- ar þeir komu í heimsókn um helg- ar voru þeir oft meira hjá ykkur en niðri með okkur krökkunum. Við fjölskyldan fórum mjög gjarnan í útilegur á sumrin. Ég man eitt sinn er við fórum á Þing- velli. Mamma, pabbi, Nonni og við systkinin. Við vorum á Bjöll- unni og pabbi að keyra, rétt kom- in fram hjá Skálafellsafleggjar- anum. Mamma var að græja liðið og gefa okkur kók og prins. Það var þröngt í bílnum og mig minnir að hún hafi verið með kassa af lít- illi kók undir fótunum. Bíllinn troðfullur. Fyrst gaf hún pabba, síðan snéri hún sér aftur í og gaf okkur krökkunum líka. Þá fór bíl- stjórinn að umla og reyna að tjá sig með kók í hendi og fullan munn af prins. „Hvað er að?“ seg- ir mamma – og hann umlar áfram. Í ljós kom að þegar mamma snéri sér að okkur fór fóturinn á henni yfir á bensíngjöf- ina. Pabbi var á fullu að reyna að stjórna bílnum á fullri gjöf með fullan munn. Brú, beygja og brekka framundan. Allaf fjör hjá okkur. Eftir að ég stofnaði mína eigin fjölskyldu var alltaf gaman að elta ykkur í útilegur. Þá var ekkert kynslóðabil, við vorum góðir vinir. Mamma og pabbi hafa alltaf verið mjög samrýnd og gerðu allt saman. Mamma var góð íþróttakona, spilaði badminton þegar ég var að alast upp. Hún varð Íslandsmeistari í tvenndar- leik með pabba eitt árið. Geri aðrir betur. Við stunduðum líka saman hestamennsku í mörg ár, þar sem „Bliki minn“ var hennar uppáhald. Við spiluðum líka oft saman golf. Mamma og pabbi ferðuðust mikið og spiluðu golf bæði á Íslandi, í Ameríku og á Spáni. Það má með sanni segja að orðið kvenskörungur hafi alla tíð átt mjög vel við hana. Hún var þessi manneskja sem lét verkin tala. Eitt sinn langaði hana að fara í þessar innkaupferðir til út- landa sem voru svo vinsælar. Lengd ferðarinnar hentaði henni ekki því hún vildi fara út að morgni og koma heim um kvöld- ið. Það var ekki í boði – allar ferð- ir með næturgistingu. Þá skipu- lagði hún sjálf ferð með fulla tæplega 200 manna flugvél, að- stöðu á hóteli fyrir töskur og far- ið heim um kvöldið. Þvílíkur skörungur sem hún var. Elsku mamma mín, þú munt Kristín Tryggvadóttir ✝ Auður Skúla-dóttir fæddist í Reykjavík 28. jan- úar 1936. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Þuríður Auðunsdóttir, f. 6.6. 1900 á Eyvind- armúla í Fljóts- hlíð, d. 27.6. 1995, og Skúli Jón Magnússon, f. 21.1. 1904 frá Fossi í Seyð- isfirði, d. 13.9. 1963. Systkini Auðar eru Sigríður, f. 4.6. 1930, d. 21.7. 2016, Hallfríður Birna, f. 25.12. 1932, Hrafn- kell, f. 5.12. 1939, og Helga Dóra, f. 23.9. 1941, d. 26.11. 2011. Auður giftist eftirlifandi eiginmanni sínum Gunnari 1997, og Rebekka, f. 2003. Auður ólst upp og bjó í Reykjavík uns hún fluttist til Karlsruhe í Þýskalandi ásamt Gunnari eiginmanni sínum ár- ið 1964. Þuríður dóttir þeirra fæddist þar. Þau hjónin fluttu aftur til Íslands árið 1968 og bjuggu fyrstu árin í Reykjavík en fluttust í Hafnarfjörð árið 1972 og eiga þar enn heimili. Auður vann framan af ýmis skrifstofustörf, meðal annars hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, og í Þýskalandi starf- aði hún í banka. Hún lærði tækniteiknun í Iðnskóla Hafn- arfjarðar á árunum 1977-1979 og starfaði sem slík í nokkur ár hjá Skipasmíðastöðinni Stálvík. Eftir það vann hún sem læknaritari á Heilsu- gæslustöðinni í Fossvogi, síðar Efstaleiti, fram að starfs- lokum. Útför Auðar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 24. júlí 2019, kl. 13. Ámundasyni, f. 30.10. 1934, hinn 5.10. 1963. For- eldrar Gunnars voru Ámundi Eyj- ólfsson, f. 29.9. 1906, d. 2.9. 1994, og Helga Ingv- arsdóttir, f. 3.9. 1910, d. 21.4. 1986. Gunnar og Auð- ur eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Drengur, f. andvana 29.1. 1964. 2) Þuríður Edda, f. 11.2. 1968, maki Gunnar Beinteins- son, f. 1966. Börn þeirra eru Ásta Björk, f. 1994, sambýlis- maður hennar er Steinn Þor- kelsson, Auður Ýr, f. 1997, og Helga Sif, f. 2005. 