Morgunblaðið - 29.07.2019, Page 18

Morgunblaðið - 29.07.2019, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 ✝ Guðrún Bene-diktsdóttir fæddist á Hríshóli í Reykhólasveit 8. október 1924. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum 20. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guð- rún Ingimund- ardóttir, f. 14. apríl 1894 í Bæ í Króksfirði, d. 30. október 1924, og Benedikt Finnsson, bóndi í Innri-Fagradal í Saurbæjarhreppi, f. 15. ágúst 1885 í Kálfanesi við Hólmavík, d. 4. mars 1961. Eftir að Guðrún missti móður sína gengu Guð- rún Finnsdóttir, systir Bene- dikts, og Sigríður Ásgeirsdóttir, fóstursystir Benedikts, henni og systkinum hennar í móðurstað. Fjölskyldan flutti á æskustöðvar Benedikts á Hólmavík árið 1925. neytinu, f. 11. ágúst 1957. Mað- ur hennar er Sigurður Sigurðsson verkfræðingur. Syn- ir þeirra eru Þórarinn, Auðunn og Alexander. 3) Sigrún Edda, yfirlæknir á Landspítalanum, f. 17. júlí 1959. Dóttir hennar er Sara Xiao. Að loknu barnaskólanámi stundaði Guðrún nám í Héraðs- skólanum á Laugarvatni frá 1939-1940 og hálfan vetur var hún við nám í Húsmæðraskól- anum Ósk á Ísafirði. Guðrún vann um tíma í Reykjavík, þar af tvo vetur í Málleysingjaskól- anum sem þá hét. Guðrún og Þórarinn bjuggu lengst af á Hólmavík, þar sem hún sinnti húsmóðurstörfum. Eftir að börnin komust á legg vann hún við rækjuvinnslu og á prjóna- stofu á Hólmavík. Guðrún og Þórarinn fluttu til Reykjavíkur árið 1985 þegar Þórarinn fór á eftirlaun og starfaði Guðrún þá um tíma í eldhúsi í Kjarvalshúsi sem og í félagsmiðstöð á Aflagranda. Útför Guðrúnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 29. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Systkini Guðrúnar voru þrjú: 1) Arndís Stefanía, f. 31. október 1919, d. 3. apríl 1994, hennar maki sr. Andrés Ólafsson. 2) Finnur, f. 21. maí 1921, d. 5. júní 1997, hans maki er Ólöf Þ. Jó- hannsdóttir. 3) Ingimundur Sig- urkarl, f. 1. júlí 1922, d. 13. febrúar 1989. Guðrún giftist 14. maí 1955 Þórarni Ólafssyni Reykdal, raf- veitustjóra frá Siglufirði, f. 28. mars 1919, d. 4. ágúst 1993. For- eldrar hans voru hjónin Sæunn Oddsdóttir og Ólafur Jóhann- esson Reykdal, trésmiður á Siglufirði. Börn Guðrúnar og Þórarins eru: 1) Ólafur, mat- vælafræðingur hjá Matís, f. 13. júlí 1955. 2) Guðrún Björk, sér- fræðingur hjá félagsmálaráðu- Móðir okkar, Guðrún Bene- diktsdóttir, andaðist á Droplaug- arstöðum laugardaginn 20. júlí síðastliðinn. Mamma var tæplega 95 ára gömul og varð elst ætt- menna sinna. Hún átti það til að segja að hún skammaðist sín fyrir þennan háa aldur og að hún vissi ekki hvað Guð væri að hugsa að halda sér hérna megin svona lengi. Foreldrar mömmu bjuggu í Innri-Fagradal í Dalasýslu. Íbúð- arhúsið í Innri-Fagradal, sem var hátt og stórt timburhús, fauk síð- sumars 1924. Þau fengu í fram- haldi af því ábúð á Hríshóli í Reykhólasveit til skamms tíma. Dóttirin Guðrún fæddist á Hrís- hóli 8. október 1924 og stuttu síð- ar eða 30. október lést móðir hennar aðeins 30 ára að aldri. Guðrún, föðursystir hennar, gerð- ist bústýra föður hennar. Einnig naut hann aðstoðar fóstursystur sinnar og frænku, Sigríðar Ás- geirsdóttur. Náin tengsl voru einnig við Ólöfu, móðursystur mömmu, og fjölskyldu hennar. Talið er að Óla frænka, þá fimm- tán ára gömul, hafi bjargað lífi mömmu nýfæddrar þegar blæddi frá naflastrengnum. Mamma og systkini hennar, Adda, Finnur og Mundi voru alla tíð mjög náin. Í Reykjavíkurferð- um á bernskuárunum var gist hjá Finni og Ollu í Ljósheimum og þegar mamma þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í Reykjavík þótti það ekki tiltökumál að við systkinin, pabbi og Sigga Ásgeirs færum í hádegis- og kvöldmat til Öddu. Alltaf var Mundi tilbúinn að rétta hjálparhönd ef eitthvað þurfti að framkvæma. Mamma var, eins og þau öll systkinin, uppteknari af því að liðsinna öðrum en að gera kröfur til annarra. Fram undir það síðasta þótti henni miður ef einhver var með fyrirhöfn hennar vegna. Mamma og pabbi voru mjög samhent þó þau væru ólík. Vegna starfa sinna átti pabbi daglegar ferðir upp í rafstöð, m.a. á kvöldin og fór mamma þá gjarnan með honum. Oft fórum við systkinin með í þessar kvöldferðir. Alla tíð síðan höfum við miðað vegalendir við þessa fimm kílómetra upp í Stöð. Tengsl mömmu við gömlu heimaslóðirnar voru sterk og kom hún þangað síðast sumarið 2017. Mamma var hlý og brosmild og alltaf svo glöð að hitta fólkið sitt. Barnabörnin nutu hlýju ömmu sinnar, hún passaði þau öll og voru þau mjög tengd henni. Hún var mikil handavinnukona, bæði saumaði og prjónaði ófáar peys- urnar, sokkana og vettlingana sem við öll nutum góðs af. Frá 2013 bjó mamma á Drop- laugarstöðum. Hún talaði oft um að sér liði vel þar og í sumar naut hún veðurblíðunnar í garðinum. Starfsfólki Droplaugarstaða eru færðar þakkir fyrir hlýju og góða aðstoð á liðnum árum. Mamma kveið ekki dauðanum og sagðist hlakka til að hitta fólkið sitt sem væri farið. Við systkinin erum alveg sannfærð um það að faðir okkar hefur verið búinn að undirbúa komu hennar vel og þess fullviss að við eigum eftir að hittast aftur í nýjum heimkynn- um. Sigrún Edda, Guðrún Björk og Ólafur Reykdal. Elsku amma, þú horfir núna til mín frá himnaríki með afa og ætt- ingjunum sem mér þykir svo vænt um. Það er erfitt að hugsa um að þú sért ekki lengur hjá okk- ur og mér finnst erfitt að kveðja þig. Ég mun alltaf muna eftir pönnukökunum þínum sem þú leyfðir mér alltaf að setja alltof mikinn sykur á, hvernig þú varst hetjan mín og þegar þú kallaðir mig yndislegu veruna þína. Núna hef ég misst eina af ynd- islegu verunum mínum sem mér mun þykja vænt um og elska þangað til allt verður að engu og örugglega smá eftir það. Ég kvaddi hana ömmu mína alltaf með „ég elska þig“ því ég vildi að þetta yrðu síðustu orðin sem ég segði henni og er stolt að segja að það voru þau síðustu. Fyrir nokkrum árum þegar ég og mamma mín vorum á Þingvöll- um óskaði ég mér að amma mín myndi komast í ferminguna mína og bað oft til Guðs að taka hana ekki í burtu. Þessi ósk rættist og það er núna liðið ár síðan hún kom í ferminguna. Amma hafði fallegasta brosið sem hafði svo góð áhrif á alla í kringum hana. Hún var sterk, ákveðin og ekki er hægt að lýsa hversu góð og gjafmild hún var. Ég á fullt af minningum um hana sem eru allar geymdar nálægt hjarta mínu. Ég veit að henni líð- ur vel núna og það er friður með henni. Svo amma „ég elska þig“. Sara Xiao Reykdal. Amma sagðist hafa átt ágætis uppvaxtarár. Hún sagði að sig hefði aldrei skort neitt og hún hefði átt góða ævi. Hún ólst upp á tímum þar sem kröfurnar á heim- ilinu voru meiri, börn voru látin vinna meira en það kom ekki að sök, henni og systkinum hennar fannst gaman að hjálpa til, sagði amma, og hún upplifði ekki neina vinnuhörku. Við bræðurnir þekktum ömmu okkar sem manneskju sem settist ekki niður við eldhúsborðið fyrr en allir höfðu borðað sig sadda. Jafnframt rauk hún á fætur þegar til hennar kom gestur svo hún gæti boðið honum besta sætið í húsinu. Hér skipti ekki máli að hún var á tíræðisaldri og gestur hennar tvítugur. Hún lagði meiri áherslu