Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Lariat 35” Litur: Ruby red/ gray, svartur að innan. 6-manna bíll. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. 35” dekk. Með FX4 off-road pakka, quad beam headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 10.990.000 m.vsk 2019 F-350 Limited 35” breyttur Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20” felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top- pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð- aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.490.000 m.vsk »Kvartett djass- söngkonunnar Re- bekku Blöndal skemmti gestum á hinum sívin- sælu sumartónleikum Jómfrúarinnar við Lækjargötu á laugar- dag. Með henni léku Ás- geir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthías- son á bassa og Þórdís Classen á trommur. Kvartett Rebekku Blöndal lék djass á Jómfrúartónleikum Morgunblaðið/Hari Augnablik Ljósmyndarinn fangaði mynd af félögum vistaða í minni síma. Hlusta Gestir á ólíkum aldri mættu á laugardagstónleika Jómfrúarinnar og nutu djassins. Rebekka og félagar fluttu standarda með sínum hætti. Í sveiflu Rebekka Blöndal og meðleikarar hennar, Ásgeir Ásgeirsson, Þórdís Classen og Sigmar Þór Matthíasson. Spennusagan Líkið í kirkju-garðinum eftir Fritz MáJörgensson er að sumuleyti óvenjuleg glæpasaga, þar sem húmor og guðdómur bland- ast alvarlegum glæpum. Prestar eru sjaldan í hringiðu glæpa en höfundur bókarinnar til- heyrir stéttinni og því er hann á heimavelli. Hann er samt ekki fastur í kirkj- unnar störfum og lætur ýmislegt flakka sem vart heyrist á vinnu- staðnum. Sagan hefst á morði og hægt og sígandi vindur það upp á sig. Sig- rún Jóhannesdóttir prestur hefur á tilfinningunni að fylgst sé með henni, Guðrún Björk Sturlaugs- dóttir er mikilvægt vitni, sem ekki næst í þegar á þarf að halda, en leiðir þeirra liggja saman, þegar spennan nær hámarki. Sigrún er miðpunktur frásagn- arinnar. Ekki aðeins á hún við elti- hrelli að stríða heldur á hún í mikilli innri baráttu. Óafvitandi stendur hún frammi fyrir baráttu um líf eða dauða en hennar er að taka ákvörð- un um framhald á sambandi við Sigurð háskólakennara. Guð svífur yfir vötnunum og ró fylgir atburðarásinni, þrátt fyrir al- varleika málsins. Það rignir jafnt yfir réttláta sem rangláta og því til sönnunar eru Sigrún og öfugugginn bæði í liði með Guði. Þegar málið fer loks almennilega af stað eykst hraðinn og allt í einu virðist sem presturinn og vitnið séu að ganga út í opinn dauðann. Þá er hætt við að einhver missi slag. Þrátt fyrir að sagan sé lengi hæg og lesa megi á milli línanna hver sé sökudólgurinn áður en komið er inn í miðju frásagnarinnar eru nokkrir góðir sprettir. Á þeim getur höf- undur byggt í framhaldinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvenjuleg Spennusagan Líkið í kirkjugarðinum eftir Fritz Má Jörgensson er að sumu leyti óvenjuleg glæpasaga, þar sem húmor og guðdómur bland- ast alvarlegum glæpum, segir í rýni um bók Fritz Más. Treyst á guð og lukkuna Spennusaga Líkið í kirkjugarðinum bbbnn Eftir Fritz Má Jörgensson. Ugla, 2019. Kilja, 267 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Rithöfundurinn George R.R. Mart- in hyggst ekki breyta endi Krúnu- leikanna (Game of Thrones) þrátt fyrir skriflega áskorun þess efnis frá 1,5 milljón aðdáenda. Þetta kemur fram í viðtali við Martin í Entertainment Weekly. Sjónvarpsþáttaröðin rann sitt skeið í maí og féllu lokin ekki að smekk allra. Vonsviknir aðdá- endur hófu undirskriftasöfnuð á netinu í von um að fá Martin til að breyta endinum í væntanlegum bókum sínum. Sjónvarps- þáttaröðin byggist á vinsælum bókaflokki Martin, en tók fram úr bókunum sem þýðir að hann á eft- ir að skrifa síð- ustu tvær bækur flokksins sem verða samhljóða sjónvarps- þáttaröðinni. „Það hefði verið freistandi [að breyta fram- vindunni], en jafnframt rangt. Ég ætla að skrifa bækurnar sem ávallt stóð til og þegar þær koma út verður fólki bara að finnast það sem það vill um þær.“ Átta ár eru síðan Martin sendi frá sér síðustu bók sína sem nefn- ist Dansað með drekum, en hún er fimmta bókin af sjö í flokknum um Krúnuleikana. Bókin kom út stuttu áður en samnefnd sjón- varpsþáttaröð hóf göngu sína á HBO. Í viðtalinu segist hann árum saman hafa fundið fyrir pressu um að klára síðustu tvær bæk- urnar og sífellt verið í kapphlaupi við sjónvarpsútgáfuna. „Nú er engin pressa lengur og ég þarf ekki að keppast við að klára skrif- in sem fyrst, heldur get ég vandað til verka. Serían er búin. Ég skrifa bækurnar og þegar þær eru tilbúnar þá eru þær tilbúnar.“ Hyggst ekki breyta endinum George R. R. Martin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.