Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— Dásamlegur þvottur - einfalt, íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar fylgja. Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þvottavél 134.990 kr. Þurrkari 164.990 kr. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Lögregluyfirvöld lyfjamála í Banda- ríkjunum (e. Drug Enforcement Ad- ministration, DEA) báðu Actavis um að draga úr framleiðslu ópíóíðalyfja sem fyrirtækið seldi í Bandaríkjunum um 30 til 40 prósent árið 2012, þegar ópíóíðafaraldur geisaði í landinu, að því er fram kemur í umfjöllun Wash- ington Post. Actavis er sagt eitt þriggja fyrir- tækja sem seldu hvað mest af slíkum lyfjum í Bandaríkjunum árin 2006 til 2012. Lyfin voru markaðssett sem óávanabindandi verkjalyf, en reynsl- an hefur sýnt annað. Washington Post vísar til dóms- skjala úr málum sem voru höfðuð til þess að draga lyfjafyrirtæki til ábyrgðar vegna ópíóíðafaraldursins. Snýr málið sérstaklega að lyfinu Ox- ycodone sem sem Purdue þróaði, en fram kemur að samheitalyfjafyrir- tæki voru stærstu framleiðendur og söluaðilar lyfjanna. Mallinckrodt Pharmaceuticals var stærsti framleið- andinn, en Actavis og Par Pharma- ceutical eru einnig nefnd. Róbert Wessman var forstjóri Act- avis þegar útrás þess hófst og eign- aðist Björgólfur Thor Björgólfsson fyrirtækið árið 2007, en það fór í hend- ur Deutsche Bank í efnahagshruninu. Actavis var selt árið 2012 og hefur eignarhald breyst margsinnis frá þeim tíma. Einnig hafa eignir Actavis skipt um eigendur, en Coripharma keypti verksmiðju fyrirtækisins í Hafnarfirði af ísraelska fyrirtækinu Teva. Ópíóðafaraldurinn og Actavis  Nefnt í umfjöllum um dómsmál gegn lyfjafyrirtækjum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Formaður Félags atvinnurekenda (FA) kveðst ekki átta sig á auknu framboði á lambahryggjum sem virð- ist hafa orðið til frá því fyrr í sumar. Talsmenn stórra afurðastöðva segja enga þörf á að flytja inn lamba- hryggi. Heimild til innflutnings á lambahryggjum hefur ekki verið gef- in. „Það komu ábendingar fyrir nokkru um að það yrði viðvarandi skortur á lambahryggjum alveg fram að sláturtíð,“ sagði Magnús Óli Ólafs- son, stjórnarformaður FA. „Ég átta mig ekki á því hvaða breytingar urðu og hvernig það kom til að þegar hálf- ur til einn mánuður er í sláturtíð er ekki lengur þörf á innflutningi. Ég kann ekki heldur að útskýra hvaðan þessar birgðir af hryggjum komu sem menn töldu sig ekki geta gengið í á sínum tíma.“ FA hefur óskað eftir því að Sam- keppniseftirlitið skoði háttsemi af- urðastöðva, sem leitt hafi til fyrir- sjáanlegs skorts á lambahryggjum í verslunum, og viðbrögð stjórnvalda við fyrirsjáanlegum skorti. Magnús kvaðst ekki muna til þess áður að talað hafi verið um yfirvof- andi skort á vöru og það síðan dregið til baka. Þau hjá FA ætla að hittast í vikunni og fara yfir málið. Afgreiða hryggi alla daga „SS á nóg af hryggjum fram til sláturtíðar fyrir allar SS-vörur og þá viðskiptavini sem hafa keypt hryggjavörur af okkur,“ sagði Stein- þór Skúlason, forstjóri SS. „Við erum að afgreiða hryggi alla daga. Þú munt sjá þær vörur sem við erum með á markaði fram að sláturtíð, frosnar og ferskar kótilettur, marineraðar og annað slíkt.“ Hann sagði að SS ætti ekki umframbirgðir ef aðra en fasta viðskiptavini vanti hryggi. Slíkar fyr- irspurnir hafi þó borist. Fyrirtækið gæti þess að eiga hæfi- legt magn af hverjum hluta skrokks- ins. Enginn liggi með umframbirgðir af tilteknum parti í von um að ein- hver kynni vilja kaupa það. Steinþór kvaðst hafa heyrt að fleiri af- urðastöðvar en SS séu að afgreiða lambahryggi. Þrýstingur frá innflytjendum „Við erum að afgreiða lamba- hryggi,“ sagði Ágúst Andrésson, for- stöðumaður Kjötafurðastöðvar KS. Hann sagði dæmi um það upp á síð- kastið að stórir viðskiptavinir hefðu afþakkað að kaupa heila lamba- hryggi. „Þeir eru að búast við inn- flutningi. Kannski sjá þeir einhverja möguleika á að fá ódýrari vöru er- lendis frá,“ sagði Ágúst. Hann taldi að innflytjendur væru að þrýsta á um innflutning. Ágúst sagði enga þörf á að flytja inn lambahryggi eða hryggjar- sneiðar. Vörur á borð við fille, kór- ónur, lundir og aðrar hryggjafurðir séu til. Flestir sláturleyfishafar eigi nóg af þessum vörum fyrir sína við- skiptavini. Hann sagði sláturtíð hefj- ast 15. ágúst og birgðir myndu end- ast fram að því. Offramleiðsla og birgðasöfnun hafi verið mikið vandamál íslenskra sauð- fjárbænda og afurðastöðva, að sögn Ágústs. Tekist hafi að ná tökum á þessum vanda. „Það væri glatað ef ráðherra tæki ákvörðun um að leyfa innflutning á lambakjöti loksins þeg- ar okkur hefur tekist að koma bönd- um á birgðavanda í sauðfjárrækt. Þetta er það sem hefur mest áhrif á afkomu sauðfjárbænda í dag,“ sagði Ágúst. Ekki skortur á lambahryggjum  Boðaður var skortur á vörunni Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Lambakjöt Lítið virðist hafa ræst úr boðuðum skorti á lambahryggjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.