Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Erum á
facebook
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Veðurhorfur næstu daga og um
verslunarmannahelgina eru góðar
samkvæmt nýjustu spám. Útlit er
fyrir áframhaldandi hlýtt veður á
landinu frá fimmtudegi til laug-
ardags. Þá verður austlæg eða
breytileg átt, skýjað með köflum
eða bjartviðri og yfirleitt þurrt á
landinu öllu.
Hitamet féll í Ásbyrgi í gær en
þar fór hitinn upp í 25,9 gráður.
Hitabylgja sem geisar í Evrópu um
þessar mundir hefur þegar gert
vart við sig á Íslandi og eru líkur á
að hún muni ná yfir landið á næstu
dögum.
Óli Þór Árnason veðurfræðingur
segir að miðað við hve ört spáin
hafi breyst á undanförnum dögum
sé erfitt að fullyrða um veð-
urhorfur yfir verslunarmannahelg-
ina. Fyrir stuttu var spáð rigningu í
Vestmannaeyjum um þjóðhátíð-
arhelgina en nú er útlit fyrir þurr-
ara veður.
„En þetta lítur að mörgu leyti
ágætlega út. Það er engin stórviðri
að sjá og enga úrkomu og það er
ekki mjög kalt eða neitt svoleiðis,
þannig að þetta lítur allt saman
þokkalega út,“ segir Óli.
Hann segir að eftir fimmtudag sé
útlit fyrir að mestu hlýindin verði
gengin yfir en þó verði ágætlega
milt loft yfir landinu. Gæti hitinn
einhvers staðar náð 20 stigum.
„Það er ekki alveg víst að það
verði þurrt um landið, með suður-
ströndinni,“ segir Óli en tekur fram
að veðurhorfur séu almennt góðar
um verslunarmannahelgina.
Spáin um verslunar-
mannahelgi lítur vel út
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ásbyrgi Þar mældist mestur hiti
sumarsins í gær, eða 25,9 stig.
Hitamet sum-
arsins féll í gær
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Frá því Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri setti sérstakar reglur
sem bönnuðu tilteknum starfsmönn-
um bankans að taka þátt í gjaldeyr-
isútboðum bankans, vegna hinnar
svokölluðu fjárfestingarleiðar, veitti
bankinn engum starfsmönnum sem
undir reglurnar féllu heimild til þátt-
töku í leiðinni. Þetta kemur fram í
svari Seðlabankans við fyrirspurn
Morgunblaðsins þar um.
Þann 7. febrúar 2012 undirritaði
Már sérákvæði við reglur Seðla-
bankans um meðferð trúnaðarupp-
lýsinga og verðbréfa- og gjaldeyris-
viðskipti starfsmanna nr. 831/2002.
Það gerði hann rúmu hálfu ári eftir
að bankinn hélt fyrsta útboð sitt á
gjaldeyri á grundvelli fjárfestingar-
leiðarinnar. Með henni gafst lang-
tímafjárfestum tækifæri til þess að
kaupa krónur fyrir erlendan gjald-
eyri að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum. Þannig tókst Seðlabankan-
um að leiða saman aðila sem tilbúnir
voru að skipta gjaldeyri í krónur og
hleypa eigendum svokallaðra
aflandskróna út úr hagkerfinu án
þess að það ylli miklum óstöðugleika
í íslensku hagkerfi sem á þessum
tíma barðist við eftirhreytur banka-
hrunsins. Þeir sem þátt tóku fengu
því að kaupa íslenskar krónur á
verulegum afslætti m.v. skráð gengi
gjaldmiðilsins á þeim tíma.
Áttu að girða fyrir misnotkun
Fyrrnefndar reglur setti seðla-
bankastjóri í því skyni að koma í veg
fyrir að starfsmenn bankans sem
„höfðu eða gátu haft upplýsingar um
áætlun um losun fjármagnshafta eða
upplýsingar um útfærslu og fram-
kvæmd gjaldeyrisútboða og fjárfest-
ingarleiðar bankans,“ eins og það er
orðað í svari bankans við fyrirspurn
Morgunblaðsins. Í svarinu segir enn
fremur: „Þeir starfsmenn sem
nefndir voru í breytingareglunum
voru þeir sem vegna stöðu sinnar
gátu haft upplýsingar um eða gátu
hafa tekið þátt í mótun áætlunar um
losun fjármagnshafta eða regluverks
fjárfestingarleiðar Seðlabankans.“
Gögn sem Morgunblaðið hefur
undir höndum sýna hins vegar að
hópurinn sem undir reglurnar féll
var ítarlegri en gefið er til kynna í
svari bankans.
