Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019
HLÍÐARENDI/SMÁRINN/
EYJAR/ÁRBÆR/VÍKIN
Bjarni Helgason
Stefán Stefánsson
Arnar Gauti Grettisson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Björn Már Ólafsson
Valskonur unnu öruggan og þægi-
legan sigur gegn KR í 11. umferð
úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildarinnar, á Origo-
vellinum á Hlíðarenda í gær en
leiknum lauk með 3:0-sigri Vals.
Elín Metta Jensen kom Valslið-
inu yfir um miðjan fyrri hálfleikinn
eftir varnarmistök Vesturbæinga og
Hlín Eiríksdóttir bætti við öðru
marki liðsins sjö mínútum síðar.
Hlín var svo aftur á ferðinni á 79.
mínútu þegar hún skallaði boltann í
netið eftir fyrirgjöf Hallberu Guð-
nýjar.
Sigur Valsara var afar þægilegur
í gær. Maður fékk það á tilfinn-
inguna að liðið væri hálfparinn á
lullinu í þriðja gír allan tímann.
Valsliðið hélt boltanum vel innan
liðsins og þegar liðið fór inn á vall-
arhelming Vesturbæinga skapaðist
iðulega hætta. Margrét Lára Við-
arsdóttir stýrði sóknarleik Valsliðs-
ins af mikilli yfirvegun og Hallbera
Guðný átti góðan leik í vinstri bak-
verðinum og lagði upp tvö mörk
fyrir liðsfélaga sína.
Vesturbæingar gerðu vel í að
drepa niður hraðann í leiknum en
eftir að liðið lenti undir á 14. mínútu
var aldrei spurning hvorumegin sig-
urinn myndi lenda. Laufey Björns-
dóttir gerði sig seka um slæm mis-
tök í varnarlínu KR og Valsliðið
refsaði grimmilega. Það vantaði
ákveðið bit í sóknarleik liðsins og
færslurnar hjá liðinu voru of hægar.
Þar af leiðandi voru of fáir leik-
menn í svörtum og hvítum teyjum
mættir inn í teig þegar KR-ingar
sóttu.
Það er erfitt að sjá eitthvert lið
stoppa Valsliðið á þessari leiktíð.
Þær vinna alla leiki sína sannfær-
andi og frammistaða liðsins á tíma-
bilinu verðskuldar Íslandsmeist-
aratitil. KR hefur náð í góð úrslit í
undanförnum leikjum og það var
liðinu til happs að Bojana Besic er
ekki lengur við stjórnvölinn. Það er
loksins leikplan í gangi í Vest-
urbænum og ætti að duga liðinu til
að halda sér í deildinni.
bjarnih@mbl.is
Tæpur sigur Blikakvenna
Blikar nær og fjær geta fagnað
2:1 sigri sinna kvenna á Selfossi
þegar liðin mættust í Kópavogi í
gærkvöldi. Stigin skipta öllu máli
en það mátti ekki miklu muna þeg-
ar Selfoss, sem var á góðu skriði,
tók völdin og herjaði á Íslands- og
bikarmeistarana eftir hlé.
Blikakonur spiluðu vel um völl-
inn, héldu boltanum og reyndu að
finna glufur í vörn mótherja sinna
en það gekk ekki nógu vel, þær
fengu að vísu ágæt skot en tókst
sjaldan að spila sig í gegn. Gestirnir
frá Selfossi voru skynsamir, fóru
aftarlega í vörnina og reyndu svo að
spretta fram en það skilaði einu
sinni marki og nokkrum sinnum
ágætu færi. Eins og svo oft gerist,
alltof oft, fóru Blikakonur að færa
sig aftar til að halda fengnum hlut
en Blikakonur þvertóku fyrir það,
sögðust ekki eiga annarra kosta völ.
„Ég er ekki sátt við að leikurinn
skyldi fara 2:1 en samt sátt með
sigurinn,“ sagði Sonný Lára Þráins-
dóttir, fyrirliði og markvörður
Breiðabliks, eftir leikinn. „Við hefð-
um viljað halda hreinu en hleyptum
þessu upp í óþarfa spennu. Við gáf-
um eftir en málið er að Selfoss er
hörkulið, sem kom sterkt inn í
seinni hálfleik en við hefðum getað
gefið í líka. Þetta voru einfaldlega
tvö góð lið og við sigruðum í dag.
Við vitum að það er nóg eftir af
deildinni en tökum bara einn leik
fyrir í einu og sjáum hvernig þetta
endar.“
Þar sem eingöngu markamunur
skilur að Breiðablik og Val í efstu
sætunum, hlýtur að vera markmið
leynt og ljóst að skora sem mest af
mörkum en allir ættu að vita að það
getur komið í bakið á liði að sækja
of villt – alltaf möguleiki á að fá
mark í bakið. ste@mbl.is
Sú nýja skoraði strax
ÍBV vann sterkan 3:2 sigur á
Keflavík í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi.
