Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 2

Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019FRÉTTIR Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) HEIMA -5,65% 1,17 ICEAIR +3,26% 9,19 S&P 500 NASDAQ +0,29% 8.262,328 +0,21% 3.009,83 +2,11% 7.646,77 FTSE 100 NIKKEI 225 31.1.‘19 31.1.‘1930.7.‘19 1.700 80 1.812,35 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 64,18 -0,22% 21.709,31 61,89 40 2.100 30.7.‘19 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 1.909,85 FJÁRFESTINGAR Engar fjárfestingar liggja fyrir hjá bandarísku athafnakonunni Michele Ballarin í íslensku fyrirtækjunum Sóley Organics og Omnom. Þetta herma heimildir ViðskiptaMoggans en enn er þó ekki loku fyrir það skot- ið að af fjárfestingunum verði. Allt sé óljóst í þeim efnum. Í ítarlegu við- tali við ViðskiptaMoggann í síðustu viku opinberaði Ballarin áhuga sinn á að fjárfesta í húðvörunum frá Sól- ey Organics og súkkulaðiframleið- andanum Omnom. Í viðtalinu taldi hún þær vörur eiga mikla möguleika á Bandaríkjamarkaði, með þátttöku fyrirtækja sem hún tengist sjálf þar í landi. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur kaupum Ballarin á eignum úr þrotabúi WOW air verið rift. Ástæðan mun vera að síendur- tekið hafi dregist að inna af hendi fyrstu greiðslu samkvæmt kaup- samningi. peturh@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjárfestirinn Michele Ballarin hefur áhuga á Omnom og Sóley Organics. Óvíst hvort verði af fjár- festingum „Ég get staðfest að ég nýtti, ásamt eiginmanni mínum, fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands þann 15. febrúar 2012. Það var hins vegar áður en ég kom til starfa í bankanum. Það gerði ég ekki fyrr en 20. apríl þetta sama ár og tók þá við öllum verkefnum fram- kvæmdastjóra fjármálastöð- ugleikasviðs.“ Þetta segir Sigríð- ur Benedikts- dóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Seðlabanka Íslands. Hún og eig- inmaður hennar fluttu 15 þúsund evr- ur til landsins fyrrnefndan febrúardag á grundvelli sérstakra reglna sem gerðu fólki kleift að flytja erlendan gjaldeyri til landsins og kaupa fyrir hann krónur á verulegum afslætti. Morgunblaðið greindi frá því á mánudag að 7. febrúar 2012 hafi Már Guðmundsson seðlabankastjóri sett reglur sem lögðu bann við því að til- greindur hópur starfsmanna bank- ans, ásamt mökum og börnum þeirra, nýttu sér fjárfestingarleiðina. Í þeim hópi var tilgreind staða sú sem Sig- ríður gegndi á þeim tíma þegar hún nýtti sér fjárfestingarleiðina. Það gerðist átta dögum eftir að reglurnar voru settar. Skipuð frá 1. janúar 2012 Þrátt fyrir að Sigríður hafi ekki komið til starfa í Seðlabankanum fyrr en í síðari hluta aprílmánaðar gilti skipun hennar samkvæmt upplýs- ingum Seðlabankans frá 1. janúar 2012 eða rúmum einum og hálfum mánuði áður en hún tók þátt í útboð- inu. Á síðustu dögum hefur Morg- unblaðið kallað eftir upplýsingum um hvort einhverjir starfsmenn Seðla- bankans, sem féllu undir fyrrnefndar reglur seðlabankastjóra, hefðu nýtt sér fjárfestingarleið bankans. Tvíveg- is hefur það komið fram í svörum bankans að ekki séu „dæmi um að starfsmönnum bankans hafi verið heimiluð þátttaka í fjárfestingarleið Seðlabankans sem höfðu eða gátu haft upplýsingar um áætlun um losun fjármagnshafta eða upplýsingar um útfærslu og framkvæmd gjaldeyr- isútboða og fjárfestingarleiðar