Morgunblaðið - 29.07.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Auðvelt að þrífa
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
Pepsi Max-deild karla
Grindavík – ÍBV ....................................... 2:1
KA – FH.................................................... 1:0
ÍA – Valur.................................................. 1:2
Fylkir – KR............................................... 1:4
Staðan:
KR 14 10 3 1 29:14 33
Breiðablik 13 7 2 4 23:15 23
ÍA 14 6 4 4 20:16 22
Valur 14 6 2 6 25:21 20
Stjarnan 13 5 5 3 21:18 20
Fylkir 14 5 4 5 23:25 19
FH 14 5 4 5 18:21 19
HK 13 5 2 6 17:16 17
Grindavík 14 3 8 3 10:11 17
KA 14 5 1 8 19:22 16
Víkingur R. 13 2 7 4 18:21 13
ÍBV 14 1 2 11 11:34 5
Inkasso-deild karla
Magni – Fjölnir ........................................ 1:3
Guðni Sigþórsson 52. – Jón Gísli Ström 56.,
Guðmundur Karl Guðmundsson 60., Hans
Viktor Guðmundsson 86.
Staðan:
Fjölnir 14 10 2 2 32:13 32
Þór 14 8 3 3 24:14 27
Grótta 14 7 5 2 28:19 26
Leiknir R. 14 8 0 6 25:21 24
Víkingur Ó. 14 6 4 4 15:11 22
Fram 14 6 2 6 20:22 20
Keflavík 14 5 4 5 18:17 19
Þróttur R. 14 5 3 6 27:19 18
Haukar 14 3 5 6 19:26 14
Afturelding 14 4 1 9 17:29 13
Njarðvík 14 3 1 10 15:27 10
Magni 14 2 4 8 15:37 10
2. deild karla
Dalvík/Reynir – Þróttur V..................... 4:1
Viktor Daði Sævaldsson 42., Númi Kárason
44., Jóhann Örn Sigurjónsson 63., 74. –
Lassana Drame 71.
Þetta var fyrsti leikurinn á nýjum gervi-
grasvelli á Dalvík.
Völsungur – Kári ..................................... 3:0
Bjarki Baldvinsson 23., Ásgeir Kristjáns-
son 37., 63.
Vestri – Selfoss ........................................ 2:0
Gunnar Jónas Hauksson 50., Viktor Júl-
íusson 74.
Tindastóll – Fjarðabyggð....................... 2:2
Arnar Ólafsson 16., Kyen Nicholas 35. –
Milos Vasiljevic 19., Gonzalo Bernaldo 80.
Staðan:
Leiknir F. 13 7 4 2 25:14 25
Vestri 13 8 0 5 17:17 24
Selfoss 13 7 2 4 29:15 23
Dalvík/Reynir 13 5 6 2 20:15 21
Völsungur 13 6 2 5 16:16 20
Víðir 13 6 1 6 20:18 19
Þróttur V. 13 5 4 4 19:21 19
Fjarðabyggð 13 5 3 5 21:19 18
ÍR 13 5 3 5 19:18 18
KFG 13 5 0 8 23:28 15
Kári 13 3 2 8 23:32 11
Tindastóll 13 1 3 9 12:31 6
Belgía
Anderlecht – Oostende ........................... 1:2
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Oostende.
KNATTSPYRNA
Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, byrj-
ar vel með sínu nýja félagi, Oostende, í belgísku A-
deildinni en liðið vann mjög óvæntan útisigur í fyrstu
umferðinni í gær.
Oostende sótti stórlið Anderlecht heim til Brussel en
þar var Vincent Kompany í byrjunarliði Anderlecht, í
sínum fyrsta leik frá því hann tók þar við sem knatt-
spyrnustjóri uppeldisfélagsins eftir gæfuríkan feril með
Manchester City á Englandi. Þá kom Samir Nasri, fyrr-
verandi leikmaður City, inn á sem varamaður í fyrsta
leik sínum með Anderlecht.
Oostende vann leikinn 2:1, þrátt fyrir að hafa lent
undir snemma, og Fashion Sakala skoraði sigurmarkið seint í leiknum. Ari
lék allan leikinn með Oostende sem endaði í fjórtánda sæti af sextán liðum í
deildinni á síðasta tímabili.
Astana, lið Rúnars Más Sigurjónssonar, er á toppnum í Kasakstan þegar
leiknar hafa verið 20 umferðir af 33. Skagfirðingurinn var í byrjunarliðinu
og lagði upp mark þegar Astana vann 4:0 stórsigur á Taraz á heimavelli.
Liðið verður á ferðinni í Evrópudeildinni í vikunni.
Óvænt úrslit í fyrsta leik Ara
Ari Freyr
Skúlason
ÁRBÆR/AKRANES/
AKUREYRI/GRINDAVÍK
Jóhann Ólafsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Baldvin Kári Magnússon
Björn Már Ólafsson
KR-ingar eru eflaust farnir að
skipuleggja fögnuð á Rauða ljóninu
nú þegar fátt virðist geta komið í veg
fyrir að liðið verði Íslandsmeistari í
knattspyrnu karla. Vesturbæingar
sigruðu Fylki 4:1 á útivelli í gær í 14.
umferð Pepsi-Max deildarinnar og
eru með tíu stiga forskot á Breiða-
blik, sem mætir Víkingi í kvöld.