Þeir sem undir þær féllu voru auk
seðlabankstjóra og aðstoðarseðla-
bankastjóra, aðalhagfræðingur og
aðallögfræðingur, framkvæmda-
stjórar á vettvangi bankans, nefnd-
armenn peningastefnunefndar,
starfsmenn sem sátu í framkvæmda-
nefnd um fjárfestingarleið, starfs-
menn lánamála ríkissjóðs, starfs-
menn gjaldeyrieftirlitsins og aðrir
starfsmenn sem tóku þátt í að móta
sérgreindar reglur og skilmála í
tengslum við áætlun um afnám haft-
anna, meta áhrif áætlunarinnar á
stöðugleika í peninga- og gengismál-
um og sá að öðru leyti um fram-
kvæmd á gjaldeyrisútboðum og fjár-
festingarleið.
Átti ekki aðeins við um sjálfa
starfsmenn Seðlabankans
Auk þessara starfsmanna bank-
ans féllu einnig undir reglurnar
makar, makar í staðfestri samvist og
sambúðarmakar, ófjárráða börn,
kjörbörn og stjúpbörn á heimili við-
komandi starfsmanna, önnur skyld-
menni sem bjuggu á heimili með
starfsmönnum og höfðu búið á heim-
ili viðkomandi starfsmanna í a.m.k.
eitt ár. Þá var lögaðilum sem tengd-
ust þeim starfsmönnum bankans
sem féllu undir reglurnar einnig
óheimil þátttaka.
Settu reglur
um þátttöku í
fjárfestingarleið
Seðlabankinn veitti engum sem undir
reglurnar heyrði heimild til þátttöku
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Annaðist framkvæmd
fjárfestingarleiðarinnar 2011-2015.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Flugmaður flugvélar sem hlekktist á
við flugtak á Haukadalsflugvelli á
Rangárvöllum síðdegis á laugardag
var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Flugslysið á laugardaginn er ann-
að slysið sem verður á þessum flug-
velli á skömmum tíma. Síðastliðinn
fimmtudag hlekktist annarri flugvél
þar á í lendingu.
Í samtali við mbl.is um helgina
sagði Ragnar Guðmundsson, rann-
sakandi hjá flugsviði rannsóknar-
nefndar samgönguslysa, ekki vera til
athugunar hvort flugvöllurinn hefði
eitthvað með slysin að gera á þessu
stigi málsins.
33 mál til rannsóknar
Þyrla var send af stað vegna slyss-
ins en var síðan snúið við. Björgun-
arsveitir voru einnig kallaðar á vett-
vang að sögn Davíðs Más
Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa
Landsbjargar.
„Það hafa orðið óvenjumörg flug-
slys á skömmum tíma,“ segir Ragnar
í samtali við Morgunblaðið.
Nú hafa fleiri týnt lífum í flugslys-
um hérlendis á árinu en bílslysum.
Þrír létust í flugslysi fyrr í sumar en
það var fyrsta banaslysið í flugi frá
árinu 2015. Tala látinna er því komin
upp í fjóra. Þrír hafa látið lífið í bíl-
slysum á þessu ári.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
er með 33 mál á flugsviði opin, 31 mál
hafa komið inn á borð sviðsins þetta
árið og eru 13 þeirra enn opin.
„Það er búið að vera mun meira að
gera undanfarið í slysa- og atvika-
rannsóknum en vant er,“ segir
Ragnar.
Hann segir ótímabært að fullyrða
um ástæður þess að meira sé um
flugslys nú en vant er.
„Þar sem þessar rannsóknir eru
ekki komnar á það stig að hægt sé að
segja eitthvað.“
Sömuleiðis kýs Ragnar að tjá sig
ekki um það hvort rannsóknarnefnd
samgönguslysa þurfi á auknum
mannafla að halda til þess að bregð-
ast við þessu aukna álagi.
Ekki hafa fleiri látist í flugslysum
hérlendis síðan árið 2000 þegar sex
manns létust í einu banaslysi. Þá
hrapaði flugvél á vegum Leiguflugs
Ísleifs Ottensen í sjóinn í Skerjafirði.
Í fyrra var ekkert mál skráð sem
flugslys.
Rannsókn á flakinu bíður
Spurður um stöðuna á rannsókn
banaslyssins á Haukadalsflugvelli
segir Ragnar:
„Ég lauk vettvangsrannsókn eld-
snemma á sunnudagsmorgun. Flak-
ið er komið í geymslu sem rannsókn-
arnefndin er með til umráða. Vinna
við að rannsaka flakið frekar er ekki
hafin.“
Morgunblaðið/Hari
Rannsókn Vettvangsrannsókn á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum vegna slyssins lauk snemma í gærmorgun.
Óvenjumörg flugslys
á skömmum tíma
Einn lést í flugslysi á laugardag Ekki fleiri látist í 19 ár
Flugmaðurinn
sem lést í slys-
inu hét Sigur-
vin Bjarnason.
Hann var 64
ára gamall.
Sigurvin lætur
eftir sig eig-
inkonu, þrjú uppkomin börn
og fimm barnabörn. Sigurvin
var þjálfunarflugstjóri hjá
Icelandair og hafði yfir 40 ára
reynslu sem flugmaður og
flugstjóri.
Nafn flug-
mannsins