Morgunblaðið - 29.07.2019, Side 10

Morgunblaðið - 29.07.2019, Side 10
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Flak þýska „gullskipsins“ SS Minden, sæfjöll og eldstöðvar voru á meðal þess sem sást þegar leiðangursmenn á hafrannsóknaskipinu Árna Frið- rikssyni kortlögðu alls um 47 þúsund ferkílómetra hafsbotnsins suður af landinu í júní sl. Dýptarbilið sem mælt var á var frá 1.700 til 2.600 metrar. Svæðið sem nú var mælt var það stærsta sem nokkru sinni hefur verið kortlagt með fjölgeislamælingum í einum leiðangri í íslenskri efnahags- lögsögu, samkvæmt frétt Hafrann- sóknastofnunar. Þar með er búið að kortleggja nærri þriðjung hafsbotns- ins innan efnahagslögsögunnar. Leið- angurinn stóð frá 4. til 28. júní og var hann hluti af átaksverkefni Hafrann- sóknastofnunar um kortlagningu hafsbotnsins í efnahagslögsögu Ís- lands. Það er m.a. forsenda frekari vísindarannsókna. Stærsti hluti rannsóknarsvæðisins er þakinn seti sem hefur safnast fyrir með ýmsu móti í tímans rás. Í mæl- ingunum nú og mælingum í fyrra- sumar fékkst samfelld mynd af tveim- ur aðalfarvegum frá landgrunnsbrún og að lögsögumörgum í suðri. Þeir eru kenndir við Reynisdjúp og Mýr- dalsjökul. „Leiðir þeirra og fleiri far- vega sameinast í meginfarvegi Norð- ur-Atlantshafsins, Maury-farveginum, syðst á mælinga- svæðinu. Víða sjást merki um neðan- sjávarskriður,“ segir í fréttinni. „Í rótum Íslands-Færeyjahryggs- ins komu í ljós misgengissprungur, sæfjöll eða eldstöðvar sem í sumum tilvikum var ekki vitað um áður. Þar koma fram ýmis setform, svo sem set- öldur, hryggir og stallar.“ Samhliða fjölgeislamælingunum voru gerðar jarðlagamælingar (set- 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga www.alno.is Snorri Másson snorrim@mbl.is Finnur Arnar Arnarson myndlist- armaður varð ásamt fleirum vitni að heldur ófallegri atburðarás þegar hann var á veiðum í síðustu viku í Húseyjarkvísl í Skagafirði. Fyrst sá hann álftahjón og hálfstálpaðan unga þeirra, þó ófleygan, fljóta í rólegheit- um í ánni. Klukkan var að ganga tólf á hádegi mánudags. Tveir svartir hundar nálgast eftir árbakkanum og annar þeirra fer að gelta þegar hann sér álftirnar. Hann greikkar sporið þar til hann tekur beinlínis á rás á undan félaga sín- um. Hann þýtur í áttina að fugl- unum og endar á að stökkva út í ána. Hann syndir eins og óður hundur í áttina að þeim, foreldr- unum tekst með naumindum að tak- ast á loft og færa sig frá en eftir situr unginn sem virðist rétt eiga eftir að ná tökum á fluginu. Honum eru því allar bjargir bannaðar, lýsir Finnur. Hundurinn króar ungann svo af í átt að bakkanum þar sem hinn hund- urinn bíður. Unginn er kominn á land, hundarnir tryllast og tæta hann í sig. Hann liggur svo í valnum, blóð- ugt fiður á víð og dreif um bakkann. Hundarnir skilja hræið eftir og skokka á brott. Skipulögð aftaka „Þá voru þeir ekki ósvipaðir sléttu- úlfum, það var svo skrítin ró yfir þeim,“ segir Finnur en lýsingarnar að ofan eru allar hans. Hann var við veiðar ásamt þremur félögum sínum á silungasvæðinu neðarlega í Húseyjarkvísl þegar þeir urðu varir við þessar aðfarir hundanna. „Þetta var bara skipulögð aftaka. Þeir voru ekki að éta neitt, heldur bara drepa. Aðeins fiðrið lá eftir,“ segir Finnur. Hann hefur sjaldan ef nokkurn tím- ann séð annað eins. „Svo vorum við þarna rétt hjá áfram að veiða og foreldrarnir urðu eftir grenjandi og kvakandi tímum saman, unginn þeirra dauður, einka- sonurinn,“ segir hann. Finnur segir að það sem hann hafi orðið vitni að hafi honum ekki þótt eðlileg hegðun, svona grimmd sé hann ekki vanur að sjá í hundum. „Maður veit samt að hundar eiga þetta til, að þeir geta orð- ið trylltir. Manni leið eins og þessir tveir hafi alveg gert þetta áður og væru líklegir til að drepa eitthvað stærra, jafnvel lömb,“ segir hann. „Þeir virtust helst vera úlfar.