Brenna Lovera, nýr framherji
Eyjakvenna, opnaði markareikning
sinn eftir aðeins 27 mínútur þegar
hún kom ÍBV yfir. Sophie Groff
jafnaði hinsvegar metin þvert gegn
gangi leiksins á 38. mínútu. Það
voru hinsvegar Sigríður Lára og
Cloé Lacasse sem skoruðu næstu
tvö mörk leiksins fyrir ÍBV áður en
Sophie Groff minnkaði muninn með
sínu öðru marki í leiknum.
Eyjakonur spiluðu hreint út sagt
frábæran fótbolta á löngum köflum
í fyrri hálfleik og er með hreinum
ólíkindum að liðið skoraði bara eitt
mark í hálfleiknum en undirritaður
hefur hreinlega ekki tölu á því
hversu oft leikmenn ÍBV klúðruðu
algjöru dauðafæri í hálfleiknum.
Það er hinsvegar ljóst að Brenna
Lovera er mikil styrking fyrir sókn-
arlínu ÍBV og sérstaklega í ljósi
þess að Cloé Lacasse er á förum frá
félaginu til Portúgals.
Sigur ÍBV var mjög mikilvægur í
ljósi þess að þær voru búnar að
tapa þremur leikjum í röð í deild-
inni og var sigurinn afar kærkom-
inn fyrir Jón Ólaf Daníelsson og
hans stelpur en með sigrinum lyfta
Eyjakonur sér í 6. sæti deildarinnar
og komast uppfyrir Keflavík sem er
í 7. sæti. arnargauti@gmail.com
Langþráður sigur Fylkis
Fylkir vann sinn fyrsta sigur í
deildinni síðan í þriðju umferð eða
síðan 13. maí. Fylkiskonur höfðu þá
betur gegn Þór/KA á heimavelli,
3:0. Sigurinn var eins sannfærandi
og lokatölurnar gefa til kynna.
Fylkiskonur voru mikið betri allan
leikinn og hefðu mörkin getað orðið
fleiri. Lið Þórs/KA var vægast sagt
vængbrotið í leiknum. Sex byrj-
unarliðsmenn voru ekki með vegna
landsliðsverkefna eða meiðsla og
það réðu gestirnir illa við. Miðju-
maðurinn Lára Kristín Pedersen
lék t.d. í miðverðinum og áttu Fylk-
iskonur ekki í erfiðleikum með að
spila sig í færi gegn óöruggum leik-
mönnum gestanna sem voru að
spila út úr stöðu.
Ída María og Thelma Lóa Her-
mannsdætur voru mjög sterkar
framarlega á vellinum og Hulda
Hrund Arnarsdóttir var spræk.
Berglind Rós Ágústsdóttir og Kyra
Taylor lokuðu vörninni og Cecilía
Rán Rúnarsdóttir var örugg í
markinu. Margir spiluðu vel hjá
Fylki og sigurinn var liðsheild-
arinnar. Fylkir er enn í fallsæti, en
útlitið er bjartara eftir einn sigur.
Þór/KA vinnur ekki marga leiki
eins og liðið var skipað í gær og
Hreyfing á
liðum í neðri
hlutanum
Fylkir, ÍBV og Stjarnan með dýr-
mæta sigra Toppliðin unnu sína leiki
Anton Sveinn McKee setti sitt þriðja
Íslandsmet á HM í sundi í 50 m laug í
Gwangju í Suður-Kóreu í gærmorg-
un þegar hann synti 50 m bringu-
sund á 27,46 sekúndum. Hann bætti
met sitt frá því á sunnudag um 20/
100 úr sekúndu. Hann endaði í 20.
sæti í greininni og var 13/100 úr
sekúndu frá því að komast áfram.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir
keppti í 200 metra skriðsundi og
tími hennar var 2:07,43 mínútur,
sem er nokkuð frá hennar besta. Ís-
landsmet hennar er 2:01,82 mínútur.
Hún hafnaði í 41. sæti.
Þriðja metið hjá
Antoni á HM
Ljósmynd/Simone Castrovillari
HM Anton Sveinn McKee á fullri
ferð í Gwangju í gærmorgun.
Knattspyrnumaðurinn Theódór Elm-
ar Bjarnason hefur flutt sig um set í
Tyrklandi en hann er genginn til liðs
við Akhisarspor eftir að hafa leikið
með Gazesehir á síðasta tímabili.
Elmar tók þátt í að koma Gazesehir
upp í úrvalsdeildina en sagði í viðtali
við mbl.is að vegna mikilla innkaupa
félagsins hefði verið ljóst að hann
fengi lítið að spila. Akhisarspor féll
úr úrvalsdeildinni í vor en Elmar
sagði liðið líklegt til að fara beint upp
aftur. Hann flytur þvert yfir landið,
frá Gazesehir við landamærin að Sýr-
landi yfir til Izmir á vesturströndinni.
