Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 22

Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 70 ára Elísabet er fædd á Stokkseyri og alin þar upp. Hún flutti á Selfoss árið 1969 og hefur búið þar síðan. Hún var ræstingastjóri á sjúkrahúsinu á Sel- fossi í 36 ár. Þar lét hún af störfum nú um áramótin. Eiginmaður: Elísabet giftist Sigurði Sig- urjónssyni árið 1970. Hann er bifreiðar- stjóri, f. 1943 í Gaulverjabæjarhreppi og er enn við störf. Börn: Gunnar sölumaður, f. 1970, Sólrún kennari, f. 1976, og Marta Rut, f. 1979, vinnur hjá Selfossveitum. Foreldrar: Hjónin Guðmundur Þórðar- son, f. 1918, d. 1995, verkamaður á Stokkseyri, og Marta Þórðarson, f. 1917, d. 1984. Marta er færeysk. Elísabet Guðmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Aðdráttarafl þitt er í hámarki og þú þarft að banda vonbiðlum frá þér. Einhver býður þér í bústað. 20. apríl - 20. maí  Naut Börn og leikir fylla daginn. Þér vefst tunga um tönn þegar þú ert beð- in/n um álit. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Dagurinn í dag er kjörinn til þess að gera við það sem er bilað á heimilinu. Hafðu vaðið fyrir neðan þig og leggðu til hliðar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Kannaðu fjárhaginn og sjáðu hvað þú getur gert. Kaflaskipti verða í ástamálunum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Daður við þann sem þú hefur ný- lega kynnst gæti þróast út í ástaræv- intýri. Hlustaðu án þess að dæma og segðu þínum innri gagnrýnanda að fara í frí. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver þér nákominn mun skýra frá leyndarmáli sem kemur þér verulega á óvart. Oft er flagð undir fögru skinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur lagt hart að þér og ert nú að undirbúa að kynna eigin hugmyndir um lausn mála. Ræddu málin því alltaf má eitthvað læra af öðrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Leggðu þig alla/n fram um að ná því marki sem þú hefur sett þér. Njóttu frístundanna með þínum nánustu. Ástarævintýri er í uppsiglingu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nákvæmni þín og þolinmæði er meiri nú en ella, vegna þess að þú hefur unnið heimavinnuna þína. Ekki gera veður út af einhverju sem engu skiptir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einvera í fallegu umhverfi mun koma friði á hugann. Þér verður stillt upp við vegg í einhverju máli en þú lætur ekki bjóða þér það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekki rétt að taka þýð- ingarmiklar ákvarðanir án þess að afla allra staðreynda og gera sér grein fyrir afleiðingunum. Metnaður þinn eykst. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki einhver smáatriði trufla einbeitingu þína. Hafðu vit fyrir unglingnum. Skemmtilegur tími er fram- undan. Norðurlandameistari yngri spilara í sveitakeppni 2001, Íslandsmeistari í sveitakeppni opnum flokki 2017 og bikarmeistari í opnum flokki 2014 og 2018. Hann varð Íslandsmeistari í allt í senn“, eins og hann segir. „Það er gott sport fyrir fólk á öllum aldri.“ Og hann hefur spilað það frá unga aldri sjálfur og situr nú í stjórn Bridgesambands Íslands. Hann var B irkir Jón Jónsson fædd- ist 24. júlí 1979 á Siglu- firði og ólst þar upp. Lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra á Sauðárkróki, var þar forseti nemendafélagsins 1998- 1999, stundaði svo nám í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands. Lauk MBA-prófi þaðan árið 2009. Á ung- lingsárunum starfaði Birkir m.a. á bensínstöð á Siglufirði og síðar starf- aði hann við Sparisjóð Siglufjarðar. Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna 1998-2000. Birkir var aðstoðarmaður Páls Péturssonar félagsmálaráðherra árin 2000-2003. Alþingismaður Norðaust- urkjördæmis 2003 og sat á þingi til 2013. Varaformaður Framsókn- arflokksins árin 2009-2013. Frá árinu 2014 hefur Birkir verið bæjarfulltrúi í Kópavogi fyrir Framsóknarflokk- inn og er þar formaður bæjarráðs. Þegar þingstörf spilltu afmælisveislunni Að snúa aftur inn á hið háa Alþingi Íslendinga er að sögn Birkis ekki ráðgert. „Það er ekki á stefnu- skránni,“ segir hann og hlær. Hann unir sér vel í Kópavoginum eins og er og lítur ánægður um öxl á fertugs- afmælinu. „Lífið leikur bara við mann, það er ekki hægt að segja ann- að.“ Birkir er staddur ásamt konu sinni og tveimur dætrum á Tenerife í af- mælisferð. „Þetta er fyrsta utan- landsferð stelpnanna og þær eru komnar á áttunda ár og þetta er því heilmikil upplifun!“ segir Birkir. Birkir afréð að fara þessa ferð nú, og sleppa stórhátíðarhöldum, því hann er brenndur eftir tilraun til slíks á þrítugsafmælinu 2009. „Þá ætlaði ég að halda upp á stórafmælið en þurfti að aflýsa því á seinustu stundu því þingið var enn að störfum. Ég tók því ekki sénsinn í þetta skiptið,“ segir hann. Bridge er gott sport Birkir er mikill bridgemaður, hel- tekinn af þeirri „geysilega skemmti- legu íþrótt, sem byggist á líkinda- reikningi, sálfræði og dálítilli heppni, tvímenningi 2016 og hefur keppt með íslenska landsliðinu í bridge á Ólympíu- og Evrópumótunum. Birkir er formaður stjórnar RA- RIK og stjórnar Sorpu. Hann var í stjórn Íbúðalánasjóðs 2003-2007. Hann sat í stjórn hússjóðs Öryrkja- bandalagsins 2000-2003 og var bæj- arfulltrúi í Fjallabyggð meðfram Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi alþingismaður – 40 ára Lundúnir Birkir ásamt konu sinni og dætrum á toppnum í London Eye í fyrstu utanlandsferð tvíburanna. Lífið leikur bara við mann Framsókn Birkir með flokkssystkinum sínum Helgu Hauksdóttur, sem skipaði 2. sæti í Kópavogi síðasta vor, og Willum Þór Þórssyni þingmanni. Bridge Birkir og Jón Baldursson félagi hans lentu í öðru sæti á bridgehátíð í Hörpu í febrúar. 40 ára Helga er fædd og uppalin í Reykjavík og á ættir að rekja á Barðaströnd. Hún er sjávarútvegsfræð- ingur frá HA 2004 og er með MA í alþjóða- viðskiptum frá Lond- on. Hún var aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar í embætti sjávar- útvegsráðherra og er nú viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði hjá Arion banka. Maki: Eiginmaður Helgu er Ævar Rafn Björnsson, f. 1976, lögmaður úr Reykja- vík. Börn: Embla María, f. 2008, og Katla Herborg, f. 2012. Foreldrar: Margrét Ásdís Bjarnadóttir, f. 1956 á Barðaströnd, ljósmóðir, Valgeir Bjarnason, f. 1957 í Reykjavík, skipstjóri. Helga Sigurrós Valgeirsdóttir Til hamingju með daginn Systurnar Jóhanna Laufey og Þórhild- ur Inga Hreiðarsdætur ásamt Láru Ingvarsdóttur stóðu fyrir tombólu á Vopnafirði nú á dögunum. Þær Jóhönnu Laufeyju og Láru langaði að halda tombólu en voru í vafa um hvaða málefni ætti að styrkja. Eftir að hafa fengið uppástungur þá ákváðu þær að styrkja Rauða kross Íslands. Leyfi fékkst fyrir tombólunni hjá for- eldrum með þeim tilmælum að eldri systirin, Þórhildur Inga, yrði með og gekk þetta vel hjá þeim stöllum. Þær söfnuðu rúmum 8.300 kr. og á meðfylgjandi mynd má sjá þær afhenda afraksturinn þeim Berglindi Sveins- dóttur, formanni Múlasýsludeildar Rauða krossins og Málfríði Björns- dóttur, gjaldkera deildarinnar. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.