“ Finnur var hálfpartinn eftir sig eft- ir að hafa fylgst með aðförunum og hringdi í lögregluna á Sauðárkróki og benti henni á málið. Ekki lá fyrir hver var eigandi hundanna eða hverrar tegundar þeir væru, þótt þeir virtust vera fjárhundar einhvers konar. Finnur og félagar skimuðu eftir hundunum aftur á ferðum sínum um svæðið en fundu þá ekki aftur. Þeir höfðu farið annað, hugsanlega á frek- ari veiðar. Hundar rifu í sig ófleygan álftarunga  Króuðu lítinn unga af og tættu í sig  Eftir lá fiður við árbakkann  „Eins og sléttuúlfar,“ segir veiðimaður „Þetta er þekkt dæmi. Þegar hundar fá að koma saman tveir til þrír og leika lausum hala. Þá kemur upp eitt- hvert hjarðeðli í þeim,“ segir Guðbjörg Þorvarðardóttir dýralæknir. Hún segir að rólegustu hundar geti umturn- ast, þegar þeir fara af stað í svona leiðangra með öðr- um hundum. Því sé varhugavert að leyfa þeim að leika lausum hala saman og fara á flakk, því sömu hundar leika ekki sama leik þegar þeir eru í fylgd fólks og held- ur ekki einsamlir. „Þeir eru bara að drepa. Þeir eru svona eiginlega að taka bráðina en eru síðan ekkert svangir, bíta hana bara og skilja hana eftir. Þegar þeir drepa fé fara þeir stundum með það í ár og drekkja því eftir að hafa bitið það,“ segir hún. Hún segir þá hegðun þekkta en að venjulega sé hundum lógað sem hafa gerst uppvísir að því að taka þátt í slíku drápi. „Þá er þeim bara ekki treystandi í kringum fé,“ segir Guðbjörg, sem þekkir fleiri dæmi um að hundar fari í fé en að þeir fari í fugla, þótt það þekkist líka. Eðlilega er bændum ekki vel við það að hundar þeirra fari á flakk og allra síst í félagsskap annarra hunda. Guðbjörg segir að þessi úlfslega hegðun þekkist meðal ýmissa teg- unda. Hún þekki mál af hundum af tegundinni border collie, íslenskum fjárhundum, husky-hundum og blendingum sem hafa gerst sekir um svona hegðun. Svona er ekki líklegt að komi upp hjá minni tegundum. DÝRALÆKNIR KANNAST VIÐ SVIPUÐ ATVIK Guðbjörg Þorvarðardóttir Varhugavert ef hundar leika lausum hala Ljósmynd/Colourbox Hundur Talið er að hundarnir hafi verið af tegundinni border collie. Morgunblaðið/Ómar Álftir Álft með ungum sínum, mynd- in er tekin úr myndasafni blaðsins. Finnur Arnar Arnarson þykktarmælingar) sem sýna afstöðu setlaga nokkra tugi metra niður fyrir hafsbotninn. Á heimleiðinni var einnig farið yfir tvo þekkta jarðhitastaði við Eldey á Reykjaneshrygg og staðfest að þar er virkt uppstreymi. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Rannsóknir Árni Friðriksson mældi stórt svæði á hafsbotni lögsögunnar. Stór kortlagning á hafsbotninum  Árni Friðriksson kortlagði 47.000 km2 SS Minden sökk í september 1939 djúpt suðaustur af Íslandi. Flak skipsins birtist í fjölgeisla- mælingum Árna Friðrikssonar sem boglaga þústir á 120 metra löngum kafla á 2.275 metra dýpi. Sem kunnugt er leyfðu ís- lensk stjórnvöld fyrirtæki í Eng- landi, Advanced Marine Servi- ces, að leita að verðmætum í skipsflakinu í fyrrasumar. Talið var að þar leyndust allt að fjög- ur tonn af gulli og var fyrirtækið á höttunum eftir gulli eða silfri. Leitin bar ekki árangur að því er fréttir hermdu. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun í gær hefur ekki borist umsókn um leyfi til frekari leitar að verðmætum í flaki SS Minden. Ekki sótt um frekari leit „GULLSKIPIГ SS MINDEN Skip Porta, systurskip SS Minden. Einar Bárðarson hefur verið ráð- inn fram- kvæmdastjóri Votlendissjóðs- ins. Markmið sjóðsins er að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda úr náttúru Íslands með endurheimt votlendis í samstarfi landeigenda, ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja, fé- lagasamtaka og einstaklinga. Einar hefur á síðustu árum starf- að sem stjórnandi í ferðaþjónustu og almannatengslum. Á árunum 2012 til 2015 gegndi hann starfi forstöðumanns Höfuðborgarstofu. Í framhaldi af því var hann rekstr- arstjóri hjá Reykjavík Excursions og svo síðast í tímabundinni ráðn- ingu sem samskiptastjóri Hafn- arfjarðarbæjar. Einar er með meistaragráðu í viðskiptum og stjórnun frá Háskólanum í Reykja- vík frá árinu 2012. Einar Bárðar til Votlendissjóðsins Einar Bárðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.