Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 22
Jökulsárgljúfur Sigríður og Erlingur ásamt börnum sínum á göngu.
sveitarfélaga til 2007. Árin 2007-
2008 var hún skrifstofustjóri Ráð-
húss Akureyrarbæjar og 2009-2014
var hún samskiptastjóri bæjarins á
innlendum og erlendum vettvangi.
Árin 2014-2016 var Sigríður fram-
kvæmdastjóri samfélags- og mann-
réttindasviðs Akureyrarbæjar og
hafði jafnframt umsjón með und-
irbúningi fyrir móttöku flóttafólks
frá Sýrlandi, mál sem hún fylgdi eft-
ir til 2017.
meðan á þeim stóð en þessi störf
voru að mestu leyti mikið lán. Fyrir
mig var þetta frábær skóli, þótt
stundum hafi maður þurft að vera
harður af sér,“ segir hún. Árið sem
Sigríður hætti í bæjarstjórn,1998,
varð hún sviðsstjóri þjónustusviðs
hjá Akureyrarbæ og var til 2003. Þá
varð hún deildarstjóri atvinnu-,
kynningar- og markaðsmála og jafn-
framt verkefnisstjóri í Evrópuverk-
efninu Brandr um markaðssetningu
S
igríður Stefánsdóttir er
fædd á Ísafirði 29. júlí
1949. Hún ólst samt upp í
Hlíðahverfinu í Reykja-
vík, þó að hún hafi í æsku
jafnan dvalið sumarlangt á Ísafirði
hjá ömmu sinni og afa. Í Reykjavík
var hún líka oft hjá föðurömmu og
-afa á Laugarhvoli í Laugarásnum
og í dyravarðarhúsinu á lóð Stjórn-
arráðsins. Hún tók verslunarpróf í
Reykjavík árið 1968 og stúdentspróf
í framhaldi af því 1970. Sigríður var
meðal fyrstu nemenda í almennum
þjóðfélagsfræðum við Háskóla Ís-
lands og fékk BA-próf þaðan 1975 og
síðar próf í uppeldis- og kennslu-
fræðum 1982. Árið 1978 flutti hún til
Akureyrar ásamt manni sínum Er-
lingi Sigurðarsyni heitnum. Ak-
ureyrardvölin átti að vera „til
reynslu,“ en „reynslan var bara það
góð að ég hef aldrei viljað fara héð-
an,“ segir Sigríður, sem hefur búið
þar síðan.
Sigríður kenndi fyrst um sinn við
framhaldsdeildir gagnfræðaskólans
og á sama tíma félagsfræði og
stjórnmálafræði við Menntaskólann
á Akureyri. Frá 1980 kenndi hún við
MA og var kennari þar til 1990, þeg-
ar hún lét þar af störfum vegna anna
í sveitarstjórnarmálunum. „Fyrst
voru sveitarstjórnarmálin hliðar-
grein en þetta hlóð svo utan á sig, að
það var engin leið að vera með
kennslu með,“ segir hún. Sigríður
var atkvæðamikil í stjórnmálastarfi
Alþýðubandalagsins á Akureyri allt
frá 1982, þegar hún bauð sig fyrst
fram í bæjarstjórn. Hún fór þá inn
sem varafulltrúi en frá 1984 sem að-
alfulltrúi flokksins í bæjarstjórn og
átti eftir að sitja samfleytt í sveit-
arstjórn til 1998. Árið 1990 fór Al-
þýðubandalagið í meirihluta í bæn-
um og tók Sigríður þá við embætti
forseta bæjarstjórnar um tveggja
ára skeið en sat að öðru leyti í ýms-
um nefndum, stjórnum og ráðum.
Hún sat frá 1990 til 1998 í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Lánasjóðs sveitarfélaga.
Sigríður hugsar síður en svo með
kala til stjórnmálaáranna. „Auðvitað
voru stundirnar mismunandi í póli-
tíkinni og ekkert allar skemmtilegar
Sigríður hefur komið víða við á
löngum ferli og lítur ánægð um öxl.
„Meðal þess sem ég hef verið að
reyna að gera upp við mig á þessum
tímamótum er til dæmis hvaðan ég
er. Fólk spyr mann að þessu en ég er
eiginlega alveg hætt að spá í það,“
segir Sigríður, sem er fædd á Ísa-
firði, alin upp í Reykjavík, giftist
Mývetningi, eignaðist þannig hlut í
þeirri sveit, dvaldist síðan lang-
dvölum í Þýskalandi en bjó alla tíð á
Akureyri. „Ég held að þetta hljóti að
vera mikil hamingja, að eiga alls
staðar fólk að. Það mótar mig sem
manneskju að þykja svona vænt um
alla þessa staði,“ segir hún en þegar
hún og Erlingur eiginmaður hennar
fóru ásamt sonum sínum í námsleyfi
til Tübingen í Suður-Þýskalandi árin
1991 tóku þau ástfóstri við há-
skólabæinn. Enn er samgangur á
milli heimilis hennar og vina þeirra
hjóna frá árunum í Þýskalandi, en
þau sneru aftur til Tübingen barn-
laus 2008-2009. „Eftir starfslok hef
ég meiri tíma til að sinna fjölskyldu
og vinum og áhugamálum eins og
lestri, garðyrkju, hreyfingu og nátt-
úruvernd, auk þess sem ég er vara-
formaður öldungaráðs bæjarins. Við
Erlingur og fjölskyldan ferðuðumst
alltaf mikið innanlands og erlendis
og ég held því áfram,“ segir Sigríð-
ur.