Leikurinn á rennblautum gervi-
grasvellinum í Árbænum í gærkvöld
var hálf furðulegur. KR-ingar voru
með 3:0-forystu að loknum fyrri
hálfleik en samt var mikið jafnræði
með liðunum en gestirnir nýttu sínar
sóknir afar vel.
Fyrri hálfleikurinn kristallar
kannski gengi KR í sumar. Oft hefur
verið sagt eftir leiki að þeir hafi ekki
spilað neitt sérstaklega vel en þeir
vinna flesta leiki og virðast vita upp
á hár hvernig á að spila gegn mót-
herjum sínum hverju sinni.
Kristinn Jónsson var þeirra
sprækastur en bakvörðurinn knái
skoraði mark og lagði upp. Hann
minnir óneitanlega á Guðmund
Reyni „Messi“ Gunnarsson þegar
þessi hamur er á honum.
Síðustu leikir KR og Fylkis hafa
verið hálfgerð stríð og þessi leikur
var engin undantekning. Það væri
gaman að sjá hversu mikið boltinn
var í leik fyrstu 45 mínúturnar en
leikmenn liðanna lágu til skiptis í
grasinu eftir nokkuð hressilegar
tæklingar. Erlendur Eiríksson,
dómari leiksins, gerði vel í að halda
stjórn á leiknum en óreyndur dóm-
ari hefði auðveldlega getað misst öll
tök. Erlendur veifaði gula spjaldinu
tíu sinnum en það er í raun ákveðið
rannsóknarefni að hann hafi ekki
þurft að veifa gula spjaldinu tvívegis
í átt að einhverjum leikmannanna.
Fylkismenn misstu af tækifæri til
að komast upp fyrir Stjörnuna og
FH og gera sig gildandi í baráttunni
um Evrópusæti. Kolbeinn Birgir
Finnsson var þeirra sprækastur en
þetta var síðasti leikur hans í Ár-
bænum áður en hann heldur aftur til
Brentford, þaðan sem hann kom á
láni. johann@mbl.is
Valur upp í fjórða sæti
Valur fór upp fyrir þrjú lið með
2:1-sigri á ÍA í jöfnum og spennandi
leik á Akranesi. Það er löngu búið að
sanna hversu mikilvægur Patrck
Pedersen er Valsmönnum og hann
sýndi það enn og aftur í gær. Daninn
náði í vítaspyrnu í seinni hálfleik og
skoraði sigurmarkið sjálfur af
punktinum. Fram af því hafði hann
ekki verið áberandi, en bestu fram-
herjarnir skora sigurmörk, líka þeg-
ar blæs á móti.
Eins og oft áður í sumar, bökkuðu
Valsmenn töluvert í góðri stöðu und-
ir lokin. Með smá heppni hefði ÍA
getað skorað jöfnunarmark, en það
vantaði örlítið meiri gæði fyrir fram-
an markið, einhvern eins og Patrick
Pedersen. Skagamenn voru hund-
svekktir eftir leikinn, enda mjög lítið
sem skildi liðin af í mikilvægum leik í
Evrópubaráttunni.
Enn nær
titlinum eftir
furðuleik
KR var 3:0 yfir eftir jafnan fyrri hálf-
leik í Árbæ og forystan er orðin 10 stig
0:1 Sigurður Egill Lárusson 16.
1:1 Hallur Flosason 25.
1:2 Patrick Pedersen 69.
I Gul spjöldAlbert Hafsteinsson, Tryggvi
Hrafn Haraldsson, Arnar Már Guð-
jónsson og Viktor Jónsson (ÍA),
Bjarni Ólafur Eiríksson (Val).
Dómari: Helgi M. Jónasson, 7.
Áhorfendur: 852.
ÍA – VALUR 1:2
M
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Aron Kristófer Lárusson (ÍA)
Hallur Flosason (ÍA)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Orri Sigurður Ómarsson (Val)
0:1 Pablo Punyed 5.
0:2 Arnþór Ingi Kristinsson 35.
0:3 Kristinn Jónsson 39.
1:3 Orri Sveinn Stefánsson 66.
1:4 Tobias Thomsen 90.
I Gul spjöldDaði Ólafsson, Geoffrey Ca-
stillion, Ólafur Ingi Skúlason, Orri
Sveinn og Kolbeinn Finnsson (Fylki),
Beitir Ólafsson, Tobias Thomsen,
Pablo Punyed, Arnór S. Að-
alsteinsson og Arnþór Ingi Krist-
insson (KR).
Dómari: Erlendur Eiríksson, 8.
FYLKIR – KR 1:4
Áhorfendur: 1.787.
MM
Kristinn Jónsson (KR)
M
Kolbeinn Birgir Finnsson (Fylki)
Sam Hewson (Fylki)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Finnur Tómas Pálmason (KR)
Arnþór Ingi Kristinsson (KR)
Pablo Punyed (KR)
Tobias Thomsen (KR)