Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á sumarhusavorn.is Mér finnst nú vera tímabært að Íslend- ingar finni leið til að horfast í augu við vinnuþrælkunar-fortíð sína til að ánetjast ekki slíku óþarflega mikið í framtíðinni. Vitundarvakning Það var góðs viti er verkalýðsfélagið Efl- ing nefndi í síðustu kjarabaráttu sinni að nú væri í senn kominn tími til að stytta vinnutíma sem og yfirvinnu. Og að viðurkenna að við erum að vinna okkur burt frá erf- iðisvinnunni með því að ýta henni yfir á farandverkafólkið frá út- löndum! Samt er það svo að Ís- lendingar eru kannski flestir ennþá að vinna meira en lífsstíls- sálfræðingar myndu mæla með. Flestir eru þó kannski meðvitaðir um að of mikil vinna getur hleypt sálarlífinu í dróma, jafnvel skemmt það, að ekki sé talað um skerðingu á valfrelsi, menningarlífi og frí- tíma. Þó komast t.d. foreldrar barna- fjölskyldna líkast fæstir undan því að vinna yfirvinnu til að kaupa sér íbúð. Erfiðara menntaskólanám Það skýtur því skökku við að menntaskólar landsins eru allir farnir að breyta námi sínu í þriggja ára hraðbraut. Og þar með neyða nemendur sína til að nálgast nám sitt sem nauð- ungarvinnu í stað þess að gera það að menn- ingaruppeldi í rólegu félagsmálaumhverfi, líkt og áður tíðkaðist. Skólarnir virðast þannig vera að reyna að breyta öllum í verkafólk í hagnýtum menningargreinum á tíma þegar meira rúm er þó fyrir óhagnýtu háskólagreinarnar og minna liggur á að koma fólki út í atvinnulífið vegna tilkomu farandverkafólks sem og lengingar vinnuævinnar. Þó getur yfirvinna hentað sum- um; jafnvel sumum verðandi pró- fessorum. Enda krefjast fram- haldsgráður í háskóla eftir þá fyrstu einatt fórnfúsrar vinnusemi eða sérlega vinnusamra náms- manna að upplagi. Námskeið um vinnuböl? Flestir þurfa að vinna óhóflega mikið einhvern tíma. Þó væri nú ráð að hafa námskeið í mennta- skólum fyrir nemana um hverju þeir gætu verið að missa af. Og segja þeim þar frá vinnufólki fyrri alda á Íslandi sem þurfti að vera sívinnandi bara til að lifa af. Og frá formlega þrælahaldinu sem tíðkaðist á Íslandi fram á tólftu öld á þrælum keyptum frá Noregi og Bretlandi. Spyrja þá síðan hver hafi þá verið munurinn á þrældómi þessum og vinnuþrælkun síðari tíma? (Ef ég væri enn að kenna sögu og félagsfræði í menntaskóla myndi ég svo vitna hér í tímaritið Sögu frá 1977!) Þannig mætti hvetja efasemda- mennina til að skipta yfir í fjöl- brautaskóla sem leyfa enn fjög- urra ára stúdentsnám; sérstaklega ef þeir eru að upplagi efni í t.d. einnar gráðu háskólanám í minna hagnýtum greinum svo sem heim- speki, bókmenntafræði, sögu eða mannfræði og hyggjast svo finna sér sínar persónubundnu leiðir í atvinnulífinu eftir þann tíma. Skuldum við ekki börnum okkar slíka valkosti? Í ljóði mínu Námsárin í baksýn lýsi ég m.a. tilfinningu minni af að vera þá valfrjáls nýnemi í háskóla- lífinu með þessum hætti: Hef ekki lengur neina skoðun, vil bara ná mér í nýja kærustu og búa mér til fræðimannaframtíð heima á Fróninu þjóðtungunnar. Allir vita nú betur hér en ég um hvað hæfir hispurssveinum og ég velkist hér í fjölmörgum vögg- um er skulu henta miðstéttar-menningarbörnum. Viðurkennum skaðsemi vinnuþrælkunar Eftir Tryggva V. Líndal » Og að spyrja þá síð- an hver hafi þá verið munurinn á þrældómi þessum og vinnuþrælk- un síðari tíma? Tryggvi V Líndal Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. Í júlí 2016 voru lengstu járnbraut- argöng í heiminum formlega opnuð í Sviss tæpum sjö áratugum eftir að fyrstu teikn- ingarnar af þeim voru lagðar fram. Vand- kvæði á fjármögnun ganganna ollu því að framkvæmdir við