Fjölskylda
Sigríður var gift Erlingi Sigurð-
arsyni, menntaskólakennara, ljóð-
skáldi og forstöðumanni Húss
skáldsins á Akureyri. Erlingur var
fæddur 26. júní 1948 og lést 12. nóv-
ember 2018. Foreldrar Erlings voru
hjónin Sigurður Þórisson, f. 5. maí
1919, d. 14. mars 2001, bóndi og odd-
viti, og Þorgerður Benediktsdóttir,
f. 5. apríl 1916, d. 8. október 2009,
kennari og húsfreyja. Þau bjuggu á
Grænavatni í Mývatnssveit.
Börn Sigríðar og Erlings eru 1)
Erna Erlingsdóttir, f. 24. janúar
1975, íslenskufræðingur, búsett í
Reykjavík, 2) Sigurður Erlingsson,
f. 11. september 1977, landvörður,
búsettur í Mývatnssveit, kærasta
hans Regina Christine Vogt uppeld-
isfræðingur, búsett í Tübingen í
Sigríður Stefánsdóttir, fv. kennari, bæjarfulltrúi og stjórnandi hjá Akureyrarbæ – 70 ára
Ísafjörður Sigríður ásamt systkinum í heimsókn hjá ömmu og afa forðum.
Af dreifðum rótum spratt hamingja
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
50 ára Þórgunnur er
fædd og uppalin á Dal-
vík. Hún er grunnskóla-
kennari að mennt og
með meistarapróf í
stjórnun mennta- og
menningarstofnana frá
Bifröst 2011. Þórgunnur
hefur verið skólastjóri í 20 ár, nú síðustu
níu ár á Húsavík en þar á undan á Ólafs-
firði.
Eiginmaður: Arnar Guðmundsson, f.
1972 á Ólafsfirði, ráðgjafi hjá Sjóvá.
Börn: Andrea Sif Hilmarsdóttir, f. 1991,
Arna Dögg Arnarsdóttir, f. 1996, og Vigfús
William Arnarsson, f. 2007.
Foreldrar: Hjónin Vigfús R. Jóhannesson,
skipstjóri á Dalvík, f. 1943, og Svanhildur
Árnadóttir, fv. hárgreiðslumeistari og bæj-
arfulltrúi, f. 1948. Þau búa á Dalvík.
Þórgunnur Reykjalín
Vigfúsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú mátt í engu slaka á viljirðu búa
við áframhaldandi velgengni. Forðastu að
setja fólk á stall, það er svo sárt þegar það
fellur af honum.
20. apríl - 20. maí
Naut Tölvuvandræði gera vart við sig í dag.
Þú ferð ekki alltaf hefðbundnar leiðir og
stýrir lífi þínu meira af innsæi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú megir ekki vanrækja
skyldur þínar í vinnunni ættirðu að reyna að
verja meiri tíma með fjölskyldunni. Vertu
þér meðvitandi um hvað þú gerir og segir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Skapandi hugmyndir þínar um úr-
bætur á vinnustað eru eftirtektarverðar.
Gættu hagsmuna þinna en vertu sann-
gjarn/gjörn. Með góðri skipulagningu er allt
hægt
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að lofa ekki upp í ermina í
ákafa þínum til þess að leggja vini lið. Vand-
aðu valið og kauptu frekar gæði en magn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ljónið er orðið svo vant því að fá sí-
fellt nýjar hugmyndir að það er engin leið
að hætta. Nú hefur þú komið ár þinni vel
fyrir borð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að komast eitthvað í burtu,
skemmta þér og lenda í ævintýrum. Sýndu
þinn innri mann af og til.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eyddu tíma í að skrifa niður
það sem þig langar í – sama hversu yfir-
gengilegt og óhugsandi það kann að virð-
ast. Vertu sjálfum þér samkvæm/ur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Flanaðu ekki að neinu, heldur
tékkaðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu
þegar þú grípur til aðgerða. Hafðu ekki
áhyggjur því tíminn vinnur með þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leitaðu leiða til að auka skilning
þinn á heiminum. Hvernig þú setur mál þitt
fram ræður úrslitum um hvort vel tekst til
eða ekki. Leyfðu vinum þínum að umvefja
þig kærleika.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur verið óþægilegt að
láta róta of mikið upp í málum sem þú telur
að þú hafir afgreitt fyrir löngu. Nú er tími til
að nota þekkinguna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Öll mál eiga sér fleiri en eina hlið en
samt getur endirinn aðeins orðið á einn
veg. Reyndu að komast frá í frí.
50 ára Björgvin er
fæddur og uppalinn í
Kópavogi. Hann býr
nú í Hafnarfirði. Hann
starfar sem blikk-
smiður hjá Blikkási-
Funa og hefur gert í
5 ár. Áður vann hann
hjá Blikksmiðnum. Björgvin er mennt-
aður blikksmiður.
Eiginkona: Jóhanna Stefánsdóttir
húsmóðir, f. 1968 á Siglufirði.
Börn: Birgir Snær Björgvinsson, f.
2005, og tvö stjúpbörn, Hulda og
Jóhann.
Foreldrar: Birgir Hannesson vörubíl-
stjóri og bóndi frá Hækingsstað í Kjós,
f. 1930, d. 2014, og Svava Magn-
úsdóttir, iðnverkakona frá Írafelli í Kjós,
f. 1931, d. 2006.
Björgvin
Birgisson
Til hamingju með daginn
Þorsteinn Elfar Hróbjartsson fæddist
á Landspítalanum við Hringbraut í
Reykjavík, 23.12.2018 kl. 22.21. Hann
vóg 3.820 gr og var 51,5 cm langur.
Foreldrar hans eru Guðlaug Ingibjörg
Þorsteinsdóttir og Hróbjartur Arn-
finnsson.
Nýr borgari