Elmar flytur þvert
yfir Tyrkland
AFP
Tyrkland Theódór Elmar Bjarnason
er kominn til Akhisarspor.
1:0 Elín Metta Jensen 14.
2:0 Hlín Eiríksdóttir 21.
3:0 Hlín Eiríksdóttir 79.
I Rauð spjöldEngin
I Gul spjöldEngin
Dómari: Gunnar O. Hafliðason, 8.
Áhorfendur: 418.
VALUR – KR 3:0
MM
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Hlín Eiríkdóttir (Val)
M
Margrét Lára Viðarsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Ingunn Haraldsdóttir (KR)
Kristín Erla Johnson (KR)
Betsy Hassett (KR)
Gloria Douglas (KR)
Pepsi Max-deild kvenna
ÍBV – Keflavík .......................................... 3:2
Fylkir – Þór/KA........................................ 3:0
Valur – KR ................................................ 3:0
Breiðablik – Selfoss.................................. 2:1
HK/Víkingur – Stjarnan.......................... 2:5
Staðan:
Valur 11 10 1 0 39:7 31
Breiðablik 11 10 1 0 38:10 31
Þór/KA 11 5 2 4 19:19 17
Selfoss 11 5 1 5 13:15 16
Stjarnan 11 4 1 6 10:19 13
ÍBV 10 4 0 6 18:23 12
Keflavík 11 3 1 7 19:21 10
KR 11 3 1 7 12:23 10
Fylkir 10 3 1 6 10:23 10
HK/Víkingur 11 2 1 8 10:28 7
Meistaradeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
Viktoria Plzen – Olympiacos ................... 0:0
Saburtalo Tbilisi – Dinamo Zagreb ........ 0:2
PSV Eindhoven – Basel........................... 3:2
The New Saints – Köbenhavn................. 0:2
Sutjeska Niksic – APOEL Nikosia ........ 0:1
Evrópudeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
HB Þórshöfn – Linfield........................... 2:2
Brynjar Hlöðversson lék fyrstu 85 mín-
úturnar fyrir HB. Heimir Guðjónsson
þjálfar liðið.
Santa Coloma – Astana........................... 0:0
Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 64
mínúturnar með Astana.
Ararat Armenia – Lincoln Red Imps ..... 2:0
Shkëndija – Dudelange............................ 1:2
Tre Penne Galazzano – Suduva............... 0:5
KNATTSPYRNA
HANDBOLTI
Ólympíuhátíð æskunnar
U17 karla í Bakú:
Frakkland – Króatía ............................ 27:26
Slóvenía – Ísland .................................. 21:21
Kristófer Máni Jónasson skoraði 6 mörk,
Guðmundur Bragi Ástþórsson 3 og Arnór
Viðarsson 3. Brynjar Vignir Sigurjónsson
varði 8 skot, þar af tvö vítaköst.
Ísland 3 stig, Slóvenía 2, Frakkland 1 og
Króatía 1.
Ísland mætir Króatíu í síðasta leik riðla-
keppninnar í dag.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Extra-völlur: Fjölnir – Afturelding .... 19.15
Hertz-völlur: ÍR – Þróttur R............... 19.15
3. deild karla:
Framvöllur: Kórdrengir – Vængir J ....... 20
Í KVÖLD!
ÍBV tilkynnti í gærkvöld að samn-
ingur fyrirliðans Esterar Óskardóttur
við handknattleiksdeild félagsins hefði
verið framlengdur til tveggja ára. Est-
er er 31 árs og hefur leikið allan sinn
feril með ÍBV og verið fyrirliði liðsins
um árabil. Á síðasta tímabili var hún
næstmarkahæsti leikmaður liðsins í
úrvalsdeildinni með 112 mörk í 23
leikjum.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Jo-
elinton varð í gær dýrasti leikmað-
urinn í sögu enska félagsins New-
castle sem keypti hann af þýska
félaginu Hoffenheim fyrir 40 milljónir
punda. Joelinton er 22 ára framherji
og samdi til sex ára. Hann skoraði 7
mörk í 26 leikjum í efstu deild Þýska-
lands síðasta vetur.
Átta leikmenn úr úrvalsdeild karla
fengu í gær eins leiks bann vegna
gulra spjalda og verða ekki með í 14.
umferðinni um næstu helgi. Það eru
Cédric D’Ulivo og Pétur Viðarsson úr
FH, Hörður Ingi Gunnarsson og Mar-
cus Johansson úr ÍA, Elfar Árni Aðal-
steinsson og Ýmir Már Geirsson úr
KA, Marinó Axel Helgason úr Grinda-
vík og Lasse Petry úr Val.
Eitt
ogannað