Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 32
Finnska söngkonan Mirja Klippel
og danski gítarleikarinn Alex Jøns-
son halda tónleika í Norræna hús-
inu á miðvikudag kl. 21. Klippel
vann til verðlauna fyrir lagasmið
ársins á dönsku tónlistarverðlaun-
unum 2016. „Það er ekki hægt að
mæla nógu mikið með Mirju Klip-
pel!“ skrifaði rýnir danska net-
tímaritsins Diskant um söngkon-
una.
Klippel og Jønsson
í Norræna húsinu
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 210. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
KR-ingar halda sínu striki í Pepsi
Max-deild karla í knattspyrnu og
unnu öruggan sigur á Fylki í Árbæn-
um í gær 4:1. Eftir fjórtán leiki er
útlitið afar gott hjá KR sem aðeins
hefur tapað einum leik og hefur nú
tíu stiga forskot á toppi deild-
arinnar á Breiðablik sem þó á leik
til góða. KR varð síðast meistari ár-
ið 2013 eða fyrir sex árum. »26-27
KR heldur sínu striki
og forskotið 10 stig
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Fylkiskonum hefur tekist að slíta
sig frá fallsvæðinu, í bili að minnsta
kosti, með tveimur sigrum í röð í
Pepsi Max-deildinni í knattspyrnu.
KR og Fylkir mættust í mikilvægum
leik í neðri hluta deildarinnar á KR-
vellinum í gær. Fylkir
hafði betur, 2:0, og er nú
þremur stigum fyrir ofan
KR og Keflavík.
Keflvíkingar heim-
sóttu Íslandsmeist-
arana í Breiðablik
og töpuðu 5:2.
Þór/KA burstaði
ÍBV 5:1 á Ak-
ureyri. »24
Tveir sigrar í röð
hjá Fylkiskonum
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Alheimsmót skáta fer nú fram í
Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum og
þar eru um 170 íslenskir skátar
staddir. Þróunaraðstoð, sýndarveru-
leiki, forritun, köfun og adrena-
línferðir með tveggja kílómetra ap-
arólu er meðal þess sem skátarnir
hafa tekið þátt í að undanförnu, en
samtals taka 55 þúsund skátar frá
öllum heimshornum þátt í mótinu.
Fékk að tala við geimfara
Íslenskur skáti, hinn 15 ára Guð-
jón Ingi Gerlach Jonathansson, fékk
að spjalla við geimfarann Andrew
Morgan, sem staddur er í Alþjóð-
legu geimstöðinni. Nafn hans og tíu
annarra skáta var dregið úr potti og
fengu þeir að tala við Morgan, sem
er fyrrverandi aðstoðarskátahöfð-
ingi á skátasvæði Houston. Mátti
hver um sig spyrja einnar spurn-
ingar og spurði Ingi Morgan hvort
hann þyrfti að drekka jafnmikið vatn
í geimnum eins og á jörðinni. Þá
svaraði Morgan að hann þyrfti að
drekka um tvo lítra af vatni á dag og
hann þyrfti að skrá niður hversu
mikinn vökva hann drykki og hve-
nær.
Hinn 16 ára Ernir Jónsson úr
skátafélaginu Kópum er staddur á
mótinu og er hæstánægður. „Það er
frábært að mæta hérna með Kópum
og kynnast nýju fólki og nýjum
menningarheimnum. Svo er mjög
gaman að sjá hvað er í boði hérna í
Bandaríkjunum, þetta er bara frá-
bær staður,“ sagði hann. Spurður
hvað hafi staðið upp úr á mótinu, enn
sem komið er, segir hann: „Stóra
aparólan sem við tókum. Síðan klifr-
uðum við og fórum í langa fjall-
göngu,“ sagði hann.
Íslendingum á svæðinu er skipt
upp í hóp starfsmanna og fjóra hópa
þátttakenda, sem eru á aldrinum 14
til 18 ára; Hugin, Munin, Garm og
Sleipni.
„Við erum ekki endilega öll saman
alltaf en öðru hverju hittumst við
saman sem hópar og tölum um mót-
ið,“ sagði Ernir.
Allir skátarnir gista í tveggja
manna tjöldum á stóru tjaldsvæði,
sem er skipt upp í nokkur svæði.
„Þetta er allt risastórt tjaldsvæði.
Við erum svo lítill hópur hérna í
Muninn, svo að við deilum svæði
með nágrönnum okkar frá Svíþjóð,“
sagði Ernir.
Mótið var sett í 24. sinn 21. júlí
síðastliðinn og stendur yfir þar til
næsta föstudag. Að sögn Guðjóns
Rúnars Sveinssonar fararstjóra er
gleðin í fyrirrúmi á mótinu, skátar
sýni og sanni að þjóðerni skipti ekki
máli og allir geti skemmt sér og not-
ið lífsins við leik og störf.
„Þetta gekk framar vonum og
menn hafa verið að skemmta sér al-
veg gífurlega,“ sagði Guðjón.
Hann segir að tekið sé á öllum
hliðum mannlífsins á mótinu, sér í
lagi umhverfismálum.
Alheimsmót Um 55 þúsund skátar frá 152 þjóðum taka þátt í alheimsmóti skáta, þar af um 170 frá Íslandi.
Skátar hvaðanæva
Alheimsmót skáta í Bandaríkjunum Íslenskur skáti
datt í lukkupottinn og fékk að spjalla við geimfara
Skáti Guðjón Ingi Gerlach Jona-
thansson fékk að tala við geimfara.