3) Auður Erla, f. 1970, maki Jón Reykja- lín Björnsson, f. 1968. Börn þeirra eru Andrea Helga, f. Elsku besta tengdamamma, takk fyrir þann yndislega tíma sem við áttum saman. Það var renglulegur handboltastrákur sem gerði sig heimavanan hjá þér á Miðvangi 79 í byrjun árs 1990. Þú hafðir búið til einstak- lega fallegt heimili og matar- gerð þín var einstök. Það var eins og að koma inn á fyrsta flokks ítalskan veitingastað í hvert sinn sem við borðuðum saman. Þau ár sem þú og Gunnar áttuð saman í Þýskalandi höfðu mótað þig mikið og þau áhrif leyndu sér ekki í mat og drykk. Fyrir mig var það mikil upp- lifun að kynnast nýrri tegund matargerðar og því hvernig bjór og léttvín voru notuð á réttan hátt, jafnt virka daga sem um helgar. Mér er minnisstætt þegar við Þura bönkuðum upp á rétt fyrir ein jólin með óvænta jólagjöf. Þú opnaðir dyrnar með skúr- ingamoppuna á lofti, stórt bros því þú varst nýbúin með jóla- hreingerninguna. Við Þura horfðum hvort á annað og var- lega réttum við fram körfu með litlum hvolpi með rauðri jóla- slaufu. Það kom smá hik á þig en þú hélst kúlinu og brostir áfram. Frá fyrsta degi var Tinna litla velkomin inn á heim- ilið, það var bara skúrað aðeins oftar. Næstu þrjár stóru gjafirnar voru ömmustelpurnar þínar þrjár sem þér þótti svo undur vænt um. Þær sakna þín allar mikið. Síðustu ár hefur hluti af fjöl- skyldunni búið í Sviss, það var alltaf gaman að fá þig í heim- sókn og í eitt skiptið héldum við upp á 80 ára afmælið hans Gunnars í Zürich. Ég fann hvað þessar heimsóknir skiptu þig miklu máli, þær hjálpuðu þér að rifja upp góða Þýskalandstíma. Tæknin æðir áfram og þú til- einkaðir þér hana vel. Það var gaman að senda þér daglega snapchat-myndir, þú sást hvað við vorum að gera og svaraðir alltaf um hæl. Það er skrýtið að senda ekki fleir snöpp á „Auð- urSkúla“. Um kvöldið 11. júlí kom ég í heimsókn til þín á spítalann, þegar ég kyssti þig bless sagðir þú: „Voðalega er góð lykt af þér Gunnar minn.“ Ég knúsaði og kyssti þig aftur, þú dróst djúpt andann til að finna lyktina bet- ur. Lyktin heitir „Fucking Fabulous“. Það lýsir þér svo vel því þú varst „algjörlega frá- bær“. Takk fyrir allt elsku besta tengdamamma. Gunnar Ágúst Beinteinsson. Elsku yndislega amma Auð- ur. Nú er komið að kveðjustund sem er bæði sárt og erfitt. Okkur hlýnar þó í hjartanu þegar við hugsum um allar þær góðu og skemmtilegu stundir sem við áttum með þér og hvað það var ótrúlega dýrmætt að eiga ömmu eins og þig. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar við horfum til baka. Ein af okkar uppáhaldsminningum er frá 17. Auður Skúladóttir HINSTA KVEÐJA Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þínar dætur Auður og Þuríður. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín . Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Hafi æviá- grip þegar verið sent er ráð- legt að senda myndina á net- fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minning- argreina vita. Minningargreinar Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Ástkær eiginmaður minn og faðir, HELGI ÞÓR GUÐMUNDSSON rafeindavirki, Stakkhömrum 9, Reykjavík, lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 17. júlí. Salóme Guðný Guðmundsdóttir Auður Helgadóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKT HERMANNSSON húsgagnasmíðameistari, Vestursíðu 9, Akureyri, lést á heimili sínu, Dvalarheimilinu Lögmannshlíð, laugardaginn 20. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Lóa Sigurjónsdóttir Sævar Benediktsson Ólöf Kristín Ólafsdóttir Hermann Benediktsson Þórunn Ósk Kristjánsdóttir Rannveig Benediktsdóttir Ómar Garðarsson afabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁLFHEIÐUR UNNARSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ mánudaginn 22. júlí. Ingólfur Jóhannsson Unnur V. Ingólfsdóttir Guðjón Magnússon Jóhann Ingólfsson Jónína Daníelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR GEIRSSON, andaðist 6. júlí. Bálför fór fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki í þjónustuíbúðum við Dalbraut, hjúkrunardeild aldraðra á Akranesi og hjúkrunarheimilinu Seltjörn ágæta umönnun. Helga Björk Ólafsdóttir Styrmir Geir Ólafsson Anna Margrét Þorbjarnardóttir Geir Ólafsson Kristín Edda Óskarsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.