bank- ans“. Þegar ViðskiptaMogginn bar fyr- irspurn undir Seðlabankann þess efn- is hvort Sigríður Benediktsdóttir, þá framkvæmdastjóri fjármálastöð- ugleikasviðs bankans, hafi tekið þátt í fjárfestingarleiðinni, bar bankinn við ákvæðum laga um þagnarskyldu sem finna má í lögum um Seðlabanka Ís- lands. Launatekjur erlendis frá Í samtali við ViðskiptaMoggann í gær sagði Sigríður mikilvægt að fram kæmi að fjármagnið sem hún hefði flutt til landsins á grundvelli fjárfest- ingarleiðarinnar hefði átt uppruna sinn erlendis. „Þetta voru sannarlega launa- tekjur mínar og eiginmanns míns enda höfðum við búið erlendis frá því sumarið 1998.“ Ítrekar hún einnig að tekjur sem hún hafði af stunda- kennslu við HR og störf í þágu rann- sóknarnefndar Alþingis, sem stofnað var til í kjölfar bankahrunsins, hafi aldrei verið fluttar úr landi. „Þá finnst mér einnig mikilvægt að komi fram að við seldum heimili okk- ar í Bandaríkjunum sumarið 2013 og fluttum þá peninga heim með sam- þykki regluvarðar Seðlabanka Ís- lands gegnum innlendan gjaldeyr- ismarkað í fullu samræmi við reglur bankans. Þeir fjármunir og þeir sem við fluttum inn í febrúar 2012 eru enn uppistaðan í eigin fé í heimili fjöl- skyldunnar á Íslandi.“ Nýtti fjárfestingarleiðina eftir að reglur tóku gildi Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Átta dögum eftir að reglur, sem settu hömlur á þátt- töku starfsmanna Seðla- bankans í hinni svokölluðu fjárfestingarleið tóku gildi, nýtti nýskipaður fram- kvæmdastjóri fjármála- stöðugleikasviðs bankans sér leiðina. Morgunblaðið/Ómar Fjárfestingarleið Seðlabankans var virk frá ársbyrjun 2012 til febrúar 2015. Sigríður Benediktsdóttir VEITINGAGEIRINN Hagnaður veitingastaðanna Local og Serrano dróst verulega saman milli ára. Þetta kemur fram í ársreikn- ingum fyrirtækjanna fyrir árið 2018. Þrátt fyrir minni hagnað jukust rekstrartekjur beggja veitingastaða á árinu. Hjá Serrano var hagnaður af rekstri ársins ríflega 11 milljónir króna samanborið við ríflega 38 milljónir króna árið 2017. Rekstrartekjur jukust um ríflega 23 milljónir króna milli ára og námu 943.965.306 kr. í fyrra. Árið áður höfðu tekjurnar verið 920.453.695 kr. Fyrirtækið jók þar að auki framlegð sína um ríflega 30 milljónir króna milli ára. Gríðarleg aukning launa og launatengdra gjalda varð þó til þess að hagnaður Serrano dróst saman. Eigið fé félagsins í lok árs var rúmar 55 milljónir og lækkaði um tæplega 30 milljónir króna milli ára. Það má rekja til greiðslu arðs upp á 40 milljónir króna. Samtals hefur fyrirtækið nú greitt 167 milljónir króna í arð til hluthafa á síðustu fjór- um árum. Rekstur Local svipar mjög til þess sem uppi er á teningnum hjá Serr- ano þó að fyrirtækið sé talsvert smærra í sniðum. Rekstrartekjur ársins jukust um nær 20 milljónir króna milli ára og námu 369.566.358 kr. í fyrra. Þá skilaði fyrirtækið hagnaði upp á 5.754.092 kr. á síðasta ári og dróst hann saman um rétt tæpar þrjár milljónir króna. Eins og hjá Serrano munaði þar mestu um aukin útgjöld vegna launa og launa- tengdra gjalda. Að því er fram kemur í ársreikn- ingnum var eigið fé Local neikvætt um 12.323.234 kr. í fyrra. Þyngri rekstur hjá Local og Serrano Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rekstur Serrano gekk ekki eins vel á síðasta ári og árin þar á undan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.