Morgunblaðið - 24.07.2019, Page 25

Morgunblaðið - 24.07.2019, Page 25
tímabilið í heild er að breytast í mikil vonbrigði fyrir Akureyringa. johanningi@mbl.is Stíflan brast með leiftrandi hvelli Markaþurrð getur sest á sálina á jafnvel eitruðustu framherjum, án þess að ég þekki það af eigin raun. Sjálfur skoraði ég aldrei nógu mikið til að markalausu leikirnir mínir gætu talist markaþurrð. En Stjarn- an hafði fyrir leik gærkvöldsins við HK/Víking í Fossvogi ekki skorað í deildarkeppni frá því í lok maí og aðeins skorað 5 mörk í 10 deildar- leikjum. Það breyttist í gær því fremstu leikmenn liðsins skoruðu mörk og lögðu upp hver fyrir aðra eins og þær hefðu aldrei gert annað um ævina. Hildigunnur Ýr Bene- diktsdóttir skoraði þrennu og Jas- mín Erla Ingadóttir hin tvö mörkin og lokatölur urðu 5:2. Með sigrinum er fargi af Stjörnunni létt og liðið heldur áfram í miðjubaráttunni líkt og stefndi í fyrir mót. Andstæðingar þeirra í gær eru í verri málum. Með tapinu er HK/ Víkingur nú komið í neðsta sætið þar sem botnlið Fylkis tók sig til og burstaði Þór/KA. Liðið hefur verið í basli í sumar en þrátt fyrir breyt- ingar á liðinu og fína kafla inná milli í gær þá var frammistaðan í heild ekki nægilega góð. Slæmu kaflarnir voru einfaldlega of langir og þeim tókst ekki að nýta sér góðu kaflana betur. bjornmarolafs@gmail.com Morgunblaðið/Hari Hlíðarendi Betsy Hassett, nýsjálenska landsliðskonan í liði KR, og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir úr Val í baráttu á miðjunni. Morgunblaðið/Hari Árbær Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir úr Þór/ KA og Stefanía Ragn- arsdóttir úr Fylki í baráttu um boltann. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 Eitt sinn sat frændi minn í sóf- anum fyrir framan sjónvarpið ásamt foreldrum sínum og horfði á þegar kjöri íþrótta- manns ársins var lýst. Móðir Eiðs Smára Guðjohnsens fór á svið og tók við styttunni fyrir hönd Eiðs en eins og þekkt er hefur sam- koman þróast út í eins konar for- eldrasamkomu í seinni tíð. Frændi minn er ýmsum hæfi- leikum prýddur en þeir eru þó ekki á íþróttasviðinu. Hefur hann á veturna stundað innanhúss- knattspyrnu með vinum sínum sér til ánægju. Ef til vill gefur það einhverja vísbendingu um getu þeirra að þeir kalla félagsskap- inn: b-liðið. Faðir hans, og einnig frændi minn, er sjálfur þekktari fyrir margt annað en hæfileika á íþróttasviðinu. Þegar kemur að ensku knattspyrnunni slær hjarta hans með Colchester United. Kaldhæðni örlaganna hefur þó hagað því þannig að hann hefur ratað inn á frægar frétta- myndir þegar íþróttaviðburðir sem hreyfa við íslensku þjóðar- sálinni eru í gangi. Annars vegar voru það sjón- varpsmyndir af fólki sem fylgdist með undanúrslitaleik Íslands og Spánar á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 á sjónvarps- skjá og hins vegar ljósmynd af fólki sem horfði á leik Íslands og Argentínu á HM í Rússlandi 2018 á sjónvarpsskjá. Þegar fjölskyldan fylgdist með Ólöfu, móður Eiðs, handfjatla styttuna á sviðinu þá hallaði fað- irinn sér að syninum og spurði hann spurningar sem vitaskuld var mjög aðkallandi: „Ef þú yrðir kjörinn íþrótta- maður ársins, hvort myndir þú senda mig eða mömmu þína?“ BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is HB frá Þórshöfn, lið Heimis Guð- jónssonar og Brynjars Hlöðvers- sonar, á möguleika á að komast í 3. umferð Evrópudeildar UEFA. Liðið gerði í gær 2:2 jafntefli gegn Lin- field frá N-Írlandi í fyrri leik lið- anna í 2. umferðinni. Brynjar lék á miðjunni hjá HB fyrstu 85 mín- úturnar. Símun Samuelsen, fyrrv. leikmaður Keflavíkur, lagði upp jöfnunarmark HB á 89. mínútu. Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 64 mínúturnar með Astana frá Kasakstan sem gerði jafntefli 0:0 gegn Santa Coloma á útivelli. Jafntefli hjá HB í Evrópudeildinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjálfarinn Heimir Guðjónsson stendur í stórræðum. Leikmannahópur Bandaríkjanna fyrir heimsmeistaramót karla í körfuknattleik hefur veikst tölu- vert á undanförnum dögum. Í gær var greint frá því að Damian Lill- ard hefði dregið sig út úr hópnum og á mánudag varð ljóst að James Harden yrði ekki með. Lillard skor- aði 26 stig að meðaltali fyrir Port- land á síðasta tímabili og Harden 36 að metaltali fyrir Houston. Veikir þetta lið ríkjandi heimsmeistara umtalsvert og áður hafði Anthony Davis hætt við. HM hefst í Kína í lok ágúst. sport@mbl.is Forföll í liði meistaranna AFP Brosmildur Damian Lillard verður ekki með á HM í Kína. 0:1 Hildigunnur Ýr Benediktsd. 