þetta samgöngu- mannvirki hófust ekki fyrr en árið 1999. Um ókomin ár tengjast hin 57 km löngu Gotthard Basistunnel-göng neti nýrra ganga undir Ölpunum. Þau liggja mun lægra en hin gömlu og eru næstum jafnlöng. Nú þeys- ast lestirnar milli Norður- og Suð- ur-Evrópu á allt að 250 km hraða á klukkustund. Í desember 2016 áttu fyrstu lest- irnar að þjóta í gegnum hin 57 km löngu Gotthard Basistunnel-göng. Talið er að gerð þeirra hafi gengið vel án þess að vandamál hafi komið upp. Um langt skeið höfðu risavaxin tæki borað sig í gegnum fjallið. Árið 2016 var unnið við að leggja loka- hönd á verkið sem var langt á und- an áætlun þegar lagðir voru teinar og rafmagnsleiðslum komið fyrir. Fyrir 8 árum var 16 km prufuleið í göngunum tekin í notkun, og þegar þau valda byltingu í lestarsam- göngum um Alpana geta þessar far- þegalestir náð 250 km hraða á klst. Á þessum hraða getur ferð í gegn- um göngin tekið innan við 15 mín- útur. Þessi tenging er talin mikilvæg skammleið fyrir fjölmargar aðrar flutningalestir, sem flytja vörur milli norður- og suðurhluta Evrópu. Til að byrja með fara flutningalest- irnar á aðeins 160 km hraða í gegn- um lengstu göng síðari tíma, sem vitað er um í nýju neti svonefndra Basistunnela í Ölpunum. Öll þessi göng eiga það sameiginlegt að þau liggja mun lægra við fjallsrætur og eru þess vegna nefnd Basistunnel, það gæti þýtt grunngöng. Ölpunum hefur ævinlega verið lýst sem ókleifum vegg milli Norð- ur- og Suður-Evrópu. Einn þeirra fáu staða þar sem hægt var að klífa múrinn var Gotthard-skarðið í 2.108 m hæð yfir sjávarmáli. Áður tók heilan dag að komast þar yfir, en á vetrum var skarðið algjörlega ófært vegna snjóþyngsla og illviðris. Leið- in styttist um 45 km eins og við þekkjum milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins, með tilkomu Hval- fjarðarganganna. Lítið er vitað um hvar og hvenær hug- myndir um jarð- gangagerð í heiminum komu fyrst fram og í hvaða landi svona sam- göngumannvirki varð að veruleika í fyrsta sinn. Í tímaritinu Lif- andi vísindum kom fram árið 2012 að hugmyndir um járnbrautargöng hefðu verið snemma á ferðinni. Fram kom í þessu tímariti að eftir 10 ára erfiðisvinnu hefði fyrstu járnbrautargöngin í gegnum St. Gotthard-skarðið verið opnuð árið 1882. Hér skal ósagt látið hvort þetta geti staðist. Engar heimildir eru til um hvort þessi járnbraut- argöng séu 136 ára gömul. Fullyrt er í Lifandi vísindum að þetta hafi þá verið lengstu göng heims með sína fyrstu 15 km og séu ennþá mik- ið notuð. En aðkoman að þeim er löng og torfær. Lestirnar mjakast hægt að göngunum og á leiðinni fara þær næstum í hnút á þröngri og snúinni leið. Á hvern km er hækkunin heilir 26 metrar, sem þýðir að venjulega er nauðsynlegt að koma lestinni upp í 1.150 m hæð að gangamunnanum. Nýju Basis- tunnel-göngin liggja 600 metrum neðar en hin gömlu. Hæsti punkt- urinn er 549 metrar yfir sjávarmáli, þarna er leiðin að gangamunnanum mun auðveldari yfirferðar. Á hvern kílómetra er mesta hæðarhækkun utan ganganna 12,5 metrar. Inni í göngunum hækka teinarnir mest eða lækka um 8 metra á hvern kíló- metra. Það þýðir að lestirnar spara mikla orku að hluta til, þar sem þær þurfa ekki lengur að mjaka sér hátt upp á milli fjallanna, og einnig þar sem nýju göngin hafa langtum beinni tengingar, og stytta ferðina um heila 40 km. En bein eru þau samt ekki Lengstu járnbraut- argöng heims Eftir Guðmund Karl Jónsson »Nú þeysast lestirnar milli Norður- og Suður-Evrópu á allt að 250 km hraða á klukku- stund. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. SMARTLAND Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.