Morgunblaðið - 29.07.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 29.07.2019, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is VELKOMIN Á NÝJU VEFSÍÐUNA OKKAR Uppgötvaðu vörurnar okkar og kosti þess að versla á netinu Af þeim hrein- dýrum sem felld voru í fyrra höfðu á fjórða tug gömul skotsár. Það er ekki hátt hlut- fall af heildarfjölda felldra dýra en það sýnir samt að hrein- dýraveiðum – eins og öllum veiðum – fylgir heiftarlegt dýraníð. Öll þessi dýr höfðu lifað af fyrri skotárásir veiðimanna. Kannski bækluð og limlest, þótt þau hafi tórt, til þess eins að vera skotin aftur. En hvað með öll þau dýr sem voru skotin án þess að lifa af; kom- ust undan veiðimanni til þess eins að deyja drottni sínum í sárum og kvölum? Blýkúlur valda oft ígerð í sárum og svo drepi og blóðeitrun; langvinnum og heiftarlegum dauð- daga. Kannski ráfa særð dýr um með brotinn fót, splundraða mjöðm eða sundurskotið trýni – ófær um að ná sér í næringu – dögum eða vik- um saman. Þar til dauðinn loks líknar. Yfirkeyrð lýsing? Nei, því miður, þetta er raunveruleikinn; skugga- hlið og skelfing hreindýraveiða. Hræðileg meðferð á saklausum og varnarlausum dýrum sem ekkert hafa til saka unnið. Og áhugi veiðimanna er slíkur að aðeins helmingur þeirra sem vilja kom- ast í drápið kemst að. Kostar þó 150.000 kr. að fá að drepa tarf og 86.000 kr. kostar drápið á kú. Veiðimenn virðast hafa af þessu mikla gleði og unun og verða þá þessir fjár- munir óverulegir og smáir, alla vega miðað við þá drápsgleði og fróun sem drápið virð- ist veita. Til eru þeir líka sem virð- ast telja svona dráp saklausra og varnarlausra dýra til stórvirkja og hetjudáða. Hvers konar menn eru þetta? Alls konar menn, líka flottir og fín- ir, alla vega á ytra borði, en það hlýtur að vera blindur blettur í þeim; einhvers staðar í sálinni. Sumir veiðimenn, líka konur, tala um „kikkið“ sem það veitir að sjá fallegt og tignarlegt – en sak- laust og varnarlaust – dýrið falla í valinn, ef drápstilraunin tekst þá, og skiptir þá litlu máli þó að eftir standi 8-10 vikna móðurlaus og hjálparvana kálfur. Ekkert stórmál það! Þetta er bara skepna. Lengi vel var skylda við dráp á hreindýrskúm að drepa kálf með, því vitað var að hann myndi eiga erfitt uppdráttar – burðalítið og ósjálfbjarga ungviðið, enn á spena og það til margra mánaða ef móður ætti. Þá kom í ljós, að í stað þess að skjóta kálf felldrar kýr skutu veiði- menn bara stærsta kálfinn í hjörð- inni – meira kjöt, meira fyrir pen- inginn – og sköpuðu þar með enn meiri angist, vansæld, hörmungar og ringulreið í hjörðinni. Einhverjum ráðherra fannst þetta ekki nógu gott, skildi kannski að hreindýr eru líka háþróuð spen- dýr með margvíslegt skyn og til- finningar og var þá ákveðið að skjóta bara kýr. Skyldu kálfar lifa áfram – þótt sumir væru rétt átta vikna þegar kúadráp hefst – í þeirri von að ein- hverjar eftirlifandi kýr myndu taka þá að sér – þótt ónáttúrulegt væri, vetur yrði mildur og að kálfar myndu tóra veturinn af; kannski þyrstir, svangir, magrir og heift- arlega hrjáðir, en hvað með það. Þetta eru bara skepnur. Í ár ákvað umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi, að drepa mætti 1.451 hreindýr. Fleiri dýr en nokkru sinni fyrr; 1.043 kýr og 408 tarfa. Hann á þó að vera grænn. Dráp á törfum hófst 15. júlí og kýr hefur mátt byrja að drepa 1. ágúst, en þar sem kálfar fæðast flestir um mánaðamótin maí/júní eru þeir þá rétt átta