á að hlusta en tala og sagði aldrei ósatt eða talaði illa um annað fólk. Aðspurð um til- ganginn í lífinu sagði amma að hann væri bara að lifa lífinu og vera heiðarleg manneskja. Í stuttu máli þá var hún amma okkar vinnusöm og heiðarleg kona sem kunni því betur að gefa en þiggja. Fyrir þessar gjafir hennar eru allir sem hittu hana á lífsleiðinni þakklátir. Með því að sýna gott fordæmi kenndi hún okkur gildi sem við munum lifa eftir og með því heiðra minningu hennar. Þórarinn, Auðunn og Alexander Sigurðssynir. Guðrún Benediktsdóttir Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA M. HELGADÓTTIR, Þrúðvangi 24, Hellu, lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu föstudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Oddakirkju fimmtudaginn 1. ágúst og hefst klukkan 14. Þórhallur Jón Svavarsson Agnes Ólöf Thorarensen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÓLÍNA MARINÓSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum þriðjudaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 1. ágúst klukkan 14. Marinó F. Einarsson Valgerður Jakobsdóttir Hansína Ásta Jóhannsdóttir Guðbjörg Jóhannsdóttir Sigdór Vilhjálmsson G. Rúnar Jóhannsson Sigrún Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær og yndislegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi okkar, SIGURÐUR H. DAGSSON, Asparhvarfi 17b, Kópavogi, lést á Landakoti fimmtudaginn 25. júlí. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 6. ágúst klukkan 13. Ragnheiður Lárusdóttir Bjarki Sigurðsson Kolbrún Franklín Dagur Sigurðsson Ingibjörg Pálmadóttir Lárus Bl. Sigurðsson Anna María Ragnarsdóttir og afabörnin Hjartkær eiginmaður minn, SVAVAR ÞÓR SIGURÐSSON bóndi, Birningsstöðum, Ljósavatnsskarði, lést á Skógarbrekku, Húsavík, föstudaginn 26. júlí sl. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þórhalla Bragadóttir Ástkær dóttir, systir, móðir okkar og amma, SIGURHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR listakona frá Húsavík, lést á heimili sínu föstudaginn 12. júlí. Hún verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 2. ágúst klukkan 14. Vilhjálmur Bessi Kristinsson Kristinn Vilhjálmsson Elfa Vilhjálmsdóttir Bessý Hólmgeirsdóttir Sigrún Björg Steinþórsdóttir og barnabörn Þá er elsku Jófý mín farin frá okkur, farin að hitta Bóa sinn, foreldra, systur sínar og bróður. Ég veit að það hafa orðið miklir fagnaðarfundir. Ég er glöð að hún hefur fundið frið en mikið sakna ég þess að tala við hana, ræða við hana um heimsins mál- efni, heyra hennar innilega hlát- ur og hlusta á sögur úr Lauga- hlíð. Jófý var besta frænka frá því áður en ég man eftir mér, elskaði mig frá fyrsta degi. Við kölluðum hvor aðra alltaf BFH, besta frænka í heimi. Þær eru ófáar lexíurnar sem hún kenndi mér. Aldrei ganga í götóttum sokkum, alltaf setja andlitskremið á upp í móti (af því þyngdaraflið þarf ekki aðstoð), vertu þú sjálf, njóttu lífsins, sjáðu kostina, ekki ein- blína á gallana. Hún sýndi mér Jófríður Björnsdóttir ✝ JófríðurBjörnsdóttir fæddist 29. október 1944. Hún lést 8. júlí 2019. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey. alltaf að ég er mikils virði. Jófý var dásamleg fyrir- mynd fyrir stelpu sem var að alast upp á áttunda og níunda áratugnum. Hún var sjálfstæð, óhrædd, vinaleg við alla og hafði gaman af lífinu. Jófý hafði gaman af manna- mótum og fór gjarn- an með ræður, flutti ljóð, söng eða jafnvel rappaði ef því var að skipta. Hún hafði lag á orðum og henni fórst vel úr hendi að setja saman tækifærisræður og semja texta. Alltaf, alltaf átti ég samastað hjá BFH og Bóa og þær voru ófá- ar frænkuheimsóknirnar. Hún lék við litlu frænku endalaust, klæddi mig upp í sínar bestu slæður og skart og fór sjálf í bún- inga til að leika í búðarleik. Meira að segja að þvo og þurrka þvott varð að leik hjá Jófý. Þegar ég komst á fullorðinsaldur og flutti til Reykjavíkur til að fara í há- skóla bjó ég hjá henni og Bóa fyrst um sinn áður en ég fékk húsnæði. Jófý sá til þess að frænka hennar nærðist og að við hittumst reglulega með því að bjóða í vikulegan hádegismat. Þegar unga konan ég átti í vand- ræðum með að fóta mig í lífinu var BFH alltaf til staðar til að styðja mig. Faðmlög, ástrík orð og uppbúið rúm beið mín alltaf ef ég þurfti á að halda. Þegar ég útskrifaðist árið 2014 gaf Jófý mér netta gullfesti með einni perlu og einum demanti af því að, eins og hún sagði, ég var perla og demanturinn hennar. Þannig litum við hvor á aðra. Mikið hefði líf mitt verið fátæk- legra ef ég hefði ekki átt bestu frænku í heimi. Takk elsku hjartans BFH mín fyrir allt sem þú kenndir og gafst mér, það verður geymt en ekki gleymt. Ingu Rún og öllum aðstand- endum votta ég samúð mína. Snjólaug Ólafsdóttir (Snjósa BFH). Mín ástkæra besta vinkona er látin. Alzheimersjúkdómurinn hremmdi þessa yndislegu konu. Hann sleppir ekki takinu fyrr en yfir lýkur. Það er eins og að lifa sjálfan sig að fá þennan sjúk- dóm. Það var í fréttum fyrir stuttu að Íslensk erfðagreining væri hætt að þróa lyf við Alzheimer vegna slæmra aukaverkana. Það voru ekki góð tíðindi. Við Jófý vorum starfssystur, byrjuðum sem flugfreyjur hjá Loftleiðum sem urðu Flugleiðir og enduðum ferilinn hjá Ice- landair. Hún kom úr stórri fjölskyldu, átti átta systkini og elskaði þau öll takmarkalaust. Vinahópurinn var líka stór og hún passaði vel upp á vini sína. Jófý var mjög fé- lagslega sinnuð og vann mikið og gott starf hjá Flugfreyjufélagi Ís- lands, sat í stjórnum og nefndum og var formaður félagsins um tíma. Tvítug lagði hún leið sína til Frakklands þar sem hún dvaldi í eitt ár og kom til baka mælandi á franska tungu sem kom sér sann- arlega vel í fluginu. Flugfreyjustarfið varð ævi- starf sem átti vel við hana. Hún hafði mjög gaman af að ferðast og kynnast nýju fólki og hvar gerist það ef ekki í fluginu? Hún vann við ýmis verkefni úti um allan heim, m.a. í flugi með pílagríma, þar sem oft reyndi mikið á. Þá var gott að vera í áhöfn með Jófý. Jófý og maðurinn hennar, Bói, skoðuðu heiminn saman, sigldu um heimsins höf og nutu lífsins. Ótaldar eru þær ánægjustund- ir sem við vinkonurnar, Sérrí- systur, áttum saman, bæði utan- lands og innan. Það voru ætíð hinar menningarlegustu sam- komur. Þær voru ýmist haldnar á fimm stjörnu hótelum eða í sum- arhúsum. Allar lögðu sitt af mörkum og oftar en ekki flutti Jófý frumsaminn kveðskap sem alls ekki mátti kalla ljóð. Aldrei var drukkið sérrí. Í síðustu heimsókn minni til Jófýjar sátum við saman og ég las fyrir hana ljóð eftir Þórarin Eld- járn. Hún naut þess. Viku síðar var hún komin í líknandi meðferð. Vinátta okkar hefur varað í hálfa öld og aldrei borið skugga á. Eftir því sem árin hafa færst yfir höfum við vinkonurnar kvatt marga, staðið hlið við hlið og sungið „Allt eins og blómstrið eina“. Elsku vinkona, ég veit þú ótt- aðist ekki dauðann og legg þér orð Hallgríms Péturssonar í munn: „Kom þú sæll, þá þú vilt.“ Guð blessi minningu elsku hjartans Jófýjar. Samúðarkveðjur til Ingu Rún- ar, dóttur hennar, og fjölskyld- unnar allrar. Margrét Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.