6. 1:1 Arna Eiríksdóttir 17. 1:2 Hildigunnur Ýr Benediktsd. 31. 1:3 Jasmín Erla Ingadóttir 37. 2:3 Brynhildur Vala Björnsd. 48. 2:4 Jasmín Erla Ingadóttir 61.(v) 2:5 Hildigunnur Ýr Benediktsd. 74. I Gul spjöldTinna Óðinsdóttir, Fatma Kara og Eva Rut Ásþórsdóttir (HK/ Víkingi) Dómari: Gunnar F. Róbertsson, 8. Áhorfendur: Um 150. HK/VÍKINGUR – STJARNAN 2:5 MM Hildigunnur Ýr Benediktsd. (Stj.) M Birna Jóhannsdóttir (Stjörnunni) Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörn.) Edda María Birgisdóttir (Stjörn.) Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörn.) Sigrún Ella Einarsdóttir (Stjörn.) Audrey Baldwin (HK/Víkingi) Eva Rut Ásþórsdóttir (HK/Víkingi) Simone Kolander (HK/Víkingi) 1:0 Ída Marín Hermannsdóttir 11. 2:0 Hulda Hrund Arnarsdóttir 44. 3:0 Margrét B. Ástvaldsdóttir 72. I Gul spjöldBerglind Rós Ágústsdóttir (Fylki), Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Þór/KA). Dómari: Sini Hakala, 7. Áhorfendur: 183. FYLKIR – ÞÓR/KA 3:0 M Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylki) Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki) Kyra Taylor (Fylki) Ída Marín Hermannsdóttir (Fylki) Thelma L. Hermannsdóttir (Fylki) Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylki) Sæunn Rós Ríkharðsdóttir (Fylki) María C. Ólafs. Gros (Þór/KA) Lára Einarsdóttir (Þór/KA) 1:0 Brenna Lovera 27. 1:1 Sophie Groff 38. 2:1 Sigríður Lára Garðarsdóttir 52. 3:1 Cloé Lacasse 79. 3:2 Sophie Groff 83. I Gul spjöldCaroline Van Slambrouck (ÍBV), Kristrún Ýr Holm og Íris Una Þórðardóttir (Keflavík) Dómari: Atli Haukur Arnarsson, 5. Áhorfendur: Um 120. ÍBV – KEFLAVÍK 3:2 M Caroline Van Slambrouck (ÍBV) Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV) Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV) Helena Jónsdóttir (ÍBV) Brenna Lovera (ÍBV) Emma Kelly (ÍBV) Cloé Lacasse (ÍBV) Natasha Anasi (Keflavík) Aytac Sharifova (Keflavík) Sveindís Jane Jónsdóttir (Kefl.) Sophie Groff (Keflavík) Fyrirliði ÍR, Sig- urkarl Róbert Jó- hannesson, ætlar að taka sér frí frá körfuknattleiks- iðkun og verður því væntanlega ekki með ÍR á næsta keppnis- tímabili. Karf- an.is greindi frá þessu í gær. Sigurkarl skoraði 5,6 stig og tók 2,6 fráköst að meðaltali fyrir ÍR. Sigurkarl lék vel í úrslitakeppninni. Skoraði til að mynda 15 stig í odda- leik Njarðvíkur og ÍR í Njarðvík í 8- liða úrslitunum. Auk þess skoraði hann fræga sigurkörfu gegn KR í þriðja leiknum í úrslitarimmunni. Hann er aðeins 21 árs og hefði vænt- anlega fengið enn stærra hlutverk hjá ÍR næsta vetur en liðið hefur þurft að sjá á eftir lykilmönnum í sumar: Mattíasi Orra Sigurðarsyni, Sigurði Þorsteinssyni og Hákoni Erni Hjálmarssyni. Davíð Páll Hermannsson er aftur kominn til Grindavíkur frá Keflavík. Davíð gerði tveggja ára samning við Grindavík sem fyrr í sumar tryggði sér krafta Björgvins Hafþórs Rík- harðssonar. Davíð hefur einnig leik- ið með Haukum en er uppalinn í Grindavík. Lið Grindavíkur féll úr keppni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts- ins síðasta vetur. Fyrirliði ÍR tekur sér frí frá körfunni Sigurkarl Róbert Jóhannesson 1:0 Berglind Baldursdóttir 21. 2:0 Alexandra Jóhannsdóttir 43. 2:1 Magdalena A. Reimus 69. I Gul spjöldHeiðdís Lillýjardóttir og Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki), Hólmfríður Magnúsdóttir og Karítas Tómasdóttir (Selfossi) Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson, 8. Áhorfendur: 317. BREIÐABLIK – SELFOSS 2:1 M Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðab.) Agla María Albertsdóttir (Brei.) Berglind B. Þorvaldsdóttir (Breið.) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Hildur Þóra Hákonardóttir (Breið.) Kelsey Wys (Selfossi) Cassie Lee Boren (Selfossi) Brynja Valgeirsdóttir (Selfossi)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.