vikna. Standa rétt í fæturna. Með tilliti til þess að kálfar eru á spena minnst í 5-6 mánuði ef móðir lifir er auðvitað óheyrilegt að drepa mæður frá þeim átta vikna. Við í Jarðarvinum höfum síðustu mánuði og misseri lagt hart að stjórnvöldum, einkum umhverfis- ráðherra sem síðasta orðið hefur í þessum málum, að griðatími hrein- dýrakálfa verði lengdur með afger- andi hætti til að auka velferð þeirra, líka, og ekki síst, til að byrjað væri að fara að lögum nr. 55/2013 um dýravelferð – sem eru góð og veita ungviði og öðrum dýr- um vernd – en ráðherrar hafa ein- faldlega hunsað. Það eru bara tvær villtar hrein- dýrahjarðir eftir í Vestur-Evrópu; í Noregi og hér. Í Noregi gildir griðatími hreindýrakálfa til 20. ágúst. Þá fyrst má byrja að drepa kýr þar. Fæðast þó kálfar í Noregi nokkru fyrr en hér. Norskir hrein- dýrakálfar njóta því verndar a.m.k. fyrstu þrjá mánuði ævi sinnar en íslenskir bara tvo mánuði. Norð- menn vitna í veiðisiðfræði, en hún virðist lítt kunn í okkar blessaða landi. Flestir sem eitthvað þekkja til dýra vita að ekkert átta vikna spendýr hefur þroska eða burði til að standa á eigin fótum og komast af eitt sér og móðurlaust. Á sama hátt vita kunnugir að spen- dýraungviði fer verulega fram þriðja mánuð ævi sinnar og að geta þess til að spjara sig í lífsbarátt- unni – komast af án algjörra hörm- unga – er eftir það orðin meiri. Umhverfisráðherra er hins vegar ekki á þeim buxunum. Vinstri- grænir þar með, en hann er auðvit- að fulltrúi þeirra í ríkisstjórn. 1. ágúst skal gilda fyrir byrjun kúa- dráps og átta vikna griðatími fyrir kálfa er alveg nóg. Þetta eru bara skepnur. Hér gildir engin veiðisiðfræði, bara drápsgleði og veiðiþægindi veiðimanna – það er auðvitað óþægilegt að liggja í dýradrápi upp til fjalla í haustnepjunni – og Vinstri-grænir eru löngu orðnir Vinstri-gráir. Það verður brátt um margt stefnumálið þegar stólar bjóðast. Andskoti erum við eitt- hvað léleg! Andskoti erum við eitthvað léleg Eftir Ole Anton Bieltvedt »Hér gildir engin veiðisiðfræði, bara drápsgleði og veiðiþæg- indi veiðimanna – og Vinstri-grænir eru löngu orðnir Vinstri- gráir. Ole Anton Bieltved Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina. Allt um sjávarútveg Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12. Til sjós og lands Ef það skyldi verulega syrta í álinn í efnahagsmálum á næstunni, þá mætti kannski, að breyttu breyt- anda og okkur til huggunar, hafa ráð Viktoríu drottningar til kvenna þeirrar tíðar á brúðkaupsnóttina: „Lokaðu augunum og hugsaðu um England.“ Sem sagt láta það óum- flýjanlega hafa sinn gang og æðrast ekki. Efnahagslægðir koma alltaf með misjafnlega löngu millibili og það er sama þótt hagspekingar séu að spá einhverju öðru, þá eru það loðnan og ferðamennirnir sem eiga síðasta orðið en ekki þeir um hag okkar. En þó að Seðlabankinn og grein- ingardeildirnar fari á rassinn með sínar spár, af því að fiskurinn í sjónum passar ekki í excel-skjölin, má alltaf finna gáfulega eftirávisku- kenningu um hvers vegna dæmið gekk ekki upp. Þannig hafa hvorir tveggja nokk- uð að iðja; þeir sem spáðu sam- drætti og hinir sem héldu sig við viðvarandi góðæri. En mikið eigum við gott, Íslend- ingar, að eiga krónuna okkar sveigjanlegu til að taka af okkur sjóriðuna þegar of hratt hefur verið siglt. Sunnlendingur. Morgunblaðið/Kristinn Krónan Hefur komið okkur til bjargar oftar en einu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.